Skessuhorn - 17.02.2000, Page 5
gSESSIíHÖBM
FIMMTUDAGUR 17. FEBRUAR 2000
5
myndi gilda í öllum löndum - til dæmis í Jap-
an - en er ekkert sér íslenskt dæmi um mál-
farsfasisma. Reyndar er ég alls ekki viss um
aö þetta heföi gilt um þennan ágæta prest,
því hann virðist tala prýöilega íslensku.
Vonandi veröur grein prestsins ekki lóð á
þær vogarskálar aö viö förum aö skammast
okkar fyrir þá viðleitni aö hér sé talað al-
mennilegt mál - í nafni einhvers misskilins
frjálslyndis og pólitískrar rétthugsunar sem í
sumum löndum er komin út á þær villigötur
aö menning minnihlutahópa og innflytjenda
sé óhjákvæmilega rétthærri og merkilegri en
menning meirihlutans. En ekki þarf aö eyða
frekari orðum aö því aö viö eigum samt auö-
vitaö aö sýna sérhverjum útlendingi vin-
semd, virðingu og umburöarlyndi, hvernig
sem þeim gengur aö læra íslensku.
Og þó sumum gangi þaö ekki vel stafar
íslenskunni auðvitað engin hætta af því.
Meiri hætta stafar af öörum anga pólitísku
rétthugsunarinnar sem birtist í fullyrðingum
ungrar fræöikonu - Hallfríðar Þórarinsdóttur -
sem nokkuö var gert úr í fjölmiðlum fyrir fá-
einum vikum. Hún hélt því sem sé fram að á
íslandi væri í uppsiglingu stéttaskipting í
tungumálinu og var á henni aö skilja aö ein-
hver óskilgreind „yfirstétt", sem talaði hreint
og gamaldags dauðhreinsað mál, væri farin
aö kúga alþýðuna sem ekki talaði jafn vand-
að mál og leyfði sér til dæmis erlendar slett-
ur. Þetta var tómur heilaspuni, enda var Hall-
fríður greinilega aö reyna aö heimfæra upp á
ísland einhverjar kenningar og áhyggjur sem
menn hafa í útlöndum - ekki síst Bandaríkj-
unum - af þess háttar málum. En þótt ein-
hver blæbrigðamunur sé vafalaust á tungu-
taki mismunandi þjóöfélagshópa á íslandi er
sem betur fer fráleitt aö hægt sé meö nokkru
móti aö skilgreina þann mun þannig að „yfir-
stéttin" tali „fínna“ mál en alþýða fólks. Ég er
smeykur um aö fræöimennska Hallfríðar hafi
beðið nokkurn hnekki viö þennan þvætting.
Enda kom hún upp um sig í útvarpsvið-
tali. Hún var aö fjalla um aö þeir sem töluðu
ekki nógu gott mál hér á landi væru „brenni-
merktir". Þetta er aö vísu alrangt, en þó mjög
auöskiljanleg fullyrðing allri alþýðu manna.
En þá greip hún fram í fyrir sjálfri sér og leiö-
rétti sig, eins og hún heföi farið meö málvillu:
„Nei, sko, ég meina, stigmatíseraöir." Taldi
Hallfríður aö sú íslenska alþýöa, sem hún
þóttist vera málsvari fyrir, skildi frekar oröiö
„stigmatíseraöir" en „brennimerktir"?
Auövitað ekki. Enda var hún ekkert aö
tala við alþýðuna. Hún var bara aö tala við
aöra lata menntamenn og stöku fjölmiðlunga
sem vilja fá aö sletta sem allra mest. „Lata“
er kannski ekki rétta orðið úr því hún lagði á
sig að leiðrétta þessa fyrirtaks og auöskiljan-
legu íslensku - „brennimerktir" - meö út-
lensku slettunni „stigmatíseraöir". Þaö er því
miður svo aö ein mesta hættan sem steðjar
nú að íslenskri tungu kemur frá þessum
þjóöfélagshópum sem halda aö þaö sé
nauösynlegt og fínt aö sletta til aö sýna hvaö
maður er frjálslegur, að nota alþjóöaorö til aö
sýna hvaö maður er frjálslegur og alþjóða-
sinnaöur...
En alþýðan hefur þaö fínt, takk fyrir.
