Fréttablaðið - 23.08.2019, Qupperneq 26
Bergsveinn Ólafsson hefur ástríðu fyrir að hálpa fólki að öðlast betra líf.
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
8 KYNNINGARBLAÐ 2 3 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U RHEILSURÆKT
Bergsveinn, eða Beggi eins og hann er kallaður, hefur auk fyrirlestranna tekið fólk í
einkatíma í þjálfunarsálfræði.
„Þjálfunarsálfræði er ólík
klínískri sálfræði. Ef við segjum
að það sé skali frá mínus tíu til
plús tíu, þá hjálpar klínísk sál-
fræði þér að fara frá mínus sex eða
sjö upp í núll. Þjálfunarsálfræðin
hjálpar þér að fara frá svona
tveimur til þremur upp í sjö eða
átta,“ útskýrir Beggi.
Hann segist hafa mikla ástríðu
fyrir að hjálpa fólki til að ná að
gera það sem það vill í lífinu.
Hvort sem fólk vill bæta sig sem
einstaklingar, bæta einhver tengsl
í kringum sig, bæta sig í vinnu eða
bæta sig í íþróttum. „Ég hef áhuga
á öllu því sem tengist manneskj-
unni og að ef la hugsun og hegðun.
Ég reyni að hjálpa fólki við það
í gegnum fyrirlestra, í gegnum
þjálfunarsálfræðina, í gegnum
Vill kortleggja
hvað einkennir gott líf
Íþróttavöruverslun
Sundaborg 1 Sími 553 0700
NÆG BÍLASTÆÐI VIÐ VERSLUN Fylgdu okkur á
Öll helstu merkin á einum stað
Opnunartími
Virka daga 11-18
Laugardaga 11-16
Instagram-síðuna mína beggiolafs
og bloggið mitt á trendnet.is þar
sem ég skrifa pistla og reyni að
kenna fólki eitthvað sem gæti nýst
því í lífinu.“
Að sögn Begga hefur fyrir-
lestrum hans og þjálfunarsál-
fræðinni verið vel tekið. „Alla-
vega hefur enginn þorað að segja
neitt annað við mig,“ segir hann
hlæjandi og bætir við að hann fái
reglulega skilaboð frá fólki sem
hrósar honum fyrir það sem hann
er að gera. „Það heldur manni
gangandi,“ bætir hann við.
Fáir hafa tíma fyrir spjall
Þó að orðið þjálfunarsálfræði
kunni að hljóma eins og hún sé
eingöngu hugsuð fyrir íþróttafólk
segir Beggi að sú sé ekki raunin.
„Þetta fer að einhverju leyti inn á
sama svið og íþróttasálfræðin en
þetta hjálpar líka fólki í persónu-
lega lífinu. Oft eru einhverjar
venjur eða hugsanir sem fólk vill
bæta og vantar aðstoð við það.
Fólk vill líka bara oft koma og
spjalla. Það eru svo fáir í sam-
félaginu í dag sem gefa sér tíma til
að spjalla, það er ekkert hlustað á
þig. Allir eru að pæla í sjálfum sér.“
Beggi segir gott fyrir fólk að fá
rými til að tala um það sem því
liggur á hjarta og koma skipulagi
á hugsanir sínar. „Þú skipuleggur
hugsanir þínar með því að tala um
þær. Þess vegna er svo gott að hafa
einhvern til að tala við, hvort sem
það er traustur vinur eða sálfræð-
ingur. Einhver sem þú getur treyst
að hlusti á þig og spyrji þig opið.
Einhver sem hjálpar þér að átta
þig á því hvað þú ert að reyna að
leysa, hvaða vandamál þú ert að
glíma við eða hvað þú ert að upp-
lifa. Það er svo oft sem við vitum
það alveg, en það er svo erfitt að
vera bara með það í hausnum, en
geta ekki talað um það við neinn.
Þá náum við ekki að ráða fram úr
því.“
Merkingarfyllra líf
Fyrirlestrarnir sem Beggi hefur
haldið eru af ýmsum toga. „Einn
þeirra kalla ég Blómstraðu.
Hann snýst um hvernig hægt er
að ef la hugsun og hegðun til að
færast í átt að merkingarfyllra
og þýðingarmeira lífi. Svo hef
ég verið með f leiri fyrirlestra
sem tengjast andlegri heilsu og
árangri í lífinu. Einn þeirra er um
hvernig á að vera góður liðsmaður
á ýmsum sviðum lífsins eins og
vinnu, fjölskyldu, íþróttaliðinu
og vinahópnum. Ég kalla þann
fyrirlestur Sjö einkenni alvöru
liðsmanna.“
Beggi segir að undanfarið hafi
hann verið að reyna að finna út
hvað einkenni gott líf. „Mig langar
að færa okkur fjær illu og nær
góðu í lífinu. Ég hef áhuga á þessu
bæði til að bæta sjálfan mig og til
að hjálpa öðrum. Þetta er minn
tilgangur í lífinu þessa stundina.“
Bergsveinn
Ólafsson, knatt-
spyrnumaður
og mastersnemi
í jákvæðri sál-
fræði og þjálf-
unarsálfræði,
hefur undanfarin
tvö ár haldið
fyrirlestra þar
sem hann
hjálpar fólki að
bæta líf sitt og
setja sér
markmið.
Þú skipuleggur
hugsanir þínar
með því að tala um þær.
Þess vegna er svo gott að
hafa einhvern til að tala
við, hvort sem það er
traustur vinur eða
sálfræðingur.
Bergsveinn hefur haldið fjölda
fyrirlestra um hvernig á að ná mark-
miðum sínum.
2
3
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:1
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
A
0
-D
3
6
8
2
3
A
0
-D
2
2
C
2
3
A
0
-D
0
F
0
2
3
A
0
-C
F
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
2
2
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K