Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 09.04.2014, Qupperneq 1

Fréttir - Eyjafréttir - 09.04.2014, Qupperneq 1
° ° Vestmannaeyjum 9. apríl 2014 :: 41. árg. :: 15. tbl. :: Verð kr. 400 :: Sími 481-1300 :: www.eyjafrettir.is M yn d: Ó m ar G ar ða rs so n Háaloftið kærkomin viðbót Þrusukraftur og alvöru sHow fablab er undraveröld tækni og Hugmynda>> 16 >> 12 >> 14 Kvennalið ÍBV tryggði sér sæti í undanúrslitum Íslandsmótsins þriðja árið í röð með því að leggja FH að velli samanlagt 2:0. Í undanúrslitum mætir ÍBV Val en á myndinni brýst hin unga en efnilega Arna Þyrí Ólafsdóttir í gegnum vörn FH og hin portúgalska Telma Amado fylgist með. Uppistöðulón Landsvirkjunar tæmast :: Skerðing á jafnorku til húshitunar: Olían gæti kostað 160 milljónir umfram raforku :: Sex sinnum dýrari en ótrygg orka :: Rekstur hækkar um 50% :: Hefur áhrif á gjaldskrá :: Óljóst hvað mikil „Það sem er að gerast er að kuldi og lítil úrkoma á hálendinu valda því að uppistöðulón Landsvirkj- unar eru næstum því tóm. Þann fyrsta mars sl. hætti Landsvirkjun að afhenda okkur ótrygga orku, sem er ódýrasta rafmagnið. Þá þurftum við að keyra hitaveituna hér í Vestmannaeyjum með olíu sem er um sex sinnum dýrara en ótrygga orkan,“ sagði Ívar Atlason, forstöðumaður tæknideildar HS-veitna í Vestmannaeyja um skerðingu Landsvirkjunar á jafnorku til húshitunar. „Allt stefnir í það að skerðingin verði út apríl og kannski eitthvað fram í maí. Þetta eykur kostnað um rúmar 100 milljónir króna og gæti haft einhver áhrif á gjaldskrána,“ sagði Ívar ennfremur. Málið er komið inn á borð bæjarráðs sem fól tæknideild Vestmannaeyjabæjar að fara í málið. Allt að 100 milljón króna kostnaðarauki „Mikill kostnaðarauki er vegna olíubrennslu í stað raforkunýtingar en hversu mikill hann verður liggur að sjálfsögðu ekki fyrir fyrr en skerðing- unni lýkur og fer svo að hluta eftir veðurfari, þ.e. hitunarþörf,“ sagði Júlíus Jónsson, forstjóri HS-veitna, í samtali við Eyjafréttir. „Okkur reiknast til að kostnaðarauki í mars hafi verið um 60 milljónir króna en þá fengum við samt tæp 50% orkunnar með rafmagni og varma frá fiski- mjölsverksmiðjunum. Engu slíku hefur verið til að dreifa það sem af er apríl og ekki fyrirsjáanlegt að svo verði. Þannig að apríl verður greinilega mjög erfiður, allt að 100 milljóna króna kostnaðarauki ef allt fer á versta veg.“ Óvíst með gjaldskrána Um gjaldskrá sagði Júlíus að ákvarðanir hefðu enn ekki verið teknar. „Heildartekjur hitaveitudeildar í Eyjum voru á síðasta ári 338 milljónir króna og var þá tap á deildinni. Viðbótar rekstargjöld sem nema um 50% tekna hljóta að hafa áhrif á gjaldskrá en síðan er spurning um á hvað löngum tíma kostnaðar- aukinn verður innheimtur og einnig hvort niðurgreiðslur koma til með að aukast. Um þetta verða teknar ákvarðanir þegar heildardæmið liggur fyrir,“ sagði Júlíus að endingu. Lóan er komin til Eyja Jóhann Guðjónsson fylgist vel með náttúrunni í sínum gönguferðum um eyjuna en hann sá tjaldinn fyrstur manna í síðasta mánuði. Jóhann kom við á Eyjafréttum í gær, þriðjudag og sagðist loksins hafa séð vorboðann ljúfa, lóuna. „Ég er búinn að heyra í henni í fjóra daga en átti bara eftir að finna hana. Ég fann hana loksins í morgun á túninu sunnan við Lukku. Það geislaði af henni fegurðin og hún sperrti sig fyrir gamla manninn,“ sagði Jóhann brosandi. Hann taldi að lóan væri að koma á svipuðum tíma og áður. „Jón á Gjábakka sagði mér að hann hefði einu sinni séð lóuna koma fyrir mánaðamót mars-apríl. En þetta er sá tími sem hún kemur yfirleitt. Tjaldurinn kom líka á réttum tíma, eins og vanalega,“ sagði Jóhann áður en göngutúrinn hélt áfram. Ómar GarðarSSon omar@eyjafrettir.is Okkur reiknast til að kostnaðarauki í mars hafi verið um 60 milljónir króna en þá fengum við samt tæp 50% orkunnar með rafmagni og varma frá fiskimjölsverk- smiðjunum. Engu slíku hefur verið til að dreifa það sem af er apríl og ekki fyrir- sjáanlegt að svo verði. ”

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.