Illugi Jökulsson
Japanskur prestur innflytjenda á íslandi
skrifaöi um daginn firna vonda grein í Morg-
unblaðið, þar sem hann hélt því fram aö
landsmenn sýndu útlendingum sem töluöu
bjagaða íslensku afar takmarkað umburöar-
lyndi og fór nærri því aö saka íslendinga al-
mennt um málfarsfasisma og jafnvel ras-
isma. Viö þurfum ekki aö láta þá sjálfsögöu
kurteisi sem viö eigum aö sýna aðkomu-
mönnum í landinu villa okkur sýn; grein séra
Tóma var næstum áreiðanlega röng og tölu-
vert dónaleg.
Enda held ég aö hún hafi komið flestum á
óvart. Þaö er rétt sem Guðmundur Andri
sagöi í DV aö flestir íslendingar veröa þvert
á móti afar hrifnir þegar útlendingar leggja á
sig aö læra skikkanlega íslensku og væntan-
lega megi finna ýmis dæmi um pirring og
stríöni íslendinga í garö útlendinga sem ekki
hafa náö góöu valdi á málinu, þá er slíkt svo
sannarlega ekkert sér íslenskt fyrirbrigði
sem þarf aö vara vora þjóð sérstaklega viö.
Og grein séra Tóma viröist líka fyrst og
fremst hafa verið skrifuð af því honum sjálf-
um var neitað um þátttöku í einum tilteknum
útvarpsþiætti sem talið var aö hann ætti er-
indi í. Utvarpskonan Anna Kristine hefur þó
aö sjálfsögöu fullt leyfi til aö velja sjálf þátt-
takendur í sinn þátt og það er rétt hjá henni
aö þaö er stundum erfitt aö hlýða á langt mál
útlendings sem talar slæma íslensku, ein-
faldlega af því maður hefur þá svo mikið að
gera viö að reyna að skilja hvaö viökomandi
er aö segja að maöur má ekki almennilega
vera aö því aö hlusta á hvaö hann meinar -
þó maöur sé allur af vilja geröur. Og þetta
Bjóðum upp á alhliða
bókhaldsþjónustu
fyrir fyrirtæki og einstaklinga
Skattframtöl
Bókhald
Uppgjör
Launakeyrslur
Virðisaukaskattsvinnslur
VIÐ5KIPTAÞJÓNUSTA
AkRANIFtt Sími431 3099
Fax 431 2282
Skúli B. Garðarsson viðskiptafræðingur
Guðrún Elsa Gunnarsdóttir iðnrekstrarfræðingur
rikisins ráðunautur
Skógrækt ríkisins óskar eftir að ráða
skógræktarráðunaut á Vesturlandi.
Skógræktarráðunautur á Vesturlandi hefur aðsetur á
Hvanneyri.
Starfið fellst í ráðgjöf, áætlanagerð, eftirliti, og fræðslu
til þeirra aðila sem stunda skógrækt á Vesturlandi.
Óskað er eftir einstaklingi með háskólagráðu í
skógfræði eða tilsvarandi menntun og reynslu.
1 Umsóknafrestur er til 25. febrúar 2000.
Nánari upplýsingar veita Jón Loftsson
s skógræktarstjóri, eða þröstur Eysteinsson
Egilsstöðum sími 471-2100
SpumÍHQaííeppHin í JtÖgt
1999-2000
Spurningakeppni verður haldin í
Félagsheimilinu Röst d Hellissandi
laugardaginn 19.februar nk.
Liðin sem keppa á laugardaginn eru:
1. umferð: 2. umferð: 3. umferð:
Lionsklúbbur KennararíOlafsvík Lionsklúbburinn
Nesþinga og Þernur
og Bæjarstjórn og
Ahaldahús Snæfellsbæjar Fiskmarkaður
Snæfellsbæjar Breiðafjarðar
Stjórnandi keppninnar er Þorkell Cýrusson.
Húsið opnar kl. 21:15 Fríttinn
Keppnin hefst. kl. 22:00
Aldurstakmark 18 ár - 16 ár í fylgd með foreldrum.
Verðlaun íhappdrættinu gefur Bókabúðin Gimli, Hellissandi.
Veitt verða verðlaun fyrir öflugasta og frumlegasta
stuðningsmannaliðið eins og í fyrra. Verðlaunin verða veitt
á síðasta kvöldi keppninnar í vor.