Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 21.10.2015, Blaðsíða 8

Fréttir - Eyjafréttir - 21.10.2015, Blaðsíða 8
8 Eyjafréttir / Miðvikudagur 21. október 2015 Vinnslustöðin- VSV- byggði húsið að Strandvegi 50, sem oft er kallað Hvíta húsið, 1953-1954. Var matstofa VSV á jarðhæð og skrifstofur fyrirtækisins á hluta þriðju hæðar. Öll önnur hæðin og hluti þriðju hæðar voru í útleigu til ýmissa aðila til skemmri eða lengri tíma. Á annarri hæð var í upphafi Ljósmyndastofa Harðar Sigurgeirs- sonar, Saumastofa Páls Lúthers- sonar, skrifstofur Tangans og síðar Samfrost, Lifrarsamlag Vestmanna- eyja, Stakkur, Samtog, Tollstofan, Eyjaberg fiskverkun og Tölvun. Á þriðju hæð voru skrifstofur VSV, Óskar Sigurðsson, bókhald og endurskoðun, Fiskimjölsverk- smiðjan í Vm. – FIVE- Fiskmat ríkisins o.fl. Vinnslustöðin seldi ÁTVR haustið 1966 jarðhæð hússins, sem er um 300 fm., undir vínbúð og flutti þá Matstofan í Sælahúsið og síðar í Vinnslustöðina. Vínbúðin opnaði 10. mars 1967. Tekin var upp sjálfsafgreiðsla í vínbúðinni að loknum breytingum 20. júlí 1995. Vinnslustöðin flutti skrifstofur sínar 1986 af Strandvegi 50 á efstu hæð aðalbyggingar VSV við Hafnargötu. Vorið 1994 seldi Vinnslustöðin, Vestmannaeyjabæ og Háskóla Íslands 2. og 3. hæð Strandvegar 50, samtals 660 fermetra, undir rannsóknastarfsemi sem síðar fékk nafnið Rannsókna- og fræðasetur Vestmannaeyja. Húsnæðið á 2. og 3. hæð var formlega tekið í notkun 14. október 1994 eftir miklar endurbætur. Þá fluttu í húsið SHIVE sem var Samstarf HÍ og Vm.bæjar, Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins í Vm.–RFV RF, Matís, útibú Hafrannsóknastofnunar og Tölvun. Nokkru síðar bættist Náttúrustofa Suðurlands í hópinn og síðar Þróunarfélag Vm. Þann 6. janúar 2003 var Viska, fræðslu- og símenntunarmiðstöð, stofnuð og fékk strax aðstöðu á þriðju hæð undir skrifstofu og kennslustofu og síðar mun meira rými í húsinu. Atvinnuþróunar- félag Suðurlands kom upp skrif- stofu og réð atvinnuráðgjafa 2006. Félagið fór nýlega undir sama hatt og Samtök sunnlenskra sveitar- félaga og hefur SASS skrifstofu fyrir atvinnuráðgjafa í húsinu. Þann 23. Janúar 2008 var Þekkingarsetur Vestmannaeyja – ÞSV - stofnað og yfirtók að mestu Samstarf HÍ og Vm.bæjar. – SHIVE. Haustið 2012 keyptu Vestmannaeyjabær og Viska rúmlega 50% eignarhlut Háskóla Íslands í 2. og 3. Hæð Strandvegar 50. Í maí 2015 seldi ÁTVR jarðhæð- ina þar sem áður var vínbúð og er nú eignarhlutur Vestmannaeyja- bæjar í húsinu rúm 60% og hlutur Visku tæp 40%. Unnið hefur verið að viðamiklum breytingum á jarðhæðinni síðan í júlí sl. og tókst að ljúka verkinu á tilsettum tíma. Kennsla á vegum Visku í nýja húsnæðinu hófst strax daginn eftir vígsluna. Viska hefur til umráða alla jarðhæð hússins sem er um 280 ferm. Nýir leigutakar bætast í hópinn á 2. og 3. hæð í stað Visku og eru sumir þeirra fluttir inn. Húsfélag um Strandveg 50 í eigu Vm.bæjar og Visku innheimtir grunnleigu hjá Þekkingarsetri Vm. – en ÞSV annast rekstur hússins og þjónustar samstarfsaðila og leigutaka með margvíslegum hætti. Arnar Sigurmundsson, form. stjórnar Visku, vann þessa samantekt í tilefni opnunarinnar að Strandvegi 50. Viska, fræðslu- og símenntunar- stöð Vestmannaeyja fluttist á dögunum í glæsilegt