Skessuhorn - 18.05.2000, Síða 9
FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2000
9
Foreldrar ósáttir við sumarlokanir
Fyrir hverja eru leikskólamir?
Spyr Svandís Sturludóttir
Leikskólabörn á Þotrablótí í vetur.
Deilur hafa staðið yfir að undan-
fömu milli foreldrafélaga leik-
skólanna á Akranesi og bæjaryf-
irvalda vegna sumarlokana leik-
skólanna. I könnun sem for-
eldrafélögin létu gera kom í Ijós
að 70% foreldra leikskólabama á
Akranesi em andvígir sumarlok-
un og um 50% þeirra eiga þess
ekki kost að ráða hvenær þeir
taka sín sumarffí.
“Það er ljóst að dvöl barna á leik-
skóla er fyrst og ffemst tilkomin
vegna vinnu foreldra og vistunar-
tími barnanna helgast í flestum til-
fellum af vinnutímanum. Það er því
með ólíkindum að ekki skuli vera
fallið frá þeirri ákvörðun að loka
leikskólunum yfir sumartímann,”
segir Svandís Sturludóttir fulltrúi
foreldraráða leikskólanna.
“I viðræðum okkar við bæjarráð
kom ffam að ekki væri til nægjan-
legt fjármagn til að halda leikskól-
unum opnum allt árið og ef svo yrði
myndi það að öllum líkindum leiða
til hækkunar á leikskólagjöldum.
Foreldrar eru ekki sáttir við þessi
svör þar sem leikskólagjöld á Akra-
nesi hafa hækkað að undanförnu á
sama tíma og verið er að skerða þá
þjónustu sem í boði er. Bæði með
sumarlokun og með afnámi sveigj-
anlegs vistunartíma. í skýrslu sem
gerð var fyrir skólanefnd, um
stefnumótun leikskólanna, er gert
ráð fyrir að leikskólarnir loki í fjór-
ar vikur á sumrin og hafa bæjaryfir-
völd í þessu máli, unnið út frá þeirri
tillögu. Skýrsluhöfúndar voru til-
nefndir af leikskólakennurum,
skólanefhd og bæjarstjórn en það
vekur athygli að við stefnumótun í
leikskólamálum Akraneskaupstaðar
sáu bæjaryfirvöld ekki ástæðu til að
kalla til fulltrúa foreldra við gerð
skýrslunnar enda ber hún þess
merki,” segir Svandís.
Afturhvarf til fortíðar
Svandís segir ákvarðanir bæjar-
stjórnar vera affurhvarf til fortíðar
og á engan hátt í samræmi við þarf-
ir foreldra og fjölskyldunnar. “Við
spyrjum einfaldlega fyrir hverja eru
leikskólarnir? Bæjaryfirvöld hafa
bent á að framlög til leikskólamála
hafi aukist á undanfömum ámm og
það er rétt. Hinsvegar hafa bæjar-
yfirvöld ekki gert grein fyrir í
hverju sú hækkun er fólgin. Við
teljum hins vegar að það eigi sér
eðlilegar skýringar t.d. vegna auk-
ins launakostnaður vegna fjölgunar
fagfólks á leikskólunum. Einnig
hefur börnum með sérþarfir fjölgað
á leikskólunum, sem kallað hefur á
aukningu í starfsmannahaldi og er
það eðlilegt þar sem fatlaðir jafht
sem ófatlaðir eiga jafhan rétt á leik-
skólagöngu. Við getum hinsvegar
ekki sætt okkur við þessi vinnu-
brögð. Foreldrar eru því hvergi
hættir og munu berjast áffam fyrir
sveigjanlegum vistunartíma og að
leikskólarnir verði opnir allt árið.
Þannig geti foreldrar valið hvenær
börn þeirra fara í frí. Þetta er rétt-
lætismál því þarfir fjölskyldunar
eiga að sjálfsögðu að vera í fyrir-
rúmi. Fyrir kosningar lögðu full-
trúar stjórnmálaflokkanna mikla á-
herslu á mikilvægi þess að hafa
þarfir fjölskyldunnar í fyrirrúmi.
Nú er lag að efna fögur fyrirheit.
Það er okkar skoðun að með tál-
komu sumarlokanna og afnámi
sveigjanlegs vistunartíma eru allt
önnur sjónarmið látin ráða en þau
er snúa að þörfum fjölskyldunnar.
Við foreldrar og kjósendur spyrj-
um. Er þetta skref í átt að betra og
fjölskylduvænna samfélagi?” sagði
Svandís að lokum.
