Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 09.04.2014, Blaðsíða 15

Fréttir - Eyjafréttir - 09.04.2014, Blaðsíða 15
° ° Eyjafréttir / Miðvikudagur 9. apríl 2014 15 nokkur lög. Hann gerir þetta ótrúlega vel og er fæddur til að vera svona framarlega á sviðinu. Það eru auðvitað fleiri nýir í sýningunni, Una Þorvalds, Ágústa Halldórs, Ólafur Freyr, Erna Sif og Vilborg. Svo eru þarna inn á milli reynslu- boltar eins og Zindri Freyr, Ævar, Alexander Páll og auðvitað Lísa. Æfingatímbilið hefur gengið mjög vel og við höfum haft góðan tíma fyrir okkur með mikilli vinnu. Jórunn Lilja Jónasdóttir kom og tók sönginn rækilega í gegn hjá okkur á dögunum og allir eru að leggjast á eitt.“ Boðið upp á súludans Lísa hefur samið dansana í samstarfi við Ágústu en hún segir að dansæfingarnar hafi gengið vel. „Við vorum með séræfingar fyrir dansara. Við þurftum að búa til alla dansana frá grunni. Við þurftum aðeins að koma fólki úr hipp hopp gírnum því þegar maður dansar við svoleiðis tónlist, þá er maður svolítið latur og slakur. En í rokkinu þurfa allir að vera beinir í bakinu og með bringuna út. Það kemur líka kannski á óvart að það er til fullt af danssporum í rokkinu. Þetta er ekki bara að hoppa með hnefann upp í loft eða feykja flösunni,“ sagði Lísa og brosti. Af hverju súludans? „Þetta er eitthvað sem ég byrjaði á fyrir hálfu ári í Reykjavík. Þetta er í raun og veru súlu-fitness. Sjálf er ég bara búin með grunninn og vonandi erum við ekki að gera hættulegri hluti en við ráðum við,“ sagði Lísa og hló. „Hafdís hefur staðið sig feikilega vel enda erum við báðar allar út í marblettum og harðsperrum. Þetta tekur ótrúlega mikið á og kostar bæði fimi og styrk. En þetta er bara svo gaman.“ Lísa hefur starfað reglulega með Leikfélagi Vestmannaeyja en talsvert er síðan hún var síðast á sviðinu. „Já, ég var reyndar með í Grease baksviðs en fyrir það hafði ég ekki verið í ein sex ár. Hug- myndin var upphaflega að ég kæmi bara og þjálfaði í súludansinum en svo er ég komin upp á svið í búning, eins og fleiri reyndar sem ætluðu að gera eitthvað annað en þeir enda svo á að gera,“ sagði Lísa og horfði glottandi á leikstjórann. Frábær aðstaða og mikill kraftur Ágústa segir aðspurð að hún hafi ekki þurft langan umhugsunarfrest þegar henni var boðið að leikstýra aftur hjá Leikfélagi Vestmannaeyja en hún leikstýrði einmitt Grease fyrir ári. Hún segir aðstöðuna í Kviku vera framúrskarandi. „Já. Þetta er algjör lúxus aðstaða hér sem Leikfélagið hefur. Mér skilst reyndar að þriðja hæðin sé að fara undir aðra starfsemi sem er miður. Kollegi minn, Björg Jakobsdóttir kom hingað á dögunum með sýninguna Unglinginn og hún trúði varla sínum eigin augum þegar hún sá aðstöðuna sem Leikfélagið hefði. Að við gætum æft á tveimur stöðum í sama húsinu, verið bæði með dansæfingu og leikæfingu á sama tíma eða unnið í sviðsmynd en æft um leið, er gríðarlega mikill kostur. En það sem skiptir mestu máli er sá kraftur sem er í þessu leikfélagi. Það er fyrst og fremst það sem gerir það aðlaðandi að vinna hér sem leikstjóri, þótt umgjörðin sé auðvitað mjög flott líka.“ Sagan þjónar lögunum Svo er það hin klassíska spurning. Af hverju á fólk að koma á sýninguna? „Af því að þetta er besta sýningin,“ sagði Lísa og hló. „En ef þú fílar þessi klassísku rokklög, þá er um að gera að skella sér á sýninguna og sjá hvað við erum búin að gera við lögin, dansinn og allt showið í kringum þau.