Fréttir - Eyjafréttir

Issue

Fréttir - Eyjafréttir - 09.04.2014, Page 4

Fréttir - Eyjafréttir - 09.04.2014, Page 4
° ° 4 Eyjafréttir / Miðvikudagur 9. apríl 2014 Það hafa flestir Eyjamenn séð myndband frá Halldóri B. Halldórs- syni á veraldarvefnum. Þar sem hann gengur um Heimaey eða spjallar við Eyjafólk. Virkilega skemmtilegt framtak hjá honum. Halldór er Eyjamaður vikunar. Nafn: Halldór B. Halldórsson Fæðingardagur: 20. ágúst af eðal árgangi 1955. Fæðingarstaður: Húsavík S-Þing. Fjölskylda: Linda mín og þrjár yndislegar dætur ásamt þremur afa gullmolum. Draumabíllinn: Sennilega bara bíllinn minn, Honda Jazz. Uppáhaldsmatur: Allur, en lambalærið á toppnum Versti matur: Þegar ég var staddur í Færeyjum þá gaf Árni Johnsen mér að smakka skerpikjöt, það verður ekki á matseðlinu mínum. Uppáhalds vefsíða: Engin sérstök, en vafra um netið og hef gaman og gagn af því. Hvaða tónlist kemur þér í gott skap: Já, tónlist er svo breitt hugtak, segjum Stórsveit Þórarins Ólafssonar, klikkar ekki. Svo má ekki gleyma Stuðlum. Aðaláhugamál: Kvikmyndagerð og ljósmyndun að ógleymdum íþróttum. Hvaða mann/konu myndir þú vilja hitta úr mannkynssögunni: Væri nú ekki leiðinlegt að spjalla við John F. Kennedy og taka nokkrar myndir af honum á tröppum Hvíta hússins. Fallegasti staður sem þú hefur komið á: Vestmannaeyjar. Uppáhalds íþróttamaður og íþróttafélag: ÍBV og barnabarnið mitt hún Linda Björk Brynjarsdóttir Ertu hjátrúarfull/ur: Svona passlega. Stundar þú einhverja hreyfingu: Já, fer nokkuð mikið á fjöllin okkar á Heimaey. Uppáhaldssjónvarpsefni: Hef gaman af náttúrulífsmyndum t.d. David Attenborough. Hvenær kviknaði áhuginn á myndbandsgerð: Hef haft þennan áhuga lengi, fyrsta myndin sem ég geri er í kringum 1985, en byrjaði fyrir alvöru 2009 og þá varð ekki aftur snúið, miðillinn Fesbók hjálpaði mér mikið til við að styrkja bönd brottfluttra við eyjuna fögru. Hvert er uppáhaldsmyndefnið: Heimaey og eyjarnar í kring, mitt aðal mótíf, enda fegurðin við hvert fótmál og ekki hægt að klikka á því myndefni. Veistu hvað myndböndin eru orðin mörg: Nú, ég er að gera ca. 7 mínútna sketsa eða myndbönd og telur það á 5. hundrað sem ég flokka í útivist og blandað efni. Hver er draumurinn: Minn draumur er að geta haldið góðri heilsu þegar ég hætti að vinna, því áhugamálið eykst að umfangi með hverjum degi. Eitthvað að lokum: Þakka fyrir að bjóða mér í þetta ferðalag með ykkur hér á Fréttum, þið hafið verið mér mikill stuðningur við að viðhalda áhuga mínum á kvikmyndagerð gangandi. Takk fyrir mig. Ég verð að byrja á því að þakka minni öldruðu móður fyrir áskorunina, sú gamla kemur alltaf færandi hendi þegar hún heim- sækir uppáhalds son sinn með KFC fötu undir hendinni. Ég reyni alltaf að vera tilbúinn með veislu handa henni og pabba en sú gamla sér ekkert nema KFC kjúklinga. Vinir mínir á facebook hafa oft kvartað undan matarmyndum hjá mér en ég reyni að halda utan um það sem ég elda til að sjá hvað má fara betur þegar sami réttur er eldaður aftur. Ég renndi yfir þær myndir sem ég hef póstað á bókina og kom það ekki á óvart að pulsur