Skessuhorn - 18.05.2000, Side 15
jnl.S9Unu..
FIMMTUDAGUR 18. MAI 2000
15
Sináaugiýsingamar eru ókeypis fyrir einstaklinga og félög sem ekki stunda rekstur í
ábataskym. Augfysingamar birtast bæði hér í Skessuhomi og á vefsíðu blaðsins
www.skesmnom.is þar sem hægt er að skrá augfysingamar beint inn.
íbúð í Borgarnesi óskast (11.5/00)
ATVINNA I BOÐI
Barnapössun (16.5.2000)
Oskum eftir að ráða stúlku til að
passa tvö börn, tveggja og fjögurra
ára, í Borgarnesi í sumar. Upplýsing-
ar í síma 435 1446.
Mæður og aðrir! (9.5.2000)
Vantar þig aukapening ? Hefurðu 5-
15 tíma aflögu á viku ? Viltu vera
heima við ? Hafðu samband, sími
881 5716.
ATVINNA OSKAST
Óska eftir vinnu (16.5.2000)
16 ára vanur sveitastörfum óskar eft-
ir vinnu. Allt kemur til greina. Get
úvegað meðmæli ef óskað er. Upp-
lýsingar í síma 453 5971 & 866 7734
eftir kl 16 (Heiðar).
Halló (11.5.2000)
Eg er stelpa á 13 ári og mig langar
að passa út júní og ffá 15 júlí út
sumarið. Er barngóð, get unnið á
kvöldin. Upplýsingar í síma 431-
3214 (Ásdís).
Borgames (10.5.2000)
Þrítug kona óskar eftir atvinnu í
Borgarnesi. Hef áhuga á tölvum.
Upplýsingar í síma 861 3385.
BILAR / VAGNAR / KERRUR
Golf óskast (13.5.2000)
Óska eftir að kaupa Golf 98-00 (að-
eins nýja lagið), 4 dyra bíl með
spoiler og á álfelgum, ekki mikið
keyrðan og snyrtilegan bíl fyrir allt
að 1200 þús stgr. Möguleiki að taka
við bílaláni að hluta. Uppl. í símum
437 1605, 867 3352 og 437 2288.
Clio - missið ekki af þessum
Þó hann sé lítill þá er tekið eftir
honum. Renault Clio '92 til sölu,
krómkoppar, 150W aukahátalarar, 5
dyra, sjálfskiptur, mjög flott lakk,
mikið nýtt s.s. púst, bremsur, kerti
og m.fl. Tilboð óskast. Ath! ekinn
aðeins 114 þús., mjög vel með far-
inn.
Til sölu Land Rover (10.5.2000)
Land Rover (langur) árgerð '82 til
sölu. Gengur fyrir bensíni. Upplýs-
ingar í síma 692 4442, Geir.
Lada til sölu (8.5.2000)
Lada station, árg. 1992 til sölu.
Rauð að lit, nýuppgerð. Verð ca. 100
þúsund. Upplýsingar í 586 2124 eða
697 4095.
Volvo 850 gle (8.5.2000)
Til sölu Volvo 850 gle, árg. 1993
með nýuppgerðri skiptingu. Verð
850 þús. staðgreitt. Upplýsingar í
síma 898 9236,
DYRAHALD
Hestafólk! (16.5.2000)
Til sölu rauðvindóttur 7 vetra hestur
lítið táminn en reiðfær, rauður hest-
ur 9 vetra taminn og rauð meri klár-
geng. Einnig tveir nýlegir hnakkar
og beisli. Upplýsingar í síma 898
7680.
Fuglabúr (11.5.2000)
Óska eftir stóru fuglabúri, ódýrt eða
gefins. Uppl. í síma 896 6289.
Hrossaræktendur (10.5.2000)
Til sölu fallegt brúnskjótt litförótt
hesttryppi og ennfremur jarpstjörn-
óttur sex vetra hestur undan Toppi
1102 frá Eyjólfsstöðum. Upplýsingar
í síma 431 3228, Svanhildur og 898
9508.
FYRIR BORN
Óska eftir hjóli (9.5.2000)
Óska eftir 16 tommu hjóli fýrir
strák. Uppl. í síma 431 3344 eða 861
6227, (Helga).
Exem og húðvandamál? (9.5.2000)
Er þetta vandamál hjá þínu barni?
Hef náð frábærum árangri með mín
börn. Því ekki að prufa. Hafðu sam-
band í síma: 832 8416. Tilvísun:
“Húðvandamál”.
HUSBUNAÐUR / HEIMILI
Hjónarúm (16.5.2000)
Til sölu hjónarúm með dýnum
180*2, einnig náttborð og spegill.
