Skessuhorn - 17.02.2000, Qupperneq 2
2
FIMMTUDAGUR 17. FEBRUAR 2000
jiitaatnw..-
WWW.SKESSUHORN.IS
Borgarnesi: Borgarbraut 49 Sími: (Borgames og Akranes) 430 2200
Akranesi: Suðurgötu 65,2. hæð Fax: (Borgnrnes) 430 2201
SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. 430 2200
Frnmkv.stjóri: Mognús Magnússon 852 8598
Ritstjóri og óbm: Gisli Einorsson 852 4098
Vefdeild: Bjorki Mór Korlsson 854 6930
Blaðamenn: Bryndís Gylfodóttir 892 4098
Soffio Bæringsdóttir 862 8904
Iþróttofréttoritori: Jónos Freysson (Jomes Fryer)
Auglýsingor: Guðrún Björk Friðriksdóttir 430 2200
Siljo Allonsdóttir 431 4222
Fjórmól: Sigurbjörg B. Ólofsdóttir 431 4222
Próforkorlestur: Ásthildur Mognúsdóttir og Magnús Mognússon
Umbrot: Skessuhorn / TölVert
Prentun:__________Isafoldnrprentsmiðja hf__________________
Skessuhorn kemur út alla fimmtudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 12:00 á
þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega.
Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 800 krónur með vsk. á mánuði verð í lausasölu er 200 kr.
430 2200
skessuhorn@skessuhorn.is
ritstjori@skessuhorn.is
vefsmidja@skessuhorn.is
auglysingor@skessuhorn.is
auglysingar@skessuhorn.is
bokhald@skessuhorn.is
Ég hef alla tíð verið sérstaklega viðkvæmur fyrir kjaftasög-
um. Mér stendur hreint og beint smggur af hvers konar slúðri
í þeim tilfellum sem það beinist að mér. Oðru máli gegnir að
vísu um óábyrgt blaður sem snýr að öðrum en það er önnur
saga.
Astæðan er einfaldlega sú að ég er ákaflega hörundsár að
upplagi og viðkvæm sál svo af ber. Mér er því ákaflega illa við
að fólk úti í bæ sé að kjamsa á því sem ég geri eða geri ekki,
hvernig ég lít út, hvernig ég er innréttaður og velta sér upp úr
mínum einkamálum og tilfinningalífi.
Það hefði því ekki átt að vera erfitt fyrir mig að ákveða hvort
ég ætti að segja mig úr miðlægum gagnagrunni eða fjarlægum
viskubrunni eða hvað sem þetta nú heitir. Það hefði náttúru-
lega átt að liggja beint við að viðkvæm sál á borð við mig kærði
sig ekki um að persónulegar upplýsingar lægju fyrir hunda og
manna fótum.
Samt sem áður lét ég það farast fyrir að segja mig úr um-
ræddum grunni. Kannski vegna þess að ég var hræddur um að
það kynni að fféttast og einhverjir færu að japla á því af hver-
ju ég vildi ekki vera í þessum grunni og hvort þar lægi eitthvað
misjafnt á bak við.
Hugsanlega var það líka vegna þess að ég hafi tekið á mig
rögg, bitið á jaxlinn og hleypt í mig kjarki í þeirri trú að kanns-
ki hefði einhver gagn af grunninum. Líklega var það líka nið-
urstaðan að ég ákvað að láta mig hafa það að upplýsingar um
mínar inngrónu táneglur, krumpuðu skorpuiiffina, hroðalegu
hryggskekkjuna og takið í mjöðminni væru til staðar í ein-
hverri bókahillu. Ég hugga mig líka við það að ef verið er að
hnýsast í mína einkahagi sé þó betra að það sé gert skipulega
og á vandaðan hátt heldur en kann að tíðkast hjá Gróu á Leit-
inu og hennar félögum.
Ég Iét mér semsagt í léttu rúmi liggja viðvaranir lækna sem
ráðlögðu mér að engum nema þeim sjálfum væri treystandi
fyrir upplýsingum um mína krankleika. I fávisku minni hélt ég
nefnilega að það skipti mig meira máli að læknast af sjúkdóm-
um heldur en hvort einhver vissi um þá. Ég var því tilbúinn að
ljóstra upp öllum mínum leyndardómsfullu meinum ef það
kynni að koma einhverjum öðrum sjúkum manni að notum.
