Fréttir - Eyjafréttir - 21.10.2015, Page 16
16 Eyjafréttir / Miðvikudagur 21. október 2015
Að koma sér af stað í reglulega
hreyfingu getur verið hægara
sagt en gert. Það er erfitt fyrir
fólk að henda sér inn í um-
hverfi sem er þeim algjörlega
ókunnugt. Við könnumst öll við
þessa tilfinningu, best væri að
líkja henni við það að byrja í
nýrri vinnu. Þú mætir fyrsta
daginn og þarft að læra á allt
það nýja sem þessi vinna krefst
að þú kunnir. Það ætlast enginn
til að þú mætir á fyrsta degi og
kunnir öll réttu handtökin. Þú
þarft bara að mæta og læra. Það
sama á við um líkamsrækt.
Einkaþjálfarinn
Ég veit sjálf hvernig það er að
vera byrjandi í ræktinni. Það er
óþægilegt. Maður upplifir það
að eiga ekki heima þar og
manni finnst allir vera fullir af
reynslu á meðan þú hins vegar
veist ekki neitt. Þarna ertu
samkvæmt dæminu hér að ofan
á þínum fyrsta vinnudegi. Þú
getur ekki mætt í ræktina og
ætlast til þess að kunna allt.
Því mæli ég með að leita til
fólks sem veit hvað það er að
gera eða þá að þú leitir til að
byrja með í hóptíma sem
líkamsræktarstöð nálægt þér
heldur. Í hóptímum getur þú
stundað hreyfingu án þess að
vera sérfræðingur í líkams-
beitingu. Gallinn við hóptíma er
sá að þetta er hóptími, þú ert
ekki ein/n með þjálfaranum.
Hann sér ekki mistökin sem þú
gerir í æfingunum, sum af þeim
kannski, en ekki öll.
Enn betri leið er að fara til
einkaþjálfara. Þar ert þú ein/n
með þjálfaranum og hans fókus
er bara á þér. Hann byggir upp
æfingaplan og matarplan sem er
sniðið að þínum þörfum og að
þinni getu. Með þessu lærir þú
helling um það hvernig líkami
þinn virkar og með tímanum
sérðu fram á það að þú getir
gert þetta sjálf/ur án aðstoðar.
Ég hef farið í gegnum öll þessi
þrep. Mætt í ræktina og liðið
eins og ég ætti ekki heima þar á
meðal allra hinna ræktarnörd-
anna sem líta á ræktina sem sitt
annað heimili. Upplifað það að
vera fyrir og það að ég sé ekki
að gera hlutina rétt. Allt sem er
fullkomlega eðlilegt þegar
maður er nýr í þessu.
Einnig hef ég farið í hóptíma
og þeir, eins og ég ræddi um í
síðustu viku, hjálpuðu mér að
sjá ljósið hvað varðar heilsu og
mataræði. Eftir það fannst mér
vanta eitthvað meira og ég var
svo heppin að eiga kærasta sem
er lærður einkaþjálfari frá
íþróttaakademíunni hjá Keili.
Hann tók mig í gegn og kenndi
mér helstu æfingar og hvernig
ég ætti að beita líkamanum rétt
til að forðast meiðsli.
Í dag æfi ég samkvæmt
æfingaplani hjá fjarþjálfara. Ég
tel mig færa í það að geta æft
sjálf án þess að hafa einhvern
yfir mér. Það tók tíma og ég geri
oft æfingarnar ekki 100% rétt .
Ef ég er ekki viss um hvernig á
að framkvæma þær þá leita ég
til þjálfarans míns og spyr hann
ráða. Hann reynir þá að svara
mér skriflega eða þá að hann
bendir mér á myndbönd þar
sem æfingin er sýnd.
Þegar kemur að því að velja
sér fjarþjálfara þá þarf að vanda
valið. Það eru rosalega margir
einkaþjálfarar í dag á mark-
aðnum og eru þeir eins misgóðir
eins og þeir eru margir.
Hvar liggur áhuginn?
Þegar þú stendur frammi fyrir
þeirri ákvörðun um hvaða
hreyfingu þú eigir að stunda eða
hvaða einkaþjálfara þú ættir að
velja er best að svara nokkrum
spurningum fyrst:
Hvar liggur áhugi þinn?
Hvað finnst þér skemmtilegt
og spennandi?
Hvað er það sem myndi fá þig
til að vilja gera það á hverjum
degi?
Það þurfa ekki allir að fara í
ræktina til að stunda hreyfngu,
alls ekki. Fyrir suma er útihlaup
algjörlega málið eða þá að fara í
góðan göngutúr úti í náttúrunni.
Fyrir aðra er crossfit í uppáhaldi
eða þá að fara í sund. Hreyfing
er svo mismunandi og engin ein
betri en einhver önnur. Það er
ekki allra að fara í ræktina og
lyfta lóðum.
Þegar þú ert búin/n að komast
að því hvar áhugasvið þitt
liggur, þá er bara að koma sér af
stað. Það er margt í boði þarna
úti svo það er undir þér komið
að leita þér upplýsinga um það
sem hentar þér.
