Skessuhorn - 17.02.2000, Page 14
14
FIMMTUDAGUR 17. FEBRUAR 2000
jkúaiiiiuij
Kristnihátíð í Borgarfj arðarprófastsdæmi
Hátíðarguðsþjónusta í Borgarneskirkju sunnudaginn
20. febrúar.
Borgameskirkja
Þá er runnið upp hátíðarárið
þegar við minnumst þess að þúsund
ár eru liðin frá kristnitökunni á
Þingvöllum. Þessi atburður varð
sannarlega afdrifaríkur fyrir íslens-
ka þjóð. Allar götur síðan hafa
kristin áhrif verið sterk í þjóðar-
vitund okkar og menning okkar
merkt kristnum áhrifum.
Þessara tímamóta er nú minnst
með margvíslegum hætti. I sumar,
dagana 1. og 2. júlí verður mikil
hátíð haldin á Þingvöllum og er þar
búist við miklum fjölda fólks -
sameiginleg hátíð þjóðar og kirkju.
I hverju prófastsdæmi landsins,
en þau eru sextán talsins, eru nú
haldnar héraðshátíðir. I Borgar-
Ijarðarprófastsdæmi hófst hátíðin
með messu í Saurbæ á Hvalf-
jarðarströnd í mars á síðasta ári.
Næst á dagskránni er hátíðar-
guðsþjónusta í Borgar- neskirkju
næstkomandi sunnudag, 20.
febrúar kl. 14. Þar predikar séra
Olafur Skúlason, fyrrum biskup
Islands. Söngfólk úr kirkjukórum
norðan Skarðsheiðar syngur.
Söngstjórar og organistar
eru Bjarni Guðráðsson, Jón
Þ. Björnsson, Sigurður
Guðmundsson og Steinunn
Arnadóttir. Séra Kristinn
Jens Sigurþórsson þjónar
fyrir altari ásamt sók-
narpresti. Sóknarnefndar-
menn lesa ritningarlestra og
fermingarbörn leiða bænir.
Að messu lokinni býður
sóknarneíhd til kaffidrykkju
á Hótel Borgarnesi. Allir
eru velkomnir til messunnar,
hvar í sókn sem þeir búa.
Varðandi framhaldið, þá
verða hátíðarguðsþjónustur í
öðrum prestaköllum pró-
fastsdæmisins; í Reykholti í
maí, í Stafholti í ágúst og á
Akranesi í nóvember. Þar
predikar biskup Islands,
herra Karl Sigurbjörnsson.
Með þeirri guðsþjónustu
lýkur hátíðardagskrá í pró-
fastsdæminu.
Hátíðarguðsþjónusta
Hvanneyrarprestakalli heíúr
ekki verið tímasett.
Tónlistarflutningur verður
áberandi í þessari dagskrá. Organ-
istar og kirkjukórar í prófasts-
dæminu munu standa fyrir fernum
tónleikum. Tónleikarnir verða í
Hallgrímskirkju í Saurbæ, Saf-
naðarheimili Akranesskirkju, Bor-
garneskirkju og í Reykholts- kirkju.
Þá verða haldnir tveir fræðslufundir
um kristna trú og samfélag, í Bor-
garnesi í mars og á Akranesi í
október.
I júlímánuði er áformuð
guðsþjónusta við Krosslaug í
Lundarreykjadal. Sá staður
ber merkilega sögu er tengist
sjálfri kristnitökunni árið
1000. I Krosslaug voru
Vestlendingar og Vestfirðin-
gar, er setið höfðu Alþingi,
skírðir, á leið sinni heim af
þingi. Þeim mun hafa litist
það betri kostur en að skírast
í jökulköldu vatni á Þingvöl-
lum. Krosslaug er á skrá yfir
friðlýstar fornleifar. Afor-
mað er að merkja laugina og
leggja að henni göngustíga.
I lok maí er dagur til-
einkaður séra Hallgrími
Péturssyni. Guðsþiónusta
verður í Hallgrímskirkju í
Saurbæ og að henni lokinni
dagskrá um séra 1 lallgrím ofi
verk hans í fétagsheiinilinu
að Hlöðum.
I lok ágúst verður haldið
málþing í Snorrastofu í
Reykholti, um kristin
trúaráhrif í miðaldakveðskap,
í samvinnu prófastsdæmisins og
Snorrastofu.
Þorbjöm Hlynur Amason,
prófastm:
■ ij i u, .. : reunu
Atburði kristnihátíðar í Borgarfjarðarprófastsdæmi.
HátíðarguSsþjómista í Borgameskirkju 20. febniar
Tónleikar kirkjukóra og organista. Hallgrímskirkja í Saitrbæ 12. mars
FrœSslufundur um kristna trú. og samfélag. Borgames 15. tnars
Tótileikar kirkjukóra og organista. Borgameskirkja 30. apríl
HátíðarguSsþjótmsta í Reykholtskirkju 14. maí
Hallgrímshátíð í Saurbæ 28. maí
HátíðarguSsþjónusta við Krosslaug í Lundarreykjadal 16. júlí
ReykboltshátíS 28,- 30.jiílí
Málþing íReykholti mn tniarbóbnemitir miðalda ísamvimm við Snorrastofii 26. ágúst.
Hátíðarguðsþjónusta í Stafholtskirkju 21. ágúst
Frœðslufimdur um kristna trú og samfélag. Safiiaðarheimili Akranesskirkju 13. október
Tónleikar kirkjukóra og organista. Reykholtskirkja 29. október
Tónleikar kirkjukóra og organista. Safnaðarheimili Akranesskirkju 5. nóvember
Hátíðarguðsþjómista í Akranesskirkju 19. nóvember.
Hátíðarguðsþjónusta í Hvanneyrarprestakalli ákveðin síðar.
Svo sem sjá má af þessu kennir margra grasa í því sem framundan er. Það er
von okkar sem höfum undirbúið þessa dagskrá að þar finni flestir eitthvað við sitt
hæfi og að þátttaka verði góð. Vonandi verður þetta minningarár til þess að efla
kirkju- og trúarlíf í héraði og með landsmönnum öllum.
Guðlaugur Bergmann í hlutverki Gullu firænku og Ólína Gunnlaugsdóttir í hluwérki
Finnboga Lárussonar.
Þorrablót í
Staðarsveit
Myndir: Hauknr Þórðarson
Fyrir neðan: Stó?ieikarar úr söngleiknum Snæfellsmannabær
Starfsmenn KaupfeÍags Borgfirðinga héldu árshátíð sína um síðustu helgi á Hótel Borgamesi. Margt var um manninn og skemmti fólk
sér konunglega eins og sést á þessaii mynd. Mynd: GE
Krakkamir á leikskólanum Klettaborg í Borgamesihéldu sitt eigið þorrablót í síðustu viku og var glatt á hjalla ekki síður en á
þorrablótum hinna fullorðnu. Mynd: GHP
/ s: 431 3333
STILLHOLT 18 AKRANESI