“ „Sagan er gerð til að þjóna þessum lögum, svo þau fái að njóta sín með tilheyrandi krafti. Þetta tímabil er alveg yndislegt í alla staði og svo skelltum við inn lagi með Arethu Franklin og George Micheal. En það er þrusukraftur í þessu verki og þetta er alvöru show,“ sagði Ágústa að lokum. Ágústa Halldórsdóttir er ein þeirra sem eru að stíga sín fyrstu skref á leiksviðinu: Er að finna minn innri pung :: Leikur Regínu sem er ákveðin svo ekki sé meira sagt Ágústa Halldórsdóttir leikur stórt hlutverk í söngleiknum en hún er að stíga sín fyrstu skref á sviðinu, eins og svo margir aðrir í uppfærslunni. Það var hins vegar ekki að sjá á æfingunni sem blaðamaður fylgdist með, Ágústa geislaði af sjálfstrausti, bæði í leik og söng. Fyrir æfinguna var Ágústa tekin tali. „Ég hef bara tekið þátt í skólaleik- ritum en ekkert í líkingu við þetta. Þetta er ógeðslega gaman en svolítið stressandi. Það er mikil vinna að taka þátt í svona upp- færslu, langt æfingatímabil og ég er að læra mikið. Svo er fólkið hérna hjá Leikfélaginu alveg yndislegt. Þau hafa tekið mér opnum örmum og það hjálpar mjög mikið til með stressið.“ Hefurðu gert mikið af því að syngja? „Já, ég hef eiginlega verið að syngja alla ævi. Svo var ég í kór og hef komið fram, vann t.d. söng- keppni barna á þjóðhátíð á sínum tíma. En ég er samt svolítið stressuð,“ sagði Ágústa og brosti. Hún getur þó ekki leyft sér að vera feimin á sviðinu, því persónan sem hún leikur er í raun allt annað en feimin. „Já hún er það, hún Regína. Jórunn Lilja Jónasdóttir kom og var að leiðbeina okkur í söngnum og hún orðaði þetta þannig að ég yrði að finna minn innri pung,“ sagði Ágústa og hló. „Ég er að finna hann,“ bætti hún við hlæjandi. Þekktirðu þessa tónlist? „Já, maður þekkti þessa tónlist alveg. Það voru kannski tvö lög sem ég þekkti ekki en annað þekkti ég alveg. Mér finnst svona gömul tónlist mjög fín og gott að skipta stundum yfir úr tónlistinni sem er í dag, yfir í tónlist sem er spiluð á hljóðfæri. Þetta eru lög sem langflestir þekkja og hljómsveitin er frábær. Mér finnst líka jákvætt að það er fullt af nýju fólki sem er að stíga sín fyrstu skref en inn á milli eru reynsluboltar. En þetta er bara rosalegt show. Hljómsveitin er á sviðinu, flottir söngvarar, flott dansatriði og svo er mikið ljósa- show í sýningunni. Mér finnst mikill kostur að hafa hljómsveitina á sviðinu, það verður betri fílingur í sýningunni í staðinn fyrir að hafa þá einhvers staðar bak við. Þeir eru líka alltaf að færa sig upp á skaftið, eru farnir að koma meira fram á sviðið og taka þátt í sýningunni, sem er mjög skemmtilegt. Góður stuðningur í LV Það styttist í frumsýningu. Er eitthvert frumsýningarstress? „Já, það er að magnast upp með hverjum deginum. Þetta er allt að verða voðalega raunverulegt. En ég er samt ekki eins stressuð og ég hélt ég yrði. Stuðningurinn og fólkið hérna í leikhúsinu hjálpar mjög mikið og mér líður mjög vel hérna. Ertu komin til að vera hjá LV? „Það er alveg spurning. Við skulum sjá hvernig til tekst í þessu,“ sagði Ágústa brosandi að lokum. Fjölmargir skemmtilegir karakterar eru í sýningunni. Þetta er algjör lúxus aðstaða hér sem Leikfélagið hefur. Mér skilst reyndar að þriðja hæðin sé að fara undir aðra starfsemi sem er miður. Kollegi minn, Björg Jakobsdóttir, kom hingað á dögunum með sýninguna Unglinginn og hún trúði varla sínum eigin augum þegar hún sá aðstöðuna sem Leikfélagið hefði. Að við gætum æft á tveimur stöðum í sama húsinu, verið bæði með dansæfingu og leikæfingu á sama tíma eða unnið í sviðsmynd en æft um leið, er gríðarlega mikill kostur. ”

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.