Fréttir - Eyjafréttir - 28.11.2012, Page 8
8 Eyjafréttir / Miðvikudagur 28. nóvember 2012
°
°
Bæjarráð
Fjórar
milljónir
frá EBÍ
Fyrir síðasta fundi bæjarráðs lá
erindi frá EBÍ brunabót, sem tók
yfir Brunabótafélag Íslands fyrir
nokkrum árum, þar sem fram
kemur að stjórn EBÍ hefur ákveðið
100 milljón kr. arðgreiðslu til að -
ildarsveitarfélaga fyrir árið 2012.
Hlutdeild Vestmannaeyjabæjar í
sameignasjóði EBÍ er 4.013% og
ágóðahlutagreiðsla ársins 2012 til
Vestmannaeyjabæjar verður því kr.
4.013.000.
Bæjarráð þakkaði upplýsingarnar.
Umsókn
um styrk
vegna
„Lands -
byggð in
lifi“
Landsbyggðin lifi fór þess á leit við
bæjarráð að fá 50 þúsund króna
styrk til að sinna grunnstarfsemi
samtakanna. Bæjarráð gat þó ekki
orðið við erindinu þar sem það
rúmast ekki innan fjárhagsáætlunar
þrátt fyrir að ráðið hafi miklar
mætur á starfsemi samtakanna og
fullan skilning á baráttumálum
þeirra.
Á heimasíðu samtakanna segir að
Landsbyggðin lifi - LBL, sé hreyf-
ing fólks á Íslandi sem vill örva og
efla byggð um land allt. Áhersla er
lögð á að tengja fólk saman og
hjálpast að við að mynda sterk
heildarsamtök, samstarfsvettvang
fyrir einstaklinga og hvers konar
óháð áhugamannafélög sem hafa
það á stefnuskrá sinni að styrkja og
efla heimabyggð sína og stuðla
þannig að samstiga þróun byggða -
mála um land allt bæði efnahags-
og menningarlega.
Meginmarkmið og framtíðarsýn
Landsbyggðin lifi er að stuðla að
myndun samstöðuhópa, þ.e. fram-
fara-, velferðar- eða þróunarfélaga,
helst í hverju sveitarfélagi landsins,
og jafnframt að miðla og dreifa
upplýsingum og mynda góð tengsl
þeirra á milli þeim til uppörvunar
og leiðbeiningar og góðum málum
til framdráttar.
Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi
forseti Íslands, er verndari sam-
takanna.
Talmeina -
fræðingur
við skóla -
skrifstofu
Framkvæmdastjóri fjölskyldu- og
fræðslusviðs óskaði eftir heimild
bæjarráðs að fá að ráða talmeina -
fræðing í hlutastarf við skólaskrif-
stofu.
Bæjarráð samþykkti erindið enda
leiði það ekki til aukins kostnaðar.
Fara skal með ráðningu í samræmi
við starfsmannastefnu Vestmanna -
eyjabæjar og þær skrifuðu verk-
lagsreglur sem birtar eru á vefsíðu
sveitarfélagsins.
Þorvaldur Bjarni hlakkar til tónleikanna í Hörpu 26. janúar:
Sér fyrir sér að Eyjamenn
komi árlega saman í Eldborg
Það lá vel á Þorvaldi Bjarna Þor-
valdssyni, tónlistarmanni og Tod -
mobilemeðlim, þegar blaða -
maður hitti hann á laugardaginn
uppi í Höll. Var hann ánægður
með tónleika hljómsveitarinnar
kvöldið áður og hlakkaði til
ballsins um kvöldið. Þá er hann
spenntur fyrir tónleikunum í
Hörpu 26. janúar nk. þar sem
dagskráin verður helguð Vest-
mannaeyjum og árunum í
kringum 1973.
Tilefnið er að þann 23. janúar 2013
verða 40 ár frá því Vestmannaeyja -
gosið hófst. Þar mætir Þorvaldur
með öflugan hóp hljóðfæraleikara og
söngvara auk 40 manna kórs. Á tón-
leikunum verður frumflutt lag Þor-
valdar við kvæði Kolbrúnar Hörpu
Kolbeinsdóttur, Yfir eld og glóð, sem
bar sigur úr býtum í ljóðasamkeppni
sem efnt var í tilefni tónleikanna.
