Skessuhorn - 18.05.2000, Page 2
2
FIMMTUDAGUR 18. MAI 2000
gaBSSglHQBiM
WWW.SKESSUHORN.IS
Borgarnesi: Borgarbraut 49 Sími: (Borgarnes og Akranes) 430 2200
Akranesi: Suðurgötu 65,2. hæð Fax: (Borgarnes) 430 2201
SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VT.RKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. 430 2200
Framkv.stjórí: Magnús Magnússon 852 8598
Ritstjóri og úbm: Gísli Einarsson 852 4098
Internetþjónusta: Bjarki Múr Karlsson 899 2298
Blaðamenn: Sigrún Kristjúnsd., Akronesi 862 1310
Egill Egilsson, Snæfellsnesi 894 5038
íþróttafréttaritari: Jónas Freysson (James Fryer)
Auglýsingar: Hjörtur Hjartarson 864 3228
Fjórmúl: Sigurbjörg B. Ólafsdóttir 431 4222
Prófarkalestur: Ásthildur Magnúsdóttir og Magnús Magnússon
Umbrot: Skessuhorn / TölVert
Prentun: Isafoldarprentsmiðja bf
skessuhorn@skessuhorn.is
ritstjori@skessuhorn.is
vefsmidja@skessuhorn.is
sigrun@skessuhorn.is
egill@skessuhorn.is
augl@skessuhorn.is
bokhald@skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla fimmtudaga. Skílafrestur auglýsinga er kl. 12:00 á
þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega.
Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 800 krónur með vsk. á mánuði. Verð í lausasölu er 200 kr.
430 2200
For-
Ég bið hávelborna lesendur þessara lína afsökunar á því ég
ég hef ekki mikinn tíma til að ræða við ykkur um daginn og
veginn að þessu sinni. Ég er nefnilega alveg ofboðslega stress-
aður þessa stundina og yfirhlaðinn af verkefnum.
Ég er alla jafha ekki að æsa mig yfir smámunum, hvað þá
með óðagot eða háreysti en nú liggur mikið við. Mér varð fyr-
ir fáum korterum síðan litið á dagatalið og komst að því mér
til skelfingar að ffesturinn til að skila inn ffamboði til forseta-
embættisins er að reima út. Ég má því ekki nokkurn tíma missa
að finna alla þá sem hafa að undanförnu beitt mig óbærilegum
þrýstingi að fara í ffamboð.
Ég hef semsagt að vel ígrunduðu máli aff áðið að láta undan
og gefa kost á mér sem næsti forseti íslenska lýðveldisins. Þar
hafið þið skýringuna á kurteisislegu ávarpi mínu hér í upphafi
því auðvitað þarf ég á atkvæðum ykkar að halda í þeim slag
sem í hönd fer.
Það ætti því ekki að koma á óvart að ég hef í ýmsu að snúast
þessa stundina. Ég þarf að fara með jakkafötin í hreinsun,
kanna landkosti og ástand útihúsa á Bessastöðum, taka við mig
opnuviðtal í Skessuhorn um mannkosti mína og hugsjónir,
hefja landssöfnun í kosningasjóðinn og útvega mér nýjan
rakspíra.
Ég er nú þegar búinn að koma saman öflugum samstarfshópi
sem samanstendur af mínum nánustu og völdum aðilum sem
hvorki þekkja mig né vita nokkur deili á mér og treysta mér því
fullkomlega til að takast á við embættið. Nú vantar mig bara
góðan gítarleikara og textahöfund til að hlaupa á milli manna
með penna og blað, einhvern sem ekki er bundinn yfir sauð-
burði eða öðrum tómstundaverkefhum. Það gæti reyndar far-
ið svo að ég yrði að ráða heila hljómsveit þar sem tíminn er
óðum að styttast.
Mér er það reyndar ljóst að það er við ramman reip að draga
að etja kappi við vana menn í bransanum en sjálfur hef ég ekki
boðið mig ffam til forseta í eitt einasta skipti áður. Ég læt það
þó síst draga úr mér kjarkinn. Ég er þess fullviss að ég eigi
mikla möguleika gegn atvinnujólasveini sem lætur engan í friði
í baráttunni fyrir ffiði og knapa sem lætur sunnlenskan húðar-
jálk henda sér af miklu afli í sjálfa fósturjörðina. Nú, ef illa fer
lýsi ég því einfaldlega yfir að það hafi aldrei verið ædun mín að
verða forseti heldur að skapa umræðu um embættíð sem að
vísu er til umræðu á hverjum degi, og ekki síður að vekja at-
hygli á mínum helstu baráttumálum. Þá þarf ég bara að ákveða
í tíma hver þau eru.
