Fréttablaðið - 23.08.2019, Side 10

Fréttablaðið - 23.08.2019, Side 10
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir FRAMKVÆMDASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir ÚTGEFANDI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is RITSTJÓRAR: Davíð Stefánsson david@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Í stað þess að minnka efnahags- reikning sinn hafa sumir ríkisbankar fremur kosið þá leið að leggja áherslu á útlánavöxt.  Vandinn er sá að Donald Trump er þjóðkjörinn. Hann talar í nafni mesta efnahags- og herveldis í heimi. Gagnvart öðrum þjóðum er forseti Bandaríkj- anna Banda- ríkin. Frá lýðveldisstofnun hafa Bandaríkin verið nánasti bandamaður Íslands. Fyrir því eru margar ástæður.Bandaríkin réðu úrslitum um alþjóðlega viður- kenningu á stofnun lýðveldisins. Þau deildu sömu grund- vallargildum um lýðræði og mannréttindi og við. Þau höfðu forystu um að sameina Evrópuþjóðir á sviði varna og viðskipta. Það var auðna okkar. Og þau ábyrgjast her- varnir Íslands. Í þessu ljósi hafa Íslendingar eins og aðrar vestrænar þjóðir talað um forseta Bandaríkjanna sem leiðtoga hins frjálsa heims. Eftir að Donald Trump var kjörinn forseti hefur þessi ímynd fölnað svo ekki sé dýpra í árinni tekið. Nú finnst flestum að það sé tungubrjótur að tala um forseta Bandaríkjanna sem leiðtoga vestrænna gilda og frjálsra þjóða. Þegar ástæðurnar fyrir þessum umskiptum eru allt í einu komnar í norrænt samhengi snertir það enn frekar við tilfinningum margra. Fyrir skömmu gerði for- seti Bandaríkjanna tilraun til þess að hafa áhrif á fram- gang réttvísinnar í Svíþjóð. Og nú sýnir hann Dönum klærnar fyrir þá sök að vilja ekki fara í fasteignaviðskipti með Grænland. Það er langt síðan erlendur þjóðhöfðingi hefur gengið jafn langt í að lítilsvirða norræn gildi. Sumir segja að þjóðir heims eigi að leiða persónu Trumps hjá sér. Gott væri ef það væri léttur leikur. Það væri líka þægilegt að slá lítilsvirðingunni við grunngildi vestrænna þjóða upp í grín. Ýmsir þjóðarleiðtogar hafa reynt hvort tveggja. En það virkar ekki. Vandinn er sá að Donald Trump er þjóðkjörinn. Hann talar í nafni mesta efnahags- og herveldis í heimi. Gagn- vart öðrum þjóðum er forseti Bandaríkjanna Bandaríkin. Nú róa Bandaríkin að því öllum árum að losa um efna- hags- og viðskiptasamstarf Evrópu. Loforð um stórkost- legan efnahags- og viðskiptasamning við Breta hefur átt drjúgan þátt í því að draga þá út úr Evrópusambandinu og veikja það. Íslendingar eru í hópi þeirra þjóða sem mest tapa á þeim umbrotum öllum. Jafnvel þótt grunngildi norrænnar lýðræðishefðar séu í húfi þurfa Norðurlönd rétt eins og margar stærri þjóðir að horfa á samskipti við Bandaríkin af sjónarhóli raunsæis. En á einhverjum tímapunkti hlýtur þessi spurning að vakna: Hvað er náinn bandamaður? Hvað er náinn bandamaður? Þorsteinn Pálsson fyrrverandi forsætis­ ráðherra GTA Saga Samkvæmt heimsfréttaritara Útvarps Sögu er Svíþjóð orðin að einhvers konar Mógadisjú norðursins þar sem skotárásir, sprengingar, hnífsstungur og nauðganir séu svo algengar að íbúar upplifi að þeir búi í Stalíngrad. Svíþjóð er sann- kallað helvíti á jörð. Það er ýmislegt, reyndar allt, vafasamt við þessar fullyrðingar. Á vef útvarpsstöðvarinnar góðu má líta mynd af lögreglumönnum við skyldustörf í tengslum við þessa umfjöllun. Þegar nánar er að gáð má sjá að myndin er í raun skjáskot úr tölvuleiknum GTA 5. Það segir allt sem segja þarf. Í besta falli óábyrgt Stjórnmálamenn eru komnir á hálan ís þegar þeir hlaupa til og koma með fullyrðingar um einstök mál þegar aðeins önnur hlið málsins hefur komið fram. Lögreglan er í þeirri stöðu að geta ekki tjáð sig um einstök mál. Það er því mjög hæpið hjá Dóru Björt Guðjónsdóttur, oddvita Pírata í Reykjavík, að nota stöðu sína sem formaður mannréttindaráðs borgarinnar til að velta upp spurningum um starfshætti lögreglu í tengslum við handtöku í Gleðigöngunni nýverið. Er það í besta falli óábyrgt og í versta falli rakinn popúlismi að setja lögregluna í