Fréttablaðið - 23.08.2019, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 23.08.2019, Blaðsíða 4
MENNTUN Búið er að ráða í 98 pró- sent stöðugilda í grunnskólum og 96 prósent í leikskólum í Reykja- vík. Staðan í ráðningum er betri nú en í fyrra þrátt fyrir aukna starfs- mannaþörf. Þetta kemur fram í til- kynningu frá Reykjavíkurborg. Frístundaheimili borgarinnar eru starfrækt við alla 36 grunnskólana fyrir börn á aldrinum 6-9 ára. Alls verða um 4.000 börn í frístunda- heimilum borgarinnar í vetur og fjöldi starfsfólks að jafnaði 950 í um 440 stöðugildum. Hjá frístundaheimilum og sér- tækum félagsmiðstöðvum er búið að ráða í 78 prósent stöðugilda og er enn óráðið í um 100 stöðugildi. Flest störfin eru þó hálf störf og því á eftir að ráða um 200 starfsmenn. Verið er að ganga frá nýráðningum alla daga, sérstaklega á háskólanemum. „Gert er ráð fyrir að öll börn fái þjónustu á frístundaheimili í upp- hafi skólaárs, en verði á því tafir vegna fáliðunar, verður fyrst litið til forgangshópa en umsóknir síðan afgreiddar í tímaröð, elsta umsókn- in fyrst. Þó njóta börn í 1. bekk for- gangs, þá börn í 2. bekk og loks börn í 3. og 4. bekk,“ segir í tilkynningu frá borginni. Á Ísafirði hefur verið ráðið í allar stöður í grunn- og leikskólum sveitar félagsins. Einnig hefur verið ráðið í allar stöður á frístundaheim- ilum og þar eru engir biðlistar. Á Akureyri hefur einnig verið ráðið í allar stöður í grunn- og leik- skólum og barst fjöldi umsókna um allar stöður. Mönnun með fagfólki er um 70 prósent í leikskólum bæjarins og 98 prósent í grunnskólum. Enginn biðlisti er í frístund fyrir börn sem stunda nám í 1.- 4. bekk. – ókp, bdj Vel gengur að manna grunnskóla, leikskóla og frístundaheimili Um fjórtán þúsund börn eru í grunnskólum borgarinnar og þar starfa um 1.970 manns. Búið er að ráða í 98 prósent stöðugilda. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SAMKEPPNISMÁL Samkeppniseftir- litið hefur sent frá sér áréttingu þess efnis að apótekum sé heimilt að veita afslætti af lyfjum sem falla undir greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands. Við nýlega athugun eftir- litsins kom í ljós að tiltekin apótek hafi talið sér óheimilt að veita slíka afslætti. Er sérstaklega áréttað að hvorki lög né reglur komi í veg fyrir slíka afslætti. „Þvert á móti er lyfjaversl- unum frjálst að veita slíka afslætti sem lið í virkri samkeppni á mark- aðnum,“ segir í tilkynningu Sam- keppniseftirlitsins. Þar segir einnig að hvers konar sameiginleg afstaða samkeppnisað- ila um takmarkanir á afsláttum geti brotið gegn ákvæðum samkeppnis- laga um bann við ólögmætu sam- ráði. Beinir eftirlitið þeim tilmælum til lyfsöluleyfishafa að taka tillit til þessa við verðlagningu sína. – sar Heimilt að veita afslætti VIÐSKIPTI Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segist bera fullt traust til Guðrúnar Johnsen sem fulltrúa stéttarfélagsins í stjórn Lífeyris- sjóðs verzlunarmanna en hún var stjórnarformaður Arion banka þegar breytingar voru gerðar á ráðningarsamningi Höskuldar Ólafssonar, þáverandi bankastjóra, um mitt ár 2017. Breytingarnar, sem tengdust uppsagnarfresti og samningi um starfslok, þýddu að bankinn þurfti að gjaldfæra starfs- lokagreiðslur til Höskuldar upp á samtals 150 milljónir þegar hann lét af störfum í apríl á þessu ári. Guðrún er meðal þeirra fjögurra sem VR skipaði í stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna um miðjan ágúst. Áformað er að hún verði næsti stjórnarformaður sjóðsins. Í samtali við Fréttablaðið segist Ragnar Þór „treysta henni fullkom- lega“ til þess að taka sæti sem full- trúi VR í stjórn lífeyrissjóðsins og vinna þar góð verk. „Hún hefur sýnt það og sannað. Ein ákvörðun varð- andi þessi starfskjör bankastjór- ans, sem ég tek fram að mér finnst algjörlega siðlaus, og ég get ekki svarað nákvæmlega hver aðkoma hennar var, breytir því ekki.