Fréttablaðið - 26.07.2019, Page 29
XXXXXXXXXXXXXXXXXXXXKYNNINGARBLAÐ 9 F Ö S T U DAG U R 2 6 . J Ú L Í 2 0 1 9 MARAÞON
Hlynur Andr-
ésson á flest
Íslandsmet í
hlaupum eða alls
9 talsins. Hann
æfir og keppir í
skóm frá Brooks
sem fást hjá Eins
og fætur toga.
Ég á f lest Íslandsmet í hlaup-um í dag. Nema í maraþoni og hálfmaraþoni. Ég er enn
þá að vinna í því,“ segir Hlynur.
„Ég var að setja met í 5.000 metra
hlaupi núna síðasta laugardag.
Ég á líka metið í 10 kílómetra
götu og 10 kílómetra braut og
3.000 metra hindrun. Ég held að
Íslandsmetin sem ég á núna séu
orðin níu.“
Hlynur byrjaði að hlaupa þegar
hann fór til Bandaríkjanna sem
skiptinemi. „Þá lenti ég í því að
prófa víðavangshlaup, sem er
mikið stundað í menntaskólum
í Bandaríkjunum. Þá kom þessi
hlaupahæfileiki f ljótt í ljós. Þetta
var árið 2011,“ segir hann.
Síðan Hlynur byrjaði að hlaupa
eru því liðin átta ár. „Það tók smá
tíma að komast á það stig sem
ég er á núna. En núna, ef ég bæti
mig í einhverri grein, þá er það
yfirleitt Íslandsmet. Þegar þú ert
kominn lengra en aðrir íslenskir
hlauparar hafa komist þá ertu
eiginlega að setja met í hvert sinn
sem þú bætir þig,“ útskýrir hann.
Þar sem möguleikinn á
atvinnumennsku í hlaupum
er ekki mikill á Íslandi þá býr
Hlynur og æfir í Hollandi. „Það er
bara ekki nógu mikil samkeppni
á Íslandi, ekki nógu mikið af pen-
ingaverðlaunum í boði í hlaupum
og ekki nógu gott veður. Ég er
með þjálfara hér úti og er ekki
eini Íslendingurinn. Aníta Hin-
riksdóttir er hérna líka þannig að
við erum tvö,“ segir Hlynur.
Fannst Brooks langbestir
Hlynur hefur hlaupið í fatnaði
og skóm frá Brooks og verið því
í samstarfi við fyrirtækið Eins
og fætur toga sem selur þessar
vörur. „Þegar ég kom heim frá
Bandaríkjunum, eftir að hafa
verið skiptinemi, þá var ég búinn
að vera að prófa ýmsa hlaupaskó
og mér fannst Brooks skórnir
langbestir. Ég fór þess vegna bara
í umboðið á Íslandi og þau tóku
vel í að hjálpa mér svolítið. Ég
fékk gefins föt og skó og afsláttar-
kóða og ýmislegt,“ útskýrir
Hlynur spurður að því hvernig
samstarfið við Eins og fætur toga
hófst.
„Eftir að ég varð betri og
betri sýndu þau meiri áhuga
á að aðstoða mig. Þegar Lýður
hjá Eins og fætur toga tók við
Brooks vörumerkinu á Íslandi þá
settumst við niður og töluðum
saman. Það var eftir að ég kláraði
háskólanám í Bandaríkjunum í
haust. Lýður vill reyna að hjálpa
mér að komast á Ólympíuleikana
2020 svo ég fæ aðstoð frá fyrir-
tækinu. Þetta er f lott samstarf
sem báðir aðilar fá eitthvað út
úr. Það er rosa gott að hafa svona
stuðning því ef þú notar eitt
skópar á mánuði þá eru þetta
12 skópör á ári, sem er svolítið
mikið.
Stefnir á Ólympíuleikana
Næst á dagskrá hjá Hlyni er að
keppa í Reykjavíkurmaraþoninu.
Þar ætlar hann að hlaupa hálft
maraþon. Hann segist ætla að
geyma heilt maraþon fram að
næsta ári. Aðspurður hvort
hann ætli þá að ná Íslandsmeti
í hálfmaraþoni hlær hann og
segist ekki reikna með því. „Það
er svolítið erfitt að setja met
á Íslandi því það þarf að vera
góð samkeppni til að setja met í
hlaupum. En ég ætla að gera mitt
besta og vonandi bæta eigin tíma.
Vonandi verður brautin bara rétt
mæld í ár. Það gerðist í fyrra að
hún var rangt mæld og allir tímar
í maraþoni og hálfmaraþoni voru
ógildir. Það var frekar leiðinlegt.“
Eftir Reykjavíkurmaraþonið
ætlar Hlynur að taka sér frí frá
hlaupum í eina til tvær vikur. Svo
er stefnan að byggja sig upp aftur
fyrir haustið og keppa eitthvað í
götuhlaupum í haust. „En núna
snýst allt um næsta ár, sem er
ólympískt ár, og um Ólympíu-
leikana 2020.“
Að lokum hvetur Hlynur fólk
til að skrá sig í Reykjavíkurmara-
þonið. „Og ef þig vantar fatnað
eða skó, kíktu þá í Eins og fætur
toga. Þau eru með besta stöffið.
Það er alveg klárt mál!“
Ef ég bæti mig er það
yfirleitt Íslandsmet
Hlynur byrjaði að æfa víðavangshlaup í Bandaríkjunum.Hlynur hleypur í Brooks skóm sem fást hjá Eins og fætur toga.
Hlynur hefur slegið hvert Íslands-
metið á fætur öðru.
Glycerin skórnir frá Brooks eru skórnir sem Hlynur notar.
2
6
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:1
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
7
9
-C
C
6
0
2
3
7
9
-C
B
2
4
2
3
7
9
-C
9
E
8
2
3
7
9
-C
8
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K