Fréttir - Eyjafréttir - 06.04.2016, Síða 16
16 Eyjafréttir / Miðvikudagur 6. apríl 2016
Í síðasta mánuði missti heimur-
inn einn af sínum bestu mönn-
um. Abel Dhaira, markvörður
ÍBV og landsliðs Úganda í
knattspyrnu féll frá eftir stutta en
erfiða baráttu við krabbamein.
Abel var afskaplega góður
maður og vildi engum illt, hann
var einnig mjög trúaður og fór
aldrei leynt með trú sína á Guð.
Abel kom fyrst til Íslands árið
2010 og samdi við ÍBV til
tveggja ára. Hann var meiddur á
þeim tíma og sagði Heimir
Hallgrímsson, þáverandi þjálfari
ÍBV, að það væri framtíðar-
hugsun að fá hann til liðsins.
Abel var ekki fyrsti leikmaður
Úganda sem kom til ÍBV þar
sem nokkrir samlandar hans
höfðu náð góðum árangri hér í
Eyjum.
Strax frá fyrsta degi var hann mjög
ánægður að hafa komið til Íslands,
tók áskoruninni fagnandi og það var
aldrei neitt vesen á honum. Fyrsta
árið var hann í harðri baráttu við
Albert Sævarsson um byrjunarliðs-
sæti en svo fór að hann spilaði níu
leiki tímabilið 2011 í Pepsi-deild-
inni.
Það tímabil var frábært hjá ÍBV
þar sem liðið endaði í þriðja sæti
deildarinnar á eftir KR og FH. Fyrir
leiktíðina var liðinu spáð fimmta
sæti og því mikil ánægja með þriðja
sætið. Í þeim níu leikjum sem Abel
spilaði í deildinni fékk ÍBV 16 stig.
Á næstu leiktíð átti Abel eftir að
spila enn stærra hlutverk hjá ÍBV.
Heimir Hallgrímsson lét skemmti-
leg orð falla um markvörðinn á
miðju sumri 2011 eftir 3:2 sigur
ÍBV gegn Valsmönnum á Hlíðar-
enda. „Þetta er bara sirkusdýr og
skemmtikraftur. Það er gaman að
hafa svona mann í liðinu,“ sagði
Heimir um Abel sem skemmti
áhorfendum í flestum leikjum sem
hann spilaði.
Árið 2012 var mjög gott hjá Abel
þar sem hann spilaði alla leiki ÍBV
í deildinni, fyrir leiktíðina var ÍBV
spáð 8. sæti af tólf liðum. ÍBV
endaði í 3. sæti deildarinnar,
nokkuð langt frá toppliði FH sem
rústaði deildinni. ÍBV fékk á sig
fæst mörk allra í deildinni og þarf
varla að taka það fram hve vel Abel
stóð sig á tímabilinu. Eftir fyrstu 20
leikina hafði liðið aðeins fengið á
sig 17 mörk sem verður að teljast
ótrúlegur árangur.
Eftir leiktíðina var Abel valinn á
varamannabekk í úrvalsliði
tímabilsins hjá virtu vefsíðunni
Fótbolta.net. Eftir tímabilið sögðu
fjölmiðlar frá því að Abel yrði enn
hjá ÍBV en fljótt kom babb í bátinn.
Abel skipti um lið og spilaði í
Tansaníu tímabilið 2013. Menn
söknuðu Abel og létu það í ljós á
samfélagsmiðlum, Abel átti einnig
eftir að segja frá því að hann
saknaði Íslands.
Í desember árið 2013 samdi ÍBV
aftur við Abel Dhaira, hann gerði
þriggja ára samning og fékk mikið
lof í fréttatilkynningu frá ÍBV.
Stuttu áður samdi Guðjón Orri
Sigurjónsson við ÍBV og var
hugmyndin að láta þá tvo berjast
um stöðuna á keppnistímabilinu
2014. Stuttu eftir komu Abel vildi
Guðjón Orri fara frá félaginu þar
sem hann hafi ekki fundið traust.
Abel virkaði ekki sannfærandi í
upphafi móts og skiptu þeir félagar
því á milli sín stöðunni á tíma-
bilinu. Á tímabilinu talaði Abel um
tíma sinn í Tansaníu þar sem hann
hafi verið sakaður um að hagræðu
úrslitum eftir að hann fékk á sig
þrjú mörk í leik gegn slöku liði. Þá
hafði einn af forráðamönnum
félagsins sakað hann um að
hagræða úrslitum en þá var nokkuð
ljóst að dvöl hans væri á enda í
Tansaníu.