“ Breytingar á ráðningarsamningi Höskuldar voru gerðar í kjölfar þess að þáverandi stjórnarformaður bankans, Monica Caneman, steig til hliðar í maí 2017. Þá tók Guðrún, sem hafði áður verið varaformaður stjórnarinnar, við formennsku og gegndi hlutverkinu tímabundið frá maí til júní 2017. Leiddi hún vinnu stjórnarinnar við breytingarnar á samningi Höskuldar. Þær voru samþykktar samhljóða af öllum stjórnarmönnum bankans, meðal annars fulltrúa Bankasýslu ríkisins. Ragnar Þór brást hart við fréttum af starfslokagreiðslu Höskuldar og benti á að hún jafngilti lágmarks- launum í 40 ár. „Þetta var greiðsla fyrir að hætta störfum vegna þess að af koma bankans, undir hans stjórn, var undir væntingum,“ skrifaði hann á Facebook-síðu sína. Ragnar Þór segist hafa verið með- vitaður um að Guðrún hafi setið í stjórn bankans þegar breytingar voru gerðar á ráðningarsamningi Höskuldar en segist ekki vera viss um hvenær bætt var við uppsagnar- frestinn eða hver aðkoma Guðrúnar að því hafi verið. „Við gerðum okkur hins vegar fulla grein fyrir störfum hennar sem stjórnarmanns þegar hún gerði athugasemdir við Bakkavararmálið þar sem lífeyrissjóðir, ríkisbankinn og ríkið urðu hugsanlega af 50 millj- örðum króna í viðskiptum sínum við bræðurna,“ segir Ragnar og vísar þar til sölu á eignarhlut Arion banka og lífeyrissjóða í matvæla- fyrirtækinu Bakkavör til stofnenda fyrirtækisins í janúar 2016. Fram kom í minnisblaði sem Bankasýslan skrifaði fjármálaráðu- neytinu, og Markaðurinn greindi frá síðasta haust, að Guðrún hefði greitt atkvæði gegn sölunni í Bakka- vör og lagt til að gerð yrði könnun á söluferlinu. Sú tillaga var felld. Þá segir Ragnar Þór einnig að aðkoma Guðrúnar að „rannsóknar- skýrslu Alþingis geri hana að einum hæfasta stjórnanda sem ég þekki til og myndi vilja sjá innan stjórnar líf- eyrissjóðsins. Hún hefur fáheyrða innsýn inn í fjármálakerfið.“ Markmiðið með þeim breyting- um sem gerðar voru á ráðningar- samningi Höskuldar var að tryggja að bankinn nyti starfskrafta hans fram að útboði og skráningu og í framhaldi af henni. Kirstín Þ. Flygenring, sem var full- trúi Bankasýslunnar í stjórn bank- ans á þeim tíma, lét hafa það eftir sér í Fréttablaðinu að hún hefði „átt við ofurefli að etja“ þegar breytingarnar voru samþykktar í stjórn. „Mér fannst of vel í lagt“ en menn hafi „endilega viljað halda“ í Höskuld þegar Monica Caneman hætti sem stjórnarformaður. „Því samþykkti ég þetta með semingi,“ sagði Kirstín. thorsteinn@frettabladid.is Guðrún nýtur áfram trausts formanns VR Guðrún Johnsen var stjórnarformaður Arion banka þegar ráðningarsamningi við þáverandi bankastjóra var breytt. VR hefur skipað Guðrúnu í stjórn Líf- eyrissjóðs verslunarmanna. Formaður VR segist „treysta henni fullkomlega“. Guðrún var varaformaður í stjórn Arion banka og tók tímabundið við stjórnarformennsku. MYND/ARION BANKI Ein ákvörðun varðandi þessi starfskjör bankastjórans, sem ég tek fram að mér finnst algjörlega siðlaus, […] breytir því ekki. Ragnar Þór Ingólfsson, for- maður VR Heimilt er að veita afslætti af ýmsum lyfjum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Ertu söngfugl? Kvennakór auglýsir eftir áhugasömum kórkonum. Fyrsta verkefni kórsins í haust er þátttaka í jólatónleikum, til styrktar Landspítala Háskólasjúkrahúsi, sem fyrirhugaðir eru í byrjun desember. Spennandi dagskrá eftir áramót. Æfingar verða í Mosfellsbæ á miðvikudagskvöldum undir stjórn Lilju Eggertsdóttur og gert er ráð fyrir að æfingar taki u.þ.b. eina og hálfa klukkustund. Raddprufur verða miðvikudaginn 28. ágúst og laugardaginn 31. ágúst. Áhugasamar hafi samband í gegnum netfangið: korconcordia@gmail.com korconcordia VIÐSKIPTI Samkomulag hefur náðst um kaup norska stórfyrirtækisins Orkla ASA á tuttugu prósenta hlut í Nóa-Síríusi. Tilkynnt var um kaup- in í gær en þau eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins. Orkla starfar á neytendamarkaði á Norðurlöndunum, í Eystrasalts- ríkjunum, Mið-Evrópu og Indlandi. Fyrirtækið er skráð á markað í Nor- egi og var velta þess á síðasta ári um 41 milljarður norskra króna, sem jafngildir rúmlega 570 milljörðum íslenskra króna samkvæmt gengi dagsins. „Nói-Síríus byggir á rótgrónum og traustum grunni og munum við halda áfram þeirri vegferð sem fyrir tækið hefur verið á undanfarin ár. Við gerum þó ráð fyrir að nýr hluthafi muni leggja sitt af mörk- um við að styrkja og efla starfsemi félagsins enn frekar á jákvæðan hátt fyrir fyrirtækið í heild, starfs- fólk þess og viðskiptavini,“ var haft eftir Finni Geirssyni, forstjóra Nóa- Síríusar, í tilkynningu. – sar Orkla kaupir í Nóa-Síríus Um 150 manns starfa hjá Nóa-Sírí- usi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK 2 3 . Á G Ú S T 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 3 -0 8 -2 0 1 9 0 5 :1 5 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 A 0 -D D 4 8 2 3 A 0 -D C 0 C 2 3 A 0 -D A D 0 2 3 A 0 -D 9 9 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 8 s _ 2 2 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.