Ég er með öðrum orðum hvergi banginn þrátt fyrir að ó-
málga sonur minn hafi látið á sér skiljast að hann afneiti Gísla-
son nafhinu endanlega ef ég bjóði mig ffam. Ég geri mér fulla
grein fyrir að erfiðir tímar fara í hönd með þrotlausri vinnu og
ógrynni af handaböndum, skrúðmælgi og fögrum fyrirheitum.
Ég hugga mig hinsvegar við að þetta verði auðveldara í hvert
skipti og eftír stöðugt ffamboð næstu sex til átta kjörtímabil
ætti það að verða mér leikur einn að láta ykkur kjósa mig for-
seta.
Sjáumst í kjörklefanum!
Gtsli Einarsson, bóndi Bessastöðum.
Heppin að
sleppa lifandi
Akumesingur lenti í sprengingu í Hollandi
Eins og fram hefur
komið í fféttum varð sá
hræðilegi atburður í bæn-
um Enschede í Hollandi
að flugeldaverksmiðja
sprakk í loft upp með þeim
afleiðingum að a.m.k. 20
manns létust og yfir fimm-
hundmð slösuðust. Fjög-
ur hundrað hús í nágrenni
verksmiðjunnar gjör-
eyðilögðust.
I einu þeirra bjuggu
Akurnesingurinn Bjarni
Skúli Ketilsson (Baski),
33 ára myndlistarmaður,
og Arianne Bos, hollensk
eiginkona hans. Að sögn
móður Bjarna, Helgu
Gísladóttur, voru þau
hjón að koma heim til sín
úr verslunarleiðangri
þegar Bjarni staldraði við
fyrir utan til að horfa á eldglæring-
ar á himninum, sem reyndist vera
fyrri sprengingin í verksmiðjunni,
en hún var aðeins í um 60 metra
fjarlægð. A meðan fór eiginkona
hans, sem komin er að því að fæða
barn, inn í húsið. Skyndilega varð
gífurlega öflug sprenging og horfði
Bjami á þakið þeytast af húsinu og
myndlistargallerí sitt sem í húsinu
var splundrast auk þess sem hann
hentist sjálfur fleiri metra og fékk
glerbrot í fótinn. Hann þaut inn í
húsið, sótti konu sína og ók á brott
Arianne Bos og Bjami Skúli Ketilsson
á bíl sínum en allar rúður höfðu
brotnað í honum við sprenginguna.
Mikil ringulreið ríkti á svæðinu og
ruddist fólk inn í bílinn meðan þar
var pláss tíl að komast í burtu. Gert
var að sárum Bjarna sem ekki
reyndust alvarleg. Þóttust þau
heppin að hafa sloppið lifandi en
allar eigur sínar misstu þau í
sprengingunni. Þau dvelja nú hjá
vinafólki sínu ytra. Þegar Helga tal-
aði við Bjarna á mánudag sagði
hann 200 manns ennþá saknað í
Enschede. SÓK
Rannsóknir í
Gnindarfjarðarhöfn
Um þessar mundir
era starfsmenn Sigl-
ingamálastofnunar
staddir í Grundarfirði
til að framkvæma
dýptarmælingar og
botnrannsóknir. Rann-
sóknirnar eru gerðar
vegna stálþils sem rekið
verður niður vegna
lengingar aðalhafnar-
kantsins um 100 metra.
Við rannsóknirnar er
notaður fleki sem er
sex metrar að lengd og
fimm og hálfur metri á
breidd en hann var
smíðaður sérstaklega
vmdir borinn til mæl-
inganna. Stuðst er við
GPS-kerfi til að mæla
dýptina. Aætlað er að
verkið taki 2 vikur í allt
ef vel gengur.
EE
Flekinn sem notaSur er til mœlinganna í Grundarfjarðar-
böjh. Mynd: EE
Sameining í Dölunum?
