Fréttablaðið - 23.08.2019, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 23.08.2019, Blaðsíða 22
Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is Konur eru farnar að stunda hlaup í auknum mæli og eru orðnar fleiri en karlar í maraþonhlaupum um víða veröld. 4 KYNNINGARBLAÐ 2 3 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U RHEILSURÆKT Þátttakendurnir í rann-sókninni voru 107,9 milljónir hlaupara frá ólíkum löndum úr 70 þúsund hlaupum frá árinu 1986-2019. Í ljós kom að norskar konur eru fljótari að hlaupa mara- þon en bæði bandarískir og breskir karlar sem hafa dregist aftur úr í hraða. Á meðan norsk kona hleypur maraþon á 4:19,48 hleypur Bandaríkjamaðurinn á 4:23,27 og Bretinn á 4:31,07. „Ég gæti trúað að ástæðan fyrir þessu sé hvatning sem íþrótta- fólk fær í Noregi. Í Noregi er meiri samkeppni en í Bandaríkjunum. Þar hleypur fólk sér til ánægju og meira á félagslegum nótum. Norðmenn eru hins vegar keppnis- fólk,“ segir Jens Jakob Andersen, eigandi RunRepeat sem stendur á bak við rannsóknina. Mið- illinn forskning . no birtir grein um rannsóknina auk allra helstu sportmiðla í heimi. Karlmenn frá Indlandi, Brasilíu, Suður-Kóreu, Japan, Malasíu, Nígeríu og Taílandi eru seinfærari en Norðmenn og Íslendingar. Samkvæmt rannsókninni eru fjórar þjóðir betri í maraþon- hlaupum en Norðmenn. Spán- verjar eru fljótustu hlaupararnir en á eftir þeim koma Svisslendingar, Hollendingar og Portúgalar. „Norðmenn eru yfirhöfuð miklir íþróttamenn. Við vitum ekki af hverju þeir eru svona góðir hlaup- arar en loftslagið gæti hjálpað til. Bestu hlaupaaðstæður eru í 10-12 stiga hita. Annars held ég að þetta sé kúltúrinn í landinu, Norð- menn hafa alltaf verið mjög góðir í íþróttum, til dæmis á Ólympíu- leikum,“ segir Jens Jakob. Norðmenn eru langbestu hlaup- arar á Norðurlöndum. Svíar eru í 33. sæti og eru þeir verstir meðal Norðurlandaþjóða. Ísland er í 7. sæti en íslenskir hlauparar eru ekki langt á eftir Norðmönnum í mara- þonhlaupi. Danir eru í 16. sæti og Finnar í 32. sæti. Rannsóknin er ein sú stærsta sem gerð hefur verið um hlaup. Það var International Association of Athletics Federat- ions (IAAF), hið danska RunRepeat og doktor Vania Nikolova sem unnu rannsóknina sem tók átta mánuði. Í fyrsta sinn í sögunni eru fleiri konur en menn í maraþonhlaupi. Þetta þykir afar athyglisvert en á Íslandi eru 58% þátttakenda konur, samkvæmt rannsókninni. Árið 2018 voru 50,24% þátttak- enda konur á heimsvísu. Athygli vakti að í Sviss þar sem eru hröðustu kvenmaraþon í heimi er ekki mikil þátttaka kvenna eða aðeins 16%. Á sama tíma eru þátttakendur stöðugt að eldast og yngjast þann- ig að aldursbilið hefur breikkað. Árið 1986 var meðalaldur þátt- takenda 35,2 ár en á síðasta ári var hann 39,3 ár. Þátttakendum hefur fækkað á heimsvísu um 13% frá metárinu 2016 þegar 9,1 milljón manna tók þátt í maraþoni. Í Belgíu hefur hlaupurum hins vegar fjölgað mikið. Nánar á runrepeat.com undir fyrirsögninni Marathon Statistics 2019 Worldwide. Konur öflugar í maraþoni Norskar konur hlaupa maraþon næstum þrettán mínútum hraðar en bandarískir karlar samkvæmt nýrri rannsókn. Íslenskir hlauparar eru í sjöunda sæti og konur fjölmennar. #lovelemon Bókaðu djúsdag á Lemon Pantaðu á veisla@lemon.is og sæktu sex ferska djúsa daginn eftir. Lemon Suðurlandsbraut 4 Lemon Hafnarfirði Lemon Salalaug Kópavogi Lemon Akureyri Lemon Húsavík Lemon París 2 3 -0 8 -2 0 1 9 0 5 :1 5 F B 0 4 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 A 0 -E 2 3 8 2 3 A 0 -E 0 F C 2 3 A 0 -D F C 0 2 3 A 0 -D E 8 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 8 s _ 2 2 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.