Fréttir - Eyjafréttir - 22.04.2015, Blaðsíða 19
19Eyjafréttir / Miðvikudagur 22. apríl 2015
Íþróttir
u m S j Ó n :
Guðmundur TÓmaS
SiGFúSSon
gudmundur@eyjafrettir.is
Handbolti yngri flokkar | Frábær árangur stelpna í 5. flokki.
Íslandsmeistarar 5. flokks
burstuðu í öllum leikjunum
Framundan
Fimmtudagur 23. apríl
Kl. 17:00 Grótta - ÍBV
Mfl. kvk - undanúrslit
Íslandsmótsins
Kl. 13:30 ÍBV - HK
3. flokkur karla - undanúrslit
Laugardagur 25. apríl
Kl. 16:00 ÍBV - Grótta
Mfl. kvk - undanúrslit
Íslandsmótsins
Sunnudagur 26. apríl
Kl. 13:00 ÍBV - Fylkir
3. flokkur kvenna - undanúrslit
Mánudagur 27. apríl
Kl. 19:30 Grótta - ÍBV
Mfl. kvk - undanúrslit
Hornamennirnir sterku, Grétar Þór
Eyþórsson og Theodór Sigurbjörns-
son skrifuðu undir samning á
dögunum. Grétar Þór hefur verið
frábær fyrir Eyjamenn síðustu tvö
tímabil en hann hefur verið að gæla
við það að hætta handboltaiðkun.
Það eru því geðifréttir fyrir
Eyjamenn að Grétar taki slaginn á
næsta ári. Theodór var langmarka-
hæsti leikmaður ÍBV á tímabilinu
en hann skoraði 167 mörk í
deildinni. Theodór hefur verið
orðaður við mörg lið erlendis og er
ekki útilokað að hann haldi út á
næstu árum. Leikmennirnir krotuðu
undir samningana á tveimur
veitingastöðum sem styðja vel við
bakið á ÍBV en þeir eru Einsi kaldi
og 900 Grillhús.
23 ungir
leikmenn
skrifa undir
samning
Auk hornamannanna skrifuðu
margir ungir leikmenn undir
samninga við meistaraflokka
félagsins. Alls skrifuðu 23 ungir
leikmenn undir samning við
félagið. Markmiðið er að ÍBV bjóði
upp á góða þjálfun fyrir yngri
leikmenn svo þeir geti komið upp í
meistaraflokk og skarað fram úr.
Stelpurnar í 5. flokki kvenna eru
með langbesta liðið á Íslandi í
sínum flokki. Þær unnu öll fimm
mótin sem voru í boði á árinu, en
ekki nóg með það, því liðið vann
hvern og einn einasta leik. Rétt eins
og það hafi ekki verið nóg þá vann
liðið alla leikina nema tvo með tíu
marka mun eða meira.
Þetta er ótrúlegur árangur hjá
stelpunum sem hafa svo sannarlega
hælana þar sem önnur lið komast
ekki með tærnar. Á síðasta tímabili
urðu stelpurnar einnig Íslandsmeist-
arar. B-lið stelpnanna er einnig það
besta á landinu, í síðasta móti
vetrarins komst B-liðið upp í fyrstu
deild. Engu öðru B-liði hefur tekist
að tryggja sér sæti í efstu deild 5.
flokks kvenna.
Stelpurnar eru einnig með
fyrirmyndarþjálfara en feðgarnir
Björn Elíasson og Hilmar Ágúst
Björnsson stýra þeim.
Stelpurnar sem urðu Íslandsmeist-
arar og unnu alla sína leiki í vetur í
1. deild með 148 mörkum í plús eru
Andrea Gunnlaugsdóttir - Aníta
Björk Valgeirsdóttir - Birta Lóa
Styrmisdóttir - Bríet Ómarsdóttir
- Clara Sigurðardóttir - Harpa Dögg
Gylfadóttir - Linda Björk Brynjars-
dóttir - Helga Sigrún Svansdóttir -
Mía Rán Guðmundsdóttir - Telma
Aðalsteinsdóttir
Svo var það ÍBV2 sem vann 2.
deildina og er besta B-lið landsins.