voru oftast á þeim matarmyndum sem ég hafði póstað. Ég tel því rétt að ég birti hér uppskrift að heimagerðri pulsu sem getur ekki klikkað. Það er einfallt að búa til sínar eigin pulsur, það sem þarf er hakkavél, pulsustútur, garnir og gott hráefni. Mikilvægt er að hafa við höndina góða svínafitu svo að pulsurnar verði ekki þurrar; og kaldan bjór. Cumberland pulsa: 1,75 kg svínasíða 250 gr svínaspekk 200 gr brauðmylsna 100 ml vatn 20 gr salt 20 gr svartur pipar 10 gr salvia 5 gr hvítlauksduft eða 3 hvítlauks- geirar 5 gr reykt paprikuduft og létta slettu af bjór eða ca. 100 ml Kalt kjötið er sett í hakkavél ásamt svínaspekkinu og hakkað í kalda skál, síðan er öllum öðrum efnum blandað saman í skálina. Þegar þið blandið kryddi saman við kjötið er best að nota hendurnar í verkið. Passið bara að mauka ekki kjötið saman við kryddið heldur blandið létt. Gott er að prufa kjötblönduna með því að steikja smá á pönnu og krydda svo til ef bragðið þarf að bæta. Síðan eru garnirnar, sem búnar eru að liggja í vatni, þræddar upp á pulsustútinn og bundið fyrir endann. Kjötið er svo sett aftur í hakkavélina og pulsugarnirnar fylltar. Gott er að láta þetta safnast saman í skál og þegar kjötið er búið er bundið fyrir endan. Því næst er görnunum rúllað upp í hæfilega góða pulsulengt. Nauðsynlegt er að stinga með títuprjón göt með reglulegu millibili í garnirnar til að hleypa loftinu út við eldun. Þegar svona pulsur eru eldaðar eru þær settar í eldfast mót sem er smurt með olíu eða smjöri. Síðan er þetta bakað í 30-40 mínútur við 180° hita. Á meðan pulsurnar eru inni í ofni er upplagt að gera heimalagaða kartöflumús með beikonbitum. Til þess að toppa þennan hátíðarrétt þá lyftir það réttinum á hærra plan að bera fram gott senf. Senf er eitthvað það mikilvægasta sem pulsuáhugamaður þarf, engar aðrar sósur komast með tærnar þar sem senfið hefur hælana. Ákjósanlegur drykkur með þessari pulsu er svo góður hveitibjór og helst þýskur eða þá HV6 sem erfitt er að fá. ÁRÍÐANDI ORÐSENDING: Þið sem borðið SS pylsu með öllu viljið þið gjöra svo vel að hætta að troða remúlaði á pulsurnar ykkar!!! Remúlaði eyðileggur með öllu hátíðarbragðið á þjóðarréttinum og eftirbragðið verður viðbjóðslegt! Ég ætla að skora næst á bróður minn, Kára Kristján Kristjánsson, pulsu- og senf áhugamann. Kári er ekki bara þekktur fyrir fallegar hár- greiðslur, mikið skegg og línudans heldur er drengurinn einn besti kokkur sem Heiðartúnið hefur átt. Eyjamaður vikunnar Matgæðingur vikunnar Á fimmta hundrað myndbanda Cumberland pulsa Eyjamaður vikunnar er Halldór B. Halldórsson Matgæðingur vikunnar er Kjartan Ólafsson Vídó Landakirkja Fimmtudagur 10. apríl: Kl. 10.00. Foreldramorgunn, kaffi og spjall. Kl. 20.00. Opið hús í KFUM&KFUK. Kl. 20.00. Æfing hjá Kór Landakirkju. Föstudagur 11. apríl: Kl. 13.45. Æfing Litlu lærisvein- arnir. Kl. 14.30. Æfing Stúlknakór Landakirkju. Laugardagur 12. apríl: Kl. 11.00. Fermingarguðsþjónusta, fermd verða 13 fermingarbörn, sjá lista hér til hliðar. Sunnudagur 13. apríl, Pálmasunnudagur: Kl. 11.00. Messa á Pálmasunnu- degi, í messunni