Fréttir - Eyjafréttir - 09.04.2014, Page 13
°
°
13Eyjafréttir / Miðvikudagur 9. apríl 2014
FabLab tengir kynslóðirnar :: Afinn og sonarsonurinn styðja hvor annan:
Afi kenndi mér að gera
vídeómyndir og nú er
ég að kenna honum
:: Það segir Jóhann yngri :: Er að búa til tölvuleiki :: Jóhann eldri lærði
50 ára á tölvu :: Hannar fyrir stofnanir og fyrirtæki :: Ánægðir með Frosta
Þegar Eyjafréttir litu við í FabLab
smiðjunni sátu nafnarnir,
Jóhann Jónsson, betur þekktur
sem Jói listó og sonarsonurinn
og nafninn, Jóhann Bjarni
Þrastarson, við eina tölvuna.
Hún er tengd leysifræsaranum
og var sá yngri að aðstoða þann
eldri í að útbúa verðlaunagripi
úr plexígleri fyrir innanfélagsmót
SJÓVE. Gripirnir listasmíð eins
og við er að búast þegar Jói
Listó er annars vegar. Hann var
lengi einn af bestu listmálurum
Eyjanna en síðustu ár hefur
hann beint listhæfileikunum
meira í hönnun fyrir stofnanir og
fyrirtæki og nú er stórt verkefni
á því sviði í sjónmáli.
„Þegar ég átti afmæli síðast datt ég
inn í síðasta árið sem ungur maður,“
sagði Jóhann eldri þegar hann var
spurður um aldur. Verður hver og
einn að lesa það sem vill út úr
svarinu. „Ég er nýorðinn tólf,“
sagði sá yngri við sömu spurningu.
Jóhann eldri sagðist hafa kynnst
FabLab smiðjunni fyrir þó
nokkrum árum og varð hann strax
mjög hrifinn. „Hrifningin var það
mikil að hún hélt fyrir mér vöku
einhverjar nætur, mér fannst þetta
svo stórkostlegt. Af ýmsum
ástæðum fór svo tíminn í annað
þangað til í haust að ég leit við. Þá
með hugmynd um að útbúa verð-
launagripi fyrir SJÓVE. Áður hafði
ég ekki pælt í þeim möguleikum
sem plexíglerið býður upp á, að það
má sveigja og beygja. Það er margt
hægt að gera, á föstudaginn voru
hér konur að búa til skemmtilega
hluti, alveg skotklárar.“
Verðlaunagripina átti að veita á
innanfélagsmóti SJÓVE um helgina
en því var frestað vegna veðurs.
„Ég get sagt að ég sé búinn með 34
gripi, alla mismunandi og á tvo eftir
sem ég lét bíða af því að pressan að
klára þá var ekki fyrir hendi.“
Merkileg tölvusaga
Þau eru mörg málverkin eftir Jóa
Listó sem prýða heimili í Vest-
mannaeyjum og víðar en eins áður
er getið hefur hann síðustu árin
einbeitt sér að hönnun og nú er
tölvan hans helsta tæki. Hefur tekið
við af penslum og blýöntum. „Ég á
mér svolítið merkilega sögu í
notkun á tölvum. Þegar ég var
fimmtugur settist ég í fyrsta skipti
við tölvuna og hef setið þar síðan.
Það átti mjög vel við mig að vinna á
tölvu og ég lærði fljótt að nýta mér
möguleika hennar við það sem ég
er að gera.“
Hann fór á námskeið í tölvuteikn-
ingu 1999. „Það er svo 2002 sem ég
fer að fá teikniverkefni þar sem
tölvan nýttist mér vel. Voru þetta
verkefni fyrir Siglingastofnun og ég
er að enn í dag þó þetta sé aldrei
alveg full vinna hjá mér.“
Hann giskar á að myndirnar séu
orðnar á þriðja þúsund, fyrir
Siglingastofnun, Slökkvilið
höfuðborgarsvæðisins, Eimskip og
fleiri og tengjast þau flest
öryggisbúnaði fyrir sjófarendur.
