Fréttablaðið - 04.07.2019, Side 24

Fréttablaðið - 04.07.2019, Side 24
Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@frettabladid.is Sveitastúlkan Embla Dís Björgvinsdóttir býr á bænum Steintúni á Skógar­ strönd í Dalabyggð. Hinum megin við túnið, á bænum Emmubergi, býr amma hennar, Kristín Sig­ ríður Guðmundsdóttir. „Hún amma kenndi mér að prjóna. Ég var pínulítil þegar mig langaði að læra að prjóna og var f ljót að ná tökum á prjóna­ skapnum hjá ömmu. Mér finnst bæði gaman og notalegt að setjast niður með prjónana, maður slakar svo vel á,“ segir Embla Dís sem hafði prjónað á sig tvær gullfallegar peysur áður en hún fagnaði tólfta afmælisdeginum sínum í apríl. „Það fyrsta sem ég prjónaði var rúmteppi í hjónarúmsstærð. Þá var ég sex ára. Amma hjálpaði mér aðeins við prjónaskapinn og við hekluðum bútana saman. Ég breiði þetta rúmteppi alltaf yfir mig og ofan á sængina á nóttunni, líka þótt mér sé heitt,“ segir Embla Ég er mjög stolt af sjálfri mér Embla Dís Björgvinsdóttir var aðeins sex ára þegar hún prjónaði rúmteppi á hjónarúm. Nú þegar hún er nýorðin tólf ára hefur hún prjónað sér tvær fallegar peysur sem hún elskar að klæðast. Embla Dís prjónaði bæði peysuna og teppið sem hún ber á myndinni. Hjá henni er tíkin Sóla. MYNDIR/SIGRÍÐUR SKÚLADÓTTIR Embla Dís í æðislegri röndóttri peysu sem hún prjónaði úr afgöngum frá ömmu sinni. Hún föndrar líka einstakar gjafir handa vinkonum sínum. Dís og kímir að litríku og undur­ fögru rúmteppinu. Hannaði föt Þótt æviár Emblu Dísar séu rétt orðin tólf hefur hún sýnt fjöl­ þætta færni í margvíslegu hand­ verki, bæði leir og gleri, og hún er afkastamikil prjónakona. „Handavinnan virðist leika í höndunum á mér. Ég byrjaði snemma að hanna föt og þegar ég var frekar lítil gaf ég systur minni pils í jólagjöf. Ég saumaði það í saumavél í skólanum, en amma kenndi mér líka að sauma og hekla,“ útskýrir Embla Dís sem er nemandi við Auðarskóla í Búðar­ dal. Á prjónum Emblu Dísar nú eru vettlingar að taka á sig mynd. „Ég hef prjónað trefla, sokka, peysur og vettlinga. Peysurnar finnst mér skemmtilegastar því það er frekar nýtt fyrir mig að prjóna nothæfa flík en ekki eintóma kassa. Ég hef gott lag á garðaprjóni og sléttu og brugðnu en langar að kunna fleiri prjónaað­ ferðir og ætla næst að prjóna fínni peysu með köðlum. Það er aðeins flóknari prjónaskapur en það er stutt að hlaupa yfir túnið til ömmu sem ætlar að kenna mér kaðla­ prjón og hjálpar mér þegar ég verð strand,“ segir Embla Dís sem á í miklum vinskap við ömmu sína. „Peysurnar prjónaði ég úr afgöngum af garni frá ömmu og ömmusystur minni. Við byrjuðum bara á að prjóna stroff og úr varð peysa,“ segir Embla Dís sem tók tarnir við að prjóna peysurnar en mamma hennar, Sigríður Skúla­ dóttir, hefur vart undan að skola úr peysunum vegna vinsælda. „Það er mjög gaman að klæðast peysum sem maður hefur sjálfur prjónað og ég er stolt af sjálfri mér að hafa prjónað þær,“ segir Embla Dís. Saumar á kisu Embla Dís býr í ekta sveit með kýr og kindur á beit, og á bæjunum búa fimm kettir, þar af prinsessan Lotta í Steintúni, sem fær á sig klæðskerasaumuð pils frá Emblu. „Lotta er mikill tískuköttur, rosaleg frekja og algjör príma­ donna. Hún er ekki alltaf að fíla það að vera í pilsunum mínum en það er ágætis æfing að sauma pils í litlum stærðum, eins og á kisu,“ segir Embla Dís og hlær. Hún grípur oft í handavinnuna þar sem hún býr í sveitasælunni og þekkir það ekki að hangsa í símanum. „Ég er aldrei í símanum og veit ekki einu sinni hvar hann er. Margir strákar í mínum bekk eru alltaf í Fortnite­tölvuleiknum og ég bara skil það ekki. Það hafa samt margir áhuga á handavinnu og þegar við vorum í fjórða bekk stofnaði ég handavinnuklúbb í skólanum og kenndi krökkunum að hekla en í sjötta bekk hefur verið minna um frítíma og prjóna­ skap,“ segir Embla Dís. Hún föndrar líka einstakar gjafir handa vinkonum sínum. „Ég hef heklað puttabrúður, oftast ketti, handa vinkonum mínum og bjó til glerkertastjaka með mynd af hesti sem ég pússaði í glerið. Fólk er ánægt með þessar gjafir,“ segir Embla Dís sem bjó fyrstu fjögur æviárin í höfuðborginni. „Mig langar alls ekki að flytja aftur til Reykjavíkur. Það er svo æðislegt að búa í sveit og alveg rosalega fallegt hérna. Við systkinin erum einu krakkarnir á Skógarströnd en það er bara fínt. Ég er heppin að eiga sex ára bróður og tvíburasystur að leika við. Sam­ komulagið er gott þótt við rífumst stundum eins og flest systkin. Ég spila á gítar og Kristey systir hefur fallega söngrödd og við höfum verið beðnar um að syngja við messur og komið fram í afmælum. Kristey er þó ekki alveg jafn hrifin af handavinnu og ég. Hún byrjaði á peysu en er ekki enn búin með hana.“ Ég hef prjónað trefla, sokka, peysur og vettlinga. Peysurnar finnst mér skemmtilegastar því það er frekar nýtt fyrir mig að prjóna nothæfa flík. Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna NETVERSLUN WWW.BELLADONNA.IS ÚTSALAN ER HAFIN Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook ÚTSALAN HAFIN 40-50% afsláttur Buxur Bolir Jakkar Túnikur Kjólar Toppar Str. 36-56 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 4 . J Ú L Í 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.