Uppl. í síma 431 3315.
LEIGUMARKAÐUR
5 manna fjölskylda (16.5.2000)
Óskum eftir íbúð til leigu sem fyrst
á Akranesi.Uppl. í síma 431 1263.
2-3. herbergja íbúð óskast á Akra-
nesi. (16.5.2000)
Starfsmaður Skessuhorns óskar eftir
2-3 herbergja íbúð á Akranesi. Sími
899 7491 eða 431 3888 (Páll).
íbúð óskast (15.5.2000)
Óska eftir 3ja herbergja íbúð til
leigu á Akranesi frá næstu mánaða-
mótum. Góð fyrirframgreiðsla.
Upplýsingar í síma 862 3223.
fbúð í Borgarnesi (15.5.2000)
Hjón með 3 börn óska eftir íbúð á
leigu í Borgarnesi 3-4 herbergja.
Upplýsingar í síma 456 2648 eða
863 0988.
Iðnaðarskúr til leigu (12.5.2000)
Hef til leigu 102fm bílskúr, hentar
vel fyrir lítinn iðnað, var áður tré-
smíðarverkstæði og blikksmiðja.
Uppl. í síma 864 3228.
Oska eftir 3 herbergja íbúð á leigu f
Borgarnesi. Góðri umgengni & skil-
vísum greiðslum heitið. Reyklaus.
Uppl. 435 6663, Guðríður og 437
0078, Ingibjörg.
Óska eftir (10.5.2000)
Ungt par óskar eftir 2ja herbergja
íbúð til leigu á Akranesi sem allra
fyrst. Uppl. í síma 431 1987.
Einbýlishús á Akranesi til leigu
Einbýlishús á Akranesi, nálægt
Grundaskóla, til leigu frá 1.7. 2000 í
a.m.k. 1 ár. Uppl. í síma 896 3095.
OSKAST KEYPT
Fuglabúr (11.5.2000)
Óska eftir stóru fuglabúri ódýrt eða
gefins. Uppl. í síma 896 6289.
Sumarhús eða vinnuskúr (11.5/00)
Hjón með 2 lítil börn vantar sumarhús
eða góðan skúr til flutnings. Hulda
561 3420 og Kjartan 552 8200.
TIL SOLU
Línuskautar (16.5.2000)
Til sölu línuskautar nr. 3 6 og 3 8 á
kr. 500 stk. A sama stað er óskað eft-
ir línuskautum nr. 39-40. Uppl. í
síma 431 1263.
Heyrúllur (16.5.2000)
Heyrúllur til sölu. Upplýsingar í
síma 435 1339 á kvöldin.
Ýmislegt til sölu (15.5.2000)
Michelin 205x15x75 dekk, hásingar
undan Dodge Ramcharger, eldvarn-
arplötur 255x1,20x9mm. (gott í skil-
rúm), Range Rover mótor, stálborð
með vaski og Fagor þvottavél. Á sama
stað óskast lélegur sendibíll til niður-
rifs. Upplýsingar í síiha 864 3223.
Heyrúllur (10.5.2000)
Til sölu heyrúllur, fastkjarna; meira í
hverri rúllu. Upplýsingar í síma 435
1288 og 892 2090.
Rúm til sölu (9.5.2000)
Til sölu er IKEA rúm (2,0 X 1,65)
mjög lítið notað. Sigrún, S: 431 3173.
IKEA sófar (9.5.2000)
Til sölu 3+2 sæta sófar, Ijósir, ffá
Ikea. Seljast ódýrt. Upplýsingar í
síma 435 1264 effir kl. 22, Dóra.
YMISLEGT
Sigin grásleppa (16.5.2000)
Til sölu sigin grásleppa að Suðurgöm
72. Upplýsingar í síma 431 2974.
Auglýsing - Knattspyma (9.5/00)
Knattspyrnudeild Víkings Ólafsvík
stendur fyrir fjármögnun á starfsemi
deildarinnar. Bjóðum fyrirtækjum
auglýsingaskilti á völlin á sanngjömu
verði. S: 863 9656, Fax: 436 1416.
