Fréttablaðið - 23.08.2019, Qupperneq 27
Beinagrindin er
grunnstoð líkam-
ans og veitir meira en
bara styrk og vernd. Hún
er eitt af mikilvægustu
kerfum mannslíkamans.
Það kemur í ljós að 10 mínútna ástundun getur skipt sköpum fyrir heilsu og frelsi fólks.
Framfarir þeirra sem stunda
OsteoStrong hafa farið fram úr
björtustu vonum,“ segir Svanlaug
Jóhannsdóttir, framkvæmda
stjóri og eigandi OsteoStrong á
Íslandi. Hún bætir við að um 50%
kvenna og 30% karla geti búist
við því að brjóta bein eftir fimm
tugt. Meðlimir hjá OsteoStrong
geta bætt beinþéttni um 14,7% að
meðaltali á ári og vöðvastyrk um
73%. OsteoStrong hentar öllum
sem vilja styrkja vöðva hratt og
auka þéttleika beina sinna,“ segir
Svanlaug. Þegar talið berst að
beinheilsu hugsa margir til eldra
fólks en flestallir geta notið góðs af
ástundun OsteoStrong.
Bara tíu mínútur í viku
OsteoStrong er byltingarkennt
æfingakerfi. Meðlimir Osteo
Strong mæta einu sinni í viku og ná
á innan við 10 mínútum að styrkja
bein, vöðva, sinar og liðbönd svo
um munar. Á sama tíma lækkar
langtíma blóðsykur og jafnvægi
eykst. Fólk mætir eins og það er
klætt og gerir æfingarnar á sokk
unum. Beinagrindin er grunnstoð
líkamans og veitir meira en bara
styrk og vernd. Hún er eitt af mikil
vægustu kerfum mannslíkamans.
Með því að styrkja beina
grindina upplifa margir aukna
beinþéttni, bætta líkamsstöðu,
aukið jafnvægi, aukna getu við
íþróttaiðkun og minni verki í
liðamótum og baki. OsteoStrong
virkar fyrir fólk á öllum aldri án
tillits til íþróttalegs atgervis. Það er
algjörlega sársaukalaust að stunda
OsteoStrong, það tekur fljótt af og
árangur er f ljótt mælanlegur.
Beinþynning er vandamál
„Beinþynning er sífellt vaxandi
faraldur í heiminum. Oft er talað
um beinþynningu sem kvenna
sjúkdóm en hún herjar í sífellt
meiri mæli einnig á karlmenn. Sem
dæmi má taka að það eru fleiri
karlmenn sem fá beinþynningu
en krabbamein í blöðruhálskirtil,“
segir Örn Helgason, stjórnarfor
maður og eigandi OsteoStrong.
„Flest greind tilfelli í heiminum
koma upp í Svíþjóð. Hin Norður
löndin og við komum svo fast á
hæla þeim. Við erum að hitta fólk
á öllum aldri og líka ungt fólk,
rétt yfir tvítugu, kannski búið að
brjóta sig oftar en tíu sinnum og
þegar greint með beinþynningu.
Við erum svo glöð að vera með
þessi einstöku tæki sem geta snúið
ferlinu við.“
Minni verkir
Við ástundun OsteoStrong þéttast
bein, vöðvar, sinar og liðbönd.
Ástundunin gerir það að verkum
að margir ná að losa sig við alls
kyns verki í líkamanum. „Það er
svo spennandi hvað æfingarnar
geta hjálpað mörgum. Bæði þeim
sem er í stöðugri hreyfingu og líka
þeim sem hafa jafnvel bara legið í
rúminu í nokkur ár. Það er einstak
lega gefandi að sjá sólina vaxa í
augum fólks þegar það kemur viku
eftir viku.
Það er svo margt sem getur
komið upp á. Veikindi, áföll og
slys hjá einstaklingum á öllum
aldri gera það að verkum að fólk er
stimplað úr leik í einhvern tíma og
þá getur verið svo erfitt að koma
sér aftur af stað. Það getur verið
erfitt að fara af stað í æfingar en
flestir geta unað við að leyfa sér tíu
mínútur einu sinni í viku,“ segir
Örn.
Sterk bein og kraftmiklir
vöðvar á tíu mínútum
Svanlaug Jóhannsdóttir og Örn Helgason eru eigendur OsteoStrong. Þau eru mjög ánægð með þær framfarir sem fólk sýnir. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Ég fór á kynningu hjá OsteoStrong í febrúar 2019. Mér fannst margt mjög áhugavert
sem þar kom fram og það kom
mér á óvart að OsteoStrong er
ekki bara fyrir gamalt fólk með
beinþynningu, heldur er ávinn
ingurinn fyrir íþróttafólk mikill.
Ég bókaði því prufutíma og keypti
mér strax áskrift. Í besta falli
myndi þetta hjálpa mér með mín
vandamál og í versta falli myndi
þetta hafa góð áhrif á beinheilsu
mína sem ég held að allt of fáir séu
að pæla í.
Mín helstu vandamál voru
að ég hef alltaf verið að læsast í
spjaldliðnum sem verður til þess
að mig verkjar í mjöðmina þegar
ég hleyp. Einnig hafði ég hrygg
brotnað í ágúst 2017 og vantaði að
styrkja það svæði. Þegar ég byrjaði
í OsteoStrong þá var ég með mikla
verki í mjöðminni vegna þess að
ég var að æfa fyrir Parísarmara
þon, sem ég ætlaði að hlaupa í
apríl 2019. Ég var í rauninni aðeins
búin að gefast upp, því að það er
þreytandi að vera alltaf með verki
að æfa. Eftir 23 skipti í Osteo
Strong fann ég strax mun og var
farin að hlaupa verkjalaus.
Hleypur maraþon eftir æfingar hjá OsteoStrong
Jórunn Jóns-
dóttir mælir
heilshugar með
OsteoStrong.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
„Ég hef þjáðst af verkjum í hnénu í áratug. Ég stundaði OsteoStrong í þrjá
mánuði og verkurinn hvarf algjörlega. Þremur mánuðum síðar hefur hann
ekki komið aftur,“ segir Vignir Ragnarsson smiður. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
OsteoStrong
opnaði á Íslandi
í janúar 2019 í
Borgartúninu.
OsteoStrong er
byltingarkennt
æfingakerfi. Með-
limir OsteoStrong
mæta einu sinni í
viku og ná á innan
við 10 mínútum
að styrkja bein,
vöðva, sinar og
liðbönd.
Sjúkraþjálfarinn minn, sem
þurfti vanalega að losa spjald
liðinn hjá mér á tveggja vikna
fresti, hafði orð á því að ástandið
á mér væri óvenju gott – allt í
einu var ég farin að læsast mun
sjaldnar. Ég hljóp síðan maraþonið
mitt verkjalaus og er að fara í
annað maraþon núna í september.
Ég get því heilshugar mælt með
OsteoStrong og þessi heilsurækt
mun verða hluti af minni þjálfun í
framtíðinni.
Jórunn Jónsdóttir,
fjármálastjóri og íþróttakona
KYNNINGARBLAÐ 9 F Ö S T U DAG U R 2 3 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 HEILSURÆKT
2
3
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:1
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
A
0
-E
2
3
8
2
3
A
0
-E
0
F
C
2
3
A
0
-D
F
C
0
2
3
A
0
-D
E
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
2
2
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K