Fréttablaðið - 26.07.2019, Page 50

Fréttablaðið - 26.07.2019, Page 50
Balenciaga Þegar hausttískan var kynnt á tískupöllunum voru línurnar lagðar í ýmsar áttir allt frá vel sniðnum drögtum og kápum yfir í skrautlega kjóla, skreytta fjöðrum og pallíett- um. Venju samkvæmt ættu því allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í haust, hvort sem sóst er eftir klass- ískum og stílhreinum flíkum, eða því að láta ljós sitt skína í skærum litum. Glamour hefur tekið saman nokkrar línur sem verða vinsælar í haust. eddag@frettabladid.is Þótt enn séu nokkrir dagar eftir af júlí færist haustið nær og laufin verða byrj- uð að falla áður en við vitum af. Óþarfi að hafa áhyggjur af því þar sem haustið er fallegt og skemmtilegasta árs- tíðin þegar tíska og straumar eru annars vegar. LÍFIÐ Farðu inn á Glamour.is og fáðu dag- legar fréttir úr heimi hönnunar, lífsstíls og tísku. l Facebook l Instagram l Twitter Klassík, leður og skærir litir ríkja í haust Leðurbuxur Ef það er ein flík sem maður verður að eiga í fataskápnum þá eru það leður- buxurnar, hvort sem þær eru ekta eða ekki. Leðurbuxurnar passa vel við grófa prjónapeysu eða silkiskyrtu þannig að þær eru góð fjárfesting. Þær koma í mörgum útgáfum fyrir haustið, glans- andi eða í svokölluðum mótorhjólastíl eins og á tískupalli Bottega Veneta. Skærir litir Sumarið er ekki eini tíminn til að nota skæru litina vegna þess að þeir koma líka sterkir inn í vetur. Rauður, fjólublár og grænn voru vinsælir hjá tískuhúsum eins og Sies Marjan, Balenciaga og Max Mara. Aftur til áttunda áratugarins Þetta er eitt stærsta trendið fyrir haustið, hnésítt pils, lítill dragtarjakki, silkiskyrta og silkiklútur eins og tíðkað- ist París á áttunda áratugnum. Tísku- hús eins og Celine, Balenciaga, Gucci og Burberry eru öll með sínar útgáfur af þessu. Ef þú vilt svo klæða þig upp á skaltu setja grófa gullkeðju um hálsinn og smeygja þér í þægilega hælaskó. Sies Marjan Max Mara Isabel Marant Bottega Veneta Tom Ford Chloé Burberry Celine 2 6 . J Ú L Í 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R22 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 6 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :1 0 F B 0 5 6 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 7 9 -E A 0 0 2 3 7 9 -E 8 C 4 2 3 7 9 -E 7 8 8 2 3 7 9 -E 6 4 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 5 6 s _ 2 5 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.