Skessuhorn


Skessuhorn - 12.10.2000, Page 15

Skessuhorn - 12.10.2000, Page 15
aagssiiHOEKi FIMMTUDAGUR 12. OKTOBER 2000 15 Opnunartími sundlaugar Mikið hefur verið rætt um að lengja opnunartíma sundlaugar- innar við Jaðarsbakka í kjölfar tillögu Gunnars Sigurðssonar þess efnis. Til stóð að taka mál- ið upp á fundi íþróttanefndar í síðustu viku, en enn vantaði upplýsingar um kostnaðinn sem myndi fylgja þessari framkvæmd og var málinu frestað til næsta fundar. SÓK Jóhannes Harðarson Jóhannes til Hollands Jóhannes Harðarson, miðju- maðurinn sterki úr IA, hélt til Hollands á sunnudag þar sem hann mun dvelja í eina viku við æfingar hjá hollenska úrvalsdeild- arliðinu Groningen. Forráða- menn liðsins sáu Jóhannes leika í sumar og fengu hann nú lánaðan til reynslu. Groningen er í 12. sæti hollensku deildarinnar með 8 stig efdr jafhmarga leiki. Jó- hannes kemur þó eflaust til með að flýta sér heim eftir vikuna, því hann á von á sínu fyrsta barni þá og þegar. SOK Gunnlaugur Jónsson Baldur Aðalsteinsson Baldur og Gunnlaugur til Uerdingen Þeir Gunnlaugur Jónsson og Baldur Aðalsteinsson, knatt- spyrnumenn úr ÍA, koma til með að spila sem lánsmenn með þýska liðinu Uerdingen í vemr. Væntanlega fara þeir báðir til Þýskalands nú um helgina. Uerdingen leikur í þriðju deild og er nú í þriðja sæti í norður- riðli. SÓK Warrm Peebles íbaráttunni í leiknum íBorrgamesi Mynd: Svanur Steinarsson Skallagrítns- menn úr leik Skallagrímur er úr leik í Kjörís- bikarnum í Körfuknattleik eftir tap gegn Hamri í Hveragerði síðastlið- inn laugardag 90 - 77. Skallagrím- ur sigraði í fyrri leik liðanna í Borg- arnesi á fimmtudag með 71 stigi gegn 63 og komst Hamar því áfram á hagstæðara stigahlutfalli. Skallagrímsmenn léku vel í fýrri leiknum, náðu fljótt undirtökunum og leiddu mest allan tímann. At- kvæðamestur var Sigmar Egilsson sem átti stórleik og skoraði 26 stig, þar af sex þriggja stiga körfur. Alex- ander Ermolinskij og Warren Peebles skoruðu 12 stig hvor, Ari Gunnarsson 10 og þeir Andreij Kreoni og Pálmi Sævarsson fimm hvor. I síðari leiknum var jafnræði með liðunum lengst af en Skallagríms- menn misstu tökin í lokin. Af Skallagrímsmönnum voru þeir Warren og Alexander hvað frísk- astir. Sá fyrrnefndi skoraði 30 stig og Alexander 12. Fyrsti heimaleikur Skallagríms- manna í Epson deildinni er á morgun, föstudaginn 13. en það er dagsetning sem mörgum hefur staðið ógn af. Það verður hinsvegar að koma í Ijós hvoru liðinu hún færir ógæfu, heimamönnum eða Is- firðingum. GE Stórt tap fyrir Nj arðvíkingiim Hið unga og efnilega lið Skaga- með 13 stig og fast á hæla honum manna í körfuknatdeik átti ekkert kom Trausti Jónsson með 12 stig. svar við reynslumiklu liði Njarð- Síðari leikur liðanna einkenndist víkur þegar hðin mættust í fyrstu einnig af mikluin yfirburðum umferð í Kjörísbikarkeppninni um Njarðvíkinga en Skagamenn náðu helgina. Skagamenn byrjuðu á að þó að klóra aðeins í bakkann og taka á móti Njarðvíldngum og fór töpuðu með mun minni stigamun leikurinn fram í íþróttahúsinu við en í fýrri viðureigninni. Þeir skor- Vesturgötu. Það er skemmst frá uðu 81 stig en Njarðvíldngar 128. því að segja að ÍA tapaði með 67 Þar stóðu þeír Svanur Svansson og stigum gegn 140 stiginn andstæð- Tráusti Jónsson sig einna best inganna. Stigahæstur Skagamanna Skagamanna, en þeir skoruðu 19 í leiknum var Erlendur Ottesen stighyor. SOK Vetrarstarf Bridge- félags Akraness hafið Vetrarstarf Bridgefélags Akra- ness er hafið og líkt og undanfarna vetur er spilað á fimmtudögum í félagsheimilinu Röst á Vesturgötu. Eins kvölds tvímenningur var spil- aður s.l. fimmtudag og báru Alfreð Viktorsson og Leó Jóhannesson sigur úr bítum með 207 stig. I öðru sæti urðu Erlingur Einarsson og Árni Bragason með 199 stig. Karl Alfreðsson og Jóhann Gestsson urðu í þriðja sæti með 193 stig. I kvöld, 12. október, hefst síðan hinn hefðbundni haust-tvímenn- ingur og gilda þrjú bestu kvöldin af fimm. Spilamennska hefst kl. EPS0N deildin í körfubolta Borgarbraut 61 310 Borgarnes Sími: 437-1700 Fax: 437-1017 INGI TRYGGVASON hdl. lögg. fasteigna- og skipasali Nýtt á söluskrá Þórólfsgata 7A, Borgarnesi íbúð 129 ferm. og bílskúr 40 ferm. Stofa og eldhús parketlagt, viðarinnrétting í eldhúsi. Baðherb. og þvottahús með flísalögðu gólfi. Forstofa dúklögð. 4 svefnherb., 2 parketlögð og 2 dúklögð. Fataherb. og geymsla. Verð: kr. 11.800.000. Breiðagerði, Reykholti Einbýlishús 110 ferm. ásamt leigulóðarréttindum. Til afhendingar strax. Verð: kr. 7.000.000 BORGARBYGGÐ Borgarbyggð -Atvinna- Leikskólastj óra vantar til eins árs Leikskólann Klettaborg í Borgamesi vantar leikskólastjóra vegna afleysinga í eitt ár, frá og með 1. desember 2000. Leikskólinn er þriggja deilda fyrir börn á aldrinum 2-6 ára og boðið er upp á sveigjanlegan dvalartíma. I Klettaborg fer fram fjölbreytt uppeldisstarf með megináherslu á samskipti, skapandi starf og tákn með tali. Skólanámskrá Klettaborgar var gefin ut í sumar. Umsóknarfrestur er til 25. október 2000. Nánari upplýsingar um starfið veita Steinunn Baldursdóttir leikskólastjóri s:437-1425 og Brit Bieltvedt félagsmálastjóri s: 437-1224. Félagsmálastjóri Borgarbyggðar.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.