Auðvitað velti ég því líka fyrir mér fyrst að ég var á annað
borð að stíga þetta skref hvort ég ætti þá ekki að hafa eitthvað
upp úr krafsinu og reyna að græða aðeins á öllum mínum
hnjöskum, skrámum og bágindum hvers konar og selja
sjúrnalinn minn á uppboði. Þá varð mér hugsað til þess, svona
upp úr þurru, hvað það væri sem aðskildi mellur frá öðrum
kynsystrum þeirra. Niðurstaðan var sú að mellurnar taka gjald
fyrir hvílubrögð en hinar gera það ffítt ef þær gera það á ann-
að borð. Eftír nokkra umhugsun var ég ennffemur á því að það
væri ekki svo mikill munur á þeim sem selja blíðu sína og
þeim sem selja upplýsingar sem þeim þykir svo persónulegar
og viðkvæmar að ekki komi til greina að láta þær í té - nema
að fá borgað fyrir. Það breytir mig engu þótt nú á dögunum
hafi komið firam á sjónarsviðið Iöglærður melludólgur sem er
tilbúinn, gegn vægu gjaldi að sjálfsögðu, að aðstoða fólk við að
selja sig.
Hvar sem einhversstaðar er blóðlykt að finna eru hýenur og
hælbítar fljótir á staðinn.
Gísli Einarsson sjúklingur
Islensk erfða-
greining á Akranes?
Kári Stefánsson forstöðumaður
Islenskrar erfðagreiningar hefur
komið á Akranes og sýnt því áhuga
að flytja hluta af starfseminni á
Akranes. Gísli Gíslason bæjarstjóri
segir að hann hafi fundað með
Kára og bent á Landsbankahúsið
við Suðurgötu enda sé það húsnæði
til leigu eða jafnvel sölu. “í þessu
efni er ekkert ákveðið og ljóst að ef
af þessu verður að einhverju leyti
þá verður engin ákvörðun tekin um
það af hálfu Islenskrar erfðagrein-
ingar næstu misseri. Það er því
verkefni okkar að halda áfram að
róa.” segir Gísli. SB
Sjúkrahús Akraness:
Verulegur
halli á rekstri
Rekstrarhalli Sjúkrahúss Akra-
ness fyrstu 10 mánuði síðasta árs
nam 77,9 milljónum króna, sem
nam 13,7% af samanlögðum tekj-
um og rekstrarframlagi ríkisins og
að ffádregnu 15 milljóna króna
framlagi vegna framkvæmda við
skurðdeild. Asgeir Asgeirsson skrif-
stofustjóri sagði í samtali við
Skessuhorn að ástæður fyrir þess-
um aukna halla séu meðal annars
nýir kjarasamningar starfsmanna,
fleiri aðgerðir og fjölgun sjúklinga.
Asgeir segir þenslu vera innan
stofhunarinnar og að draga þurfi
verulega úr rekstrarkostnaði á ýms-
um sviðum á þessu ári.
I greinargerð skrifstofustjórans
vegna 10 fyrstu mánaða undan-
gengins árs kemur fram að árið hafi
verið sérlega erfitt í rekstrarlegu
tdlliti, bæði þegar litið er til fjárhags
og starfsemi stofnunarinnar. Segir
Asgeir að árið hafi skorið sig úr
öðrum árum hvað þetta snertir og
hafi afkoman ekki verið svona slæm
mörg undangengin ár en bendir á
að starfsemin sem slík hafi verið í
miklum blóma. I samanburði ár-
anna 1997 og 1999 í rekstri Sjúkra-
hússins og Heilsugæslustöðvarinn-
ar kemur fram að fjöldi sjúklinga
hafi aukist um 9%, aðgerðum fjöl-
gað um fó% og fæðingum um
27%. Legudögum hefur hinsvegar
fækkað um 581 milli samanburðar-
áranna.
MM
Hrakningar á
Fróðárheiði
Tíu manns lentu í hrakn-
ingum í illviðri og ófærð á
Fróðárheiði aðfararnótt
mánudags. Björgunarsveitim-
ar á Hellissandi og í Olafsvík
stóðu í björgunaraðgerðum á
heiðinni alla nóttina og síðasta
ferðalangnum var bjargað til
byggða klukkan sex um morg-
uninn.
Að sögn lögreglunnar í
Ólafsvík höfðu ferðalangarnir
hunsað allar aðvaranir varð-
andi ófærð. Lögregluþjónn
sem Skessuhorn ræddi við
sagði að alltof algengt væri að
fólk tæki ekki mark á veður-
spám og veðurútliti.
Að sögn lögreglu náðust
allir heilir á húfi til byggða en
sá sem síðast fannst var orðinn
nokkuð kaldur og hrakinn
enda illa búinn.
GE
Vín í Grundar-
fjörð á næsta ári
Eins og fram hefur kornið
verður ekki opnuð áfengisút-
sala í Gmndarfirði í ár eins og
vonir heimamanna stóðu til.
