Skessuhorn - 25.02.1999, Síða 8
8
FIMMTUDAGUR 25. FEBRUAR 1999
^ikiUisunuJ
Blómaverk í
nýtt húsnæbi
Bændurnir í Rau&anesi. Frá v. Sigurbjörg Viggósdóttir, Ingibergur Jónsson, Sigmar H. Gunnarsson og Inga Dís
Ingibergsdóttir á víxludaginn.
Mabur verbur ab trúa á
þab sem mabur er ab gera
Segja bændurnir í Rauðanesi á Mýrum sem vígðu nýtt fjós um helgina
Það er alltaf stór stund þegar nýtt
atvinnuhúsnæði er tekið í notkun,
ekki síst í dreifbýlinu þar sem slíkt
er kannski ekki daglegur viðburð-
ur. A undanförnum árum hefur
það heyrt til undantekninga ef
byggt er nýtt húsnæði til landbún-
aðarframleiðslu en undantekning-
arnar eru til og síðastliðinn laugar-
dag var slegið upp mikilli veislu í
Rauðanesi á Mýrum í tilefni af því
að verið er að leggja lokahönd á
nýtt og fullkomið 40 kúa fjós. I
Rauðanesi búa Sigmar H. Gunn-
arsson og Inga Dís Ingibergsdóttir
og foreldrar hennar þau Sigur-
björg Viggósdóttir og Ingibergur
Jónsson.
I samtali við Skessuhorn sagði
Sigmar að það hafi verið kominn tími
á verulegar endurbætur á húsakosti
og niðurstaðan varð sú að byggja fjós
af fullkomnustu gerð. Fjósið er fjöru-
tíu bása með fullkomnum mjaltabás
með tölvustýrðu mjaltakerfi, flór-
sköfukerfi, fullkominni loftræstingu
og tilheyrandi tækjabúnaði sem prýð-
ir nýtískufjós. Það sem þó er óvenju-
legast í íslensku fjósi er að undir því
er ekkert haughús að undanskilinni
þró í enda hússins. Þaðan er mykj-
unni dælt í frístandandi mykjutank
utanvið húsið. Sigmar sagði að það
hefði mikla kosti í för með sér að
losna við mykjuna út úr húsinu sem
fyrst. „Við lögðum höfuðáherslu á að
auka framleiðsluna en minnka vinn-
una um leið. Vinnuaðstaðan í þessu
fjósi er algjör bylting fyrir okkur og
tæknin gefur okkur möguleika á að
fylgjast með hlutunum á auðveldari
hátt en áður. Með tölvustýrðu mjalta-
kerfi er hægt að fylgjast með nyt
kúnna frá degi til dags, halda utan um
sjúkraskýrslur, gangmál, fóðrun og
fleira,“ sagði Sigmar.
Sigmar sem er pípulagningameist-
ari hefur sjálfur unnið við bygging-
una ásamt iðnaðarmönnum úr ná-
grenninu. Hann sagði fjárfestinguna
vera um 15 milljónir með öllu og
taldi það vera nokkuð vel sloppið en
þess má geta að byggingartíminn var
aðeins um átta mánuðir. Aðspurður
um hvort slfk fjárfesting gæti borgað
sig í landbúnaði í dag, sagði hann.
„Maður verður að trúa á það sem
maður er að gera. Við lítum á þetta
sem fjárfestingu til framtíðar og höf-
um fulla trú á að hún standi fyrir
sínu,“ sagði Sigmar.
Um síðustu helgi opnaði blóma-
búðin Blómaverk í Ólafsvík nýja
og glæsilega verslun við Ólafs-
braut þar í bæ. Eigandi verslunar-
innar Friðgerður Pétursdóttir sem
hefur rekið Blómaverk síðustu
fimm árin sagði ástæðuna fyrir
fiutningnum vera að hún hafi vilj-
að komast í eigið húsnæði og að
auki væri hún núna komin á besta
stað í bænum.
Það var mikið um að vera í nýju
versluninni þegar blaðamaður
Skessuhorns leit þar við á laugar-
dagsmorguninn en verslunin var
opnuð á nýja staðnum kl. 14.00.
Friðgerður sagðist hafa fengið góða
aðstoð frá fjölskyldu og vinum og
var að vonum ánægð með sig í nýju
búðinni þrátt fyrir að lítill tími hafi
gefist til afslöppunar síðustu daga. I
Blómaverki er boðið upp á mikið úr-
val af blómum og gjafavöru og allar
blómaskreytingar eru unnar á staðn-
um. Það má búast við að það hafi
verið nóg að gera fyrstu helgina því
strax á laugardagsmorgninum voru
eiginmenn í Snæfellsbæ famir að
banka á dymar til að kaupa konu-
dagsblómin. „Jú, jú, Ólsarar eru
ósköp rómantískir,“ sagði Friðgerður
og brosti við. -G.E.
