Skessuhorn - 12.10.2000, Qupperneq 11
SSESSIiHölSH
FIMMTUDAGUR 12. OKTOBER 2000
11
Snæfellsbær:
Bætt hafnaraðstaða
Nú nýlega var settur upp nýr
löndunarkrani á bryggju við norð-
urgarð í Olafsvíkurhöfn. Kraninn
bætir mjög aðstöðu smábáta og er
sá íjórði við höfnina. I góðu veðri
og þegar vel fiskast myndast
stundum bið við löndunarkranana
og bætir nýi kraninn því úr brýnni
þörf. Þá er í gangi lenging viðleg-
ukants og þekju bryggjunnar í
Arnarstapahöfh en eins og menn
þekkja hefur höfhin ákaflega lítið
landrými vegna sérstakrar legu
sinnar. Nýja þekjan mun því
stækka töluvert það rými sem
höfnin hefur. Með lengingu við-
legukantsins verður mikið rýmra á
bátum í höfninni og eykur það
mjög öryggi þeirra. I höfninni
á Hellnum hefur nú verið komið
fyrir bjarghringjum, krókstjökum
og góðum stigum. En eins og
fram kom í umfjöllun Skessuhorns
um öryggismál hafna var mikil
vöntun á öllum björgunar- og ör-
yggisbúnaði við höfhina. Þar hef-
ur nú verið bætt úr. I október
verður byrjað að dýpka innsigl-
inguna í Rifshöfn. Síðan á að
ljúka byggingu norðurgarðsins í
Rifshöfn á næstu vikum.
IH
Bjöm Amaldsson hafnarstjóri Snæfells-
bœjar og Kristján Helgason hafnaruöróur
ásamt Tómasi Sigurðssyni verktaka.
Kennsla fímm ára
bama tíl athugunar
Oll mál eru þess virði að þau séu skoðuð
segir Sigríður Gróa Kristjánsdóttir
í síðasta tölublaði Skessuhorns
birtist frétt um kennslu 5 ára
barna á Akranesi. Fréttin vakti
þónokkrar umræður og í fram-
haldi af því er tillaga Sigríðar
Gróu Kristjánsdóttur þess efnis
birt hér í heild sinni.
“Bæjarstjórn Akraness sam-
þykkir að fela menningar- og
skólafulltrúa að skoða hvort til
greina komi að bjóða kennslu við
grunnskólana á Akranesi fyrir 5
ára börn. Skoðað verði hvernig
standa mætti að slíkri kennslu,
hvort koma megi henni fyrir í
húsnæði grunnskólanna í náinni
framtíð, hver kostnaður yrði við
kennsluna og áhrif hennar á aðra
þjónustu sem veitt er fimm ára
börnum.” I greinargerð með til-
lögunni segir: “í a.m.k. tveimur
einkareknum skólum í Reykjavík
og tveimur öðrum sveitarfélögum
er boðið upp á kennslu 5 ára
barna. Rétt er að kanna hver
reynsla þessara aðila er af því fyr-
irkomulagi og hvort slíkt sé eitt-
hvað sem áhugavert væri á Akra-
nesi. I tillögunni felst að skoðað
verði hvort húsnæði sé fyrir hendi
í grunnskólunum á Akranesi, hver
kostnaður af starfseminni yrði og
hver áhrif hennar væru á aðra
þjónustu sem veitt er fimm ára
börnum á leikskólum bæjarins.”
Tillaga Sigríðar var samþykkt ein-
róma.
“Eg hef lengi haft áhuga á að at-
huga hvort þetta sé eitthvað sem
eigi að skoða af alvöru. Eins og
fram kemur í greinargerðinni er
að mörgu að hyggja í þessu sam-
bandi og munu allir þeir þættir
verða skoðaðir gaumgæfilega.”
Sigríður segir að hugsanlega gætu
börnin verið í leikskólunum fyrir
hádegi og flutt sig yfir í grunn-
skólana eftir hádegið. “Með þessu
væru þau að búa sig svolítið undir
næsta skólaár. Þegar þau eru orðin
5 ára eru fyrsta skólastigið búið að
standa yfir í fjögur ár og mér
finnst þau þá oft mjög opin fýrir
því að prófa eitthvað nýtt. Mjög
góð samvinna er á milli þessara
skólastiga og vona ég að menn séu
tilbúnir að skoða þetta vel. Oll
mál eru þess virði að þau séu
Full búð af fjölbreyttum vörum
Alltaf nýjar sendingar
- Úlpur - útigallar fyrir börn -
- tískuföt - íþróttaföt - skór -
Opið 11-18 mán.-fim. og til 19fös.
Laugardaga kl. 10-13
Frábœr vörumerki
Puma, Nike, Reebok,
Fila, Speedo, Blend, Is-it-Zo, Tark
brúcirtorgi 4 - borgarnesi - sími 437 1707
SIMGNNTUNAR
MIÐSTÖÐIN
Xölvuökuskírteinið
-jök-
NÁMSKEIÐ OG PRÓF Á NÆSTUNNI
Námskeið
Á AKRANESI:
Töflureiknir - Excel (20 kest.)
. Mán. og mið. frá 16. okt. til 15. nóv.
I Kl. 18:00 til 19:30.
! Kennari: Dröfn Viðarsdóttir
| Verð: 15:000
! Á VARMALANDI:
" Internetið - Vefurinn og Tölvupósturinn. (12 kest.)
Mán. og fim. frá 19. okt. til 30. okt.
Kl. 20:30 til 23:00
Kennari: Þór Þorsteinsson.
Verð: 11.000
í GRUNDARFIRÐI:
Ritvinnsla - Word. (20 kest.)
Mán. og fim. frá 16. okt. til 16. nóv.
Kl. 18:00 til 19:30
Kennari: Gunnar Kristjánsson
Verð: 15:000
í BÚÐARDAL:
Internetið - Vefurinn og Tölvupósturinn. (12 kest.)
Mán. og mið. frá 23. okt. til 1. nóv.
Kl. 20:30 til 23:00
Kennari: Gunnlaugur Sigfússon
Verð: 11.000
Áfangapróf tölvuökuskírteinisins.
Tölvuökuskírteinið byggir á sjö prófum sem votta
hæfni í upplýsingatækni,
að þessu sinni er prófað í tveimur hlutum þess
á eftirtöldum stöðum:
í Grunnskólanum í Búðardal:
Grunnatriði upplýsingatækninnar
miðvikud. 18. okt. kl. 20:00 til 20:45
Tölvuleikni - tölvan og stýrikerfið
miðvikud. 18. okt. kl. 21:00 til 21:45
/ Grunnskólanum í Grundarfirði:
Grunnatriði upplýsingatækninnar
miðvikud. 18. okt. kl. 18:15 til 19:00
Tölvuleikni - tölvan og stýrikerfið
miðvikud. 18. okt. kl. 19:15 til 20:00
/ Varmalandsskóla:
Grunnatriði upplýsingatækninnar
mánud. 16. okt. kl. 20:00 til 20:45
Tölvuleikni - tölvan og stýrikerfið
mánud. 16. okt. kl. 21:00 til 21:45
Hvert próf kostar 1500. Öllum er heimil þátttaka
hvort sem þeir hafa tekið þátt í námskeiðum eða
ekki.
Skráning og upplýsingar í síma
437 2390 og á www.simenntun.is