„Það hefur komið af sjálfu sér í
framhaldi af því sem ég hef verið
að gera fyrir Siglingastofnun.“
Ólík saga
Nafnarnir eiga sér ólíka sögu í
tölvunotkun og má segja að Jóhann
yngri hafi fæðst með tölvu í
höndunum. „Ég á myndir af honum
mjög ungum með tölvu og var ekki
meira en svo að hann næði utan um
músina. Hann var mikið í tölvu-
leikjum og byrjaði fljótt að reyna að
búa eitthvað til. Níu ára var hann
farinn að gera þessar flottu
vídeómyndir,“ skýtur Jóhann eldri
inn í þegar talið beinist að nafna
hans sem langaði snemma að gera
annað og meira en að spila
tölvuleiki.
„Ég fór inn á youtube og fann flott
forrit, Scratch sem er notað í
FabLab og þar hef ég verið að leika
mér. Afi kenndi mér að gera
vídeómyndir og nú er ég að kenna
honum. Ég er að búa til tölvuleik
um gosið sem er verkefni sem við
fengum í Fablab. Ég er búinn að
móta Heimaey og það er mikið eftir.
Ég verð að vinna við leikinn í
FabLab þannig að ég get ekkert gert
á kvöldin og um helgar. Svo eru
fótboltaæfingarnar að trufla þetta,“
sagði Jóhann yngri.
Frosti hvatti mig til að halda
áfram
Fyrstu kynni Jóhanns af FabLab
voru á smiðjudegi í skólanum og
máttu krakkarnir velja úr þremur
stöðum. Valdi Jóhann Fablab.
„Frosti sá að ég kunni á Scratch og
vildi fá mig inn. Sagði að ég væri
skapandi og ég kom aftur tveimur
vikum seinna,“ sagði Jóhann sem
hefur haldið sínu striki síðan.
„Hann kom svo inn í það sem ég
er að gera,“ sagði Jóhann eldri.
„Mér fannst flókið að vinna með
leysifræsarann og þar kom þekking
hans að góðum notum. Ég vildi líka
að hann kynntist möguleikunum
sem fræsarinn býður upp á. Hann er
fljótur að læra og mjög næmur á
það sem hægt er að gera.“
Aðspurður um framtíðina sagði
Jóhann yngri að draumurinn væri
að komast á námskeið í tölvuleikja-
gerð. „Það væri frábært og ég held
ég vilji læra eitthvað sem tengist
tölvum og tölvuleikjum.“
Áhugi á tölvulist
Jóhann eldri sagðist hafa mikinn
áhuga á öllu sem tengist tölvulist og
þar séu möguleikarnir óendanlegir.
„Það er samt eins og fólk sé ekki
alveg sátt við verk sem unnin eru í
tölvu. Í fyrra var ég viku uppi á
safni hjá honum Kára og vann
nokkrar ljósmyndir í tölvunni.
Þetta voru tölvuunnar myndir af
ryði í ýmsu formi en áhuginn var
minni en enginn.“
Báðir eru þeir ánægðir með það
sem FabLab býður upp á. „Þetta er
stórkostlegt og Frosti hefur staðið
sig frábærlega. Hann hefur komið
að uppsetningu smiðja hér heima og
erlendis og er orðinn þekktur á
heimsvísu fyrir störf sín í Fablab,“
sagði Jóhann eldri að endingu.
Fab Lab (Fabrication Laboratory)
er stafræn smiðja með tækjum og
tólum til að búa til nánast hvað sem
er. Fab Lab smiðjan gefur ungum
sem öldnum, einstaklingum og
fyrirtækjum, tækifæri til að þjálfa
sköpunargáfuna og hrinda
hugmyndum sínum í framkvæmd
með því að hanna, móta og
framleiða hluti með aðstoð
stafrænnar tækni.