Þann 16. nóvember 2011 stóðu
Bjarni Ólafur Guðmundsson og
Guðrún Mary Ólafsdóttir fyrir minn -
ingartónleikum um Oddgeir Krist j -
áns son, tónskáld, í Eldborgarsal
Hörpu. Húsfyllir var og þóttu tón-
leikararnir takast mjög vel. Þar hélt
Þorvaldur á tónsprotanum auk þess
að útsetja lög Oddgeirs ásamt Kjart -
ani Valdemarssyni og vera ábyrgur
fyrir listrænu hliðinni. Enn á ný er ýtt
úr vör og nú er sótt á fleiri mið í leit
að lögum. „Ég sé fyrir mér að það
verði hefð að Vestmannaeyingar
komi árlega saman í Eldborg. Í fyrra
var þemað lög Oddgeirs en núna
verða það lög sem voru vinsæl um og
eftir 1970 auk laga eftir Eyjamenn,
Oddgeir og fleiri,“ sagði Þorvaldur.
Lögin sett í sparibúning
Lögin verða færð í sparibúning því á
tónleikunum verða auk söngvaranna
Stefáns Hilmarssonar, Magna Ás-
geirssonar, Eyþórs Inga Gunnlaugs -
sonar, Þórs Breiðfjörð, sem var ein
aðalstjarnan í Vesalingunum, Sigríð -
ar Beinteinsdóttur og Margrétar Eirar
Hjartardóttur, rokksveit, kammer -
sveit skipuð fólki úr Sinfóníunni sem
kom fram með Þorvaldi á tónleikum
þar sem flutt voru lög úr Vesaling -
unum og 40 manna kór Hljómeykis.
Um lagið sem hann á fyrir höndum
að semja við ljóð Kolbrúnar Hörpu,
sagði Þorvaldur að það yrði að ná
yfir allan tilfinningaskalann. „Það
var sorgardagur þegar byrjaði að
gjósa í Vestmannaeyjum en það er
líka gleðilegt að enginn fórst og að
uppbygging tókst þetta vel. Maður
verður að leggja höfuðið í bleyti og
vonandi verður útkoman góð og allir
ánægðir.“
Þorvaldur var eins og áður sagði
ánægður með tónleikana á föstu -
daginn og gestir, sem Eyjafréttir,
ræddu við, voru í skýjunum með sitt
fólk í Todmobile. Gestir voru á bilinu
200 til 250 sem Þorvaldur Bjarni
sagði frábært. Ekki var ánægjan síðri
hjá þeim sem þar mættu.
Todmobile á sér stað í hjarta
Eyjamanna
Að fá um og yfir einn tíunda bæjar-
búa á tónleika og ball sýnir að Tod-
mobile á sér stað í hjarta Eyjamanna
enda hefur hljómsveitin átt hér
marga góða spretti á tónleikum, böll -
um og á þjóðhátíð. Andrea Gylfa -
dóttir, Eyþór Arnalds og Þorvaldur
mörkuðu líka spor í íslenskri tón -
listarsögu þegar þau sameinuðu
krafta sína í Todmobile árið 1988.
Þorvaldur segir þau líta á Vestmanna -
eyjar sem sinn stað og eru þakklát
fyrir móttökurnar. Ekki er hann síður
ánægður með viðtökurnar sem Odd-
geirstónleikarnir fengu.
„Þeir gáfu tóninn og vonandi verður
þetta árlegt. Eyjamenn eru sérstakur
þjóðflokkur og lögin hans Oddgeirs
eru svo „djúsí“. Það er bara spurning
um að finna þema fyrir hvert ár,“
sagði Þorvaldur sem lofar enn betri
tónleikum 26. janúar. „Það verða
fleiri flytjendur nú en í fyrra og það
er gleðiefni að eiga sinfóníu -
hljómsveit með úrvals hljóðfæra -
leikurum. Hluti þeirra verður með
okkur á tónleikunum, Hljómeyki er
einn af okkar bestu kórum, í rokk -
sveitinni verður úrvalsfólk og söngv -
ararnir eru allir í landsliðsflokki. Þar
fyrir utan erum við að læra betur og
betur á Eldborgarsalinn sem er
frábær tónleikasalur,“ sagði Þor -
valdur sem á örugglega eftir að láta
til sín taka á næsta ári þegar Tod -
mobile fagnar 25 ára afmæli.
Þorvaldur Bjarni á Oddgeirstónleikunum í Hörpu haustið 2011.
Dómnefnd var vandi á höndum þegar kom að því að
velja kvæði sem tengist Vestmannaeyjagosinu 1973.
Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, ætlar að semja lag við
kvæðið sem verður flutt á tónleikum í Eldborgarsal
Hörpu þann 26. janúar nk. Þeir eru helgaðir eldgos-
inu en þann 23. janúar eru 40 ár frá því það hófst.
Fyrir valinu varð kvæði Kolbrúnar Hörpu Kolbeins-
dóttur, Yfir eld og glóð sem dómnefndinni þykir
fanga vel atburðarásina í gosinu og það sem á eftir
kom.
