Fréttir - Eyjafréttir - 22.04.2015, Blaðsíða 14
14 Eyjafréttir / Miðvikudagur 22. apríl 2015
Frjálsíþróttamennirnir Gunnar
A. Huseby og Torfi Bryngeirsson
voru teknir inn í Heiðurshöll ÍSÍ
á íþróttaþingi þess sem haldið
var um síðustu helgi. Gunnar og
Torfi voru báðir framúrskarandi
íþróttamenn. Gunnar var
aðallega í kúluvarpinu. - Torfi
Bryngeirsson var sá íþróttamað-
ur frá Vestmannaeyjum sem var
hvað mest í sviðsljósinu um
miðbik tuttugustu aldar. Torfi
gekk í Þór í september 1935, þá
á níunda ári og lagði einkum
stund á frjálsar íþróttir. Undir
merkjum Þórs og KV keppti
hann allt fram til ársins 1946 en
þá flutti hann til Reykjavíkur og
gekk til liðs við KR. Ekki voru
allir á eitt sáttir við þá ákvörðun
Torfa og í blaðinu Víði sem gefið
var út í Vestmannaeyjum, var
sagt að það væri „óviðkunnan-
legt“.
Evrópumeistarinn Torfi
Bryngeirsson
Frækilegur íþróttaferill
Torfi Bryngeirsson er einn af þeim
Vestmannaeyingum, sem hlotið
hafa hvað mest frægðarorð sem
íþróttamaður. Það voru einkum tvær
íþróttagreinar, sem Torfi náði
frábærum árangri í, stangarstökki
og langstökki, en þrístökkvari var
hann og ágætur.
Torfi var fæddur í Vestmanna-
eyjum 11. nóvember 1926.
Foreldrar hans voru frú Lovísa
Gísladóttir á Búastöðum og
Bryngeir Torfason skipstjóri.
Í bókinni um Íþróttafélagið Þór er
birt viðtal sem sem Haraldur
Guðnason tók við Torfa árið 1963
og birtist þá í afmælisblaði
félagsins. Torfi er spurður um
íþróttaferil sinn og tildrög þess, að
hann gerðist íþróttamaður.
„Það er þá fyrst til að taka, að árið
1936 var Siggi í Húsunum, sem svo
var kallaður hér, Sigurður Sigurðs-
son málari, að æfa fyrir Ólympíu-
leikana í Berlín. Það var mikið
íþróttalíf og íþróttaáhugi. Við
strákarnir hrifumst með þessum
straumi og Siggi í Húsunum var
okkar fyrirmynd. Við ætluðum allir
að verða miklir íþróttamenn eins og
hann. Þetta var byrjunin.“
Byrjaði á þjóðhátíð
En hvenær tekur þú fyrst þátt í
opinberu kappmóti?
„Það var á þjóðhátíðinni 1944. Þá
setti ég drengjamet í stangarstökki,
stökk 3,33 metra. Þá var Þorkell
Jóhannesson í Hafnarfirði jafn
mér.“
Hvað þótti nú viðunandi árangur í
stangarstökki á þeim árum?
„Það þótti ekki maður með
mönnum sem ekki fór yfir þrjá
metra.“
Svo flytur þú til höfuðborgarinnar
áður en langt um líður?
„Já, ég fór til Reykjavíkur árið
1946 og fór að keppa fyrir KR.
Árið eftir, 1947, setti ég svo mitt
fyrsta met í stangarstökki, sem var
3,80 m og bætti þá nokkuð fyrra
metið sem Guðjón Magnússon átti.“
Og svo koma Ólympíuleikarnir í
London 1948?
„Já, á svokölluðu Ólympíumóti
stökk ég 3,95, en á sjálfum
leikunum 3,90 og komst ekki í
aðalkeppni. Um þetta leyti keppti
ég oft á Norðurlöndum en náði ekki
3,90.“
En segðu mér eitt, Torfi, varstu ekki
löngu byrjaður á langstökkinu?
