Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 06.04.2016, Blaðsíða 4

Fréttir - Eyjafréttir - 06.04.2016, Blaðsíða 4
4 Eyjafréttir / Miðvikudagur 6. apríl 2016 Landakirkja Fimmtudagur 7. apríl Kl. 10.00 Foreldramorgunn. Kl. 19.00 Æfing Stúlknakórs Landakirkju. Kl. 20.00 Æfing, Kór Landakirkju. Kl. 20.00 Opið hús í KFUM & K við Vestmannabraut. Föstudagur 8. apríl Kl. 16.00 Litlir lærisveinar. Laugardagur 9. apríl Kl. 11.00 Fermingarmessa. Kl. 16:00 Útför Sturlu F. Þorgeirs- sonar. Sunnudagur 10. apríl Kl. 11.00 Fermingarmessa. Kl. 11.00 Sunnudagaskólinn í safnaðarheimilinu undir stjórn Gísla Stefánssonar. Kl. 20.00 Æskulýðsfundur hjá Æskulýðsfélagi Landakirkju og KFUM & K í Vestmannaeyjum. Mánudagur 11. apríl Kl. 20.00 Tólf spora andlegt ferðalag. Framhaldshópur. Þriðjudagur 12. apríl Kl. 10.00 Kaffistofan. Kl. 14.00 STÁ. Kl. 16.30 NTT. Kl. 16.30 ETT. Kl. 20.00 Fundur hjá Gídeon mönnum. Kl. 20.00 Samvera hjá Kvenfélagi Landakirkju. Miðvikudagur 13. apríl Kl. 10.00 Bænahópur. Kl. 17.30 Kyrrðarbæn. Kl. 19.30 OA fundur í Safnaðar- heimilinu. Hvítasunnu- kirkjan Fimmtudagur kl. 20:00 Ný biblíulestrarröð hefst úr bókinni „Vöxtur“. Sunnudagur kl. 13:00 Samkoma: Guðni Hjálmarsson prédikar. Lifandi söngur, kaffi og notalegt spjall á eftir. Mánudagur kl. 20:00 Bænastund. Allir hjartanlega velkomnir. Kirkjur bæjarins: Aðvent- kirkjan Laugardagur Kl. 12:00 Samvera. Allir velkomnir. Eyjamaður vikunnar Dagurinn hefði ekki getað farið betur Alþjóðlegur dagur einhverfra var síðastliðinn laugardag. Einhugur, for- eldra- og aðstandendafélag einhverfra í Vestmannaeyjum bauð gestum og gangandi, að kynnast starfinu í tilefni dagsins. Mikill fjöldi fólks mætti og þótti dagurinn heppnast einstaklega vel. Daníel Hreggviðsson, 15 ára sagði þar sögu sína á skemmtilegan hátt um það hvernig er að vera einhverfur. Daníel Hreggviðsson er Eyjamaður vikunnar að þessu sinni. Nafn: Daníel Hreggviðsson. Fæðingardagur: 19. júní 2001. Fæðingarstaður: Vestmannaeyjar. Fjölskylda: Foreldrar mínir eru Guðrún Jónsdóttir og Hreggviður Ágústsson og bróðir minn er Ágúst Sölvi Hreggviðsson. Draumabíllinn: Sjálfskiptur bíll sem hægt er að keyra og hægt er að anda í. Uppáhaldsmatur: Lundi. Versti matur: Kjötfars. Uppáhalds vefsíða: Facebook og Youtube. Hvaða tónlist kemur þér í gott skap: Kvikmyndatónlist og popptónlist. Aðaláhugamál: Kvikmyndir, tónlist, samfélagsmál og vísindi. Hvaða mann/konu myndir þú vilja hitta úr mannkynssögunni: Martin Luther King. Fallegasti staður sem þú hefur komið á: Vestmannaeyjar og Kanaríeyjar. Uppáhalds íþróttamaður og íþróttafélag: ÍBV og enginn sérstakur íþróttamaður. Ertu hjátrúarfull/ur: Nei, en reyndar kýs ég ekki að benda á flugvélar. Stundar þú einhverja hreyfingu: Fer í ræktina af og til. Uppáhaldssjónvarpsefni: Game of Thrones og Breaking Bad. Hvað finnst þér skemmtilegast að lesa: Glæpasögur. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera í skólanum: Fara í próf og fá niðurstöður úr þeim vegna þess að það er eina námsmatið sem fær mig til að leggja mig sérstaklega fram. Hvernig fannst þér dagur einhverfra heppnast: Dagurinn hefði ekki getað farið betur. Dagskráin heppnaðist öll og það voru mun fleiri gestir en við áætluðum. Eitthvað að lokum: Ég vil þakka öllum fyrir að hafa mætt á daginn og sýna þessu áhuga. Daníel Hreggviðsson er Eyjamaður vikunnar Eyjafréttir vilja eindregið hvetja brúðhjón til að senda inn mynd til birtingar sem og foreldra nýrra Eyjamanna. Myndir og upplýsingar sendist á frettir@eyjafrettir.is Börn og brúðhjón Tónfundir Tónlistarskólans Haldnir í skólanum alla miðvikudaga kl. 17.30. Allir velkomnir Tónlistarskóli Vestmannaeyja Er áfengi vandamál í þinni fjölskyldu? Al-Anon fyrir ættingja og vini alkóhólista Fundir á þriðjudögum kl. 20.30 Byrjendafundir kl. 20.00 að Heimagötu 24 AA fundir eru haldnir sem hér segir að Heimagötu 24: Mánudagur: kl.20.30 Miðvikudagur: kl.20.30 Fimmtudagur: kl.20.30 Föstudagur: kl.23.30 Laugardagur: kl.20.30 opinn fundur Sunnudagur: kl.11.00 Athugið, allir fundir reyklausir Móttaka nýliða hálfri klst. fyrir hvern auglýstan fundartíma. Ath.símatíma okkar, sem eru hvern dag, hefjast 30 mín. fyrir ákveðinn fundartíma og eru 2 klst. í senn. Sími 481 1140 Húsnæði óskast Knattspyrnudeild ÍBV óskar eftir því að leigja húsnæði fyrir þjálfara liðsins í sumar. Hvort sem um er að ræða langtíma leigu eða yfir sumarið. Vinsamlegast hafið samband við framkvæmdarstjóra félagsins í síma 699 4393 eða oskar@ibv.is Blóðsöfnun verður á Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Vestmanna- eyjum 3. hæð miðvikudaginn 13. apríl frá kl. 12:00 – 19:00 og fimmtudaginn 14. apríl frá kl. 08:30-14:00. Blóðgjöf er lífgjöf Einsi kaldi og hans fólk hélt árshátíð sína á Háaloftinu og var mikið stuð eins og sjá má á þessari mynd sem Óskar Pétur tók. >> SmáAuglýsingAr Þjóðhátíðartjald til sölu. Súlur, dúkur og hælar. Kr. 50.000. Uppl. í s. 694-1131. ------------------------------------------- Auglýsingasíminn er 481-1300

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.