og mikið endurbætt húsnæði þar sem Vínbúðin var áður til húsa. Áður hafði Viska verið á þriðju hæð í sama húsnæði en flutningurinn niður er mikil breyting að sögn Valgerðar Guðjónsdóttur, forstöðumanns. ,,Loksins getum við sinnt þeim hóp sem treysti sér ekki til þess að heimsækja okkur á þriðju hæð sem og hreyfihömluðum einstaklingum og öldruðum. Ég hafði lengi pressað á að við fengjum húsnæði á jarðhæð til að sinna þeim hópi. Strax á mánudaginn var fólk að koma inn af götunni með hug- myndir, við erum mun aðgengilegri núna sem er svo skemmtilegt. Einn annar þáttur er að við þurftum einn sal eða kennslustofu í viðbót því við höfum reglulega þurft að leigja sal úti í bæ til að sinna eftirspurn. Stofurnar sem við notuðum áður eru auðvitað enn til staðar og við höfum enn möguleika á því að fara upp með námskeið í samstarfi við Þekkingarsetrið ef þörf er á. Það er sannarlega afar gott að geta haft alla starfsemi í sama húsnæði. Þekk- ingarsetrið mun og hafa greiðan aðgang að þessum glæsilega sal sem hér er,“ sagði Valgerður. Í húsnæðinu er fullbúinn og frábær ráðstefnusalur með öllum tilheyr- andi búnaði sem er fyrsta flokks og auk þess tvær stofur. Fjarfunda- stofan, sem áður var stærst uppi, er núna fjögurra manna herbergi og svo er annar búnaður hreyfanlegur og getur farið í samband hvar sem er í húsnæðinu. Aðspurð segir Valgerður að aðdragandinn að flutningnum hafi verið langur. ,,Aðstaðan hefur lengi verið ófullnægjandi, starfsemin er svo fjölbreytt. Einu sinni var hér mikið um fjarnám þar sem nemendur sóttu tíma í gegnum fjarfundabúnað, núna er hjúkrunin að fara í upptökur í stað fjarfundar, þá eru bara leikskóla- og grunn- skólakennarar eftir sem þurfa að sækja fjarfundi. Stofurnar sem áður voru dekkaðar á daginn fyrir fjarfundi voru orðnar fullar af nemum að sinna sínu námi og urðu svo að víkja þegar námskeið hófst og var orðin töluverð óánægja með það. Núna erum við með aðstöðu fyrir fjarnema sem geta komið, hreiðrað um sig í básum og sinnt sínu námi en núna eru fjörutíu nemendur skráðir hjá Visku í fjarnámi frá háskólunum, flestir frá Háskólanum á Akureyri,“ sagði Valgerður. Með auknum fjölda nemenda í fjarnámi aukast einnig prófin sem fara fram í Visku. ,,Við sinnum þeim nemendum sem fara í próf og þau hafa aukist til muna, eru ekki lengur bara í desember og maí.” Þjónusta fyrir 25 ára og eldri. Nú er að ganga í garð fyrsti veturinn þar sem mennta- og framhaldsskólar eru eingöngu fyrir nemendur á aldrinum 16-25 ára. „Einstaklingar 25 ára og eldri eiga í framhaldi að geta sótt menntun hjá okkur í símenntunarmiðstöðvunum. Þetta hefur í för með sér að við munum leitast við að bjóða upp á Menntastoðir jafnvel í samstarfi við aðrar símenntunarstöðvar á næstu árum eða bjóða upp á dreifnám. Sá háttur yrði á að það væri kennt í fjarnámi í samstarfi við aðrar símenntunarstöðvar þar sem námið er mjög dýrt í rekstri. Það er 660 stunda námskeið og gefur allt að fimmtíu einingar á framhaldsskóla- stigi. Námið gefur einstaklingum tækifæri að fara svo í Háskólagátt á Bifröst, Háskólabrú hjá Keili eða í frumgreinadeildir HA og HR. Þá er einstaklingurinn kominn með tækifæri til að geta farið í háskóla- nám án þess að hafa farið í framhaldsskóla. Þetta ákvað mennta- og