„Nei, það kom seinna. Ég keppti í
langstökki 1949 og stökk þá 7,10
metra. Sama sumar setti ég
Íslandsmet í þrístökki án atrennu,
9,76 m.“
En hvað er að frétta af stönginni á
þessum tíma?
„Þetta ár, 1949, var haldið vormót
KR. Þá gerðist það að ég komst
yfir 4 metra, eða nánar tiltekið 4,05.
Þetta sama sumar fór KR. keppnis-
ferð til Noregs. Í þeirri ferð bætti
ég mitt fyrra met tvisvar, stökk 4,08
á Bislet leikvanginum og 4,12 í
Stavangri og í langstökki fór ég
7,20, sem þá var nýtt Íslandsmet.
Fyrra metið átti Finnbjörn Þorvalds-
son, 7,16.
Þetta sumar var ég valinn í
Norðurlandalið gegn Svíþjóð í
frjálsum íþróttum, var þá í aðal-
keppni í langstökki en varamaður í
stöng. Nú, þetta fór þannig, að í
langstökkinu náði ég 7,24, sem var
nýtt Íslandsmet, en í stangarstökk-
inu ekki nema 4 metrum og var sá
fjórði í röðinni. Ég var illa
undirbúinn fyrir þessa keppni.“
Árið 1950
Jæja, Torfi, þá komum við að árinu
1950. Var ekki Brüsselmótið háð
það ár?
„Jú, rétt er það. En þetta ár var
reyndar viðburðaríkt um fleira en
það. Það er þá fyrst frá því að
segja, að á vormóti ÍR. náði ég 4,21
í stangarstökkinu. Svo var
landskeppni við Dani 3. og 4. júlí
og þá vann ég langstökkið með
7,24, en Örn Clausen fylgdi fast á
eftir með 7,20. Úrslitin urðu svo
þau, að Ísland vann þessa keppni
með 108 stigum gegn 90. – Nú fór
Evrópumeistaramótið í hönd. Þá
var úr vöndu að ráða fyrir mig, því
að langstökk og stangarstökk fór
fram á sama tíma og því ekki annað
að gera en velja – og hafna. Rétt
fyrir mótið í Brüssel fór ég 4,25 á
stöng á meistaramóti í Reykjavík,
en það var þá nýtt met. Nú, þetta
leit kannski ekki illa út, en einn
þátttakendanna var Svíinn Ragnar
Lundberg og hann hafði rétt fyrr
stokkið 4,42 á stöng. Eftir miklar
bollaleggingar milli mín, þjálfara
og fararstjóra, var svo tekin sú
ákvörðun, að ég skyldi sleppa
stönginni en keppa í langstökkinu.
Og nú rann upp sá mikli dagur.
Mótið fór fram á Heisel-leikvang-
inum í Brüssel. Áhorfendur voru
geysimargir, líklega 80 – 90
þúsund. Við vorum 10 íslensku
keppendurnir og víst fámennastir
allra. Í undankeppninni stökk ég
7,20 m, en í aðalkeppninni 7,32 í
fimmtu atrennu og enginn lengra,
en í sjöttu atrennu 7,30. Þetta var á
móti tveggja stiga vindi. Ég var þar
með Evrópumeistari í langstökki,
en Gunnar Huseby í kúluvarpi,
16,74 m. Valið hafði reynzt rétt,
sem betur fór. Ég hefði líklega
orðið annar, þriðji eða fjórði í
stangarstökkinu. Örn Clausen var
annar í tugþrautinni. Ísland varð 8.
í röðinni af 24 þjóðum með 28 stig
og tvo Evrópumeistara.“
Mikill dagur
Þetta hefur verið mikill dagur í lífi
ykkar íslensku íþróttamannanna.
