Skessuhorn - 25.02.1999, Page 15
anc.dduru/1..
^ ’ ■ i — - ia < ■ i-> *ni 17“» i i
FIMMTUDAGUR 25. FEBRUAR 1999
15
Af hverju bakverkur?
/^A N&Hsuhornib
Æfib aö sofa rétt
Það skiptir máli hvernig legið er í
rúminu á meðan sofið er. Margir
hafa eflaust upplifað það að vakna
stirðir og þreyttir og getur verið um
að kenna bæði dýnunni og eins
þeirri stellingu sem sofið er í. Sú
svefnstaða sem setur minnsta álag á
bakið er þegar sofið er á hliðinni
með fætur bogna og aðeins dregna
upp. Ef þú liggur á bakinu, reyndu
að minnka spennuna í bakinu með
því að setja kodda undir hnén. Að
liggja á maganum setur mesta
spennu á bakið. Ef þú getur alls
ekki sofið öðruvísi, settu þá kodda
undir magann.
Dýnur eiga að vera stífar en ekki
óþægilegar. Ef staðið er upp úr
rúminu eftir annars nógan svefn og
hvfld er kannski vert að athuga
hvort sú dýnugerð sem þú notar
henti þér eða hvort að svefnstaðan
setur óþarfa spennu á líkamann.
Svona Ekki svona
Svona Ekki svona
Ekki svona
Gætiö ab
skófatnabinum
Góðir skór geta gert gæfumuninn
í því að halda bakinu verkjalitlu.
Skór með lágum hæl eða flatbotna
með góðum púðum, til að taka
höggin af hryggnum þegar gengið
er, eru ákjósanlegir. Háir hælar
auka spennuna í bakinu og einnig
iíkur á meiðslum ef þeir eru notaðir
eingöngu. Skórnir þurfa að styðja
vel við fót og ökkla þó ekki þannig
að það sé óþægilegt eða þrengi að
fótunum. Þeir sem eru með ilsig
ættu að athuga með að fá viðeig-
andi innlegg og sama gildir um þá
sem hafa mislanga fætur. Fyrir þá
sem hafa tilhneigingu til að ganga
meira á innanverðum fætinum, væri
vert að athuga með skó sem styðja
vel við fótinn þar. Það minnkar
álag á þeim vöðvum sem halda fæt-
inum í skorðum og gæti minnkað
hættuna á því að misstíga sig og
snúa sig á ökkla.
Passib vigtina
Offita er algeng orsök fyrir verk í
baki. Auka þyngd að framan eykur
teygju á bakvöðvum og liðböndum.
Stór magi neyðir bakvöðvana til að
herpast til að vinna á móti skorti á
stuðningi frá magavöðunum sem
eru veikari en bakvöðvamir. Auk
þess sem aukin þyngd leiðir oft til
þess að fólk nennir síður að hreyfa
sig.
Birna G. Konrábsdóttir.
Haldib styrkleika og
hrejffanleika
Hversu vel vöðvar og bein í bak-
inu hreyfast fer eftir því hversu
sveigjanleg og sterk liðbönd og
vöðvar eru. Það er að mestu undir
okkur sjálfum komið í hvemig
ástandi líkami okkar er. Með því að
halda vöku okkar, hreyfa okkur og
halda í formi, stuðlum við að betri
líðan á allan hátt. Staðreyndin er sú
að lítið notaður líkami stirðnar og
verður því verr í stakk búinn til að
taka við þeim áföllum er alltaf
henda í hinu daglega lífi. En það
gildir um hreyfingu eins og annað
að allt er best í hófi og hinn gullni
meðalvegur er stundum vandratað-
ur.
Birna G. Konráðsdóttir
Höfandur er löggiltur
sjúkranuddari og rekur
sjúkranuddstofu í Borgamesi.
Stormsveitin sigursæl
IA HORNIÐ
Boltafélagíb Bruni
Nú þegar litla knattspymuliðið á
Akranesi hefur sitt fimmta
keppnistímabil ætla liðsmenn
Boltafélagsins Bruna sér stærri
hluti. Allt frá upphafi hefur leiðin
legið uppávið og á aðalstjórnar-
fundi félagsins seint á síðasta ári
var stefnan sett á að koma liðinu
upp um deild. Nýir menn vom
fengnir í stjóm en ásamt þeim
Magnúsi Oskarssyni og Einari
Gíslasyni sem borið hafa hitann og
þungann af starfmu hingað til hafa
bæst við þeir Heimir Björgvins-
son, Viðar Magnússon og Halldór
Jónsson.
Matthías Hallgríms-
son rábinn þjálfari
Fyrsta verk nýju stjómarinnar
var að ráða þjálfara og varð
Matthías Hallgrímsson fyrir val-
inu. Matta þarf ekki að kynna fyrir
knattspyrnuáhugamönnum enda
þjóðkunnur knattspymumaður hér
á ámm áður og margreyndur þjálf-
ari. Brunamenn fengu þar farsælan
og fiskinn karl í brúna og em mikl-
ar vonir bundnar við störf hans.
Æfíngar hófust í byrjun desember
og æft er 5 sinnum í viku. Það er
samdóma álit þerirra sem stundað
hafa æfingar að þær sér erfiðar en
skemmtilegar, eða eins og þær
eiga einmitt að vera!
