Fréttir - Eyjafréttir - 28.11.2012, Qupperneq 23
°
° Eyjafréttir / Miðvikudagur 28. nóvember 2012 23
Handbolti:
Dröfn í
A-landsliÝiÝ
Eyjakonan Dröfn Haraldsdóttir
hefur verið valin í leikmannahóp
íslenska A-landsliðsins í handbolta
en liðið tekur þátt í Evrópumótinu
í Serbíu í næsta mánuði. Þetta er í
fyrsta sinn sem Dröfn er í leik -
mannahópi íslenska liðsins en hún
hefur staðið sig mjög vel í markinu
hjá FH í vetur og vel að því komin
að vera valin í landsliðshópinn.
Dröfn lék með yngri flokkum ÍBV
og var farin að banka á dyrnar í
meistaraflokki þegar hún söðlaði
um og gekk í raðir HK fyrir
þremur árum. Hún skipti hins
vegar yfir í FH fyrir komandi tíma-
bil en FH hefur komið nokkuð á
óvart í vetur, eftir að hafa endað í
neðsta sæti deildarinnar á síðasta
tímabili.
Ungt landsliÝs-
fólk
Handknattleikskonan Drífa Þor -
valds dóttir var í síðustu viku valin
í æfingahóp U-19 ára landsliðsins.
Drífa hefur leikið afar vel með
meistaraflokki ÍBV í vetur og látið
mikið að sér kveða.
Jón Ingason var valinn á æfingar
með U-19 ára landsliði Íslands í
knattspyrnu. Æfingarnar fara fram
í Reykjavík um helgina en þess má
geta að þjálfari liðsins er Kristinn
R. Jónsson, fyrrum þjálfari meist -
araflokks ÍBV.
Þeir Devon Már Griffin og Benja -
mín Elí Óskarsson voru svo báðir
valdir á úrtaksæfingar hjá U-17 ára
landsliðinu sem fara fram í
Reykja vík um næstu helgi.
Arnór áfram
og Ragnar
skrifar undir
Knattspyrnumaðurinn Arnór Eyvar
Ólafsson framlengdi í vikunni
samningi sínum hjá ÍBV um tvö ár.
Arnór, sem hefur leikið sem hægri
bakvörður undanfarin ár, er 23 ára
gamall og hefur vaxið mjög í
varnarhlutverkinu. Þá skrifaði
Ragnar Pétursson undir eins árs
samning við ÍBV en Ragnar, sem
er uppalinn hjá Hetti á Egils -
stöðum, er 18 ára gamall miðju-
maður.
Þess má geta að ÍBV lagði Tinda -
stól að velli í æfingaleik um helg -
ina 2:1 en mörkin gerðu þeir
Sigurður Grétar Benónýsson og
Jón Ingason. Um helgina leika
Eyjamenn svo í Íslandsmótinu í
Futsal en leikir ÍBV fara fram í
Mosfellsbæ á laugardag.
Framundan
Laugardagur 1. desember
Kl. 13:30 ÍBV-Víkingur
1. deild karla.
Kl. 13:00 Fjölnir-ÍBV
2. flokkur kvenna, fótbolti.
Kl. 15:30 ÍBV-Víkingur
2. flokkur karla.
Kl. 16:00 Haukar 1-ÍBV
4. flokkur karla.
Sunnudagur 2. desember
Kl. 11:00 Fram1-ÍBV
4. flokkur karla.
Kl. 12:00 ÍBV-Víkingur
2. flokkur karla.
Kl. 12:20 Keflavík-ÍBV
4. flokkur karla, ABC, fótbolti.
Kl. 12:30 ÍBV-Fram 1
4. flokkur kvenna.
