Skessuhorn - 17.02.2000, Side 6
6
FIMMTUDAGUR 17. FEBRUAR 2000
Ifjpjf Jf -.jmjgjgf y* jflf I i rfi 1 w (&
■1 — JsM : Æ Wt*1 9 *** ím.......
t m l ' jp
Hópur vaskra víkinga á víkingadögum í Búðardal.
Myndir: GE
Bitið í skjaldarrendur
Víkingar í gmnnskólum í Dölum sóttir heim
Þótt meira en þúsund ár séu lið-
in frá því vígamaðurinn Eiríkur
rauði og hinn heppni sonur hans
fluttu úr Dölunum og þvældust um
heimsins höf eru enn víkingar, hetj-
ur og kappar á þessum slóðum.
Krakkarnir í Grunnskólanum í
Búðardal og Lauga-
skóla feta ótrauð í fót-
spor Eiríks og Leifs,
Kjartans og Bolla,
Guðrúnar Osvífurs-
dóttur og Auðar
Djúpúðgu og halda
uppi minningu þeirra
fjölmörgu kappa ís-
lendingasagnanna sem
áttu heimkynni sín í
Dölunum.
Þegar blaðamaður
Skessuhorns fregnaði
að í Dölunum gengju
börnin um með al-
væpni og í víkinga-
klæðum var ekki um
annað að ræða en að
brjótast með harðfylgi
yfir ófæra Bröttu-
brekku og setja stefnuna á vopna-
glamrið. Þegar komið var að
Grunnskólanum í Búðardal hljóm-
uðu að innan heróp og hrossahlátur
úr sönnum víkingabörkum. A
göngum skólans voru sveinar og
meyjar klæddar í vaðmál og báru
sverð, axir og atgeira. I öllum stof-
um voru nemendur að fást við ým-
iskonar handverk að hætti forn-
manna eða að fletta í gömlum
skræðum í leit að upplýsingum um
víkingasiði. Sumir voru í smíðastof-
unni að smíða sverð, skildi og axir.
Aðrir voru gera skartgripi eins og
víkingar báru en þeir voru skart-
menni hin mestu. Þá voru sauma-
vélarnar píndár tii hins ýtrasta yfir
hör og vaðmáli en ekki geta víking-
ar gengið um í Levi’s gallabuxum
eða skopparapeysum. Yfir þessu
öllu vakti síðan alvöru víkingur í
fullri stærð íklæddur hringabrynju
og með alvæpni.
Þúsund ár aftur í trniann
I fljótu bragði hefði mátt halda
að Dalirnir hefðu orðið fyrir barð-
inu á 2000 vandanum og færst eins
og þúsund ár aftur í tímann en svo
var þó ekki. I síðustu viku var nefhi-
lega árleg þemavika skólanna í Döl-
unum og yfirskriftin þetta árið var
Víkingadagar. Kveikjan að víkinga-
dögunum var áð sjálfsögðu fyrir-
huguð hátíðahöld í
Dölum í sumar til að
minnast landafunda
Leifs heppna.
I vetur hefur sam-
vinna milli Grunnskól-
ans í Búðardal og
Laugaskóla. verið aukin
og hafa þeir verið rekn-
ir undir stjórn eins
skólastjóra. Einn liður í
þessari samvinnu er að í
þemavikunni voru allir
nemendur saman á ein-
um stað í Búðardal. Að
sögn Þrúðar Kristjáns-
dóttur skólastjóra var
ákveðið að fara þá leið
þar sem stærstur hluti
verkefnanna var verk-
legur og því þægilegra
að hafa alla nemendur og kennara á
einum stað.
Lífgar upp á skólahaldið
“Þetta hefur gengið ágætlega og
nemendur haft mjög gaman af
þessu. Við fengum alvöru Víking úr
Hafnarfirði hingað á staðinn, Ulfar
Daníelsson og það hefur vakið
mikla lukku. Það hafa allir lagst á
lil'Uti þeirra muna sem unnirvoru á víkingadögum, í Dölunum.
eitt að gera þetta verkefni sem best
úr garði og ég held að það skili sér
vel til nemenda. Starfsfólk skólanna
beggja hefur lagt á sig gífurlega
vinnu við undirbúning þessara vík-
ingadaga og hér hefur verið unnið
frafn á rauða nótt síðustu daga.
Þessi þemavinna brýtur skólastarfið
upp á skemmtilegan hátt og lífgar
mikið upp á skólastarfið. Vð erum
líka að vona að þessi vinna verði
góður undirbúningur fýrir hátíða-
höld sumarsins á Eiríksstöðum og í
Búðardal og við hvetjum krakkana
tfl að nota áfraksturinn af vikínga-
dögunum þegar þar að_ kemprj”
sagði Þrúður. . . , ..,v j
GE
Frábærir krakkar
í Dölunum
/
Segir Ulfar Daníelsson víkingur
Blaðamaður Skessuhorns fékk
víkinginn Ulfar Daníelsson til að
leggja niður vopn í stutta stund og
segja sitt álit á félögum sínum í
Dölunum. “Þetta hefur verið al-
veg frábært og virkilega garnan að
vinna með þessum víkingum hér í
grunnskólunum,” sagði Ulfar. “Þá
hefur afraksturinn verið með ólík-
indum því allir nemendur fá að
minnsta kosti eina flík í víkingastíl
út úr þessari vinnu, einn skartgrip
og lágmark eitt vopn. Það ætti að
vera gríðarlega mikilvægt fýrir
hátíðir sumarsins. Ahuginn hjá
þessum krökkum er einstakur og
þótt ég hafi sjálfur verið kennari í
mörg ár hef ég varla kynnst áður
eins góðum krökkum,” sagði Ulf-
ar.
Ulfar víkingur er félagi í
Rimmugýgi sem er hópur manna
sem hafa valið sér þann lífsstíl að
vera víkingar. “Við erum um tutt-
ugu og fimm í hópnum og hitt-
umst vikulega og æfum vopnfimi
og leggjum stund á handverk að
hætti fornmanna. Síðan tökum
við þátt í víkingahátíðum víðsveg-
ar um heiminn og einnig höfum
við verið fengnir til að leika í
kvikmyndum frá þessum tíma.
Okkar markmið er að kynna sem
víðast þessa fornu siði. Við leggj-
um mikla áherslu á að hafa allan
Úlfar Daníelsson
okkar búnað sem líkastan því sem
var á víkingaöld og hleypum eng-
um að með einhverja vitleysu þar
sem fyrirmyndin er sótt í tölvu-
leiki eða einhverjar fantasíur.”
Að sögn Ulfars er mikið
framundan hjá félögum í Rimmu-
gígi en í sumar hefur þeim verið
boðið ti Frakklands, Noregs, Pól-
lands, Grænlands og Kanada til
að taka þátt í ýmsum hátíðahöld-
um. Þá ætla þeir að taka þátt í or-
ustunni við Hastings og einnig
eru þeir í viðræðum við Smith-
sonian um að halda uppi víkinga-
sýningu í 1 - 2 vikur. Þá kvaðst
Ulfar vonast til að samningar
næðust um að þeir yrðu með at-
riði á hátíðinni á Eiríksstöðum í
Haukadal í ágúst.
GE
Sögukort um landafundina sem bönií grunnskólunum í Dölunum hafa útbúið.