Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 22.04.2015, Blaðsíða 15

Fréttir - Eyjafréttir - 22.04.2015, Blaðsíða 15
15Eyjafréttir / Miðvikudagur 22. apríl 2015 Íþróttaþing 2015 :: Gunnar A. Huseby og Torfi Bryngeirsson í Heiðurshöll ÍSÍ: Torfi einn frægasti íþróttamaður sem Eyjarnar hafa alið brezkan meistaratitil og fylgdi honum stór bikar, sem vinningshafi má halda í eitt ár, en verja síðan, ef hann vill halda honum. Ég stökk ekki nema rúma fjóra metra (4,04). Gunnar Huseby varð hlutskarpastur í kúluvarpinu. Enn var stríðsgæfan með okkur Frá London var svo haldið heim, en aftur var farið út þetta ár og enn var „stríðsgæfan“ með okkur. Í þessari ferð var keppt á fjórum stöðum. Ég keppti líka í þrístökki í þessari ferð og komst í 14,12 m. Og ég man það að í langstökkinu náði ég einu sinni meðal annars 6,89 m.“ Jæja, Torfi, þá förum við nú að nálgast Ólympíuleikana í Helsing- fors? „Já, þá stóð nú mikið til og mikill undirbúningur af okkar hálfu. En þá skeður það um veturinn, að maginn í mér springur. Það leit nú ekki vel út. Ég var fjóra og hálfan mánuð frá verki og æfingum, en svo fór ég að æfa með íslenzka Ólympíuliðinu. En þessi uppákoma dró dilk á eftir sér. Í aðalkeppninni fór ég 4 metra slétt á stöng, en í úrslitakeppninni 3,90. Enn nýtt Íslandsmet Viku eftir leikana fórum við frá Helsingfors til Svíþjóðar og þar kepptum við í Gavle. Þar stökk ég 4,35, sem var nýtt Íslandsmet. Þar var líka kominn Lundberg, nú svokallaður „bronsmaður“ Svía. Hann stökk 4,44 , sem var nýtt Evrópumet. Ég fór yfir þessa hæð en felldi stöngina. – Ég keppti svo lítið sem ekkert þetta árið.“ Næstu árin? „Um þau er ekki mikið að segja. Árið 1953 æfði ég lítið og keppti þess vegna lítið. Þó tók ég þátt í meistaramótinu innanlands og hélt meistaratitlinum í stangarstökkinu.“ Nú, 1954 er Evrópumeistaramótið í Bern í Sviss. Og meiningin var að fara þangað. Á þjóðhátíðinni í Eyjum þetta sumar gekk mér fremur vel, náði 4,30, svo útlitið var alls ekki sem verst. Nú er farið út og þar æfum við fyrir leikana. En þá skeður það á einni æfingunni, að ég togna í fæti. Þá voru nú líkurnar ekki miklar fyrir mig og mínar keppnisgreinar. Samt fór ég í undankeppni og náði 4,05. Læknir ráðlagði mér eindregið að fara ekki í aðalkeppni, enda kom á daginn að vöðvi hafði slitnað.“ Þú varst lögregluþjónn í Reykjavík á þessum árum? „Já, ég fór í lögregluna 1948, en fluttist svo hingað heim aftur 1955 og hef stundað hér sjómennsku, útgerð og nú aftur lögreglustörf hér.“ Þá tók lífsbaráttan við En hvað um íþróttirnar eftir Bernarmótið? „Já, þá fór ég að snúa mér að því efni, sem tekur hug og tíma flestra manna og dugar varla til að byggja íbúð yfir mig og fjölskylduna. Og svo eru það gömul og ný sannindi, að bezt er að hætta hverjum leik þá hæst hann ber. En það er margs að minnast og maður saknar félaganna, þegar leiknum lýkur. Ég vildi ekki fyrir nokkurn mun hafa farið á mis við þessi átta ár sem ég var í „eldlínunni“. Þó ferðirnar væru oft og tíðum erfiðar, þá voru þær samt skemmtilegar í hópi góðra félaga. Við kynntumst nokkuð löndum og þjóðum, þótt hratt væri farið, og okkur var hvarvetna vel tekið. Aðbúnaður var alls staðar góður. Hitinn var sums staðar dálítið óþægilegur, t.d. í London, þegar hann komst upp í 42 stig og fór ekki niður úr 40 stigum í viku.“ Segðu mér að lokum, Torfi: Hvernig var þér innanbrjósts fyrir keppni, hafðir þú „leikskrekk“ áður en þú gekkst á hólm við þá miklu garpa? „Nei, sem betur fer, því að hver þarf á sínu að halda, þó að ekki bætist það ofan á að hemja órólegar taugar. Ég var ekki nervös, sem kallað er. Ég var bara ákveðinn í því fyrir hverja keppni að gera mitt bezta. Og ef maður gerði það og hafði æft sig vel fyrir keppnina, þá var engan um að saka hvernig færi. Það var óneitanlega skemmtilegast að bera sigur af hólmi, enda er það takmark allra íþróttamanna. Nú, þegar maður tapar í leik, þá er bara að sætta sig við það og mótherjinn er vel að sigrinum kominn. Það er ekki neinn íþróttaandi að leggja hálfgerða fæð á mótleikanda sinn, ef hann gerir betur en maður sjálfur. Þá er við engan að sakast nema sjálfan sig.