Fréttablaðið - 26.07.2019, Side 34

Fréttablaðið - 26.07.2019, Side 34
Ljósið hefur hjálp- að henni gríðar- lega í þessu ferli öllu og hefur nýtt sér þjónustu Ljóssins með góðum árangri. Ég setti mér söfn- unarmarkmið í byrjun en áður en ég vissi af var ég búin að safna tvöfalt þeirri upphæð. Ásta Eir Árnadóttir astaeir@frettabladid.is Æfingar hjá Hjálmari hafa ekki byrjað en hann fer fullur sjálfsstraust í hlaupið. MYND/AÐSEND Ýr er spennt að taka þátt í sínu fyrsta Reykjavíkurmaraþoni. HLEÐSLA EXTRA FACEBOOK.COM/HLEDSLA ENN MEIRA PRÓTEIN 14 KYNNINGARBLAÐ 2 6 . J Ú L Í 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U RMARAÞON Við fengum að kynnast þeim Hjálmari og Ýri aðeins betur og skyggnast inn í undir- búning þeirra fyrir hlaupið. Hver er Hjálmar Örn Jóhanns- son? Ég er 45 ára gamall Árbæingur, fjögurra barna faðir og fyrirliði Þróttar Old boys í fótbolta. Af hverju ákvaðst þú að hlaupa fyrir Ljósið? Tengdamamma mín greindist með krabbamein í mars og hefur verið í lyfjameðferð síðan þá. Ljósið hefur hjálpað henni gríðar- lega í þessu ferli öllu og hefur hún nýtt sér þjónustu Ljóssins með góðum árangri. Ég vil því gefa til baka til þeirra. Hvernig gengur undirbúningur- inn fyrir hlaupið? Ég er ekki enn byrjaður að æfa fyrir það, og það má segja að ég noti sömu taktík og ég notaði fyrir próf í menntaskóla. Það er að segja ég byrja bara rétt fyrir hlaupið að æfa en þess skal getið að ég féll tvisvar sinnum í menntaskóla og því spurning hvort þessi aðferð muni virka í þriðja skiptið. Hvernig hefur söfnunin gengið? Gríðarlega vel. Ég er kominn í 161.000 kr. En ef ég kemst í eina milljón þá ætla ég að hlaupa 10 kílómetra sem Hvítvínskonan. Hefur þú áður tekið þátt í Reykjavíkurmaraþoninu? Nei, en mig hefur alltaf langað til þess og þá aðallega vegna þess að þetta lítur út fyrir að vera svo skemmtilegt. Mikil stemning sem myndast fyrir og eftir hlaupið. Ég hlakka mest til að koma heim eftir tugi kílómetra og grilla og fagna með fjölskyldu og vinum. Stefnir þú á að hlaupa undir ákveðnum tíma? Bara njóta og hafa gaman eða eins og Hvítvínskonan myndi segja „munið að njóta, ekki þjóta“. Finnst mikilvægt að gefa til baka Hver er Ýr Sigþórsdóttir? Ég er 24 ára gömul og ég starfa hjá lögreglustjóranum á höfuð- borgarsvæðinu. Ég hef allta tíð verið mikil íþróttamanneskja og nýt þess að eyða tíma í alls konar útivist og hreyfingu. Af hverju ákvaðst þú að hlaupa fyrir Alzheimersamtökin? Ástæða þess að ég hleyp fyrir Alzheimersamtökin er sú að faðir minn greindist með Lewy sjúkdóminn í fyrra, aðeins 55 ára gamall. Mig langar að vekja athygli á málefnum ungra einstaklinga sem greinast með heilabilunar- sjúkdóma en lítið er um úrræði fyrir þá. Hafa samtökin reynst þér og þinni fjölskyldu vel? Já, samtökin hafa reynst okkur fjölskyldunni mjög vel þar sem margs konar þjónustu er þar hægt að fá. Ég vona innilega að samtökin haldi áfram að vaxa og að málefni fólks með snemmkomna heila- bilun verði sett í forgang. Hvernig gengur undirbúningur- inn fyrir hlaupið? Undirbúningurinn hefur gengið mjög vel og ég mun halda áfram að æfa af krafti fram að hlaupinu. Hvernig hefur söfnunin gengið? Söfnunin hefur gengið framar björtustu vonum og er ég afar þakklát öllum þeim sem heitið hafa á mig. Ég setti mér söfnunar- markmið í byrjun en áður en ég vissi af var ég búin að safna tvö- faldri þeirri upphæð. Hefur þú áður tekið þátt í Reykja- víkurmaraþoninu? Nei, nefnilega ekki og ég er því ótrúlega spennt fyrir þessu. Stefnir þú á að hlaupa undir ákveðnum tíma? Ég stefni fyrst og fremst að því að komast í mark og reyna að njóta eins og ég get á leiðinni. Svo mun ég einnig reyna að hvetja móður mína áfram en hún mun einnig hlaupa 10 kílómetra. Hjálmar Örn Jó- hannsson og Ýr Steinþórsdóttir eru bæði að taka þátt í Reykjavíkur- maraþoninu í fyrsta sinn. Þau styrkja Ljósið og Alzheimersam- tökin. 2 6 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :1 0 F B 0 5 6 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 7 9 -F 8 D 0 2 3 7 9 -F 7 9 4 2 3 7 9 -F 6 5 8 2 3 7 9 -F 5 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 5 6 s _ 2 5 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.