Fréttablaðið - 23.08.2019, Side 44
2 3 . Á G Ú S T 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R28 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
GLAMOUR
Farðu inn á Glamour.is og fáðu
daglegar fréttir úr heimi
hönnunar, lífsstíls og tísku.
l Facebook l Instagram l Twitter
Jóhanna Methúsalems-dóttir stofnaði skart-g r ipaf y r ir tæk ið K r íu ásamt eiginmanni sínum Paul Weil árið 2007, en hann starfar einnig sem
listamaður og tónlistar-
maður. Merkið er í miklu
uppáhaldi hjá helstu tísku-
drósum landsins, sem margar
hverjar eiga f leiri en einn eða
tvo gripi eftir Jóhönnu. Hún
býr núna ásamt eiginmann-
inum í Catskills-fjöllunum í
New York-fylki, en hún fluttist
til New York-borgar árið 1988.
Hjónin voru að opna nýja Kríu-
verslun í Catskills.
„Hérna er maður meira að
pæla í hlutum og að búa sér fal-
legt í heimili, að gera kósí heima
hjá sér. Í New York er andinn
þannig að fólk hugsar miklu
meira um hverju það klæðist.
Þess vegna erum við með mikið
af heimilisvöru í versluninni
líka, þótt búðin sér fyrst og
fremst Kríu-búð.“
Hún segist velja vörur inn í
búðina út frá því hvað henni
finnst fallegt og myndi sjálfa
langa í. Svo sé mikið af því sem
er til sölu eftir vini þeirra hjóna.
„Við verðum með mikið af
vörum fyrir fólk sem vill hugsa
vel um sjálft sig. Kerti, ilmolíur,
áhugaverðar bækur og góða
tónlist.“
Upphaf lega reyndi Jóhanna
að koma með tvær skartgripa-
línur á ári en hún hefur slakað
aðeins á þeirri reglu í seinni
tíð, enda um að ræða vörur
sem fylgja ekki tískustraumum
heldur eru persónulegri og
tímalausari.
„Núna reyni ég að koma með
eina línu á ári og tek mér meiri
tíma. Bæti í línuna út árið og
leyfi henni þannig að vaxa. Það
kemur bara þegar það kemur,“
segir Jóhanna hlæjandi.
Nýjasta línan heitir Resident
Alien og er innblásin af fyrstu
árum Jóhönnu í New York.
„Ég hugsa um mig enn þá sem
smá svona „resident alien“. Við
f luttum hingað í sveitina fyrir
ári, hér hefur maður meira pláss
til að hugsa. Þá byrjaði ég aðeins
að velta því fyrir mér hvað heill-
aði mig við borgina fyrst eftir
að ég f lutti út. Þetta var á þeim
tíma sem hipphopp-tískan var
allsráðandi og mjög vinsælt að
vera með stórar og áberandi
keðjur,“ segir Jóhanna. Hún
segist hafa fílað þann stíl og
fengið innblástur frá honum, þó
að hún sé öllu hefðbundnari og
enn þá með sinn náttúrulega og
klassíska stíl í forgrunni.
„Þetta var fyrir tíma sam-
skiptamiðla, þannig að að mínu
mati skein persónulegur stíll
fólks meira í gegn, því fólk var
síður að herma eftir öðrum. Ein-
staklingar voru með sterkari og
sjálfstæðari stíl.“
Jóhanna leggur áherslu á að
velja gott fólk í kringum sig við
gerð Kríu-skartsins.
„Einn sem er með mér í þessu
hefur til dæmis unnið með mér
frá því ég var lærlingur fyrir
20 árum, hann hjálpar mér að
pússa vörurnar. Svo erum við
með steinsetjara og steypara, en
hann notar bara endurunninn
málm. Við leggjum líka áherslu
á að borga öllum vel og svo vilj-
um við líka vera eins umhverfis-
væn og við getum. Það er ekki
það mikið mál, maður þarf bara
að hafa það í huga.“
Nýja línan frá Kríu fæst í Niel-
sen Sérverzlun í Bankastræti 4
og Aftur á Laugavegi 39.
Myndirnar eru teknar af
Elísabetu Davíðsdóttur og fyrir-
sætan heitir Heather Goldin.
steingerdur@frettabladid.is
Ný búð
og lína
frá Kríu
Jóhanna fluttist til New York árið 1988 en flutti í Catskills-fjöllin í fyrra.
Jóhanna og Paul leggja áherlsu á að
vera eins umhverfisvæn og þau geta
við gerð gripanna.
Myndirnar í
svokallaðri
„lookbook“
sem fylgdi
nýju línuni
voru teknar
af ljósmynd-
aranum og
fyrirsætunni
Elísabetu
Davíðs-
dóttur.
Í nýju línunni má finna armbönd,
hálsmen, hringa og eyrnalokka.
Hægt er að
nálgast skart-
gripina í Aftur
á Laugarvegi
og Nielsen
Sérverzlun í
Bankastræt-
inu.
Jóhanna og maður hennar voru að
opna verslun í Catskills-fjöllunum.
Í nýju
línunni
eru stærri
steinar en
Jóhanna
hefur notast
við hingað
til, eins og
á þessum
fallegu
hringum.
Jóhanna Methúsal-
emsdóttir og maður
hennar Paul stofnuðu
skartgripafyrirtækið
Kríu árið 2007. Merkið
er í miklu uppáhaldi
hjá íslenskum tísku-
spekúlöntum. Jóhanna
leggur áherslu á að gera
tímalausa gripi sem
eru persónulegir fyrir
eigandann.
2
3
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:1
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
A
0
-E
C
1
8
2
3
A
0
-E
A
D
C
2
3
A
0
-E
9
A
0
2
3
A
0
-E
8
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
2
2
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K