“ Og nú allra síðasta spurning: Hvað finnst þér um unga íþrótta- menn nú og hvað vilt þú segja við þá fyrst og fremst? „Ég held, að þá skorti úthald og seiglu. Þeir ganga sumir að þessu af nokkrum krafti í byrjun og ætla sér stóran hlut. Ef þeir svo setja ekki met í fyrstu lotu, þá missa sumir móðinn; kannski íþrótta- mannsefni, hreint og beint gefast upp. Þessi hugsunarháttur sæmir ekki ungum mönnum, sem telja sig hafa áhuga á íþróttum. Alveg eins og enginn varð óbarinn biskup í gamla daga, að því er sagt var, eins verður enginn góður íþróttamaður án mikilla æfinga. Fyrsta boðorð allra íþróttamanna er þetta: æfa, æfa og æfa.“ (Heimild: Bókin um Íþróttafélagið Þór) Á þessari mynd eru sjö Vestmannaeyingar sem allir urðu Íslandsmeist- arar í stangarstökki. Frá vinstri: Jónas Sigurðsson, Friðrik Jesson, Ásmundur Steinsson, Karl Vilmundarson, Ólafur Erlendsson, Guðjón Magnússon, Torfi Bryngeirsson. Snemma að morgni sumardagsins fyrsta næstkomandi halda nokkrir tugir hressra framhaldsskólanema úr Hafnarfirði til Vestmannaeyja þar sem ætlunin er að sýna sig og sjá aðra. Um er að ræða bæði stráka og stelpur sem stunda nám við Flensborgarskólann í Hafnarfirði og eiga það sameiginlegt að syngja í kór skólans. Um árabil hefur skólinn haldið úti metnaðarfullu og góðu kórstarfi sem hefur skilað sér í einstaklega góðum samhljómi og samheldnum og skemmtilegum hópi ungmennna ár eftir ár. Á meðan á heimsókninni stendur mun kórinn meðal annars líta inn á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja og í Hraunbúðir, dvalarheimili aldraðra og taka nokkur lög fyrir heimilisfólk, starfsfólk og auðvitað gesti og gangandi. Einnig munu þau líta við hjá jafnöldrum sínum í Framhaldsskólanum og flytja nokkur lög. Kórinn mun nýta tímann vel til að kynnast Vestmannaeyjum og heimamönnum, þau munu til að mynda fara í skoðunarferðir bæði á landi og sjó, heimsækja söfn og borða góðan mat. Laugardaginn 25. apríl kl. 17 heldur kórinn tónleika í Safnaðar- heimili Landakirkju undir yfir- skriftinni Vorboðinn ljúfi. Efnis- skráin inniheldur að mestu íslenska tónlist allt frá okkar þekktustu og ástsælustu verkum á borð við Heyr Himnasmiður og Maístjarnan til nýrri verka eftir Hildigunni Rúnarsdóttur, Hreiðar Inga Þorsteinsson og Þóru Marteins- dóttur svo einhverjir séu nefndir. Aðgangseyrir á tónleikana er aðeins 1000 kr. en frítt er fyrir alla nemendur undir 20 ára aldri. Boðið verður upp á frítt kaffi í hléi. Kórinn mun ljúka heimsókn sinni til Vestmannaeyja með því að koma fram á Vorhátíð Landakirkju sunnudaginn 26. apríl. Stjórnandi kórsins er Hrafnhildur Blomsterberg. Kór Flensborgarskólans heimsækir Vestmannaeyjar Bæjarstjórn lagði fram svohljóð- andi ályktun: Á fundi sínum í síðustu viku minnti bæjarstjórn samgönguyfir- völd enn og aftur á válega stöðu Landeyjahafnar. Nú þegar ferðamannatíminn er að hefjast hafi enn ekki verið hafist handa við dýpkun svo neinu nemi. „Seinustu daga hefur veður verið með ágætum og ölduhæð niður í 1,5 metra. Samt hefur ekki verið hægt að hefja dýpkun. Með sama áframhaldi má búast við því að fullt dýpi náist ekki fyrr en í fyrsta lagi um miðjan maí. Nú þegar er skaðinn af stöðunni orðin gríðarlegur. Bæjarstjórn ítrekar því fyrri óskir um að allra leiða verði leitað til að opna höfnina svo fljótt sem verða má. Dugi þau tæki sem til eru á Íslandi ekki til, verður tafarlaust að fá til verksins öflugri tæki erlendis frá. Þá minnir bæjarstjórn samgöngu- yfirvöld og ríkisstjórn enn fremur á að skv. fjárlögum á að bjóða út smíði nýrrar Vestmannaeyjaferju á fyrrihluta yfirstandandi árs. Þeirri vinnu þarf því að ljúka á næstu 6 vikum ef virða á fjárlög. Bæjarstjórn kallar eftir áhuga og aðgerðum þingmanna og þá sérstaklega þeirra sem kjörnir eru í Suðurkjördæmi. Samgöngur eru á ábyrgð og verksviði ríkisins og mikilvægt að þingmenn og samgönguyfirvöld axli þá ábyrgð sem slíku fylgir,“ segir í ályktun sem sjálfstæðismennirnir Hildur Sólveig Sigurðardóttir, Páll Marvin Jónsson, Elliði Vignisson, Trausti Hjaltason og Birna Þórsdóttir og E-lista fólkið Jóhanna Ýr Jónsdóttir og Stefán Óskar Jónasson skrifuðu undir og samþykkt samhljóða. Bæjarstjórn :: Umræða um samgöngumál :: Hefur áhyggjur: Nú þegar er skað- inn af stöðunni orðin gríðarlegur :: Fullt dýpi ekki fyrr en um miðjan maí :: Fengin verði öflugri tæki erlendis frá Ómar GarðarSSon omar@eyjafrettir.is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.