menningarmálaráðu- neytið og við því bregðumst við með námsleið og er hún styrkt með fjármagni frá atvinnulífinu. Það er verið að hugsa um að nýta þann rétt sem fullorðna fólkið hefur öðlast við að borga í stéttarfélagssjóði,“ sagði Valgerður og bætti við að Viska muni áfram halda áfram að vera með Grunnmenntaskólann sem er undanfari að Menntastoðum. „Núna eru ellefu nemendur hjá okkur sem hófu nám í haust. Þetta eru einstaklingar sem langar að fara að mennta sig og eru að læra að læra og að byggja brúna yfir í að geta farið í frekara nám.“ Spennandi vetur framundan Starfið í vetur hefur farið seint af stað vegna húsnæðisbreytinga og ekki er boðið upp á eins mikið af námskeiðum og oft áður. Tóm- stundanámskeiðin eru færri og telur Valgerður að Youtube hafi m.a. tekið við ákveðnum hluta tóm- stundanámskeiða. Margt áhugavert er þó á döfinni hjá Visku og spennandi nýjungar. „Við höfum verið að svara þörfum samfélagsins í námskeiðavali, núna erum við með TripAdvisor námskeið sem heitir Samfélagsmiðlar og hagnaður í feðraþjónustu og er kennt í fjarnámi og staðlotu í lokin. Við verðum með pylsu- og beikongerðarnámskeið, Advania er tilbúið að vera með kennslu í Windows 10 sem væri einstaklingum að kostnaðarlausu að því tilskildu að fyrirtæki og stofnanir í bænum kaupi af þeim námskeið í One Note og Outlook. Slíkt námskeið kostar 60.000 krónur fyrir fyrirtæki og geta þau svo boðið ótakmörkuðum fjölda fólks. Við ætlum að vera með námskeið um hundahald, norður- ljósanámskeið, suðunámskeið í samstarfi við Eyjablikk og margt fleira sem hægt er að skoða í Viskubæklingnum sem fylgir Eyjafréttum.“ Sjósókn námstækifæri fyrir sjómenn Nú er nýfarið af stað verkefni fyrir sjómenn. Nefnist það Sjósókn og er ætlað sjómönnum sem hafa ekki lokið framhaldsskólanámi. „Við erum í samstarfi við Sjómennt, Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar, Miðstöð símenntunar á Suður- nesjum, Mími símenntun og Fræðslumiðstöð atvinnulífsins um að útbúa námstækifæri fyrir sjómenn. Þetta er fjarnám þar sem allir samstarfsaðilar leggja eitthvert nám í púkkið, Við lögðum til grunnnám fiskvinnslu og raunfærni- mat í skipstjórn.Við erum búin að búa til námsefni í Menntastoðum sem inniheldur íslensku, dönsku, stærðfræði og ensku og upplýsinga- tækni. Stærðfræðiefnið var unnið hér í Vestmannaeyjum. Þetta fer þannig fram að nemendur fá námsefni og fyrirlestra á USB lykli og geta hlýtt á það úti á sjó þar sem kennarinn hefur tekið upp fyrir- lestra. Netið er oft hægt á sjónum og eiga sjómenn því erfiðara með að stunda nám sitt í gegnum internetið. Með þessu geta sjómenn menntað sig á sínum forsendum við þær aðstæður sem þeir búa við,“ sagði Valgerður. Saga hússins að Strandvegi 50 Vinnslustöðin byggði húsið, sem oft er kallað Hvíta húsið, 1953-1954. Valgerður við opnunina á föstudaginn. Þessi mynd er tekin um 1930. Húsið til hægri er gamli Tanginn. Í stað stakkstæðisins við hlið hans stendur í dag húsið að Strandvegi 50. Viska flytur á jarðhæð „Hvíta hússins“: Það er sannarlega afar gott að geta haft alla starfsemi í sama húsnæði :: Segir Valgerður Guðjónsdóttir, forstöðumaður Visku :: Spennandi vetur framundan gÍgja óSKarSdóTTir gigja@eyjafrettir.is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.