„Já, það var auðvitað mikill
fögnuður hjá öllum í íslenska
liðinu. Tveir íslenskir fánar voru
dregnir að húni og þjóðsöngurinn
leikinn. Áhorfendur voru líka
vinsamlegir í garð Íslendinga og
þeir fögnuðu sigrum okkar.“
Vildu erlendir blaðamenn ekki ræða
við ykkur landana?
„Jú, ég man t.d. eftir einum
blaðamanni sænskum. Hann spurði
mig, hvað margar milljónir manna
byggju á Íslandi. Ég sagði honum
að þær væru 160. Því vildi hann
ekki trúa, en 4 – 5 fannst honum
líklegra. Ég sagði honum þá sem
satt var, 160 þúsundir. Hann vildi
heldur ekki trúa því í fyrstu.“
Jæja, svo er haldið heim eftir að
hafa séð og sigrað í Brüssel?
„Já, við fórum heim um Kaup-
mannahöfn og Osló. Við kepptum í
Osló í frjálsum íþróttum og
sigruðum í þeim greinum, sem við
tókum þátt í.“
Það mun hafa verið tekið á móti
ykkur með pomp og pragt við
heimkomuna?
„Rétt er það, við vorum sjálfir
hissa á því, hvað mikið var um að
vera. Fjöldi fólks var á flugvell-
inum og fagnaði okkur innilega. Þá
var þar kominn forseti okkar, fyrsti
íslenzki forsetinn, Sveinn Björns-
son, Björn Ólafsson ráðherra og
Gunnar Thoroddsen þáverandi
borgarstjóri. Forsetinn og Gunnar
borgarstjóri héldu ræður okkur til
heiðurs.“
Sigruðu þrjár þjóðir sama
daginn
Já, þetta hefur verið sögulegt ár, en
höldum áfram sem horfir.
„Það má nú segja, að næsta ár væri
kannski ekki síður sögulegt hvað
íþróttagengi okkar viðkemur. Þá
fór fram hin sögulega þriggja landa
landskeppni 30. júní á Bislet-leik-
vanginum í Osló. Þá sigruðu
Íslendingar þrjár þjóðir sama
daginn, Danmörku og Noreg í
frjálsum íþróttum og íslenzkir
knattspyrnumenn sigruðu Svía í
landsleik.“
Hvaða íþróttum tókst þú þátt í á
þessu móti?
„Langstökki og stangarstökki; setti
þá nýtt Íslandsmet í stangarstökki,
4,30.“
Þetta hefur verið ár mikilla
viðburða í íþróttalífinu.
„Já, ekki var svo sem haldið kyrru
fyrir; mikið líf og fjör. Þetta sama
sumar fórum við sex til keppni við
Svía. Þar háðum við Lundberg eins
konar íþróttaeinvígi í stangarstökki
þrisvar. Við reyndum fyrst með
okkur í Östersund og skildum við
jafnir, hæðin hjá báðum 4,20. Næst
hittumst við á Station í Stokkhólmi.
Þar var ég í „stuði“ stökk 4,32, sem
var nýtt Íslandsmet, en Lundberg
stökk 4,20. Í þriðja sinn hittumst
við í Uppsölum. Fyrir einhvern
misskilning urðu stengur beggja
eftir og við vorum þarna eins og
vængbrotnar álftir. Þó voru
útvegaðar stengur og við reyndum
með okkur. Sigraði Lundberg með
4,20 en ég fór 4,10 metra.“
Og hvað tók svo við eftir þessa
glæsilegu för til Svíþjóðar hinnar
köldu?
„Það var haldið beint til Lundúna
til keppni við brezka meistara. Ég
vann þar stangarstökkið og hlaut
Íþróttaþing 2015 :: Gunnar A. Huseby og Torfi Bryngeirsson í Heiðurshöll ÍSÍ:
Torfi einn frægasti íþróttamaður
sem Eyjarnar hafa alið
:: Náði frábærum árangri í stangarstökki og langstökki,
en þrístökkvari var hann og ágætur
GÍSLi VaLTÝSSon
gisli@eyjafrettir.is