Fréttablaðið - 23.08.2019, Page 39
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Föstudagur
hvar@frettabladid.is
23. ÁGÚST 2019
Tónlist
Hvað? Ný ópera
Hvenær? 20.00
Hvar? Herðubreið, Seyðisfirði
The Raven’s Kiss er tilfinninga-
rík ópera í tveimur þáttum, eftir
Evan Fein og Þorvald Davíð Krist-
jánsson. Hún verður frumflutt í
Herðubreið í kvöld við undirleik
hljómsveitar. Söngvarar eru Berg-
þór Pálsson, Berta Dröfn Ómars-
dóttir, Egill Árni Pálsson, Hildur
Evlalía Unnarsdóttir og Ólafur
Freyr Birkisson.
Hvað? Öll píanóeinleiksverk Johns
Speight
Hvenær? 20.00
Hvar? Egilsstaðakirkja
Peter Máté leikur sjö verk fyrir
einleikspíanó eftir John Speight
sem samin voru á fimm áratugum.
Það nýjasta, samið 2018, verður
frumflutt í kvöld.
Listahátíð
Hvað? Ágústkvöld/ pod koniec
sierpnia
Hvenær? 18.00-21.00
Hvar? Hamraborg, Kópavogi
Íslensk/pólsk listahátíð verður
opnuð nú síðdegis og stendur til
1. september. Listakonurnar Wiola
Ujazdowska og Ragnheiður Sig-
urðardóttir Bjarnason hafa veg og
vanda af henni. Hátíðin er haldin í
Midpunkt, Gerðarsafni, Catalínu,
Euromarket og á götunni.
Myndlist
Hvað? Heimsókn frá Manitoba
Hvenær? 16.00
Hvar? Borgarbókasafnið Spönginni
Þrjár vesturíslenskar myndlistar-
konur opna sýningu á verkum
sínum. Þetta eru þær JoAnne
Gullachsen og Mabel Sigurdson
Tinguely sem eru fæddar og upp-
aldar í Gimli, Manitoba og Inga
Torfadóttir sem er fædd á Íslandi,
en flutti með fjölskyldu sinni til
Winnepeg 1976. Léttar veitingar
í boði kanadíska sendiráðsins á
Íslandi.
Raven’s Kiss hópurinn sem stendur að óperusýningunni á Seyðisfirði.
TÓNLIST
Kammertónleikar
Verk eftir Cutright, Elgar, Sjost
akóvitsj, Yi, Kimura, David Bruce,
Áskel Másson og Þráin Hjálmars
son.
Flytjendur: Aðstandendur og
þátttakendur í Harpa International
Music Academy.
Norðurljós í Hörpu
fimmtudaginn 15. ágúst
„Fyrirgefðu, herra minn, en veistu
nokkuð hver stjórnandinn er hér á
tónleikunum?“ Öldruð kona sem
sat við hliðina á mér spurði mig. Ég
yppti öxlum. Virðulegur maður með
vingjarnlegt bros stjórnaði hljóm-
sveitunum. Þær samanstóðu ýmist
af langt komnum strengjanemend-
um, eða atvinnuhljóðfæraleikurum.
Líklegast var þetta Eugene Drucker
ef marka má heimasíðu viðburðar-
ins, en það er þó ekki alveg á hreinu.
Um var að ræða hátíðartón-
leika Harpa International Music
Academy, sem stendur fyrir nám-
skeiðum á sumrin í Hörpu. Efnis-
skráin var úr ýmsum áttum, en
var ekki nægilega vel byggð upp,
auk þess sem tónleikaskráin var í
skötulíki. Engar upplýsingar voru
þar um verkin og sú sem kynnti dag-
skrána virtist ekki átta sig á að hún
var á sviðinu í sal, en ekki í litlum
klefa. Það sem heyrðist var aðallega
muldur, ef maður sat langt í burtu.
Nemendurnir léku af kostgæfni
Flutningurinn á tónleikunum var
yfirleitt góður. Nemendurnir spil-
uðu ágætlega, þeir voru samtaka og
einbeittir. Atvinnuhljóðfæraleikar-
arnir léku oftast fallega, en sumt
virtist þó ekki hafa verið sérlega
mikið æft.
Hið fjörlega Shuo eftir Chen Yi
virkaði flausturslegt hjá fimm hljóð-
færaleikurum, og Steampunk eftir
David Bruce var býsna losaralegt,
fyrir utan hvað það var leiðinlegt.
Sumir tónar voru ekki hreinir og
samspilið fremur ófókuserað. Senni-
lega átti tónlistin að vera fyndin því
hljóðfæraleikararnir voru í 19. aldar
búningum. Af hverju í ósköpunum?
Gerningurinn missti fullkomlega
marks. Flytjendunum var þó vor-
kunn; á þessum tímapunkti var liðið
vel á þriðja klukkutímann, sem er
alltof langt fyrir svona tónleika. Fólk
hlýtur að hafa verið orðið þreytt.
Tvær íslenskar tónsmíðar voru
fluttar, og komu báðar prýðilega út.
Eftirspilið úr óperunni Sölumaður
deyr eftir Áskel Másson var fallegt,
mjög lagrænt og tilfinningaþrungið,
dáleiðandi í einfaldleika sínum. Hið
kyrrláta Immaterial/Fleeting eftir
Þráin Hjálmarsson var líka f lott,
það byggðist á síendurteknum,
ofurveikum hljómum, á mörkum
hins heyranlega, eins og hugleiðing
um eilífðina.
Súrrealískt fiðluverk
Áhugaverðasta verkið á dagskránni
var þó eftir Mari Kimura, sex kapr-
ísur, eða glettur, eins og orðinu
capriccio hefur verið snarað yfir
á íslensku. Tónlistin hverfðist um
tæknina sem er notuð til að spila
lægri tóna en náttúrulegt telst fyrir
fiðluna. Mikið var því um djúpa og
dálítið skringilega tóna. Í heild var
tónlistin skemmtilega duttlunga-
full, hröð, létt og leikandi; nánast
súrrealísk. Tónskáldið sjálft spilaði
af yfirburðum. Leikur hennar var
tær og kraftmikill; útkoman glæsi-
leg.
Eins og áður segir voru tónleik-
arnir skelfilega langir, og upplýs-
ingarnar um tónlist og f lytjendur
af skornum skammti. Námskeiðin í
Hörpu eru vissulega frábær og hafa
mælst afar vel fyrir, en hér hefði
þurft að tálga aðeins dagskrána og
að sumu leyti vanda betur til verka.
Jónas Sen
NIÐURSTAÐA: Allt of langir tónleikar,
flutningurinn var misgóður og efnis-
skráin á köflum lítt áhugaverð.
Roooosalega langir tónleikar
Hátíðartónleikar Harpa International Music Academy voru í Hörpu.
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 23F Ö S T U D A G U R 2 3 . Á G Ú S T 2 0 1 9
14. SEPTEMBER Í ELDBORG
MIÐASALA Á
HARPA.IS/DIVUR
FÁIR MIÐAREFTIR!EKKI ER HÆGT AÐ BÆTAVIÐ FLEIRI TÓNLEIKUM
SVALA & JÓHANNA GUÐRÚN
DÍSELLA · FR IÐRIK ÓMAR · KATRÍN HALLDÓRA
RAGGA GRÖNDAL · S IGGA BEINTEINS
2
3
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:1
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
A
0
-D
8
5
8
2
3
A
0
-D
7
1
C
2
3
A
0
-D
5
E
0
2
3
A
0
-D
4
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
2
2
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K