Fréttir - Eyjafréttir - 20.01.2016, Qupperneq 11
11Eyjafréttir / Miðvikudagur 20. janúar 2016
Fréttapýramídinn 2015 :: Valið ekki erfitt að þessu sinni:
Fólk, félög og fyrirtæki sem skarað hafa fram
úr og gert Vestmannaeyjar að betra samfélagi
hverju árinu og hefur á að skipa
bæði reyndu og mjög hæfu
starfsfólki sem er fundvíst á efni
vítt og breitt um landið. Nær hún
iðulega að fylla upp í það gat sem
stóru sjónvarpsstöðvarnar skilja
eftir. Á síðasta ári fór N4 að láta til
sín taka á Suðurlandi með Eyja-
manninn Sighvat Jónsson og
Margréti Blöndal í fararbroddi.
Hafa þau náð að bregða upp
skemmtilegri mynd af Sunnlend-
ingum í leik og starfi.
Framan af var glaðleg og hressileg
ung kona áberandi á skjánum. Þarna
var mætt Hilda Jana Gísladóttir sem
hefur flestu sjónvarpsfólki meiri
ástríðu fyrir starfi sínu. Nú veitir
hún fyrirtækinu forystu auk
þáttagerðar og slær hvergi af,
takmarkið er landið og miðin og
næsta strandhögg N4 eru Vestfirðir.
Það er okkar lán á landsbyggðinni
að Hilda Jana valdi sér litla
sjónvarpsstöð á Akureyri til að
vinna á. Og hún taldi það ekki eftir
sér að koma til Eyja og taka við
Fréttapýramídanum 2015, fyrir
framlag vegna fjölmiðlunar á
landsbyggðinni. Gjörðu svo vel
Hilda Jana, gaman að fá að sjá þig
loksins augliti til auglitis.
Hún gafst ekki upp
Fólki sem smitað er af lifrarbólgu C
og njóta sjúkratrygginga á Íslandi
mun á næstu dögum og vikum
bjóðast meðferð með nýjum lyfjum
sem geta læknað sjúkdóminn í allt
að 95 til 100 prósent tilvika. Er það
sannkallaður gleðisöngur í eyrum
sjúklinga sem ríkið hafði fram að
þessu synjað um nýja lyfið. Bar við
fjárskorti en lyfjameðferðin kostar á
bilinu sjö til tíu milljónir króna.
Eyjakonan Fanney Björk Ás-
björnsdóttir, sem smitaðist af
lifrarbólgu C við blóðgjöf eftir
barnsburð árið 1983, stefndi
íslenska ríkinu þar sem það hafði
neitað henni um lyfið. Hún tapaði
málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur
en þarna var komið það sem hún
hafði barist fyrir og er hún á leið í
meðferð með nýja lyfinu.
Fanney vakti athygli fyrir vasklega
framgöngu í þessu máli sem náði
eyrum þjóðarinnar. Átti hún sinn
þátt í að hreyfa við málinu og nú er
áætlað að reyna að útrýma lifrar-
bólgu C á Íslandi. Milli 800 og
1000 manns eru smitaðir af
lifrarbólgu C hér á landi en árlega
greinast á milli 40 til 70 einstak-
lingar.
Fanney er að mati Eyjafrétta annar
Eyjamaður ársins 2015 og við ég
biðja hana um koma hér upp.
Glæsilegur fulltrúi Eyjanna
Framganga íslenska landsliðsins í
knattspyrnu á síðasta ári hefur vakið
athygli um allan heim og ekki síst
sá áfangi að íslenska landsliðið í
knattspyrnu náði sæti á Evrópu-
mótinu í Frakklandi í sumar. Þar
eiga Eyjamenn sína fulltrúa þó
engan á vellinum.
Fyrstan skal nefna Einar Björn
Árnason matreiðslumeistara, Einsa
Kalda sem sér um að maturinn sem
strákarnir okkar fá sé í lagi. Við
eigum líka góðan fulltrúa, Ómar
Smárason sem sér um upplýsinga-
málin og Víði Reynisson öryggis-
fulltrúa. Allt frábærir Eyjamenn þar
sem Einar Björn stendur okkur
næst. Við matmennirnir vitum
nefnilega að það eru kokkarnir sem
skipta öllu þegar í slaginn er komið.
Það veit Einar Björn líka, það er því
full ástæða til að þakka honum góð
störf fyrir landsliðið.
Já hann Einar Björn er flottur en
við eigum líka enn einn fulltrúann í
hópnum sem er Heimir Hallgríms-
son, þjálfari landsliðsins. Hann þarf
ekki að kynna fyrir Eyjamönnum
sem vita að þar fer maður sem vill
ná árangri í öllu sem hann gerir.
Þegar hann var ráðinn til íslenska
karlalandsliðsins 2011 sem
aðstoðarþjálfari Lars Lagerbacks
var stefnan tekin á að koma liðinu á
lokamót og það hefur tekist. Ísland
verður með á EM í sumar og nú
standa þeir jafnfætis, Heimir og
Lars sem þjálfarar íslenska
landsliðsins.
Heimir er Eyjamaður, lék hér upp
alla yngri flokkana og með
meistaraflokki. Þjálfaði yngri flokka
hér í Eyjum, gerði ÍBV að bikar-
meistum í knattspyrnu kvenna. Náði
líka mjög góðum árangri með
karlalið ÍBV en snemma var ljóst að
hann stefndi hærra. Hann er orðinn
nafn í alþjóðlegum fótbolta.
Minn draumur er að hann taki við
Liverpool eftir fimm ár og þar með
hefjist nýtt gullaldartímabil hjá
mínum mönnum. Hvort það verður
veit ég ekki en spái því að íslenska
landsliðið sé áfangi en ekki
endastöð á ferli hans sem þjálfari.
Heimir er glæsilegur fulltrúi okkar
Eyjamanna hvar sem hann kemur
og við erum stolt af honum. Hann
er annar Eyjamaður ársins 2015 og
vil ég biðja hann um að koma hér
upp og veita Fréttapýramídanum
2015 viðtöku.
Þau tóku við Fréttapýramídanum 2015. Frá vinstri Karl Haraldsson og Ester Óskarsdóttir fyrir hönd ÍBV-íþróttafélags, Heimir Hallgrímsson, Fanney Ásbjörnsdóttir, Ingimar
Georgsson í Vöruvali, Hilda Jana Gísladóttir frá N4 og Sigurmundur Einarsson og Unnur Ólafsdóttir, foreldrar Unnars Gísla.
Ómar Garðarsson, ritstjóri Eyjafrétta, gerði grein fyrir valinu.
Gestum var boðið upp á súpu og brauð frá Einsa Kalda. Rann hún
ljúflega niður.