Óx ásmegin
Þrátt fyrir slæma byrjun á tíma-
bilinu óx Abel ásmegin það sem
eftir var, hann var til að mynda
valinn í úrvalslið nokkurra umferða
á tímabilinu fyrir frammistöðu sína.
Hann spilaði átján leiki á tímabili
þar sem ÍBV endaði í 10. sæti, einu
stigi frá falli. Abel varði mark ÍBV í
öllum fimm sigurleikjum liðsins
það tímabil.
Abel spilaði einnig tímabilið 2015
með ÍBV, á síðasta ári. Hann lék
alla fjóra leiki liðsins í Borgunar-
bikarnum en þar fór liðið í
undanúrslit, þá lék hann níu leiki í
deildinni. Í þeim fjórum heima-
leikjum sem hann spilaði tapaði
liðið ekki leik og sótti átta stig. ÍBV
endaði eins og flestir vita í 10. sæti
deildarinnar og vann einungis fimm
leiki líkt og árið áður.
Eftir að Abel kom heim, veiktist
hann. Forráðamenn ÍBV töldu best
að koma með Abel til landsins og
undir læknishendur hér. Fljótt var
ljóst að veikindin væru það alvarleg
að Abel myndi ekki spila með
liðinu á næstu leiktíð.
Margir lögðu hönd á plóg
ÍBV hóf fjársöfnun fyrir læknis-
meðferð. Margir lögðu fram
hjálparhönd og mörg lið gáfu
sektarsjóði sína í verkefnið. Þar má
t.d. nefna Grindavík, Fram,
Stjörnuna, Árborg, Dalvík/Reyni,
Leikni F., Víking R., Þrótt og
kvennalið Stjörnunnar.
Þá setti Gunnleifur Gunnleifsson,
markmaður upp styrktarleik til að
sýna Abel stuðning og safna
fjármagni fyrir meðferðinni.
Styrktarleikurinn var hinn glæsi-
legasti og tóku fjölmargir þátt í
honum. Það var vel við hæfi að
Yngvi Magnús Borgþórsson
skoraði þrennu í leiknum því þeir
félagar voru mjög nánir og frábærir
vinir.
Einungis þremur dögum síðar
komu fréttirnar sem allir óttuðust.
Abel var allur, en það var Andrew
Mwesigwa, fyrrum leikmaður ÍBV
og liðsfélagi Abel úr landsliði
Úganda sem greindi frá því.
Fljótlega var unnið að því að flytja
lík Abel til Úganda þar sem hann
var jarðaður nýlega. En sorglegar
fréttir bárust stuttu eftir andlát Abel
varðandi fjölskyldu gleðigjafans.
Amma hans hafði látist þegar hún
heyrði fréttirnar af andláti barna-
barns síns.
Í janúar 2010 fór ég í ferð til
Úganda í þeim tilgangi að finna
miðjumann fyrir ÍBV. Í ferðinni sá
ég þrjá landsleiki Úganda. Markmið
ferðarinnar náðist og Tony Mawejje
lék með félaginu það leiktímabil. Í
þessum landsleikjum sá ég og hitti
Abel Dhaira í fyrsta skipti. Ungur
og efnilegur markvörður sem vakti
strax athygli mína. Abel hafði
reyndar gert samning við annað lið
en við vorum í sambandi eftir þessa
heimsókn og þegar tækifærið gafst
gerði hann samning við ÍBV og
kom til Vestmannaeyja 2011.
Abel var góður og litríkur mark-
vörður, þjálfaður frá unga aldri af
föður sínum sem var sjálfur
landsliðsmarkvörður Uganda. Fyrir
utan það að vera dökkur á hörund
og mjög hávaxinn þá var það
leikstíllinn og taktarnir sem gerðu
hann frábrugðinn öðrum markvörð-
um. Ótrúleg knatttækni sem var
fremri flestum útileikmönnum og
það að taka ákvarðanir sem jók
hjartsláttartíðni heitustu stuðnings-
manna ÍBV verulega.
Þrátt fyrir mikil gæði á vellinum
var það þó persónuleikinn sem
gerði Abel einstakan. Abel tengdi
strax við liðsfélagana, alltaf
jákvæður og tilbúinn að leggja
mikið á sig til að ná árangri. Þótt
hann og Tony væru saman öllum
stundum kallaði Abel samt Yngva
Borgþórs alltaf bróður sinn, útlits-
lega eru líklega ólíkari bræður
vandfundnir.