Nú um þessar inundir fara fram
viðræður milli stjómar Bruna og
Knattspymufélags ÍA um aukið
samstarf. Samstarfið hefur verið
gott hingað til og Bmni hefur alltaf
mætt skilningi og velvild hjá
„stóra bróður“ og ber að þakka
IA-mönnum fyrir það, svo og nær-
sveitungum okkar í Innri-Akranes-
hreppi fyrir afnot af vellinum í
Miðgarði.
Góðu samstarfi Bruna og
Landsbankans á Akranesi verður
haldið áfram en einnig hefur félag-
ið notið stuðnings fjölda fyrirtækja
og einstaklinga á Akranesi. Akra-
nesbær hefur einnig stutt við bakið
á félaginu. Ýmislegt er óljóst varð-
andi leikmannahóp félágsins fyrir
komandi sumar en vonandi verða
þær sem allra minnstar því liðið
var sterkt í fyrra og litlu munaði að
það færi upp.
Með von um gott knattspymu-
sumar „ÁFRAM SKAGAMENN"
Brona og ÍA-menn.
Sjáumst á vellinum.
Fh. Boltafélagsins Bruna
Guðmundur Hjörvar Jónsson
Firmakeppni Skallagríms
Nýlega lauk fimm kvölda sveita-
keppni Bridsfélags Borgarfjarðar.
I vetur hafa 24 spilarar tekið þátt í
vikulegum spilakvöldum félagsins
sem fram fara í Logalandi í Reyk-
holtsdal.
Úrslitin í sveitakeppninni urðu þau
að Stormsveit Jóns á Kópa sigraði ör-
ugglega annað árið í röð og hlaut 201
stig. Með Jóni í sveit eru þeir Baldur
Bjömsson, Kristján Axelsson og Öm
Einarsson. I öðm sæti varð stórsveit
Sigurðar Einarssonar með 155 stig.
Að vísu hefur Sigurður sjálfur verið á
sjó öll 5 skiptin þannig að sveitina
skipuðu þeir Sveinbjöm Eyjólfsson,
Þorvaldur Pálmason, Ketill Jóhann-
esson og Haraldur Jóhannsson. I
þriðja sæti varð Steinasveitin með
154 stig. LíkJega má með sanni segja
að Steinasveitin sé ein reynslumesta
bridssveit landsins, því samanlagður
aldur spilara er eitthvað um 300 ár.
Þetta em hjónin Halldóra Þorvalds-
dóttir og Jón Þórisson í Reykholti
auk Þorsteins Péturssonar og Unnar
Jónsdóttur.
N.k. föstudagskvöld er von á góð-
um gestum því árlegt vinabæjamót
Bridsfélags Sementsverksmiðjunnar
og BB verður þá haldið í Logalandi.
Hafa heimamenn æft stíft fyrir komu
gestanna, meðal annars á æfinga-
spilamennsku á Flugleiðamóti.
-MM
Sigurvegarar í sveitakeppni BB. Fremst á myndinni er Steinasveitin sem tal-
in er reynslumesta bridssveit landsins um þessar mundir. Mynd MM
Laugardaginn 27. febrúar mun
knattspymudeild Skallagríms í Borg-
amesi standa fyrir firma- og hópa-
keppni í innanhússknattspyrnu í
íþróttahúsinu í Borgamesi. Boðið er
upp á tvö keppnisform, úrvalsdeild
og skemmtideild. I úrvalsdeild em
fjórir leikmenn og rétt til þátttöku
hafa allir sem ekki em leikmenn í úr-
valsdeild eða 1. deild Islandsmótsins
í knattpsymu. í skemmtideild em
einnig fjórir inn á og þar af einn
markmaður. Þar ræður leikgleðin
ríkjum og ekki er gert ráð fyrir stór-
um skammti af knattspymuhæfileik-
um.
Þátttöku skal tilkynna til stjómar
knattspymudeildar Skallagríms fyrir
fimmtudaginn 25. febrúar.
(Úr fréttatilkynningu)
ÝVTnmtugsaftn ee//
Jóhann Pálsson, Smiðjuhóli
verður fimmtugur 5. mars nk.
Hann tekur á móti gestum í
félagsheimilinu Lyngbrekku frá
kl. 21.00 á kvöldi afmælisdagsins.
Knattspyrnuféiag ÍA I IX\v
Akranes Football Club
Herrakvöld vcröur haldiö í sal
íþróttamiöstöövarinnar d Jaðarsbökkum
föstudaginn 26. n.k.
Húsiö opnar kl. 18.30
Enn cru nokkrir miöar fóanlcgir,
(mjög fdir)
Vinsamlcga hafið samband við skrifstofu
félagsins sem allra fyrst í síma 431-3311
Se*dié
^VRíMKtPPNI í BOCCI4
Iþróttafélagpð Kveldúlfiir heldur fírmakeppni í
boeeia íIþróttamiðstöðimii í Borgarnesi
laugardaginn 6. mars 1999.
Mótið liefst niilli 9.00 og 10.00 og lýkur síðdegis,
I íVi’stii verðlaun er veglegnr farandbikar,
gefandi Sjóvá ■ Almennar.
Fyrstu þrjú sætin fá verdlaimapeninga.
Þátttökugjald er 4000,- á sveii
Þrír einstaklingar skipa hverja
Fyrirtæki sendið sveitir á mótið og stvrkið
íþróttafélagið Kveldúlf uin leið.
I»að verda aðeins skráðar 32 sveitir Skráning lijá
og rseður röð þátttöku. Þórði í síma 4371710 eða 4371259
A síðasta ári komust fierri en vildu. eða hjá GllðmiUldu í SÚlia 4371958
A,
'/eldúZfel°9ié
/eié