Skessuhorn - 12.10.2000, Síða 3
Jií,S»UtiÖ£í i
FIMMTUDAGUR 12. OKTOBER 2000
3
Flatahverfið á Akranesi
Olíkar athugasemdir
við deiliskipulag
Skipulagsnefnd Akraness hefur
fjallað um athugasemdir sem
bárust vegna deiliskipulags
Flatahverfis en ffestur til að skila
inn athugasemdum rann út í
byrjun september. Mjög óhkar
athugasemdir bárust þar sem
íbúar á svæðinu óskuðu eftír að
byggðar yrðu lægri byggingar á
meðan byggingarverktaki mælt-
ist til að byggt yrði eins hátt og
reglugerðir leyfa.
Tillit tekið til óska íbúa
I athugasemdum Gyðu Bents-
dóttur, Flemmings R Madsen, Elsu
Sigurðardóttur og Stefáns Lárusar
Pálssonar, eigenda íbúðarhúsanna
að Garðholti og Klapparholti við
klasa 3 í deiliskipulaginu kemur
m.a. fram að eigendurnir hafi keypt
húsin fyrst og fremst vegna stað-
setningar þeirra og nálægðar við ó-
ræktað land í útjaðri bæjarins. Þeir
segjast nú sjá fyrir sér að örfáum
metrum frá húsum þeirra mirni ef
til vill rísa allt að 5 hæða íbúða-
blokk. “Þar með hverfur Akrafjallið
og Esjan sjónum okkar, sólin mun
vart ná að skína fyrr en síðla dags og
margra manna byggð er skyndilega
risin þar sem kartöflugarðurinn var
áður,” segir í athugasemdum þeirra.
Ibúarnir sögðust óttast það að verð-
mæti eigna þeirra myndi rýrna við
slíka byggingu upp að lóðum hús-
anna og lögðu til að í stað hárrar í-
búðarblokkar yrði skipulögð lægri
íbúðabyggð í klasa 3.
I svari skipulagsnefhdar kemur
ffarn að svæði það sem deiliskipu-
lagið nær til hafi verið skilgreint
sem íbúðasvæði samkvæmt aðal-
skipulagi síðan árið 1982. Skipu-
lagsnefhd segist taka athugasemdir
íbúa varðandi hæðir hússins til
greina og hæð fjölbýlishússins verði
takmörkuð næst lóðum þeirra. Mið-
að er við að hæð þess hluta fjölbýlis-
hússins sem næst stendur húsunum
Garðholt og Kdapparholt verði að
hámarki 3 hæðir. Skessuhom hafði
samband við Gyðu Bentsdóttur og
Flemming R Madsen, eigendur
Garðholts. Þau sögðust ekki vilja tjá
sig um málið að svo stöddu þar sem
þau væra enn að skoða svar skipu-
lagsnefhdar.
Ólík sjónarmið
Halldór Stefánsson, ffamkvæmd-
arstjóri Trésmiðjunnar Akurs, gerði
athugasemdir við deiliskipulag
Flatahverfis þar sem hann gagn-
rýndi ákvæði þar sem kveðið er á um
að byggingar á samliggjandi fjölbýl-
ishúsalóðum 2-10 í klasa 3 snertist.
Segir Halldór að fyrir vikið gefist
aðeins einum byggingaraðila færi á
að byggja fjölbýlishús í þessari at-
rennu. Halldór leggur til í athuga-
semdum sínum að í stað ofangreinds
ætti að breyta lóðinni í 2-3 lóðir og
þar væri heimilt að reisa eins háar
byggingar og reglugerðir heimila,
eða allt að 6 hæða hús.
Skipulagsnefnd leggur til að
heimilt verði að skipta lóð nr. 2-10 í
2 lóðir en ítrekar að miðað skuli við
byggingar að hámarki 3 hæðir á
svæði innan við 30 metra fjarlægð
frá lóðarmörkum sem snúa að
Garðaholti og Klapparholti.
Halldór Stefánsson sagði í samtali
við Skessuhorn að vissulega kæmu
hér ffarn mjög ólík sjónarmið en
ekki yrði litið ffam hjá því að svæði
það sem um ræddi væri skilgreint
sem íbúðasvæði samkvæmt tveggja
áratuga gömlu aðalskipulagi og
hann hefði einfaldlega verið að
leggja til að fullnýta ætti lóðimar í
samræmi við gildandi reglugerðir.
K.K.
Gangavörðurinn
bjargaði málunum
Það mátti ekld á tæpara standa í
Brekkubæjarskóla á Akranesi í síð-
ustu viku, þegar steypa átti gólf í
anddyri skólans. I gólfinu áttu að
vera hitalagnir en athugull ganga-
vörður skólans, Jórann Sigtryggs-
dóttir, tók eftir því að þær vora ekki
til staðar. “Hún kom til okkar og
spurði að því hvort ættu ekki að vera
hitalagnir í gólfinu þama í anddyrinu
því hún sagðist ekki sjá neinar,” sagði
Ingvar Ingvarsson aðstoðarskóla-
stjóri Brekkubæjarskóla aðspurður
um máHð. “Þeir voru ekki byrjaðir
að steypa en það stóð til. Eg fór út og
skoðaði þetta og staðfesti að þama
væra engar hitalagnir og það stóð al-
veg, þetta hafði gleymst. Málinu var
kippt í Hðinn og lagnimar lagðar í
snatri. “Ef svo hefði farið að búið
hefði verið að steypa þama hefði
þurft að brjóta allt upp aftur. Hún á
alveg heiður skilinn fyrir þetta,”
sagði Ingvar að lokum. SOK
' ™
Kindabjúgu kr. 6 71,-
tilboðsverð kr. 47V,-
Saltkjöt l.fl.kr.769,
tilboðsverð kr. 39ö,-
Græn epli kr. 198,-
tilboðsverð kr. I l?r
lceberg salat kr. 398,-
tilboðsverð kr. 275,-
Skyr 500 gr.kr.H O,-
tilboðsverð kr. 99,-
Hrísmjólk kr.7l,- .
tilboðsverð kr. 64,-
Grönn-Hunangsbrauð kr. 191,-
tilboðsverð kr. /49,
9-19
Laugardaga 10-19
Verið velkomin!
Sími 430 5533