Fréttablaðið - 23.08.2019, Page 18

Fréttablaðið - 23.08.2019, Page 18
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@ frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653, Kvennabandið skipa sjö konur, þær Guðbjörg, Bergþóra, Stína, Sylvía, Hildur, Kristín og Margrét. Hljómsveitin kemur fram á morgun í Iðnó og er þetta í þriðja sinn sem þær spila á Menningarnótt. Þær koma fram undir dagskrárlið sem kallast „Komið úr skúrnum“ þar sem „Bílskúrshljómsveitir skipaðar síungum og ferskum pönkurum, rokkurum og blúsurum koma úr skúrum borgarinnar og troða upp“, eins og viðburðinum er lýst á vefsíðu Menningarnætur. „Bandið var stofnað fyrir um það bil þremur árum, við spilum í raun bara alls kyns tónlist. Það mætti segja að við værum svona popp/ rokk ábreiðuband, við byrjum að spila klukkan 17.30,“ segir Sylvía. „Við erum hreinræktað kvenna- band, allar komnar vel yfir fimm- tugt,“ segir Sylvía. Nema það gekk svolítið illa að finna kvenkyns- bassaleikara á miðjum aldri, við lögðum mikla áherslu að að hafa þetta kvennaband. Við erum núna komnar með frábæra stelpu á bass- ann sem er reyndar á sama aldri og börnin okkar. En hún er ótrúlega þroskuð og skemmtileg og passar vel inn í fíf laganginn í okkur.“ Sylvía segir að þær langi svolítið að fara að semja eigin tónlist en þeim hafi ekki gefist tími til þess. „Við spilum mjög fjölbreytta tón- list, einhver kemur kannski með hugmynd að lagi og við prófum það og athugum hvernig okkur líkar það.“ Stuð á fullorðinsballi Eitt af því sem Kvennabandið hefur gert og vill halda áfram að gera, er að halda föstudags- gleði. Það eru böll fyrir fullorðið fólk sem byrja snemma kvölds og eru búin um miðnætti. „Við höfum haldið þessi böll nokkrum sinnum, í Iðnó, Catalinu í Kópa- vogi og á bar í Hafnarfirði. Okkur langar að þróa þetta betur. Við erum komnar á þann aldur að við nennum ekkert að vera að djamma fram eftir nóttu. Það hefur verið vel tekið í þessi böll. Mæting hefur verið góð og mikið stuð,“ segir Sylvía. Kvennabandið hefur haldið böllin með öðrum hljómsveitum. „Við höfum til dæmis spilað með Gleðisveitinni plús, sem er svona fullorðins karlaband. Þeir eru rosa skemmtilegir og passa vel við okkur og taka sig ekki of hátíð- lega,“ segir Sylvía. „Það er alltaf ótrúlega gaman hjá okkur, þetta er næstum eins og saumaklúbbur. Við þekktumst lítið áður en hljómsveitin var stofnuð en við tengjumst samt allar einhverri á einhvern hátt, við erum svo heppnar að við náum sérlega vel saman og það er mjög gaman á æfingum. Þetta er alveg ótrúlega skemmtilegur félags- skapur og við hlæjum mikið, erum flestar á breytingaskeiðinu og erum oftast hálf berar í hitakófi á Sandra Guðrún Guðmundsdóttir sandragudrun@frettabladid.is Framhald af forsíðu ➛ Sylvía hlakkar til að koma fram með Kvennabandinu í Iðnó á morgun og vonar að sem flestir mæti. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI æfingum,“ segir Sylvía hlæjandi. Sjö konur skipa hljómsveitina, það er Sylvía söngkona, Margrét Sigurðardóttir gítarleikari, Berg- þóra Sveinsdóttir bassaleikari, Guðbjörg Pálsdóttir trommu- leikari, Kristín Jóna Þorsteins- dóttir slagverksleikari, Hildur Ásta Viggósdóttir hljómborðsleikari og Kristín Valsdóttir spilar á hljóm- borð og harmonikku. „Við erum með tvo hljómborðs- leikara, önnur fór í árs námsleyfi og sem betur fór kom hún aftur, en sú sem leysti hana af var svo frábær að við vildum ekki missa hana og hún vildi ekki hætta svo þær eru bara tvær núna, sem er mjög gott því harmonikkan kemur þar inn sem viðbót,“ útskýrir Sylvía. Skemmtilegar á sviði „Við komum hvaðanæva í tónlist, með mismunandi lærdóm á baki sem nýtist allur á einhvern hátt á okkar æfingum, í okkar flutningi og túlkun okkar á lögunum. Það þarf ekki að vera sérfræðingur til að stofna hljómsveit. Bara hafa gleðina að leiðarljósi og taka sig ekki of hátíðlega og þá er gaman,“ segir Sylvía. „Það er eitt og annað fram undan hjá okkur. Það er aldrei að vita nema við skellum f ljótlega í annað fullorðinsball. Svo er búið að panta okkur í sextugsafmæli og ýmislegt f leira svo það er alveg nóg að gera.“ Þau sem hafa áhuga á að sjá þessar hressu konur á sviði geta mætt í Iðnó á morgun klukkan 17.30 og hlustað á þær spila. „Við erum krafmiklar og skemmtilegar á sviði og hlökkum mikið til að spila á Menningarnótt, vera í stuði og sjá sem flesta,“ segir Sylvía að endingu. Það þarf ekki að vera sérfræðingur til að stofna hljómsveit. Bara hafa gleðina að leiðarljósi og taka sig ekki of hátíðlega og þá er gaman. Evonia er hlaðin bæti- efnum sem næra hárið og gera það gróskumeira. Myndirnar hér til hliðar sýna hversu góðum árangri er hægt að ná með Evonia. Evonia www.birkiaska.isFyrir Eftir Evonia eykur hárvöxt með því að veita hárrótinni næringu og styrk. 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 3 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U R 2 3 -0 8 -2 0 1 9 0 5 :1 5 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 A 0 -F A E 8 2 3 A 0 -F 9 A C 2 3 A 0 -F 8 7 0 2 3 A 0 -F 7 3 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 8 s _ 2 2 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.