Íþróttir
Handbolti kvenna:
MarkmiÝiÝ hefur ekkert breyst
- Svavar Vignisson segir aÝ hægt sé aÝ brúa biliÝ milli ÍBV og toppliÝanna tveggja, Fram og Vals
Nú hefur verið gert hlé á Íslands -
mótinu í handknattleik kvenna en
næsti leikur ÍBV verður ekki fyrr
en 8. janúar þegar liðið sækir
Gróttu heim. Þetta hlé á Íslands -
mótinu er tilkomið vegna þátttöku
íslenska kvennalandsliðsins á EM
í Serbíu en enginn úr ÍBV er í
landsliðshópnum. Því gefst Svav -
ari Vignissyni, þjálfara ÍBV kær -
komið tækifæri til að slípa leik
liðsins enn betur saman fyrir
komandi átök.
Fyrir ofan ÍBV eru stórliðin Valur og
Fram, sem undanfarið hafa borið
höfuð og herðar yfir önnur lið í Ís-
landsmótinu. Svavar segir að enn sé
bilið of mikið í toppliðin. „Já, ég
myndi segja það. Enda sást það í
sjónvarpsleiknum gegn Val um
daginn, þá er bilið í Val töluvert
ennþá. Ég vil reyndar meina að við
höfum lent á mjög slæmum degi í
þeim leik en bilið er vissulega enn
mikið.“
Eigum við einhvern möguleika á að
minnka bilið eftir áramót?
„Já ég tel það. Vonandi fáum við
Ester Óskarsdóttur inn aftur eftir
áramót og þó hún sé sterk, þá ætla ég
henni ekki einni að brúa 11 marka
mun á ÍBV og Val. Við höfum núna
mjög góðan tíma að byggja saman
liðið og vonandi að minnka þetta bil.
Tíminn einn leiðir það svo í ljós
hvort það gangi upp. Ég verð með
alla leikmennina á æfingum, erlendu
leikmennirnir fara ekki heim sem er
mikill kostur.“
Svavar segir að þó enn sé nokkuð í
að ÍBV geti tekið stig af Val og Fram,
þá hafi frammistaða ÍBV í vetur,
verið framar vonum. „Ég hélt þetta
yrði erfiðara eftir að Ester datt út úr
þessu og við vitum auðvitað ekkert
hversu mikið hún getur beitt sér. Við
misstum auk þess Þórsteinu, sem er
í barneignarfríi, eins og Kristrún.
Aníta Ýr og Hildur hættu og þarna
eru komnar fimm stelpur af þeim
sem voru að spila reglulega síðasta
vetur. En þetta hefur gengið mun
betur en ég þorði að vona. Það er
líka ánægjulegt að sjá Drífu og Rakel
stíga svona upp eins og þær hafa
gert. Einu leikirnir sem við töpuðum
fyrir áramót voru gegn Fram og Val
og eini leikurinn sem við lentum í
einhverjum vandræðum með, fyrir
utan þá tvo, var fyrsti leikurinn gegn
Gróttu. Það sýnir okkur líka hversu
mikið bil er á milli ÍBV og næstu liða
sem koma þar á eftir.“
Verður markmiðið að verja þriðja
sætið og stríða svo Val og Fram í
úrslitakeppninni?
„Markmiðið hjá okkur var alltaf að
ná þriðja sætinu og það hefur ekkert
breyst. Þegar út í úrslitakeppnina er
komið, þá ætlum við okkur ekki að
fara í hana til að hafa gaman, heldur
til að fara alla leið. Það þýðir að við
verðum að vinna jafnvel bæði Fram
og Val. Við viljum komast sem
lengst og við sjáum til hvort það
gengur eftir,“ sagði Svavar.
Svavar Vignisson.
Frjálsar:
Á dögunum var haldið frjáls -
íþróttamótið Silfurleikarnir í
Reykjavík. Frjálsíþróttadeild ÍBV
hugðist senda tólf keppendur á
mótið en þar sem veður var óhag -
stætt, varð ekkert af því að krakk -
arnir kæmust upp á land. Einn
keppandi frá ÍBV náði þó að taka
þátt í mótinu en Grétar Þorgils
Grétarsson gerði sér lítið fyrir og
vann gullverðlaun í kúluvarpi.