Í dómnefndinni sátu Bertha Johansen, Ómar
Garðarsson og Sigurgeir Jónsson. Ljóðið orti Harpa
árið 1977 en sjálf var hún 19 ára með nokkurra mán -
aða dóttur þegar gosið hófst þann 23. janúar 1973. Í
kvæðinu tekst henni að tefla saman andstæðunum,
hún með litla barnið sitt gegn ofurkröftum náttúr -
unnar. Hörpu tekst líka að vekja upp tilfinningar
þegar hún lýsir flóttanum og viðtökunum sem Eyja-
menn fengu þegar í land var komið.
Hún sannar það líka að ekki þarf mörg orð til að
lýsa tilfinningunni að koma heim og sjá eyðilegg -
inguna. Með vonina að vopni er haldið áfram en
margt er að eilífu grafið undir ösku og hraun. Það
fær sinn stað í kvæði Hörpu en þegar litið er til baka
er það aðdáun hennar á fólkinu og þakklæti til
almættisins sem upp úr stendur.
Stolt og hlakkar til
Það er ekki ofsögum sagt að úrslitin komu Kolbrúnu
Hörpu, eða Hörpu eins og hún er kölluð dagsdag -
lega, mjög á óvart. Það var fyrir hvatningu elstu dótt -
urinnar, Helenu, sem hún ákvað að senda inn ljóð.
Harpa er ekki einhöm í listinni, hefur frá því hún
hafði vit til verið að yrkja ljóð, skrifa smásögur og
semja lög. Hún hefur tekið þátt í hinum ýmsu keppn -
um en aldrei unnið fyrr en núna. „Ég var búin að
gleyma þessu þegar þið hringduð,“ sagði Harpa sem
gat ekki tára bundist þegar dómnefndin tilkynnti
henni niðurstöðu sína. „Á eftir settist ég út í bíl og
bara grét. Ég er búin að segja mínum nánustu frá
þessu og krakkarnir og eiginmaðurinn eru mjög stolt
af mér. Ég er búin að segja þeim að 26. janúar sé
frátekinn og ég vil fá þau öll með mér í Hörpu. Þetta
er mikil viðurkenning fyrir mig og ég hlakka ekki
lítið til að heyra lagið hans Þorvaldar Bjarna og
kvæðið flutt í Hörpu,“ sagði Harpa að endingu.
Yfir eld og glóð
Ég aldrei mun gleyma er titrandi stóð
sjá jörðina opnast og þeyta upp glóð
ég starði og starði á ösku og eld
sem breiddi út sinn eldrauða feld.
Ógnandi drunurnar kváðu þar nið
með barnið í fanginu flúðum við
í ógnandi örmum skildum við allt
niðri við bryggju stóð fólkið þar, margt.
Á bátum var flúið á meginlands strönd
þar tóku á móti okkur vinir í hönd
með alúð og vinsemd þau tóku oss í mót
þó pláss væri lítið. það skipti ekki hót.
Seinna er fórum við heim til að sjá
ummerkin eftir eldsins gjá
húsin á kafi í kolsvörtu gjalli
í austri var eldur í nýju fjalli.
Við ákváðum seinna að flytjast til baka
með vonina að vopni og áhættu taka
þá oft varð mér litið í austur á fjallið
hraunið sem kaffærði húsin og gjallið.
Hvoll er þarna undir og Grænahlíð líka
Vatnsdalur tiginn og Landagata
Pétó og Laugin er lékum við oft
nú gnæfir þeim yfir...hraun hátt í loft.
Þegar ég sit hér og hugsa um það nú
hve fólkið var rólegt svo samtengt sem brú
þá þakka ég einum sem bak við oss stóð
og bjargaði oss yfir eld og glóð.
(höf. K.H.K. 08. 1977)
Kolbrún Harpa sigraði í ljóðakeppninni:
Yfir eld og glóð
:: Þorvaldur Bjarni semur lagið :: Frumflutt í
Hörpu 26. janúar
ÓMAR GARÐARSSON
omar@eyjafrettir. is
Um lagið sem hann
á fyrir höndum að
semja við ljóð Kol-
brúnar Hörpu, sagði
Þorvaldur að það
yrði að ná yfir allan
tilfinn inga skalann.
„Það var sorgar -
dagur þegar byrjaði
að gjósa í Vest -
manna eyjum en það
er líka gleðilegt að
enginn fórst og að
uppbygging tókst
þetta vel. Maður
verður að leggja höf -
uðið í bleyti og von -
andi verður útkom an
góð og allir ánægðir.
”