Mæbgurnar Fri&ger&ur Pétursdótt-
ir og Fjóla Rós í nýrri verslun
Blómaverks. Mynd: G.E.
Akranes
Náttfatapartí á öskudag
Litlu krakkarnir á Garöaseli bí&a í ofvæni eftir því a& fá a& slá köttinn úr
tunnunni. Allir mættu í náttfötum og voru fóstrurnar á því að þetta væri
fjölmennasta náttfatapartí sem haldið hefði verið í manna minnum á Vest-
urlandi.
Pennínn
Halló, halló halló.. dj....
hann datt út!
Brábum verða þessi orð vart sögð í Borgarfirði
bætur á kerfinu svo það megi vera
eins gott og auglýst er að það sé,
sjá t.d. bls 12 og 13 í símaskránni
1998. Bréftnu hefur verið svarað
og er það okkur ánægja að greina
ykkur hinum Borgfirðingunum frá
því að í niðurlagi bréfsins sem Ó-
lafur Þ. Stephensen forstöðumaður
upplýsinga- og kynningarmála
Landssímans skrifar undir, dagsett
22. janúar 1999 kemur eftirfarandi
fram: „á framkvæmdaáætlun far-
símadeildar Landssímans fyrir ný-
byrjað ár er að kanna aðstæður í
Borgarfirði öllum, gera mælingar á
GSM-sambandi og leitast við að
gera úrbætut þar sem þörf er á.“
Sem sagt, við eigum von á góðu
GSM sambandi á árinu 1999, höf-
um það hugfast.
f.h. Atvinnuþróunarnefndar,
Sverrir Heiðar Júlíusson
Atvinnuþróunarnefnd í sveitar-
félaginu sem Flosi kallar
Lundarofl eða Andaká öðru
nafni 3510, hefur verið að kanna
möguleika á endurbótum á
dreifikerfi Landssímans fyrir
GSM síma.
Astæðan er sú að víða í hérað-
inu hefur sambandið verið glopp-
ótt og þarf að gera átak ef við sem
eigum GSM síma eigum að sitja
við sama borð. GSM síminn er
nauðsynlegt atvinnu- og öryggis-
tæki sem allir verða að geta treyst
á, að vissu marki, en því miður
hefur sú ekki verið raunin. Við
sendum því Landssímanum bréf í
ársbyrjun og fórum fram á endur-
Hólmfríði á
Penninn
Eg er himinlifandi. Loksins, loks-
ins er að fæðast nýtt afl innan ís-
lenskra stjórnmála sem ég finn til
samkenndar með. Og það allra
besta; ein heilsteyptasta mann-
eskja sem ég þekki hefur tekið þá
ákvörðun að taka þátt í því starfi
og bjóða sig fram sem fulltrúa
minn í mótun þess samfélags sem
ég bý í.
Það er stór ákvörðun. Akvörðun
sem ég þakka henni fyrir. Því mér
sem kjósanda er alls ekki sama hver
situr á Alþingi íslendinga sem full-
trúi míns kjördæmis. Sá fulltrúi skal
vera mörgum góðum kostum gædd-
ur. Ég hef hingað til verið ein af
þeim sem kýs ekki flokka heldur
fólk, og mun halda því áfram. Þess-
vegna er það ánægjulegt þegar
traustvekjandi persóna eins og
Hólmfríður Sveinsdóttir býður fram
krafta sína til að vinna fyrir okkur.
Ég hef alltaf haldið að fólk yrði
sjálfkrafa litað og spillt af hinni
gömlu pólitísku hefð við það að
starfa innan gömlu flokkanna.
Hólmfríður hefur afsannað þá
kenningu mína. Hún er ennþá sama
jarðbundna, staðfasta og yftrvegaða
konan og ég þekkti áður en hún fór
á kaf í stjómmálin.
Kona, sem hefur hagsmuni heild-
arinnar að leiðarljósi. Enda hefur
hún sýnt að hún er ein af frum-
kvöðlunum í þverpólítísku sam-
starfi, fyrst með vinnu sinni og elju
í kringum stofnun Grósku og síðan
í starfi sínu með Nefnd um aukinn
hlut kvenna í stjómmálum.
Hólmfríður er ein af fáum stjóm-
málamönnum sem ég hef aldrei
heyrt hallmæla öðmm í sömu stétt.
Hún einbeitir sér að þeim verkefn-
um sem fyrir liggja og vinnur þau
af natni. Það hlýtur að vera kostur
að vera ung og fersk í þeirri miklu
vinnu sem framundan er að efla hið
unga og nýja afl sem samfylkingin
■
7
Anna Björk Bjarnadóttir.
er að verða. Ég skora því á Vest-
lendinga að fylkja sér bak við
Hólmfríði í prófkjöri samfylkingar-
innar sem fram fer þann 6. mars
n.k.
Anna Björk Bjamadóttir,
íþróttafrœðingur
Borgarnesi.
4
*