Grétar Þorgils hafði farið upp á land
fyrr en aðrir þátttakendur og sýndi
svo ekki verður um villst að Eyja -
krakkarnir standa öðrum jafnfætis í
frjálsum, jafnvel framar. Hann
varpaði kúlunni 9,2 metra en það
kom í þriðja og síðasta kasti hans á
mótinu. Grétar, sem er fæddur árið
2000, hefur aðeins keppt tvívegis í
kúluvarpi, á Íslandsmótinu og á
Silfurleikunum nú og í bæði skiptin
vann hann til gullverðlauna. Þess má
til gamans geta að sá sem endaði í
öðru sæti, kastaði 9,09 metra og
kemur frá Selfossi.
Grétar Þorgils
vann gull í öÝru
mótinu sínu
Grétar Þorgils kannar hvort gullið sé ekta.
Handbolti:
Eitt stig á
erfiÝum útivelli
Karlalið ÍBV sótti stig á erfiðan
útivöll í Garðabænum á laugar -
daginn. Þar léku þeir gegn
heimamönnum í Stjörnunni, sem er í
efsta sæti deildarinnar, hafði einmitt
sótt stig til Eyja í fyrstu umferð Ís-
landsmótsins. Liðin munu svo eigast
við í þriðja sinn seinna í vetur en
ekki liggur fyrir hvort liðið fær
heimaleik.
Lokatölur leiksins urðu 21:21 en Er-
lingur Richardsson, annar tveggja
þjálfara ÍBV var þokkalega sáttur
með leikinn. „Ég held að það séu
ágæt úrslit á erfiðum útivelli enda
Stjarnan í efsta sæti deildarinnar. En
auðvitað hefði verið mjög gott að
vinna þá og hafa það uppi í erminni
eftir að hafa gert jafntefli við þá hér
í Eyjum. Nú þurfa Garðbæingar að
tapa til að við getum náð þeim að
stigum en toppbaráttan er það jöfn að
það gæti alveg gerst.“
Erlingur segir að leikurinn hafi
verið nokkuð jafn en Eyjamenn hafi
þó lengst af verið með yfirhöndina.
„Við komumst í 10:8 í fyrri hálfleik
og bættum við og komumst þremur
mörkum yfir í byrjun seinni hálf -
leiks. En Stjarnan komst aftur inn í
þetta, jöfnuðu metin og voru svo
tveimur mörkum yfir 21:19 þegar
lítið var eftir. Við náðum hins vegar
góðum leikkafla undir lokin,
jöfnuðum og fengum tækifæri til að
skora í síðustu sókn leiksins. En
Garðbæingar voru klókir, brutu á
Grétari Þór Eyþórssyni sem var
eiginlega kastað á Nemanja Malovic
og hann meiddist. Mér skilst reyndar
að þau meiðsli séu ekki mjög alvar-
leg og að hann eigi að geta spilað í
næsta leik.“
Næst leika Eyjamenn gegn
Víkingum en leikurinn fer fram í
Eyjum á laugardaginn. Liðin tvö eru
í toppbaráttunni ásamt Stjörnunni og
Selfossi. „Við tökum tvö af þessum
toppliðum í röð og þetta eru þeir
leikir sem skipta miklu máli í topp-
baráttunni. Við eigum harma að
hefna, þeir eru fyrir ofan okkur og
unnu okkur í síðasta leik. En með
góðum leik og góðum stuðningi, þá
held ég að við getum vel unnið þá
hér í Eyjum.“
Mörk ÍBV: Nemanja Malovic 8,
Andri Heimir Friðriksson 4, Grétar
Þór Eyþórsson 3, Theodór Sigur -
björnsson 3, Magnús Stefánsson 2,
Brynjar Karl Óskarsson 1.
Theodór Sigurbjörnsson skoraði þrjú mörk gegn Stjörnunni.
Stjarnan 8 5 3 0 235:186 13
Víkingur 8 6 1 1 212:182 13
ÍBV 8 5 2 1 244:177 12
Selfoss 8 5 0 3 219:190 10
Grótta 8 4 0 4 217:214 8
Þróttur 8 2 0 6 179:248 4
Fjölnir 8 1 1 6 194:233 3
Fylkir 8 0 1 7 182:252 1
1. deild karla