Fréttir - Eyjafréttir

Eksemplar

Fréttir - Eyjafréttir - 09.04.2014, Side 12

Fréttir - Eyjafréttir - 09.04.2014, Side 12
° ° 12 Eyjafréttir / Miðvikudagur 9. apríl 2014 Fab Lab í Vestmannaeyjum :: Undraveröld tækni og hugmynda :: Vegvísir inn í 21. öldina: Skapandi hugsun lykill að betri framtíð :: Samkeppnishæfni í sjávarútvegi, ferðamennsku og iðnaði og vísindum kallar á sköpun, samvinnu og nýtingu tækni :: Bæta tækniþekkingu til að tengja saman hin ýmsu þverfaglegu svið :: Þjálfa upp fólk til að vera skapandi :: Fara út fyrir þann ramma :: Hafa skapað nýjar lausnir og lært að takast á við óvænt verkefni Fyrsta Fab Lab smiðjan á Íslandi var stofnuð í Vestmannaeyjum árið 2008 og hefur henni vaxið fiskur um hrygg síðan. Það er Nýsköpunarmiðstöð Íslands sem á og rekur smiðjuna sem nú er til húsa í rúmgóðu húsi við Faxastíg. Var fyrst við Bárustíg en önnur starfsemi hófst þar og núverandi húsnæði hentar vel. Þar ræður ríkjum Frosti Gíslason sem verið hefur verkefnastjóri frá upphafi. Þegar blaðamaður kíkti við hjá honum fyrir skömmu var mikið um að vera í smiðjunni, fólk á öllum aldri önnum kafið og áhuginn mikill. Það eru tölvur á hverju borði en líka tæki og tól sem virka framandi á þá sem ekki eru innvígðir í nýjustu tækni. Vakti að engu síður athygli og áhuga sem margfaldast þegar Frosti kemst á flug í lýsingum á því sem fyrir augu ber. Já, það vantar ekki áhugann þegar Frosti byrjar að segja frá og fara yfir það sem er að finna í FabLab smiðjunni í Vestmannaeyjum. Fyrst var staldrað við þrívíddarskanna þar sem hægt er að skanna hluti og búa til módel sem má lagfæra og breyta eins og þurfa þykir í þrívíddar- teikniforritum. „Þá eru breyting- arnar settar inn í stafrænt form, hvort sem um er að ræða karakter í tölvuleik, teiknimynd eða einfaldan hlut sem á að framkalla á einhverju af tækjunum eða hvað sem er,“ segir Frosti. „Við erum líka með þrívíddaprentara og er þá notast við plastefni sem kallast ABS, sams konar plast og notað er í Lego- kubbum, og hleður upp hluti sem við viljum framkalla hvort sem við höfum hannað hlutinn sjálf eða skannað inn í þrívíddarskannanum,“ segir Frosti og tók upp epli sem nemendur í framhaldsskólanum höfðu prentað út eftir að hafa skannað í þrívíddarskannanum. „Þetta tæki hentar vel ef maður þarf aðeins örfáar frumgerðir en þrívíddarprentun getur tekið nokkurn tíma.“ Rafrásarbretti og vínilskeri Í Fab Lab er kennd forritun og einnig hvernig búa má til rafrásar- bretti á rafeindaverkstæði sem er einn hluti smiðjunnar. Á brettin eru lóðaðir örgjörvar og skynjarar og t.d. mótorar tengdir við. „Í þetta notum við koparhúðaðan pappír og lóðum við örgjörva og skynjara sem er síðan hægt að forrita og láta gera það sem okkur langar til.“ Þarna er líka hægt að fræsa út þrívíð módel og svo er það vínil- skerinn. „Með honum getur þú gert allt það sama og þú getur gert með dúkahníf en bara miklu nákvæmar,“ segir Frosti og enn urðu hlutirnir dularfyllri. „Það er líka hægt að skera út sveigjanlegar rafrásir sem er hægt að nota í rafrænan fatnað en algengast er þó að almenningur noti hann til þess að skera út límmiða, t.d. sem veggskraut eða til að setja á hjól eða hvað sem er.