Í því liði voru Katrín Bára Elías-
dóttir - Helga Stella Jónsdóttir -
Helga Sigrún Svansdóttir - Hekla
Sól Jóhannsdóttir - Aníta Björk
Valgeirsdóttir - Aðalheiður Stella
Sæmundsdóttir - Anna Margrét
Jónsdóttir - Anika Hera Hannes-
dóttir - Sigurlaug Sigmundsdóttir
og Stefanía Ósk Bjarnadóttir
Handbolti |
:: Meistaraflokkur
karla:
Hornamenn-
irnir skrifa
undir
Eyjablikk
endurnýjar
samning
ÍBV-íþróttafélag og Eyjablikk hafa
endurnýjað samstarfssamning sinn
en Eyjablikk hefur verið einn
stærsti styrktaraðili yngri flokka
ÍBV síðastliðin tvö ár.
Fyrri samningur tók gildi í byrjun
árs 2013 og rann út í lok árs 2014.
Nýr samningur tók gildi í byrjun
þessa árs og gildir út árið 2016 og á
þeim tíma mun Eyjablikk verða
einn aðalstyrktaraðili yngri flokka
félagsins.
Allir yngri flokkar félagsins verða
merktir Eyjablikk á keppnistreyjum
eins og undanfarin ár, auk þess sem
fatnaður þjálfara mun verða merktur
Eyjablikk.
Eyjablikk ehf. er blikk og
stálsmiðja sem starfar í Eyjum.
Eyjablikk sinnir öllum þeim verkum
sem tilheyra blikksmíði, járnsmíði
og jafnvel líka vélsmíði oft á tíðum.
Styrktaraðilar
yngri flokka |
Slagurinn
hefst
á morgun
Undanúrslit í Olísdeild kvenna
hefjast á morgun, fimmtudag. ÍBV
sækir Gróttu heim úti á Seltjarnar-
nesi klukkan 17:00. Síðast þegar
liðin mættust úti á Nesi hafði ÍBV
betur 18-20. Grótta sigraði ÍBV í
hin tvö skiptin sem liðin mættust en
alls hafa þau mæst þrisvar á
leiktíðinni. Gróttustúlkur eru
ríkjandi deildarmeistarar en þær
unnu Olísdeildinna í ár á meðan
ÍBV hafnaði í 4. sæti.
Búast má við hörkurimmu milli
þessara tveggja liða en til að tryggja
sér farseðilinn í úrslitaleikinn þurfa
liðin að vinna þrjá leiki.
Liðin mætast svo í Vestmannaeyjum
á laugardaginn kl 16:00 og aftur úti
á Seltjarnarnesi mánudaginn 27.
apríl klukkan 19:30.
Handbolti |
Hrafnhildur Skúladóttir mun
þjálfa meistaraflokk kvenna
Merkar fréttir bárust úr herbúðum
meistaraflokks kvenna á dögunum
en Hrafnhildur Skúladóttir,
fyrrverandi landsliðskona, mun taka
við liðinu að tímabili loknu. Ef
orðið goðsögn á einhvern tímann
við þá fellur Hrafnhildur í þann
flokk.
Hún er leikjahæsta og markahæsta
íslenska landsliðskonan. Hún hefur
spilað 170 leiki og skorað í þeim
620 mörk fyrir íslenska landsliðið.
Auk þess að eiga frábær ár með
landsliðinu hefur Hrafnhildur lyft
fjöldamörgum titlum með Vals-
konum.
Hún lagði einmitt skóna á hilluna í
fyrra að loknu tímabili, þar lyfti
Hrafnhildur síðasta titli sínum sem
leikmaður en Valskonur urðu
Íslandsmeistarar. Svavar Vignisson
og Jón Gunnlaugur Viggósson hætta
störfum að lokinni leiktíð en þeir
hafa skilað góðu starfi undanfarin
ár.