Fréttablaðið - 23.08.2019, Síða 2
hverri sókn milligöngu um aðstoð á
vegum hjálparstarfsins, en þau eru
einnig í góðu samstarfi við náms-
ráðgjafa og félagsráðgjafa sveitar-
félaga. „Hlutfallslega eru f lestir á
höfuðborgarsvæðinu og í nágrenni,
42 prósent þeirra sem fengu aðstoð
bjuggu í Reykjavík,“ segir Kristín.
„39 prósent bjuggu í leiguíbúð á
almennum markaði.“
Vilborg Oddsdóttir félagsráðgjafi
segir fjöldann sem þurfi á aðstoð
að halda svipaðan milli ára en
hann hafi tekið breytingum. „Það
eru færri Íslendingar sem koma til
okkar, en f leiri erlendir ríkisborg-
arar. Þeir eru margir á mjög lágum
launum,“ segir Vilborg. Munar
miklu um tengslanet fólks.
Aðspurð hvað hjálparstarf ið
skortir helst segir Vilborg það vera
fartölvur. „Ég er búin að fá nokkrar
fyrirspurnir bara í dag frá for-
eldrum barna sem eru að byrja í
framhaldsskóla,“ segir Vilborg. „Ef
einhver á tölvu sem hægt er að gefa
áfram þá yrði það mjög vel þegið.“
arib@frettabladid.is
SAMFÉLAG „Biðstofan er búin að
vera full í dag. Það er bara þannig
á hverju hausti, þá getur barnafólk
leitað til okkar með aðstoð,“ segir
Kristín Ólafsdóttir, fræðslustjóri
hjá Hjálparstarfi kirkjunnar. Á
mánudaginn hóf hjálparstarfið að
aðstoða foreldra sem búa við kröpp
kjör og aðstoða við ýmislegt sem
vantar í byrjun skólaársins.
„Eðli starfseminnar breyttist
nokkuð þegar sveitarfélögin byrjuðu
að útvega ritföngin sem eru notuð í
skólunum. En það er margt sem er
eftir. Það er skólataska, nestisbox,
sundtaska, ritföng til að nota heima,
allt þannig. Það vill enginn sex ára
byrja í skólanum án skólatösku.“
Þrír félagsráðgjafar starfa hjá
hjálparsamtökunum. Þær taka á
móti fólki og fara yfir upplýsingar
um tekjur til að komast að því
hversu mikla aðstoð það þarf á að
halda. „Það er tekið mið af aðstæð-
um hvers og eins. Við erum heldur
ekki að taka ábyrgðina frá fólki,“
segir Kristín. Mikið af fólki leggur
hjálparstarfinu lið, bæði með fjár-
framlögum, fatagjöfum og sjálf-
boðavinnu.
Í fyrra fengu meira en tvö þúsund
fjölskyldur efnislega aðstoð. Það er
þó erfitt að festa tölu á hversu mörg
börn er um að ræða. „Undanfarin ár
hafa foreldrar rúmlega tvö hundruð
barna fengið sérstaka aðstoð fyrir
skólann, það koma ekki allir strax
í byrjun skólaársins. Sú tala rennur
svo saman við þau börn sem fá
notaðan fatnað,“ segir Kristín. Til
dæmis fengu á fimmta tug barna í
fyrra sérstakan styrk frá hjálpar-
samtökunum til íþróttaiðkunar og
tónlistarnáms.
Hjálparstarfið er til húsa í Reykja-
vík. Á landsbyggðinni hafa prestar í
Hlutfallslega eru
flestir á höfuð-
borgarsvæðinu og í ná-
grenni, 42 prósent þeirra
sem fengu aðstoð bjuggu í
Reykjavík. 39 prósent
bjuggu í leiguíbúð á almenn-
um markaði.
Kristín
Ólafsdóttir,
fræðslustjóri
hjá Hjálparstarfi
kirkjunnar
Veður
Áfram hægur vindur í dag, skýjað
að mestu og víða skúrir, en þurrt á
Norðausturlandi. Hiti 10 til 16 stig.
SJÁ SÍÐU 18
NÝTT OG
SPENNANDI
FRÁ HOL
TA
Hefur þú prófað
Holta drumsticks?
Viðrar vel til myndatöku
Þakið á efri hæð þessa ferðamannastrætós í höfuðborginni var opið í blíðviðrinu í gær og því tilvalið að nýta tækifærið til myndatöku. Samkvæmt
tölum frá Hagstofunni heimsóttu um 210 þúsund ferðamenn Ísland heim í júlí sem er 16 prósenta samdráttur frá síðasta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Enginn vill byrja í
skóla án skólatösku
Það er mikið að gera hjá Hjálparstarfi kirkjunnar við að aðstoða foreldra
skólabarna sem hafa lítið á milli handanna. Félagsráðgjafi segir að mikið sé
beðið um fartölvur fyrir unglinga sem eru að hefja nám í framhaldsskólum.
Vilborg Oddsdóttir, félagsráðgjafi hjá Hjálparstarfi kirkjunnar, hefur verið
mjög upptekin síðustu daga vegna upphafs nýs skólaárs. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
MENNING Kvikmyndin Hvítur, hvít-
ur dagur mun verða sýnd á Horna-
firði þrátt fyrir að bæjarráð hafi
synjað ósk um styrk vegna sýning-
arbúnaðar. Anton Máni Sveinsson
framleiðandi segir að sveitarstjórn
hafi stutt við verkefnið að öðru
leyti. Meðal annars með afnotum af
byggingu við tökur myndarinnar og
veitingum á sýningunni sem fram
fer um helgina.
„Við viljum þakka bæði Horn-
firðingum og Austfirðingum fyrir,“
segir Anton. En kvikmyndin var
meðal annars tekin upp í Horna-
firði, Fáskrúðsfirði, Stöðvarfirði og
í Oddsskarði.
„Við verðum með forsýningu á
sunnudagskvöld og aðra sýningu
á mánudagskvöld og fáum styrki
héðan og þaðan í alls kyns formi.
Við keyptum sýningartjaldið sjálf.
Þetta er samstarf margra aðila til að
láta þetta ganga upp,“ segir Anton.
Verða bæði leikstjórinn Hlynur
Pálmason og aðalleikarinn Ingvar
E. Sigurðsson viðstaddir forsýning-
una. – khg
Myndin verður sýnd í Hornafirði
Leikarar og tökulið kvikmyndarinnar Hvítur, hvítur dagur.
LÖGREGLUMÁL Íslenskur karlmaður
á fimmtugsaldri fannst látinn í klefa
sínum á Litla-Hrauni í gærmorgun.
Páll Winkel fangelsismálastjóri
staðfesti þetta við Fréttablaðið.
„Það er ekkert sem bendir til þess
að andlátið hafi borið að með sak-
næmum hætti,“ segir Páll en undir-
strikar að málið sé í rannsókn hjá
lögreglunni á Suðurlandi.
Fráfallið sé harmleikur og eru
aðrir vistmenn harmi slegnir. Búið
er að láta aðstandendur hins látna
vita. – vá
Fannst látinn á
Litla-Hrauni
Fangelsið á Litla-Hrauni.
FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
2 3 . Á G Ú S T 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
3
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:1
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
A
0
-C
9
8
8
2
3
A
0
-C
8
4
C
2
3
A
0
-C
7
1
0
2
3
A
0
-C
5
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
2
2
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K