Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.08.2019, Qupperneq 43

Fréttablaðið - 23.08.2019, Qupperneq 43
EYJAFJALLAJÖKULL Góðar hugmyndir á gottimatinn.is Á miðvikudag var greint frá því hvaða stórstjörnur myndu dansa í nýjasta Dancing With the Stars þáttaröðinni. Ofurmódelið Christie Brinkley er þar á meðal en hún dansaði svo eftirminnilega við Uptown Girl með Billy Joel. Hún reyndar viðurkenndi að hún kynni ekkert að dansa og dansinn sem hún steig í myndbandinu forðum daga væri einn af þeim fáu sem hún kynni. James Van Der Beek sem sló svo eftirminnilega í gegn í Dawson Creek forðum daga er einnig kominn í gljáandi fína dansskó, körfubolta­ stjarnan fyrrverandi Lamar Odom er einnig á listanum en það er eitt nafn á listanum sem hefur vakið meiri athygli. Fyrrverandi fjölmiðla­ fulltrúi Donalds Trump, Sean Spicer, ætlar að reima á sig dansskóna. Tom Bergeron, kynnir þáttanna, var ekkert sérlega hrifinn af að fá Spicer. Sagði að sjónvarpsþættir ættu að gefa áhorfendum frí frá hinu póli­ tíska lífi. En hann réði þessu ekki og væri spenntur að hefja nýtt tímabil. Stöð 2 ætlar að gera aðra seríu af Allir geta dansað en ekki hefur verið til­ kynnt um hverjir verða í henni. Fyrrverandi fjölmiðlafulltrúi Trumps reimar á sig dansskóna Angel Has Fallen, nýjasta myndin í Fallen­flokknum, var frumsýnd í Kaliforníu í vikunni. Flestir leikar­ anna voru mættir í eftirpartíið og voru þeir Gerard Butler og Morgan Freeman hressastir allra samkvæmt slúðurmiðlum. Freeman, sem er 82 ára, var í gleðinni langt fram yfir miðnætti og dró hvergi af sér. Áður höfðu Olympus Has Fallen og London Has Fallen komið út. Þessi mynd segir frá Mike Banning, sem Butler leikur, sem þarf að hreinsa nafn sitt eftir að hafa verið grunaður um að hafa ætlað að myrða Banda­ ríkjaforseta sem Freeman leikur. Banning snýr sér til sinna ólík­ legustu vina til að hreinsa nafn sitt. Myndin hefur fengið misjafna dóma eins og von var en hasarinn er út um allt og mikil spenna sem snobb­ aðir gagnrýnendur eru lítið fyrir. Sprengjur og annað þykir ekki fínt. En fyrir harðhausa og spennufíkla er hún sögð vera fínasta afþreying. Stuð í eftirpartíi Gerard Butler og Morgan Freeman í partíinu. Sean Spicer var hress þegar kepp- endur voru kynntir. Christie Brinkley var í banastuði á Planet Hollywood. Kate Hudson frumsýndi nýja fata­ línu sína, HappyXNature, í Self­ ridge’s í vikunni og var þar með kærastanum sínum Danny Fuji­ kawa. Hudson flakkaði á milli. Fór úr glæstum grænum stuttum kjól og yfir í samfesting en samfestingar hennar hafa þótt þeir allra flottustu. Hudson, sem á þrjú börn, mun næst sjást á hvíta tjaldinu í mynd­ inni Music en þar á eftir er það Mona Lisa and the Blood Moon sem margir bíða spenntir eftir. Hún og Fujikawa hafa verið par í hartnær tvö ár en þau hafa þekkst mun lengur. Þau kynntust í gegnum sameiginlega vini fyrir um 15 árum en ástin kviknaði mun síðar. „Hann er einn af betri vinum stjúpbróður míns og ég er búinn að þekkja fjöl­ skylduna hans mjög lengi. Við slepptum þeim parti eiginlega að vera vandræðaleg á fyrsta deiti. Þetta bara small hjá okkur og við eigum ótrúlegt samband.“ Glæsileg að vanda Kate Hudson í samfestingnum. Þátttakendur í ár Christie Brinkley - ofurmódel James Van Der Beek - leikari Lamar Odom - körfuboltaleik- maður Karamo Brown - Queer Eye for the Straight Guy Hannah Brown - The Bachelor Kel Mitchell - leikari Sean Spicer - fyrrverandi fjöl- miðlafulltrúi Hvíta hússins Ally Brooke - söngkona Kate Flannery - leikkona Lauren Alaina - söngkona Ray Lewis - NFL- leikmaður Mary Wilson - söngkona úr Supremes L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 27F Ö S T U D A G U R 2 3 . Á G Ú S T 2 0 1 9 2 3 -0 8 -2 0 1 9 0 5 :1 5 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 A 0 -F 1 0 8 2 3 A 0 -E F C C 2 3 A 0 -E E 9 0 2 3 A 0 -E D 5 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 8 s _ 2 2 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.