Saurbæjarhreppur og Dalabyggð í viðræður
Á næstu vikum heljast Samein-
ingarviðræður Saurbæjarhrepps og
Dalabyggðar að fiumkvæði hrepps-
nefndar Saurbæjarhrepps. Þessi
sveitarfélög, ásamt Reykhólahreppi,
áttu í viðræðum um sameiningu árið
1998 en upp úr þeim slitnaði. Síðan
hefur hreppsnefnd Saurbæjarhrepps
farið frarn á að þær viðræður yrðu
teknar upp að nýju en hreppsnefnd
Reykhólahrepps hafnaði frekari við-
ræðum að svo stöddu.
Að sögn Sæmtmdar Kristjánssonar
oddvita Saurbæjarhrepps hefur
hreppsnefhd Dalabyggðar samþykkt
að skipa fulltrúa í sameiningamefhd
og kveðst hann reikna með að við-
ræður hefjist strax að loknum sauð-
burði. “Það er búið að vinna töluvert
mikið af þessari vinnu og þetta ættí
að geta gengið nokkuð hratt og vel
fyrir sig,” segir Sæmundur. “Eg er í
það minnsta bjartsýnn á að þetta
gangi eftír. Það á hins vegar eftír að
koma í ljós hvort beðið verður eftír
næstu sveitarstjómarkosningum eða
sameinað áður en kjörtímabilinu lýk-
ur,” segir Sæmundur. GE
Engir
kvöldfundir
I tílefhi af alþjóðlegum degi
fjölskyldunnar þann 15. maí s.l.
samþykkti bæjarstjóm Borgar-
byggðar tillögu fræðslu- og
menningarmálanefndar þar sem
fram kemur áskoran um að öll-
um fundum á vegum sveitarfé-
lagsins að afloknum dagvinnu-
tíma verði frestað og ekki settir
á slíkir fundir þennan dag, “svo
fjölskyldum viðkomandi gefist
ráðrúm til að eíga saman á-
nægjulegar stundir,” segir í
greinargerðinni.
GE
Kartöflugarð-
amir færðir
Kartöflugarðar Akraness hafa
verið færðir inn að Innsta Vogi.
Að sögn Hrafnkels Proppé,
garðyrkjustjóra, voru þeir
gömlu inni á Elínarhöfða orðn-
ir ansi lélegir og kominn tfmi á
að færa þá. Búið er að plægja
garðana og því geta Akurnes-
ingar farið að setja niður kart-
öflurnar sínar sem er óvenju
snemmt. SÓK
Grænlands-
ferðir
Akumesinga
Landsstjórn Grænlands hefur
boðið fulltrúa ffá Akraneskaup-
stað til hátíðarhalda í sumar
vegna þess að 1000 ár eru liðin
frá landnámi Eiríks rauða.
Einnig hefur vinabær Akraness,
Qaqortoq á Grænlandi, boðið
fulltrúa til sín í tilefni af 225
ára afinæli bæjaríns. Bæjarráð
hefur samþykkt að formaður
bæjarráðs, Sveinn Kristinsson,
skreppi til Grænlands vegna
boðs landsstjórnarinnar og
Gísli Gíslason bæjarstjóri verði
fulltrúi bæjarins í Qaqortog.
BG
Tjaldsvæði
er ekki í
forgangsröð
Nokkuð hefur verið rætt um
lagfæringar á tjaldsvæðinu í
Grundarfirði sem staðsett er
ofan við íþróttahús bæjarins. Að
sögn Bjargar Agústsdóttur
sveitarstjóra er tjaldsvæðið
inni í aðalskipulagsáformum, en
er ekki í forgangsröð. Björg
segir að verkefnin séu óþrjót-
andi, en margt hafi verið gert til
að fegra umhverfið og röðin
komi að tjaldsvæðinu fyrr en
síðar.
Ekki
meiri nekt
Greinilegt er að skiptar skoð-
anir eru um nektardans á Vest-
urlandí. Spurning vikunnar á
fréttavef Skessuhorns í síðustu
viku var: Er þörf á auknu fram-
boði af nektardansi á Vestur-
landi? Þátttaka var að vonum
góð og 224 greiddu atkvæði.
Atkvæði féllu þannig að Já
sögðu 108 eða 48% og nei
sögðu 116 eða 52%, Samkvæmt
þvi er niðurstaðan sú að
skemmtikraftar á veslenskum
veitingastöðum skuli halda sig í
fötunum.