“ Allt upp í húsgögn Í laserskera er bæði hægt að skera út og brennimerkja hluti og í stærsta tækinu, Shopbot fræsivél- inni, er hægt að skera út húsgögn, skilti og og þrívíð módel. Á miðju gólfi er stór ljósritunarvél sem má muna sinn fífil fegurri en hún þjónar ákveðnu hlutverki þó nokkuð ljóst sé að ekki verður meira ljósritað í henni. „Við erum að rífa hana í sundur eins og þú sérð,“ segir Frosti. „Þannig læra krakkarnir hvernig hún virkar og finna hluti í henni sem hægt er að nota. Þarna eru mótorar, viftur og fleira sem getur komið að góðum notum. Það má því segja að þessi ljósritunarvél sé eins konar þroskaleikfang fyrir verðandi tæknigúrúa.“ Leið inn í 21. öldina Kennsla er vaxandi þáttur í starfi Fab Lab smiðjunnar og eru áfangar á hennar vegum í Grunnskólanum og Framhaldsskólanum. „Í maí verðum við svo með námskeið og ætlum m.a. að aðstoða við að koma upp forritunarkennslu í skólunum, þjálfa upp kennara og æfa upp færni hjá þeim til að takast á við kröfur um nám og kennslu á 21. öldinni. Til þess að við getum verið sam- keppnishæfari í sjávarútvegi, ferðamennsku og iðnaði og vísindum þurfum við að leggja aukna áherslu á að efla ýmiss konar færni sem tengist sköpun, sam- vinnu og nýtingu tækni Í fyrsta lagi þurfum við að bæta tækniþekk- ingu til að tengja saman hin ýmsu þverfaglegu svið. Þjálfa upp fólk til að vera skapandi því það er ekki nóg að kunna að ná í það sem þig vantar inn á netið, þú þarft að fara út fyrir þann ramma, geta skapað nýjar lausnir og lært að takast á við óvænt verkefni. Áskoranir og kröfur sem fólkið, sem kemur út í at- vinnulífið, þarf að kljást við verða aðrar eftir 20 ár en þær eru í dag. Það er í okkar verkahring að tryggja að þetta fólk hafi þá færni sem til er ætlast af þeim til þess að landið okkar geti verið í fremstu röð í heiminum. Við verðum að geta fylgst með örum breytingum á tækninni og taka þátt í að skapa nýjar lausnir og hér erum við að taka skrefið fram á við.“ Net sem nær um allan heim Frosti segir að hugmyndafræðin á bak við Fab Lab sé að finna sam- eiginlegan farveg fyrir allt það besta sem er að gerast í heiminum í tækni og vísindum. „Það sem mér finnst merkilegast við Fab Lab er hið öfluga net af fólki um allan heim sem kemur saman og deilir þekk- ingu á milli staða um allan heim í gegnum Fab Lab samstarfið. Það eru margir sem öfunda okkur af smiðjunni hérna í Eyjum en svo eru reyndar einhverjir sem enn átta sig ekki á þessum miklu tækifærum sem Fab Lab samstarfið felur í sér. Eflaust þurfum við að vera duglegri að kynna þá fjölbreyttu möguleika sem felast hér. Fab Lab er miklu stærra og meira en fólk gerir sér grein fyrir. Það sem við erum að reyna að gera er að opna huga fólks og skapa því tækifæri. Þeir sem ná góðum tökum á því sem við erum að gera verða eftirsóttir starfskraftar á vinnumarkaði. Við erum að deila þekkingu á milli kynslóða og fagsviða.“ Ómar GarðarSSon omar@eyjafrettir.is Það sem mér finnst merkilegast við Fab Lab er hið öfluga net af fólki um allan heim sem kemur saman og deilir þekk- ingu á milli staða um allan heim í gegnum Fab Lab samstarfið. Það eru margir sem öfunda okkur af smiðjunni hérna í Eyjum en svo eru reyndar ein- hverjir sem enn átta sig ekki á þessum miklu tækifærum sem Fab Lab sam- starfið felur í sér. ”

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.