Markmið verkefnisins er að auka
þekkingu á persónumiðaðri
framleiðslu, stafrænum fram-
leiðsluaðferðum í iðnaði og að efla
nýsköpun á Íslandi. Þá er verk-
efninu ætlað að auka tæknilæsi
almennings og almenna tæknivit-
und. Markmið verkefnisins eru enn
fremur að skapa vettvang fyrir
nýsköpun og að efla samkeppnis-
hæfni iðnaðarfyrirtækja, mennta-
stofnana og nemenda.
Fab Lab smiðjan mun auka
tæknilæsi almennings og skapa
möguleika á aukinni fjölbreytni í
atvinnulífinu með því að stuðla að
nýsköpun.
Fyrir hverja er Fab Lab smiðjan?
Fab Lab smiðjan er ætluð frum-
kvöðlum, nemendum, almenningi,
fyrirtækjum og stofnunum.
Fab Lab smiðjur á Íslandi eru í
Reykjavík, Sauðárkróki, Ísafirði og
Vestmannaeyjum. Úti í heimi eru
hátt í 400 smiðjur.
Enn stækkar FabLab
fjölskyldan
Fab Lab smiðjan í Reykjavík er í
tengslum við Fjölbrautaskólann í
Breiðholti sem Frosti segir jákvætt.
„Þar kemur saman fólk með
mismunandi bakgrunn. Ég sé mikla
gerjun þar og er ánægjulegt að fá þá
inn í Fab Lab fjölskylduna. Það er
stefnan að fá sveitarfélögin með inn
í þetta með okkur. Hér er smiðjan
alfarið rekin af Nýsköpunarmiðstöð
og eru Vestmannaeyjar eini
staðurinn á landinu, þar sem Fab
Lab smiðjur eru, þar sem sveitar-
félagið kemur ekki að rekstrinum,“
segir Frosti en hann er ánægður
með samstarfið við skólana hér
bæði grunnskólana og fram-
haldsskólann.
Í Grunnskólanum eru þrír hópar
sem stunda Fab Lab fræðin, tveir
hópar í Fab 1 og einn í Fab 2. Í
Framhaldsskólanum er einn áfangi,
Fab 203 en næsta haust bætast við
Fab 103 og Fab 303. „Í heild eru
þetta á milli 50 og 60 krakkar og
kennarar eru ásamt mér Jónatan
Jónsson og Gísli Óskarsson.
Í samskiptum við MIT
Fab Lab í Vestmannaeyjum er í
alþjóðlegu samstarfi og ber hæst
samskiptin við MIT háskólann í
Boston í Bandaríkjunum. Í haust
voru hér tveir aðilar frá Sádí Arabíu
í námi og launuðu fyrir sig með
tæknibúnaði sem þeir færðu
smiðjunni. „Við erum með öflugan
fjarfundabúnað sem er tengdur um
allan heim og getum hlýtt á
fyrirlestra hvar sem er. Fab Lab
smiðjum fjölgar hér á landi og um
allan heim. Við ruddum brautina
hér á landi. Þegar við byrjuðum
2008 voru 38 Fablab smiðjur í
heiminum en nú eru þær 290. Hér á
landi eru þær fjórar og við höfum
leitt starfið á Íslandi. Við viljum
vera í fararbroddi og það er
mikilvægt að við getum haldið því
áfram. Við verðum að bæta við
búnaði og auka samstarf og fá inn
öfluga aðila með okkur. Með því
byggjum við upp til framtíðar,“
sagði Frosti að endingu.
Hvað er
FabLab
og fyrir
hverja?
Frosti Gíslason fylgist með þar sem Jóhann Bjarni leiðbeinir afa sínum, Jóa listó.
Verðlaunagripirnir sem Jói listó hannaði fyrir SJÓVE.