Fréttablaðið - 26.07.2019, Síða 26

Fréttablaðið - 26.07.2019, Síða 26
 Ég hvet sem flesta til að drífa sig út og hreyfa sig, sama hvaða hreyfing hentar, hún er alltaf af hinu góða og kemur sér alltaf vel. Oddur Freyr Þorsteinsson oddurfreyr@frettabladid.is 6 KYNNINGARBLAÐ 2 6 . J Ú L Í 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U RMARAÞON Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingkona í Norðausturkjör-dæmi og formaður þing- flokks Vinstri grænna, byrjaði að stunda hlaup sér til heilsubótar vorið 2016, en áður hafði hún aldr- ei stundað markvissa hreyfingu. Hún sat mikið vegna vinnu sinnar og fannst hún þurfa að gera eitt- hvað, svo hún ákvað að prófa að fara að hlaupa. „Ég hélt að ég gæti þetta ekki, ég var búin að vera stíf í skrokknum og slæm í bakinu lengi. En ég fór að paufast við þetta og fannst þetta ótrúlega skemmtilegt og gott við stirðleika, svo ég hélt áfram,“ segir Bjarkey. „Ég fór þrjá og hálfan kíló- metra fyrst, en til að byrja með gat Allir geta byrjað að hlaupa Bjarkey tók þátt TVG Zimsen hlaupinu í Grímsey, sem er rúmir tólf kílómetrar. Bjarkey skrá- setur hlaupin sín í sveitinni með snjallúri og snjallsímafor- ritum. Núna hleypur Bjarkey að minnsta kosti þrisvar í viku og er farin að bæta hjólatúrum við. Þingkonan Bjark- ey Olsen Gunn- arsdóttir byrjaði að hlaupa vorið 2016 heilsunnar vegna, en þá hafði hún ekki hreyft sig árum saman. Í dag hleypur hún að jafnaði þrisvar í viku og segir að aðalmálið sé að drífa sig af stað. ég lítið hlaupið, svo ég rölti bara inn á milli. Núna hleyp ég a.m.k þrisvar í viku og ég er líka farin að hjóla af og til.“ Ekki mikil keppnistýpa „Eftir að hafa hlaupið í tæplega tvo mánuði dró bróðir minn mig með sér í Stjörnuhlaupið, sem er árlegt 10 km hlaup. Það var ótrúlega gaman og varð mér hvatning til að halda áfram,“ segir Bjarkey. „Svo var ég líka „dobluð“ í TVG Zimsen hlaup í Grímsey sem er rúmir tólf kílómetrar. Það er lengsta keppnis- hlaup sem ég hef tekið þátt í, en ég stefni ekki á að stunda langhlaup. Ég er hins vegar að prófa mig áfram í utanvegahlaupi. Fyrst og fremst er ég bara að hlaupa til að viðhalda heilsunni og hafa gaman, ég er ekki mikil keppnistýpa.“ Bjarkey hefur áður tekið þátt í 10 km hlaupinu í Reykjavíkur- maraþoninu en segist ekki vera búin að ákveða hvort hún tekur þátt í ár. „Það fer eftir því hvar ég verð á landinu. En ef ég tek þátt þá fer ég 10 kílómetra,“ segir hún. „Ég hef líka gælt við að taka einhvern tímann hálfmaraþon og maður er alltaf að hugsa um það, svo á eftir að koma í ljós hvað verður. Ég hleyp alltaf ein, sem mér finnst gott,“ segir Bjarkey. „En ef maður vill bæta tímann sinn og vinna sig upp held ég að það sé gott að vera í hópi, hann togar mann áfram. Ég hef bara ekki verið mikið í því.“ Útiveran er það besta Bjarkey segir að útiveran sé það besta við hlaupin. „Það er svo gott að vera úti í náttúrunni. Ég fer heim í Ólafsfjörð um hverja helgi og þá er maður kominn út í nátt- úruna eftir 200 metra hlaup. Það er mjög hressandi,“ segir hún. „Ég er líka alltaf með hlaupagallann með mér, hvert sem ég fer, og maður virðir borgir og bæi allt öðruvísi fyrir sér þegar maður er að hlaupa. Mér finnst best að hlaupa í sveitinni heima í Ólafsfirði,“ segir Bjarkey. „Það er skemmtileg blanda af götuhlaupi og utanvega- hlaupi. Mér finnst þessi fjölbreytni skemmtileg og það er sjálfsagt auðvelt að blanda þessu saman í f lestum minni byggðarlögum.“ Hún segir að veðrið hafi sjaldan áhrif á hlaupin. „Það er sjaldan eitthvað sem stoppar mann í Reykjavík, en á Ólafsfirði þarf ég stundum að setja undir mig brodd- ana og hlaupa á þeim í hálku,“ segir Bjarkey. „Nóg á maður af útivistar- fatnaði, þannig að maður klæðir sig bara eftir veðri og hleypur kannski aðeins styttra í verri veðrum. En ég dríf mig alltaf út.“ Skiptir öllu að drífa sig út Bjarkey segir að ef fólk hafi áhuga á að byrja að hlaupa sé mikilvægast að kaupa góða skó. „Ég fór í göngu- greiningu og keypti svo skó, það reyndist mér ótrúlega vel,“ segir hún. „Ég nota líka Garmin úr, sem gefur mér alls kyns gagnlegar upp- lýsingar um hlaupin. Svo nota ég líka snjallsímaforritin Endomondo og Strava. Ég tengi bara úrið við símann og mér finnst þetta gagn- legt. Þetta er líka gaman fyrir þá sem hafa alvarlegri dellur, það er hægt að fá alls konar aukabúnað og tengja þetta líka við hjólið og svona.“ En það mikilvægasta, segir Bjarkey, er að drífa sig af stað og gera þetta. „Þó maður geti lítið hlaupið, það er mikilvægt að reyna og það er þá hægt að labba ef það er of erfitt að hlaupa,“ segir hún. „Þannig býr maður líka til rútínu. Mér hefur líka alltaf þótt mikilvægt að teygja vel og það er verðmætt að viðhalda teygjanleik- anum þegar maður eldist. Ég hvet sem flesta til að drífa sig út og hreyfa sig, sama hvaða hreyfing hentar, hún er alltaf af hinu góða og kemur sér alltaf vel,“ segir Bjarkey. „Þetta er vel hægt, þó maður sé að byrja frá grunni, eins og ég.“ Trönuhrauni 8, 220 Hafnarrrði | www.stod.is CEP hágæða íþróttasokkar með þrýstingi. • Auka blóððæði og súrefnisupptöku. • Styðja við vöðva og liðamót. • Hraða endurheimt. • Draga úr líkum á meiðslum. Henta vel í • Hjólreiðar • Hlaup • Íþróttir • Útivist Bólstrun á álagssvæðum ver fætur og eykur endingu. 2 6 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :1 0 F B 0 5 6 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 7 9 -E 0 2 0 2 3 7 9 -D E E 4 2 3 7 9 -D D A 8 2 3 7 9 -D C 6 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 5 6 s _ 2 5 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.