Komin heim í Hólminn
Ingibjörg Bjömsdóttir leikstjóri opnar kaffihús í Narfeyrarhúsinu
Fyrir um ári síðan keypti Ingi-
björg Bjömsdóttir leikstjóri svokallað
Narfeyrarhús við Aðalgötu 3 í Stykk-
ishólmi. Ingibjörg, sem hefur verið
lausráðin sem leikstjóri og leikari og
sett upp leiksýningar víða um land, á-
kvað að söðla um og flytjast til Stykk-
ishólms. Ingibjörg kveðst ætíð hafa
haft sterkar taugar til Stykkishólms
þar sem hún er ættuð úr Helgafells-
sveitinni. “Mér finnist Stykkishólm-
ur vera einn af þeim stöðum sem
muni lifa af þá byggðaröskun sem á
sér stað um þessar mundir á lands-
byggðinni. Þar að auki dregur mikil
náttúrufegurð í Breiðafirðinum
ferðamenn til Stykkishólms í aukn-
um mæli,” segir Ingibjörg.
Til að skapa sér starfsgrundvöll í
Stykldshólmi ákvað Ingibjörg að ráð-
ast í það að kaupa Narfeyrarhús og
breyta því í kafflhús og reyna að
skapa góða kafifihúsastemmningu í
bænum. Sjálf segist Ingibjörg vera
svokölluð „kaffihúsarotta“ enda hafi
hún verið dugleg við að sækja kaffi-
hús fyrir sunnan og á ferðalögum er-
lendis. Sjálf býr hún á efstu hæð
Narfeyrarhúss og hyggst búa þar á-
ffam. Auk þess að bjóða upp á nýmal-
að kaffi, léttvíh og ýmiskonar kaffi-
brauð ætlar Ingibjörg að bjóða upp á
menningarlegar uppákomur í Hólm-
inum í samvinnu við áhugasama bæj-
arbúa. “Eg seldi allt sem ég átti fyrir
sunnan til að fjármagna þessar skýja-
borgir en mér hefur líka tekist það
ætlunarverk að komast heim í Hólm-
inn og er laus við ffiðleysið sem hef-
ur angrað mig af og til fyrir sunnan,”
segir Ingibjörg leikstjóri og kaffihúss-
eigandi í Hólminum sem ætlar að
opna fyrsta kaffihúsið í Hólminum
þann 3. júní næstkomandi.
EE
lngibj'órg í Narfeyrarhiísi sem hún ætlar aó breyta í kajfthús. Mynd: EE
Akranes. Fimmtudag 18. maí:
Landsímadeildin kl. 20:00 á Akranesvelli. Mfl. karla IA-Leiftur.
Borgarfjörður. Fös. - lau. 19. maí - 20.maí:
Vormót UMSB í frjálsum íþróttum í íþróttamiðstöðinni í Borgamesi. Opið
mót þar sem keppt verður í lOOm og 200m hlaupum, langstökki, hástökki,
spjótkasti og kringlukasti.
Borgarfjörður. Laugardag 20. maí:
10-11 mótið í hestaíþróttum hefst kl. 9 að Vindási, félagssvæði Hmf. Skugga.
Sameiginlegt mót Dreyra, Faxa og Skugga í hestaíþróttum. Keppt verður í
öllum aldursflokkum og öllum greinum sem þátttaka næst í.
Snæfellsnes. Sunnudag 21. maí:
Messa í Olafsvíkurkirkju kl 14:00. Kór Hvammstangakirkju syngur ásamt
Kirkjukór Olafsvíkur. Sr. Sigurður Grétar Sigurðsson sóknarprestur á
Hvammstanga prédikar. Kirkjukaffi í safhaðarheimili að messu lokinni. Allir
velkomnir. Sóknarprestur.
Akranes. Mið. - sun. 24. maí - 28.maí:
Irskir dagar á Akranesi. Fjölbreytt dagskrá; sagan, tónlist, dans, matur og
menning. Kvikmyndasýning, keppt í hurling, upplestur og leiklist. Dag-
skrána er að finna á vef Akranesbæjar.
Borgarfjörður. Miðvikudag 24. maí:
Skólar í mótun kl 13:00 á Hvanneyri. Málþing haldið á vegum Búnaðar- og
garðyrkjukennarafélags íslands (BGÍ). Meðal framsögumanna eru fulltrúar
búnaðarskólanna, landbúnaðarráðuneytisins og ráðgjafaþjónustunnar. Allir
velkomnir.
Akranes. Laugardag 27. maí:
Landsímadeildin kl 16:00 á Akranesvelli. Mfl. karla IA-KR.
Borgarfjörður. Laugardag 27. maí:
Skref 2000 kl 13:00 við Skallagrímsvöll í Borgarnesi. UMSB hvetur til fjöl-
skyldugöngu um Borgarnes í samstarfi við ISI. Fyrsta ganga sumarsins þar
sem skref verða tekin í átt að heilbrigði og hreysti. Allir velkomnir í Þrauta-
göngu fjölskyldunnar.