verða fermd 8 fermingarbörn, sjá lista annars staðar í blaðinu. Á sama tíma er sunnudagaskóli í Safnaðarheimili Landakirkju. Kl. 20.00. Æskulýðsfélagsfundur í Landakirkju. Mánudagur 14. apríl: Kl. 16.00. STÁ (kirkjustarf 6-8 ára) Kl. 17.00. Kirkjustarf fatlaðra. Kl. 19.30. Vinir í bata, andlegt ferðalag. Þriðjudagur 15. apríl: Kl. 16.30. ETT (kirkjustarf 11-12 ára) Miðvikudagur 16. apríl: Kl. 11.00. Helgistund á Hraun- búðum. Kl. 17.00. NTT (kirkjustarf 9-10 ára) Kl. 17.30. Kyrrðarbænastund. Byrjendur mæta kl. 17.10. Viðtalstímar prestanna eru mánudaga til föstudaga milli 11.00 og 12.00. Hvítasunnu- kirkjan Miðvikudagur kl. 20:00 Bænastund, nú stendur langa fasta yfir og munum við koma saman til bæna hvert kvöld fram að páskum. Einnig verður lesinn einn passíusálmur Hallgríms Péturssonar eftir röð hvert sinn. Laugardagur kl. 20:00 Lofgjörðarstund og bæn. Miðnætur- samkoma kl. 24:00 í stóra salnum, Agape, kröftugur söngur o.fl. Sunnudagur kl. 13:00 Samkoma. Unglingahópur frá Fíladelfíu verður með okkur með reynslusögur og söng. Þriðjudagur kl 20:00 Sýnum sjöunda þátt úr þáttaröðinni „The Bible“ Verkefnið, Fimm brauð - víxlararnir. Þættirnir eru fram- leiddir af þeim hjónum Mark Burnett og Roma Downey. Einstakir þættir sem slegið hafa öll áhorfsmet víða um heim. Frítt inn. Allir hjartanlega velkomnir. Aðvent- kirkjan Laugardagur 11. apríl 2014 kl. 11 Biblíulestur kl. 12 Guðsþjónusta Kirkjur bæjarins: Nafn: Inga Birna Sigursteinsdóttir Foreldrar: Helga Björk og Diddi Hvaða þrjú orð lýsa þér best: Gjafmild, lífsglöð og kát. Helstu áhugamál: Fótbolti og vinir Af hverju fermist þú: Til að játa trú mína og staðfesta skírnarheitin. Hvar verður veislan: Oddfellow Verður matur eða kökur: Bæði Ertu stressuð fyrir fermingunni: Já, fyrir kirkjunni Hvað viltu í fermingargjöf: Tölvu og herbergið hans Björns. Vil tölvu og herbergið hans Björns í fermingargjöf Laugardagur 12. apríl kl. 11:00 Andri Steinn Jacobsen, Boðaslóð 5 Arnar Freyr Ísleifsson, Búhamri 38 Baldur Bragi Birgisson, Helgafellsbraut 18 Baldvin Ingi Hermannsson, Bröttugötu 17 Birkir Snær Alfreðsson, Kirkjubæjarbraut 14 Daníel Már Sigmarsson, Höfðavegi 51 Eva Aðalsteinsdóttir, Dverghamri 34 Gíslný Birta Bjarkadóttir, Hátúni 8 Grétar Þór Sindrason, Hátúni 12 Guðlaugur Gísli Guðmundsson, Höfðavegi 43c Hafrún Dóra Hafþórsdóttir, Smáragötu 4 Sólveig Lind Gunnarsdóttir, Heiðarvegi 59 Þorbjörg Júlía Ingólfsdóttir, Foldahrauni 26 Pálmasunnudagur 13. apríl kl. 11:00 Bergþóra Sigurðardóttir, Hólagötu 20 Bjarki Freyr Valgarðsson, Sóleyjargötu 12 Eyþór Daði Kjartansson, Illugagötu 11 Inga Birna Sigursteinsdóttir, Áshamri 42 Kristófer Helgi Hlöðversson, Heiðarvegi 43 Magnús Kristleifur Kristleifsson, Búastaðabraut 1 Willum Pétur Andersen, Illugagötu 23 Þau fermast í Landa- kirkju um helgina: Fermingarbarn vikunnar Maggi Júl hinn prúði, klarinett- leikari, skákmaður, þungarokkari, Týrari og lyfjafræðingur með meiru, varð 50 ára þann 4.4 kl. 4. Til hamingju með daginn kæri bróðir Gunni Júl og Steini Tótu 50 ára afmæli

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.