Fréttablaðið - 04.07.2019, Side 43
Kvikmyndahornið
Spider-Man
snýr aftur
Edda Karítas Baldursdóttir
eddakaritas@frettabladid.is
Krúttlegasti Köngulóar-maðurinn til þessa, en jafn-framt einn sá svalasti, snýr
aftur í nýrri mynd sem frumsýnd
var í gær. Tom Holland fer sem fyrr
með hlutverk ofurhetjutáningsins
góðkunna en myndin ber heitið
Spider-Man: Far from Home.
Kvikmyndafyrirtækið Marvel er
búið að vera einstaklega dug-
legt við að gefa út myndir upp á
síðkastið. Spider-Man: Far from
Home er þriðja myndin í kvik-
myndabálknum um Avengers sem
kemur frá myndasögurisanum á
árinu.
Í þessari nýju kvikmynd um
Spider-Man er komið sögu þar
sem Aveng ers Endgame lauk.
Peter Parker fer í verðskuldað frí
til Evrópu eftir allt sem á undan er
gengið en ferðalagið á sennilega
eftir að reynast Parker allt annað
en afslappandi. Kynntur verður
til leiks illmennið Mysterio, sem
leikinn er af Jake Gyllenhaal, en
kauði mun eflaust ekki vera neitt
lamb að leika sér við.
Fánýtur fróðleikur um
Köngulóarmanninn
n Í myndasögunum var Peter
Parker aðeins 15 ára þegar hann
var bitinn af köngu-
lónni geislavirku.
n Köngulóar-
maðurinn var
skapaður af
Steve Ditko
og meistar-
anum Stan Lee.
n Köngulóarmaðurinn kom fyrst
fram í myndasögunni Amazing
Fantasy #15, 10. ágúst árið 1962.
n Þótt bandarískur hreimur hans
gæti talið manni trú um annað
er Tom Holland í raun breskur.
n Spider-Man er söluvænsta ofur-
hetjan en Spider-Man varningur
selst betur en Batman, Super-
man og hinna Marvel-hetjanna.
n Samkvæmt myndasögunum
voru foreldrar Peters Parker, þau
Richard og Mary Parker, njósn-
arar. Parker-hjónin voru myrt
eftir að komst upp um þau þar
sem þau voru að störfum í her-
búðum glæpasamtaka í Alsír.
n Tom Holland vissi ekki að hann
hefði hreppt hið
eftirsótta hlut-
verk Könguló-
armannsins
fyrr en hann
sá það í fjöl-
miðlum líkt og
við hin.
Há t í s k u v i k a n í París hófst síðasta sunnudag og lýkur í dag, fimmtudag. K l æ ð n a ð u r i n n sem sýndur er á
hátískuvikunni er ekki ætlaður til
hversdagsnota heldur frekar til að
vera leiðandi í að móta strauma
og stefnu tískunnar almennt. Fæst
myndum við láta sjá okkur í jafn
ýktum múnderingum í vinnunni á
mánudegi og sýndar voru í vikunni,
en Hollywood-stjörnurnar láta sig
ekki vanta á áhorfendabekkina. Þá
er algengt að kjólum sem sýndir
eru í hátískulínum tísku-
húsanna sé breytt lítillega og
þeir gerðir ögn hefðbundnari
fyrir stórleikkonurnar til að
klæðast á verðlaunaaf hending-
um. Hér eru nokkrar myndir af
þekktum gestum hátískuvikunnar
þetta árið. steingerdur@gmail.com
Hátískuvikan í París
Nú í dag lýkur hátískuvikunni í París. Þar sýna hönnuðir
flíkur sem eru oft ýktar og ekki ætlaðar til hversdags-
nota heldur frekar sem nokkurs konar fagurfræðilegur
innblástur fyrir meginstraumstísku.
Shailene
Woodley, sem nú
slær í gegn í þátt-
unum Big Little Li
es,
mætti í þessum fl
otta
skikkju kjól á sýni
ngu
Christian Dior.
Söng-
konan glæsilega
Celine Dion mætti
í þessum glæsilega
kjól á sýningu
Alexandre Vaut-
hier.
Mandy
Moore
mætti í bleiku
á sýningu tísku-
hússins Schiap-
arelli.
Athafnakonan
Olivia Palermo
mætti með eig
inmanni
sínum, Johann
es Huebl, á
sýningu Miu M
iu. Hún hefur
löngum þótt sk
ara fram úr
í klæðavali og
er í miklu
uppáhaldi hjá
ritstjórum
helstu tískutím
arita
heims.
4 . J Ú L Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R32 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