Að sögn Bjargar Agústsdóttur
sveitarstjóra í Grundarfirði
hefur nú fengist vilyrði fyrit
því frá ÁTVR að Gmndfift1L> v
ingar fái vínbúð á næsta ári.'
Stjórn ÁTVR hefur lagt það
til við fjármálaráðherra að
áfengisútsala verði opnuð í
Gmndarfirði árið 2001.
GE
1 -1-2
Fjarvinnslaf
Grundarfjörð
Hreppsnefnd Eyrarsveitat
samþykkti á fundi sínum þatm
10. febrúar síðastliðinn að
stofna í félagi við íslenska
miðlun fyrirtæki til að annást
fjarvinnslu í Gmndarfirði.
Björg Ágústsdóttir sagði í
samtali við Skessuhom að ekki
væri ástæða til að vekja óþarfa
væntingar um tiltekinn fjölda
starfa en hún kvaðst sannfærð
um að þessi starfsemi myndi
komast á laggirnar. Heima-
menn em nú þegar farnir að
leita að verkefnum fyrir vænt-
anlega fjarvinnslustöð.
: GE'
Keilubrautir
á Akranes
Keilufélag Akraness hefur
fengið vilyrði fyrir því að gera
keilurennur í kjallara Iþrótta-
húsins að Vesturgötu. Guð-
mundur Sigurðsson formaður
Keilufélagsins segir að nú bíði
þeir eftir formlegu samþykki.
Um sé að ræða þrjár brautir
og öllum verði gefinn kostur á
að koma og spila. Ekki sé
komið á hreint hvenær braut-
irnar verði tilbúnar og það fari
í raun efdr velvilja fyrirtækja
um fjármögnun. Eins og
stendur em keilufélagar 30
talsins og telur Guðmundur
að félögum komi til með að
fjölga þegar brautirnar eru
komnar.
SB
• •
kaupir húsnæði
Húsnæðið Einigmnd 29 á Akra-
nesi hefur verið selt Oryrkjabanda-
lagi Islands. Söluhalli er um 200
þúsund krónur miðað við áhvílandi
lán. Ætlunin er að húsið fari í út-
leigu til fatlaðra einstaklinga og
áætlað er að þrír einstaklingar komi
til með að flytja þangað en óvíst er
hvenær það verður. Magnús Þor-
grímsson framkvæmdastjóri á
Svæðisskrifstofu um málefhi fatl-
aðra á Vesmrlandi segir að endur-
bætur verði gerðar á húsnæðinu
áður en Iengra verður haldið. “Eg
fagna því að Oryrkjabándalá'gið
hafi fjárfest í húsnæði hér sem ger-
ir einstaklingum með fötlun kleift
að standa á eigin fótum. Því fer
fjarri að búið sé að uppfylla hús-
næðisþörfina. Það er vonandi að
bærinn komi til með að leggja til
húsnæði fyrir þá sem era enn í
heimahúsum.”
SB
Samningur um brunavamir sunnan heiðar
Wja stórbæta
tækjakost
Föstudaginn 11. febrúar var und-
irritaður samstarfssamningur um
brunavarnir fyrir Akranes og
hreppana sunnan Skarðsheiðar.
Með þessum samningi skal koma á
sem fullkomnustum bmnavörnum
á svæðinu. Því skulu sveitarfélögin
reka slökkvilið sameiginlega og búa
það nauðsynlegum tækjakosti.
Samningurinn er í raun útfærsla á
gildandi samningi en við bætist að
auka á við tækjakost slökkviliðs.
Einnig er Hvalfjarðarstrandar-
hreppur kominn inn í samninginn
að nýju en sveitarfélagið sagði sig
ffá samningnum áriðl985.
Samningsaðilar skuldbinda sig til
að leggja fram allt að 30 milljónir
króna til kaupa á slökkvibifreiðum
og öðrum nauðsynlegum tækjum á
árunum 2000-2001. Akraneskaup-
staður kemur til með að greiða
helming kostnaðar og hrepparnir
helming. Samningurinn gildir
ótímabundið en uppsögn skal til-
kynnt með þriggja mánaða fyrir-
vara, þó ekki fyrr en eftir árið 2005.
Samningurinn kemur til með að
auka öryggi sveitarfélaganna þar
sem slökkviliðið verður mun betur
búið en áður.
Þrír fulltrúar verða í innkaupa-
nefnd um tækjakaup, Akranes til-
nefnir tvo en hrepparnir einn.
Samþykkt var að skipa bæjarstjóra
og slökkviliðsstjóra í nefndina fyrir
hönd Akraness á síðasta bæjarráðs-
fundi. SB