Borgarfjörður. Laugardag 27. maí:
Tónleikar kl 14 í Reykholtskirkju. Karlakórinn Stefnir.
Borgarfjörður. Sunnudag 28. maí:
Hallgrímshátíð í Saurbæjarkirkju á Hvalfjarðarströnd. Sálmaskáldsins Hall-
gríms Péturssonar minnst í tali og tónum.
SÝNINGAR:
Borgarfjörður. Norskar stafkirkjur 1. apr. til 31. maí í Reykholtl
Ljósmyndasýning á norskum stafkirkjum á vegum norska sendiráðsins í til-
efhi af afhendingu þjóðargjafar Norðmanna. Einnig er uppi sýning á veggj-
um um fomleifauppgröft í Reykholti. Þættir úr sýningum fyrri ára um verk
Snorra, Flateyjarbók og handrit em einnig til sýnis.
Dalir. Er ég unni mest. 5. maí til 31. maí í Stjómsýsluhúsinu í Búðar-
dal.
Sýning 2. árs nema Listaháskóla íslands, í samvinnu við Dalabyggð og
Reykjavík M-2000. Verkin em unnin úr Dalaleir og myndefnið unnið út frá
Laxdælu. Opið virka daga milli 9 og 17.
Borgarfjörður. Atök í heiðni og kristni hjá Snorra. 15. maí til 31. ágúst
í Reykholti.
Sýningin fjallar um Snorra Smrluson; mennmn, ritstörf, trúarlíf og tónlist,
eignir og höfuðból, notkun hverahita, vopnabúnað og herskipulag.
Akranes. List, leikur og lærdómur. 20. maí til 4. júní í Listasetrinu
Kirkjuhvoli.
Samsýning nemenda Gmndaskóla á Akranesi. Sýningin veitir innsýn í starf
þeirra sl. vetur. Opið alla daga nema mánudaga, kl. 15-18.
Snæfellsnes. Listsýning Ebbu Júlíönu Lárasdóttur. 1. júní til 31. ágúst
í Norska húsinu, Stykkishólmi.
Ebba Júlíana Lámsdóttir sýnir glerverk í Norska húsinu í sumar. Sýningin er
opin alla daga kl. 11-17.
Snæfellsnes. Listsýning Emu Guðmarsdóttur. 1. júní til 4. júlí í Norska
húsinu, Stykkishólmi.
Ema Guðmarsdóttir sýnir silkimyndir. Sýningin er opin á opnunartímum
Norska hússins alla daga kl. 11-17.
Gospelsöngur
í Vinaniinni
Gospel sönghópurinn sem ný-
lega var stofhaður á Akranesi hefur
ákveðið að halda tónleika í safnað-
arheimilinu Vinaminni þann 20.
maí næstkomandi. Hópurinn var
sérstaklega stofnaður fyrir popp-
messurnar tvær sem haldnar vom í
Akraneskirkju á dögunum og sam-
anstendur hann af tíu kvenkyns
söngvurum og þremur karlkyns.
Skemmst er ffá því að segja að hóp-
urinn fékk gríðarlega góðar viðtök-
ur enda mjög hæfileikaríkir ein-
staklingar þar á ferð. Þeim þótti því
kjörið að halda áfram, bæði sjálfum
sér og öðram til skemmtunar. Eftir
það hafa þau komið fram nokkrum
sinnum, m.a. fyrir fullu húsi á s.k.
kaffihúsakvöldi sem haldið var í
Fjölbrautaskóla Vesturlands og í
fermingu í Stafholtskirkju. Fyrir
þetta hafa þau hlotið mikið lof og
Sr. Bjöm Jónsson fyrrverandi sókn-
arprestur skrifaði pistil í Skessu-
hom fyrir skemmstu þar sem hann
fór fögrum orðum um frammi-
stöðu hópsins.
Þótt hópurinn kenni sig við
gospeltónlist er ekki þar með sagt
að eingöngu sú tónlist sé tekin fyr-
ir og að sögn Hönnu Þóra Guð-
brandsdóttur, eins af meðlimum
sönghópsins, verða tónleikarnir í
Vinaminni allt annað en einhæfir.
Auk gospeltónlistar verður þar á
dagskrá klassískur einsöngur, dæg-
urlög, djass og klarinettdúett, auk
þess sem lag eftir Borgardætur
verður flutt í anda þeirra. Stjórn-
endur eru þau Heiðrún Hámund-
ardóttir og Hannes Baldursson, en
Hannes leikur einnig undir á
hljómborð. Þarna ættu allir að
finna eitthvað við sitt hæfi og því
ekkert annað að gera en að drífa sig
á tónleikana. SOK