Ég hef prófað margar útgáfur
af hreyfingu, allt frá hoppi og
skoppi með eigin líkamsþynd,
hóptíma, líkamspartaskipt plan
þar sem fókusinn er á vöðva-
stækkun, crossfit og það að lyfta
til þess að styrkja mig. Ég hef
byrjað í mörgu og hætt þar sem
ég var ekki að finna mig í þeirri
hreyfingu.
Prófa eitthvað nýtt
Í dag lyfti ég til þess að styrkja
mig. Af hverju? Af því að mér
finnst það gaman og það er
krefjandi. Ég verð ekki eins og
karlmaður þó ég lyfti þungu,
alls ekki. Það er ein af þessum
mýtum sem ganga um í
líkamsræktarheiminum og er
efni í allt annan pistil.
En þó svo að það heilli mig að
lyfta þungu, þá þarf það ekki
endilega að heilla þig. Málið er
bara að henda sér út í djúpu
laugina og prófa eitthvað nýtt.
Ef þér líkar það ekki þá bara
hættir þú því og prófar eitthvað
annað. Einfalt ekki satt?
Það gerir svo ótrúlega mikið
fyrir okkur bæði andlega og
líkamlega að stunda einhverja
hreyfingu. Regluleg hreyfing
kemur blóðinu af stað og léttir
skapið og plúsinn er að hún þarf
ekki að vera það mikil. Hálftími
á dag er betra en ekki neitt.
H e i l s u H o r n i ð
Sara óSK KáradóTTir
frettir@eyjafrettir.is
Að koma
sér af stað
V
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi
Haukur Kristjánsson
vélstjóri
lést í faðmi ástvina sinna þann 16. október sl.
Útför hans fer fram laugardaginn 31. október
frá Landakirkju.
Fyrir hönd aðstandenda
Karen, Friðborg og Fjóla Hauksdætur.
Myndlistar-
náMskeið
í olíumálun
fyrir byrjendur
Hefst vikuna 26. október 2015.
Myndlistarskóli Steinunnar
sími: 899-4423
Atvinna:
70% starf á Sambýlinu
Vestmannaeyjabær auglýsir eftir starfsmanni til vinnu í
Sambýlinu Vestmannabraut 58b. Um er að ræða vaktavinnu
og er starfshlutfallið 70%.
Starfsmaður vinnur við aðstoð við heimilisfólk ásamt
leiðsögn með það að markmiði að auka færni heimilismanna
til þátttöku í daglegu lífi. Unnið er eftir markmiðum laga um
málefni fatlaðs fólks og þeirri stefnumótun sem sveitar-
félagið setur. Laun og kjör skv. kjarasamningi STAVEY.
Nánari upplýsingar veitir Lilja Óskarsdóttir, forstöðumaður, í
síma 488 2550.
Umsóknarfrestur er til 30. október 2015.
Umsækjendur eru beðnir um að skila umsóknum til Þjón-
ustuvers Ráðhúss merkt „Vestmannabraut 58b, starf“. Með
umsókn þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar
sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur
fyrir hæfni í starfið.
Vestmannaeyjabær
Ráðhúsinu | 902 Vestmannaeyjum | kt. 690269-0159,
sími 488 2000 | fax 488 2001 | www.vestmannaeyjar.is
Karlakór Rangæinga heldur tónleika í Akoges-salnum
LAUGARDAGINN 24. OKT. KL. 16:00.
Stjórnandi kórsins er Guðjón Halldór Óskarsson.
Undirleikarar: Glódís Margrét Guðmundsdóttir og Grétar Geirsson.
KARLAKÓR RANGÆINGA
Í VESTMANNAEYJABÆ
FJÖLBREYTT
SÖNGDAGSKRÁ
Minningarkort
kvenfélagsins
líknar
Stefanía Ástvaldsdóttir
Hrauntúni 34 / s. 481-2155
Margrét Kristjánsdóttir
Brekastíg 25 / s. 481-2274
Elínborg Jónsdóttir
Hraunslóð 2 / s. 481-1828
Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir
Brimhólabr. 28 / s. 481-3314
Allur ágóði rennur í
sjúkrahússjóð félagsins
Minningarkort
kristniboðssjóður
hvítasunnuManna
Sigurbjörg Jónasdóttir
sími 481-1916
Anna Jónsdóttir
sími 481-1711
Magnús Jónasson
sími 481 2444
Allur ágóði rennur
til kristniboðs.
Minningarkort
sigurðar i.
Magnússonar
björgunarfélags
vestMannaeyja
Emma Sigurgeirsdóttir
s. 481-2078
Þóra Egilsdóttir
s. 481-2261
Sigríður Magnúsdóttir
s. 481-1794
Minningarkort
krabbavarnar
vestMannaeyja
Hólmfríður Ólafsdóttir
Túngötu 21 / sími 481-1647
Ester Ólafsdóttir
Áshamri 12 / sími 481-2573
Guðbjörg Erla Ragnarsd
Brekastíg 30 / sími 588 3153
Karólína Jósepsdóttir
Foldahraun 39e s. 534 9219