GE
Stækkun Brekkubæjarskóla
Sldladagurinn of seint
segir Ingvar Ingvarsson aðstoðarskólameistari
Akranesbær hefur undirritað
samning við Loft orku hf urn stækkun
Brekkubæjarskóla á Akranesi og er
það fyrri liðurinn í þeirri áætlun að
grunnskólamir á Akranesi verði ein-
setnir. Framkvæmdir munu heþast
nú í sumar og áætlað er að þeim ljúki
í október 2001. Loftorka hf átti
lægsta boð í verkið og er samnings-
upphæðin rúmlega 164 milljónir
króna. Nýja viðbyggingin, sem verð-
ur þrjár hæðir, mun tengjast elsta
hluta skólans. A neðstu hæðinni
verða tvö herbergi sem verða nýtt
fyrir hljóðfærakennslu á vegum Tón-
listarskólans á Akranesi auk þess sem
þar verður aðstaða fyrir stoðþjónustu
skólans (heilsugæslu, sálfræðing og
ráðgjafa, biðstofa og húsnæði fyrir
sérdeild), kennslustofa, hóp- eða
fundarherbergi og geymsla. A
annarri og þriðju hæð verða tíu
kennslustofur sem verða flestar um
60 fermetrar, tvær geymslur og tvö
csjod mm cdöd qoqdÍ « mm od imasjad Dfm"ía IflL m ““ ff ff J fflBÉKfflB 1 [Jl -- - jrZZvrM
*** ■■•*»**** 'rnaaoaöö oiaj I nb rjoanoDnooSoo oo ce • V * ' L ■ □Eö! EIB U □ ; ~n □ tlj' ~\ U«l í •TTll ;f jy[ |
*s* v Mtm MM 0««™^
Ungur Andkílingur
fær verðlaun
Að ofan: Teikning af Brekkubæjarskóla
eins og haun kemur til með að líta út eft-
ir stœkkunina.
Til hœgri: Konráð Andrésson, forstjóri
Loftorku hf og Gisli Gíslason, bœjar-
stjóri, undirrita samninginn.
hóp- eða fundarherbergi.
Að sögn Ingvars Ingvarssonar að-
stoðarskólameistara er þetta besta
lausnin af þeim sem komu til greina,
en einnig hafði verið íhugað að
byggja við Vesturgötuna og ofan á
skólann. Hann segir að með þessu
fáist ein almenn kennslustofa fyrir
hverja deild þannig að hver bekkur
hafi sína stofú. “Eini gallinn við fyr-
irkomulagið er skiladagurinn, en
hann er ekki áætlaður fyrr en í októ-
ber á næsta ári, og gefur auga leið að
kennsla verður þá þegar hafin,” segir
Ingvar. Hann segir það skapa
vandamál þar sem kennarar verði
ráðnir miðað við að skólinn sé ein-
setinn og erfitt verði að skipta um
kennslufyrirkomulag á miðri önn.
“Einnig er það slæmt fyrir foreldra
yngstu bamanna sem ráða sig oft í
vinnu miðað við skólatíma bamsins.
Ég efast þó ekki um að við leysurn
það einhvern veginn og ég hlakka til
að fara að skipuleggja skólastarfið
þegar einsetningin verður komin á
því ég held að það komi öllum til
góða”, segir Ingvar Ingvarsson, að-
stoðarskólameistari Brekkubæjar-
skóla. SÓK
Úrslit í nýsköpunarkeppni gronnskól-
anna voru kynnt um síðustu helgi í
Reykjavík og verðlaun veitt fyrir bestu
hugmyndirnar. Ungur Vestlendingur,
Hákon G. Þorvaldsson nemandi í Anda-
kílsskóla, hlaut þar fyrstu verðlaun í
flokki útlits og formhönnunar fyrir tún-
hlið með strekkjara. í verðlaun fær hann
50 þúsund krónur frá Samtökum iðnað-
arins.
MM
Hákon G. Þorvaldsson verðlaunahafi
Stóra upplestrarkeppnin
Upplestrarkeppni grunnskóla á anum í Búðardal í síðustu viku. Níu keppni úr sjötta bekk en sjö úr átt-
Vesturlandi var haldin í Grunnskól- skólar sendu þátttakendur til unda bekk. Úrslit urðu eftírfarandi:
8. bekkur:
1. Olöf Erla Hauksdóttir Varmalandsskóla
2. Anna Kristín Olafsdóttir Heiðarskóla
3. Hrönn Jónsdóttir Kleppjárnsreykjaskóla
Allir þátttakendur fengu að launum og Skólastjórafélagi Vesturlands. Pen-
bókina Skáldsnilld Laxness frá Vöku ingaverðlaun voru veitt fyrir þrjú efstu
Helgafelh, Skólaskrifstofú Vesturlands sætin. 15.000 fyrir efsta sætið, 10.000
6. bekkur
1. Rakel Guðjónsdóttir Varmalandsskóla
2. Elís Svavarsson Búðardal
3. Agústa Hrund Þorgeirsdóttir Andakílsskóla.
fyrir 2. sætið og 5000 fyrir þriðja sæt-
ið. Það var Búnaðarbankinn í Búðar-
dal sem gaf peningaverðlaunin. GE