klemmu til að skora pólitísk stig. arib@frettabladid.isSími: 561 1433 mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30 laugardaga 8.00 -16.00 sunnudaga 9.00 -16.00 • Austurströnd 14 • Hringbraut 35 • Fálkagötu 18 PREN TU N .IS NÝBAKAÐ BRAUÐ ALLA DAGA ....................................... www.bjornsbakari.is Afkoma viðskiptabankanna er léleg. Nýjustu uppgjör bankanna sýna, eins og áður, að þeir eiga enn langt í land með að ná mark-miði sínum um að skila tíu prósenta arðsemi af reglulegum rekstri. Leiðrétt fyrir stórum óbeinum eignarhlut Landsbankans í Marel, en hlutabréfa- verð félagsins hefur hækkað um meira en helming á árinu, er arðsemi bankanna allra um fimm til sex prósent, litlu meiri en af áhættulausum ríkisskuldabréfum. Lánshæfis- matsfyrirtækið Standard & Poor’s sá fyrr í sumar ástæðu til að breyta horfum sínum fyrir bankana úr stöðugum í neikvæðar. Í rökstuðningi er meðal annars bent á dræma arðsemi og að erfitt verði að auka hagnað vegna harðnandi samkeppni og versnandi efnahagsumhverfis. Hvað er til ráða? Fyrst er mikilvægt að hafa í huga, sem vill oft gleymast, að skilvirkt og hagkvæmt fjármálakerfi, sem miðlar fjármagni í arðbærustu fjárfestingar hverju sinni, skiptir lykilmáli við að bæta framleiðni í íslensku efnahagslífi. Ströngustu eiginfjárkröfur sem þekkjast í Evrópu, ásamt margfalt hærri sértækri skattlagningu, hjálpa ekki til við að ná þeim markmiðum. Þá er þörf á róttækum hagræðingaraðgerðum til að minnka kostnað, sem samanstendur einkum af launum, sköttum og kostnaði við upplýsingatækni, en í samanburði við banka af sambærilegri stærð á hinum Norðurlöndunum er kostnaðarhlutfall íslensku bankanna umtalsvert hærra. Ólíklegt er hins vegar að mikill árangur náist í þeim efnum á meðan tveir þriðju hlutar bankakerfisins eru í höndum ríkisins. Ein leið, sem stjórnvöld ættu að skoða að beita sér fyrir, væri möguleg sameining banka. Óumdeilt er að hægt væri að minnka rekstrarkostnað verulega með slíkum aðgerðum en á móti eru uppi sjónarmið, sem ber að taka alvarlega, um hvort þær myndu skaða samkeppni á banka- markaði, heimilum og fyrirtækjum til tjóns. Svo þarf hins vegar ekki endilega að vera. Samkeppnisumhverfið, ekki hvað síst í viðskiptabankastarfsemi, hefur tekið stakka- skiptum á örfáum árum, bæði með uppgangi fjártækni- fyrirtækja og innkomu lífeyrissjóða á íbúðalánamarkað. Frá því í ársbyrjun 2016 hafa útlán lífeyrissjóðanna til einstaklinga þannig aukist um meira en 150 prósent og eru sjóðirnir í dag með samanlagt um þrjátíu prósenta hlutdeild á íbúðalánamarkaði. Þessi þróun, þar sem nýir leikendur eru farnir að gera sig gildandi í útlánum og fjár- málaþjónustu, mun aðeins halda áfram. Of lítið hefur áunnist til hagræðingar í bankakerfinu á allra síðustu árum. Frá árinu 2014 hefur bankastarfs- mönnum fækkað um þrettán prósent. Það er of lítið. Í stað þess að minnka efnahagsreikning sinn, sem myndi um leið skapa tækifæri til að fækka fólki og draga úr rekstrar- kostnaði, hafa sumir ríkisbankar fremur kosið þá leið að leggja áherslu á útlánavöxt. Ekki er víst að það sé endilega fjárhagslega skynsamlegt út frá sjónarhóli eigandans, ríkissjóðs, sem ætti fremur að vilja að bankinn myndi minnka eigið fé sitt með auknum arðgreiðslum. Bankakerfið stendur á tímamótum. Á komandi árum munum við sjá uppstokkun á eignarhaldi, enn hraðari fækkun starfsfólks og breytingar á viðskiptamódelum sumra banka. Ákvarðanir stjórnvalda, sem eiga að hefj- ast handa við að losa um viðamikið eignarhald sitt í fjár- málastarfsemi, munu skipta sköpum um hve vel tekst til í þeirri vegferð. Tíminn vinnur ekki með þeim. Meira þarf til   2 3 . Á G Ú S T 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R10 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN 2 3 -0 8 -2 0 1 9 0 5 :1 5 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 A 0 -D 8 5 8 2 3 A 0 -D 7 1 C 2 3 A 0 -D 5 E 0 2 3 A 0 -D 4 A 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 2 2 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.