Fréttir - Eyjafréttir - 28.11.2012, Page 16
°
°16 Eyjafréttir / Miðvikudagur 28. nóvember 2012
Menntastoð
Viska mun bjóða upp á Menntastoðir á vorö og haustönn 2013
Menntastoðir eru krefjandi nám fyrir einstaklinga, 23 ára og eldri. Nám í Menntastoðum er
unnið í samstarfi við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og Keili. Nemendur sem ljúka námi í
Menntastoðum eiga kost á því að sækja um nám í Háskólabrú Keilis eða í frum-
greiningadeild H.R. og Bifrastar.
Markmið
• Að komast í undirbúningsdeildir háskóla
• Að þjálfa markviss og skipulögð vinnubrögð í námi
• Að byggja upp jákvætt viðhorf gagnvart áframhaldandi námi
• Að styrkja stöðu á vinnumarkaði
Námsgreinar
• Íslenska
• Stærðfræði
• Enska
• Danska
• Námstækni
• Tölvu –og upplýsingatækni
• Bókfærsla
Kennslufyrirkomulag
Í boði er staðnám. Námið tekur um 10 mánuði og verður kennt vor og haust 2013.
Kennslan fer fram þrjá virka daga (síðdegis) í viku og nokkra laugardaga í mánuði.
Kennt er samkvæmt námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, og hefur Mennta– og
menningamálaráðuneytið samþykkt að meta megi námið til allt að 50 eininga á
framhaldsskólastigi.
Verð
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins niðurgreiðir kennslu í Menntastoðum svo hlutur nemenda í
námsgjöldum er 116.000 krónur. Hægt er að sækja um styrk vegna námsgjalds til
fræðslusjóða stéttarfélaga.
Nánari upplýsingar veitir Sólrún Bergþórsdóttir
náms- og starfsráðgjafi Visku í síma 866 7837.
Frekari upplýsingar og skráning
í Visku í síma 481-1950/481-1111
www.viskave.is | viska@eyjar.is
Guðmundur Ragnar Magnússon
stoðtækjafræðingur
verður með móttöku á
Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja
miðvikudaginn 5. desember.
Tímapantanir í síma 565-2885.
Félagsfundur
Fimmtudaginn 29. nov verður haldinn félagsfundur
hjá ÍBV-íþróttafélagi. Fundurinn verður í AKÓGES
við Hilmisgötu og hefst klukkan 20.00.
Allir félagsmenn sem greitt hafa
félagsgjöld hvattir til að mæta.