Abel var mjög trúaður, hann talaði
við og treysti almættinu öllum
stundum. Hann fór með sínar bænir
fyrir leiki, í hálfleik og eftir leiki.
Allt það góða sem henti Abel
þakkaði hann Guði og það má segja
að ég hafi stundum verið öfund-
sjúkur út í hann þarna uppi. Burtséð
frá því hvaða snilldartaktík við
settum upp, þá var það alltaf Guði
að þakka að við unnum.
Abel var einstakur karakter. Brosið
og hláturinn voru bráðsmitandi og
oftast það fyrsta sem tók á móti
fólki. Bros og líkamstjáning sem
sagði „það er virkilega gaman að
sjá þig“. Einlægt bros sem kostaði
ekkert en hafði varanleg áhrif á
þann sem þáði það.
Abel var kurteis, auðmjúkur,
kvartaði aldrei og sýndi öllu fólki
virðingu. Hann setti aðra í forgang,
meira segja í veikindum sínum og
kvölum hafði hann áhyggjur af
öllum öðrum en sjálfum sér.
Við sem höfum það betra og
eigum mun meira af veraldlegum
hlutum sjáum því miður of oft tæki-
færi til að kvarta yfir smámunum.
Hugur hans var þó alltaf heima hjá
fjölskyldunni í Úganda, hjá
foreldrum, bræðrum og systrum.
Abel reyndi á allan hátt að styðja
þau að ná sínum markmiðum.
Þetta er ástæðan fyrir því hvers
vegna Vestmanneyingar og þeir sem
kynntust Abel þótti vænt um hann.
Ástæða þess að allir tóku höndum
saman að styðja hann í erfiðum
veikindum. Þegar ættingjar hans og
vinir spurðu mig hvernig stæði að
því að allir væru svona vingjarn-
legir á Íslandi, þá var svarið mitt að
þetta hefði ekki verið gert fyrir
hvern sem er. Að vissu leyti sorgleg
staðreynd en sönn. Menn uppskera
eins og þeir sá.
Margir voru undrandi á því að
ÍBV vildi fá Abel heim til Íslands,
veikan manninn, í byrjun árs. Í
knattspyrnuheiminum í dag er þetta
óvanalegt. Leikmenn þurfa ekkert
annað en eiga slakan leik til að vera
ýtt til hliðar en ef vel gengur er
mönnum hampað.
Ég er óendanlega stoltur af félaginu
mínu ÍBV, fyrir það að flytja Abel
til Íslands og gera allt til að hjálpa
honum í hans erfiðu veikindum,
þrátt fyrir að allir vissu að hann
væri ekki að fara að leika knatt-
spyrnu fyrir félagið. Strákarnir í
knattspyrnuráðinu urðu hans nánsta
fjölskylda, ásamt Árnýju Hreiðars,
þangað til móðir Abels og systir
komu til landsins. Allur þessi
stuðningur, bæði fjárhagslegur og
ekki síst umhyggjan, sýnir að ÍBV
er meira en bara íþróttafélag. ÍBV
er stór fjölskylda.
Ég kveð þig, góði vinur. Við erum
ríkari að hafa fengið að kynnst þér.
Ég veit að þú ert í góðum höndum
hjá þínum yfirþjálfara í dag. Ef
einhver á frátekið sæti í byrjunarlið-
inu í himnaríki þá ert það þú.
Fjölskyldunni votta ég okkar dýpstu
samúð og vona að Guð gefi ykkur
styrk á erfiðum tíma.
Heimir Hallgrímsson.
Með Abel er fallinn
frá frábær maður
guðmundur t. SigFúSSon
gudmundur@eyjafrettir.is
Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari minnist góðs drengs:
Brosið og hláturinn voru bráðsmitandi
og oftast það fyrsta sem tók á móti fólki
:: Bros og líkamstjáning sem sagði, það er virkilega gaman að sjá þig
Abel Dhaira fæddist í Uganda þann 9. september 1987, sonur þeirra
Harriet Nakijjoba og Bright Dhaira. Hann átti tvö alsystkini og þrjú
uppeldissystkini.
Abel Dhaira
Fæddur 9. september 1987 - dáinn 27. mars 2016
V