Fréttablaðið - 26.07.2019, Síða 32

Fréttablaðið - 26.07.2019, Síða 32
 Að hlaupa og ganga til skiptis er góð leið fyrir byrjendur til að koma sér í gang. Reyndir hlauparar nota þá aðferð líka til að bæta tímann sinn Sandra Guðrún Guðmundsdóttir sandragudrun@frettabladid.is Það er gott að hlaupa og ganga til skiptis. NORDICPHOTOS/GETTY 12 KYNNINGARBLAÐ 2 6 . J Ú L Í 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U RMARAÞON Til að byrja með er mikil-vægt að eiga þægilega skó. Það er ekki verra að fara í göngugreiningu og komast að því hvaða skór henta best. Gott er að hlaupaskór hafi góða dempun til að minnka líkur á meiðslum. Það er langbest að byrja rólega og ætla sér ekki of mikið í upphafi því þá eru meiri líkur á að gefast upp. Það getur verið gott að setja sér eitthvert takmark. Eins og að taka þátt í fimm kílómetra hlaupi, eða bara þriggja kíló- metra hlaupi. Svo er hægt að hafa hugann við það takmark þegar æft er. Að hlaupa og ganga til skiptis er góð leið fyrir byrjendur til að koma sér í gang. Reyndir hlaup- arar nota þá aðferð líka til að bæta tímann sinn og þeir ættu að vita um hvað þeir tala. Sem dæmi er hægt að ákveða vegalengd og byrja á að hlaupa í 10-30 sek- úndur og ganga svo rösklega í 1-2 mínútur og halda sig við þetta þar til vegalengdinni er lokið. Þegar reynsla er komin á þetta má auka tímann sem er hlaupið og minnka Best er að byrja rólega Hlaup eru góð leið til að komast í form og bæta líðan á allan hátt. Marga langar til að byrja að hlaupa en mikla það fyrir sér. En að byrja að hlaupa þarf alls ekki að vera svo erfitt. göngutímann um leið þar til hægt er að hlaupa mest alla leiðina. En það liggur ekkert á. Fólk gerir þetta bara á sínum eigin hraða. Fyrir þá sem hafa mjög lítið hreyft sig gæti borgað sig að byrja bara á röskri göngu áður en byrjað er að hlaupa. Ef fólk ætlar sér of mikið eru meiri líkur á að gefast upp. Gott er að búa til æfingaplan og halda sig við það. Ef ákveðið er fyrir fram hvenær á að hlaupa og hversu lengi eru minni líkur á að láta undan þeirri freistingu að leggjast bara í sófann og horfa á sjónvarpið eða hanga í tölvunni. Gott er að hafa hlaupin regluleg og alltaf á sama tíma dags. Þann- ig er búin til rútína sem gerir hlaupin að vana. Búðu til æfingaplan Það eru alls kyns smáforrit til fyrir snjallsíma sem eru með fyrirfram tilbúin æfingaplön sem hægt er að fylgja. Einnig er nóg úrval af slíku á netinu. En úrvalið er svo mikið að oft getur reynst erfitt að velja hvaða plani á að fylgja. Hér að neðan er einfalt plan sem auðvelt er að fylgja eftir Fólk getur svo aðlagað það eftir þörfum. • Æfið þrisvar í viku. • Hlaupið eða gangið í 20-30 mínútur tvisvar í viku. • Farið í lengri göngutúra í 40-60 mínútur einu sinni í viku um helgar. • Hvílið ykkur á frídögum. • Hlaupið ekki það hratt að þið getið ekki talað. • Takið reglulega hlé til að ganga. Byrjið hverja æfingu á upp- hitun. Til dæmis með því að gera teygju og styrktaræfingar. Þannig eykst blóðstreymi og súrefnis- f læði til vöðvanna. Eftir hverja æfingu er gott að teygja aftur á líkamanum. Þannig eykst liðleiki vöðva og tauga. Sérstaklega er mikilvægt að teygja á vöðvum sem liggja niður í fætur. Það eru vöðvar eins og rassvöðvar, kálfar og læri. Einnig er mikilvægt að gera styrktaræfingar fyrir fætur, bak og kvið og gott að bæta þeim strax inn í æfingaplanið. Gott er að verðlauna sig strax að lokinni æfingunni. Þannig tengir heilinn hlaupin við eitt- hvað jákvætt. Ef verðlaunin eru aftur á móti óhollur skyndibiti eða bland í poka þá er ekki víst að það sé líklegt til árangurs, betra er að fá sér hollan en góðan mat, slaka á í heitum potti. Leyfa sér að spila uppáhaldstölvuleikinn sinn eða hvað sem fólki kann að þykja eftirsóknarvert. Nærist vel Mataræði er lykilatriði vilji fólk ná árangri í hlaupum. Þess vegna er mjög mikilvægt að neyta góðrar næringar fyrir æfingu. Kolvetni eru mikilvægur orku- gjafi fyrir íþróttafólk. Gott er að fá sér kolvetni um það bil einni til tveimur klukkustundum fyrir æfingu. Það getur verið ávöxtur, eða grænmeti, skál af morgun- korni, gróf brauðsneið, brún hrísgrjón eða orkustöng. Einnig er mikilvægt að drekka vel fyrir æfingu. Ef lítill tími gefst til að borða fyrir æfingu er gott að fá sér ávöxt eins og epli eða banana fimm til tíu mínutum áður en æfingin hefst. Ekki er nauðsynlegt að borða á æfingum sem vara skemur en klukkutíma, en gott er að fá sér reglulega sopa af vatni á meðan á æfingu stendur. Að lokinni æfingu er gott að fylla á tankinn. Þá er enn og aftur mikilvægt að drekka vatn og borða kolvetni. Líkaminn brennir miklu af kolvetnum á æfingum og því er gott að fá sér aftur f lókin kolvetni að lokinni æfingu. Einn- ig er mikilvægt að fá sér prótein- ríkan mat að lokinni æfingu til að styrkja vöðvana. Íþróttavöruverslun Sundaborg 1 Sími 553 0700 NÆG BÍLASTÆÐI VIÐ VERSLUN Fylgdu okkur á Öll helstu merkin á einum stað Opnunartími Virka daga 11-18 Laugardaga 11-16 2 6 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :1 0 F B 0 5 6 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 7 9 -E 5 1 0 2 3 7 9 -E 3 D 4 2 3 7 9 -E 2 9 8 2 3 7 9 -E 1 5 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 5 6 s _ 2 5 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.