Fréttablaðið - 04.07.2019, Page 4
Það er okkar mat
að það sé enn mikið
af þessu sem þarf að laga.
Jón Pálmi Guð-
mundsson,
framkvæmda-
stjóri Urriða-
holts ehf.
Veður
Suðaustlæg eða austlæg átt 5-13
m/s og rigning eða súld um sunnan-
og vestanvert landið. Bjart að
mestu norðaustan til en þykknar
upp síðdegis með dálítilli úrkomu
í kvöld og nótt. Hiti 10 til 18 stig,
hlýjast norðaustan til, en heldur
svalara á morgun. SJÁ SÍÐU 26
Á útopnu
Íslandsmeistaramót í hestaíþróttum fer nú fram í Víðidal í Reykjavík. Í gær var
meðal annars keppni í fjórgangi ungmenna. Þorgils Kári Sigurðsson á Fáki frá
Kaldbak fór mikinn á vellinum. Mótið stendur til sunnudags. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SKIPULAGSMÁL „Þetta er hlutur
sem hefur byrjað smátt og smátt,
haldið áfram og svo er þetta orðið
það umsvifamikið að það er farið
að skemma götumynd hverfisins,“
segir Jón Pálmi Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Urriðaholts ehf.,
sem farið hefur fram á að Garðabær
grípi inn í og geri eitthvað í of háum
og fagurfræðilega ófullnægjandi
skjólveggjum sem íbúar hafi verið
að reisa í óleyfi.
Sérstök ákvæði eru um fram
kvæmd og uppsetningu skjólveggja
í deiliskipulagi hverfisins sem Jón
Pálmi vill að bærinn fylgi eftir.
Urriðaholt ehf. var upphaflegur
eigandi landsins sem hverfið reis á
og þróaði skipulag og hugmynda
fræði þess í samráði við Garðabæ.
Í bréfi Jóns Pálma, sem lagt var
fyrir bæjarráð Garðabæjar í vik
unni, segir að stór þáttur í skipulagi
Urriðaholts sé að skapa aðlaðandi
götumynd fyrir íbúa hverfisins.
Ákvæði um skjólveggina hafi því
verið sett til að tryggja það.
Jón Pálmi segir að þrátt fyrir
ítrekuð bréf Garðabæjar til lóðar
hafa, húsfélaga, umræður á vett
vangi íbúa, upplýsingar og ábend
ingar á heimasíðu félagsins þá sé
staðan sú að í langan tíma hafi
staðið skjólveggir sem „eru í hróp
legu ósamræmi við deiliskipulag
og til þess fallnir að rýra götumynd
hverfisins. Farið er fram á að Garða
bær bregðist nú þegar við óleyfis
framkvæmdum og sjái til þess að
þessum málum sé komið í lag,“ eins
og segir í erindinu.
„Einhverjir hafa brugðist við
ábendingum Garðabæjar en aðrir
ekki. Það er okkar mat að það sé
enn mikið af þessu sem þarf að
laga,“ segir Jón Pálmi í samtali við
Fréttablaðið.
Aðspurður segir hann skjól
veggjaskilmálana fyrst og fremst
fagurfræðilegs eðlis til að götu
myndin haldi sér. Meiri bragur sé á
því að horfa á fallega garða og hús
hliðar en röð af skjólveggjum með
fram götunni.
„Menn hafa verið að reisa of háa
veggi og of nálægt lóðamörkum.“
Jón Pálmi segir að ekki sé hægt
að láta þessar óleyfisframkvæmdir
og brot á deiliskipulagi viðgangast
og mikilvægt að bæjaryfirvöld sýni
festu í þessu máli.
mikael@frettabladid.is
Háir skjólveggir sagðir
skemma götumyndina
Sérstakir skjólveggjaskilmálar eru til staðar í Urriðaholti í Garðabæ og hafa
íbúar í einhverjum tilfellum brotið gegn þeim. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Íbúar í Urriðaholti
hafa margir brotið
gegn sérstökum skil-
málum í deiliskipu-
lagi hverfisins með því
að reisa of háa skjól-
veggi sem skemma
götumyndina. Fram-
kvæmdastjóri Urriða-
holts ehf. vill að Garða-
bær bregðist við þessum
óleyfisframkvæmdum.
Þægilegir og öruggir
smellugaskútar fyrir grill,
útilegu og heimili.
MINNA KOLEFNISSPOR
MEÐ BIOMIX 40
VIÐ STUÐLUM AÐ GRÆNNA UMHVERFI
Fleiri myndir af ungu hestafólki er að finna á +Plús-
síðu Fréttablaðsins. Fréttablaðið +Plús er í Frétta-
blaðs-appinu og PDF-útgáfu á Fréttablaðið.is.+PLÚS
HEILBRIGÐISMÁL Eva Þóra Hart
mannsdóttir var í 25 vikna skoðun
hjá Mæðravernd er hún rak augun í
orðið negríti á sjúkraskýrslu sinni.
„Mér brá rosalega mikið þegar ég
sá þetta orð en þegar ég spurði hvað
þetta þýddi fékk ég svarið að þetta
hafi bara alltaf verið svona fyrir
minn kynþátt.“
Eva segist ekki hafa fengið neinn
rökstuðning fyrir því að fólk sé
flokkað eftir kynstofnum og furðar
sig á því að ekki sé notast við upp
runaland líkt og í vegabréfum. „Þú
heyrir aldrei um að neinn sé skil
greindur sem kákasíti þegar talað
er um hvítt fólk.“
Eva hafði aldrei heyrt orðið negr
íti áður þó það sé ekki leyndarmál
að það komi frá orðinu negri. Væru
rök fyrir því að f lokka fólk eftir
kynþáttum væri auðvelt að finna
faglegra orð.
„Ég er hjúkrunarnemi og ég veit
að það er nýkomið rafrænt kerfi
hjá mæðravernd og spyr mig hvers
vegna það sé verið að skilgreina fólk
svona í þessu fyrst þetta er svona
glænýtt kerfi,“ segir Eva.
Að sögn Evu var hún ekki upp
lýst fyrir fram um hvers vegna hún
þyrfti að fara í sykurþolspróf ólíkt
vinkonum sínum en fékk það svar
síðar að það væri vegna aukinna
líka kvenna af afrískum uppruna á
því að fá meðgöngusykursýki. Von
andi verði hætt að nota forneskjuleg
hugtök til að f lokka fólk. „Það er
ekki eins og það sé ómögulegt að
gera eitthvað í því,“ segir Eva. – kdi
Flokkuð sem
negri hjá
mæðravernd
Eva Þóra
Hartmanns-
dóttir.
S TJÓRN S ÝS L A Ragn heiður Elín
Árna dótt ir, fyrr ver andi iðnaðar og
viðskiptaráðherra, er metin hæfust
umsækjenda um starf verk efna stjóra
Evr ópsku kvik mynda verðlaun anna
(EFA). Alls sóttu 45 um starfið. Tveir
voru boðaðir í lokaviðtöl; Ragnheiður
Elín og Grímur Atlason sem stýrði
Iceland Airwaves um árabil.
Í umsögn stjórnar EFA segir að
Ragnheiður uppfylli mjög vel hlut
lægar og huglægar hæfniskröfur
starfsins og sé talin hafa staðið öðrum
umsækjendum framar á heildina litið.
Evr ópsku kvik mynda verðlaun in
(EFA) verða veitt í Hörpu í des em ber
2020. – aá
Fyrrum ráðherra
talinn hæfastur
Ragnheiður Elín
Árnadóttir, fyrr-
verandi iðnaðar-
ráðherra.
4 . J Ú L Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð