Skessuhorn - 19.10.2000, Qupperneq 6
6
FIMMTUDAGUR 19. OKTOBER 2000
■JllljðdlJtliilíw
Göngum til góðs
Söfhun gegn almæmi í Afríku
Samstarf sveitarfélaga
norðan Skarðsheiðar
Kæri lesandi.
Dagana 28. og 29. október n.k mun
Rauði kross Islands standa fyrir lands-
söínun til styrktar baráttunni gegn al-
næmi í Afríku og er það einlæg ósk
Rauða kross jleildar á þínu svæði að
vel verði tekið á móti sjálfboðaliðum
sem verða á ferð þessa daga að safna fé
til styrktar þessu mikilvæga verkefhi.
I surnum Afríkulöndum eru heilu
íjölskyldumar sýktar og með dauða
þeirra missir stór hluti bama og aldr-
aðra framfæri sitt. I sunnanverðri Afr-
íku em orðið algengt að höfuð fjöl-
skyldunnar sé bam að aldri vegna þess
að allir fulloðrmr eru dánir úr alnæmi.
Alnæmi er mjög útbreitt í Afríku og er
Rauði krossinn að reyna að vinna
gegn þessum skelfilega sjúkdómi með
ýmsu móti. Rauði krossinn mun
standa fyrir öflugu átaki sem einkum
mun beinast að eftirtöldum þremur
þáttum :
Þögnin rofui
I fyrsta lagi aö verður að vekja um-
ræðu í lönduin smrnanverðrar Afríku
um ástandið. Sú bannhelgi sem ríkir
hvað varðar umræður um alnæmis-
vandann veldur því að mjög erfitt hef-
ur verið að ræða aðgerðir gegn sjúk-
dómnum.
Stefnt er að því að farið verði hús úr
húsi með öfluga og beinskeytta
ffæðslu.
Heimahlynning
Rauð krossinn hefúr þegar unnið
ötullega að uppbyggingu heima-
hlynningar fyrir alnæmissjúklinga, en
stefnt er að því að efla þessa þjónustu
að miklum mun. Um það bil helm-
ingur sjálfboðaliða í heimahlynningu
er sýktur af alnæmi og því er þörfin
fýrir nýja sjálfboðaliða gífurleg.
Ahrif á alþjóðasamfélagið
Stefnt er að því fyrst og fremst að
hafa áhrif á lyfjafyrirtæki til að fá þau
til að gefa alnæmislyf til Affíku. Nú
þegar hefur eitt fyrirtæki ákveðið að
gefa lyf en þörfin er gífurleg og von-
andi tekst að fá fleiri til liðs við mál-
efnið. Það er mjög mikilvægt að gefa
lyf til sýktra kvenna sem jafhframt eru
þungaðar hl að koma í veg fyrir að
böm smitist í móðurkviði.
Eftirfarandi tölur gefa glögga
mynd af því hversu ástandið er orðið
alvarlegt:
18.8 milljónir jarðarbúa hafa dáið af
völdurn sjúkdómsins.
3.8 milljónir bama hafa dáið úr al-
næmi.
500.000 böm dóu úr alnæmi árið
1999.
13,2 milljónir munaðarlausra bama í
heiminum ogflest þeirra í Afríku.
I Afiáku eru 2 5 milljónir manna smit-
aðar af alnæmisveirunni.
Smituðum í Afríku fjölgar um 3
milljónir á ári.
I Namibíu er fjöldi smitaðra einna
hæstur, 60% sýktra eruyngri en 20 ára
og eru jnjátíu af hverjum hundrað smit-
aðir.
I Simbabve eru tbúar 1,6 milljón,
sýktir eni 400.000 manns og um
100.000 manns hafa dáið af vóldum
veirunnan Dauðsfóllum hefurfjölgað svo
mikið þar að um 1000 manns deyja nú
orðið á hveirí viku.
Með von um góðar undirtektir
Linda Osk Sigurðardóttir
Svæðisfidltrúi RKI á Vesturlandi
Á fundi bæjarstjórnar Borgar-
byggðar þann 12. október var
samþykkt að taka þátt í samstarfi
Lionshreyfingin hefur undanfar-
in ár staðið fyrir öflugri ffæðslu og
þjálfun fyrir leiðtoga. Alþjóðaskrif-
stofa samtakanna hefur látið útbúa
námsefni og boðið Lionsfélögum
upp á leiðtogajtjálfun í öllum
heimsálfum. Á Islandi hafa verið
haldin stutt námskeið í leiðtoga-
þjálfun en nú er í fyrsta sinn boðið
upp á heildræna ffæðslu á þessu
sviði.
Lionsskólinn er að þessu sinni
skipulagður sem tveggja helga nám-
sex sveitarfélaga norðan Skarðs-
heiðar um útboð á reglubundinni
tæmingu rotþróa í dreifbýli.
skeið sem ffam fer í Munaðarnesi.
Allir Lionsfélagar gátu sótt um þátt-
töku, ungir og óreyndir félagar, sem
og reyndir félagsmenn. Markmið
námskeiðsins er að þjálfa leiðtoga
og byggja upp sterka félaga. Kennt
er efhi sem Lions Clubs
International hefur gert í leiðtoga-
þjálfun “Leadership Development”
og kemur námsefnið að gagni bæði
í félagsstarfi Lionsmanna sem og í
atvinnulífinu.
MM
Oddvitar sveitarfélaganna höfðu
áður mælt með að ráðist yrði í
verkefnið en það eru sveitarfélög-
in Borgarbyggð, Borgarfjarðar-
sveit, Skorradalshreppur, Hvítár-
síðuhreppur, Kolbeinsstaða-
hreppur og Eyja- og Miklaholts-
hreppur sem standa að þessu
samstarfi.
“Það er ljóst að ef ætlunarverk-
ið gengur eftir eru sveitarfélögin
að brjóta nokkurt blað í fram-
kvæmd þessara mála á Islandi,”
segir Stefán Kalmansson bæjar-
stjóri Borgarbyggðar.
Samkvæmt reglugerð á skolp
frá íbúðar- og sumarhúsum í
dreifbýli að fara í gegnum rot-
þrær. Rotþró hreinsar mengandi
efni úr skolpi áður en þvi er veitt
út í sandsíu og þaðan í grunnvatn
eða yfirborðsvatn. Smám saman
setjast föst ólífræn efni í botn rot-
þrónna sem þarf að hreinsa upp.
Eftir því sem meira af föstu efni
safnast fyrir í rotþróm, því minni
verður hreinsivirknin. Nauðsyn-
legt er því talið að hreinsa rot-
þrær á tveggja til þriggja ára
fresti til að koma í veg fyrir að
mengandi efni úr þeim geti spillt
grunn- eða yfirborðsvatni. Þá
aukast líkur á stíflu í sandsíu ef
dregst að hreinsa rotþró.
GE
Fráfyrri helgi námskeiðs Lionsskólans í Munaðamesi mn sl. helgi. Mynd MM
Lionsskóli í Munaðamesi
Framhaldsskóli á Snæfellsnesi
Ragnar Mar og Kristmundur Davíð í Snæfellsbæ. Mynd: IH
Mikil umræða hefur verið á Snæ-
fellsnesi um stofnun framhaldsskóla
á Nesinu. Bæjarstjórn Stykkis-
hólmsbæjar samþykkti á fundi í
nóvember 1999 að leita eftir af-
stöðu sveitarfélaganna á norðan-
verðu Snæfellsnesi til þess að kanna
möguleika á stofnun framhalds-
skóla á Snæfellsnesi. I framhaldi af
því var skipuð þriggja manna nefnd
sem í áttu sæti Björg Ágústsdóttir
Grundarfirði, Eyþór Benediktsson
Sty7kkishólmi og Sveinn Þór Elin-
bergsson Snæfellsbæ. Nefndin
skilaði skýrslu í apríl s.l. I skýrsl-
unni er farið mjög vítt yfir stöðu
samfélagsins og dregin fram mynd
af sveitarfélögunum, atvinnulífinu,
stöðu ungmenna til að afla sér
framhaldsmenntunar, íbúaþróunar
ofl.
Hagsmunir
1 skýrslunni er kafli sem heitir
“Hagsmunir nemenda - foreldra -
heimila”. Þar segir m.a.: “Hags-
munir nemenda felast í auknu
framboði náms í heimabyggð. Það
er hreint ekki hægt að segja að alla
nemendur langi að heiman þegar
kemur að því að hefja framhalds-
nám. Það eru viðbrigði fyrir ó-
harnaða unglinga að skipta um
skóla og færast yfir á “æðra stig”
menntunar. Ef við bætist að þurfa
að skipta um umverfi, flytja að
heiman og þurfa að spjara sig fjarri
heimili og fjölskyldu getur það ver-
ið mörgum um megn. Unglings-
árin eru mikill umbrotatími, börn
eru að breytast í fúllorðið fólk og
því fylgja ýmsar manndómsraunir.
Þá er gott að eiga vísan góðan
stuðning frá sínum nánustu. Snæ-
fellingar telja það kost að þurfa ekki
að senda unglinga að heiman til
náms á þessum umbrotaárum.”
Fjölmörg rök eru til talin í skýrslu
þeirra þremenninga sem styðja þá
kröfú íbúanna að á Snæfellsnesi rísi
framhaldsskóli.
Staðsetning
Um staðsetningu skólans er fjall-
að sérstaklega í samnefndum kafla.
“Gengið er út frá skólaakstri nem-
enda eins og fram hefur komið.
Sveitarstjórnirnar hafa gengið frá
samkomulagi sín í milli um stað-
setningu framhaidsskóla í þessu
sambandi og var ákveðið að miða
við að hann yrðí í Grundarfirði.
Megin rök þessa staðarvals eru þau
að staðsetning skóla, þangað og
þaðan sem þorra nemenda væri
ekið daglega til og frá heimilum
sínum, verði byggð á jöfnun fjar-
lægða. Þannig nær skólinn að skír-
skota til sem flestra nemenda af
svæðinu. Ljóst er að þverun
Kolgrafarfjarðar er lykilatriði í
þessu sambandi.”
Nemendur
Hvað segir unga fólkið um þessa
hugmyndir og hver er afstaða þeirra
til þess að þurfa að fara í burtu til
náms eða eiga tækifæri á námi í
samræmi við þessa umræðu?
Blaðamaður Skessuhorns hitti
nokkur ungmenni sem öll eiga það
sameiginlegt að stunda nám í fyrsta
ári framhaldsnáms í heimabyggð.
Snæfellsbær
I framhaldsdeildinni í Snæfellsbæ
eru Kristmundur Davíð Olafsson
og Ragnar Mar Agnarsson meðal
nemenda. “Okkur þætti auðvitað
betra að geta lært sem mest hér
heima,” segja þeir félagar og Krist-
mundur bætir við: “Næst best er að
komast á Akranes í heimavistina
þar, það hefur held ég marga kosti
umfram það að þurfa að leigja sér
herbergi í Reykjavík. Ef við eigum
kost á framhaldsnámi í Grundar-
firði er akstursfjarlægðin ekki nema
20 mínútur í skólabíl sem er svipað
og maður þyrfti að eyða í strætó í
Reykjavík”.
Stykkishólmur
I framhaldsdeildmm í Stykkis-
hólmi urðu fyrir svörum þær Elín
Þórðardóttír og jóhanna Omars-
dóttir. “Það nám sem ég ætla i er
svo sérhæft,” segir Jóhanna. “Ég á
þess ekki kost að fara í framhalds-
nám í píanóleik hér heima og það
verður líklega ekkert í náinni fram-
tíð. Þannig að ég verð að fara til
Reykjavíkur.” Svar Elínar er einnig
injög afgerandi: “Mig langar ekki
að fara í burtu. Mig langar ekkert
til Reykjavíkur og ég mun ekki
reyna að komast á heimavist.
Framhaldsnám hér á Snæfellsnesi
er eitthvað sem mér hentaði og ekki
vandamál þó maður þurfi að sitja í
skólabíl. Við erum ekkert undir
það búnar að fara að búa einar og
sjá alfarið um okkur sjálfar”.
Grundarfj ör ður
Heiðar Geirmundsson stundar
ljamám í fjarnámsveri í Grundar-
firði. “Mér finnst að ungt fólk eigi
að geta stundað skóla ffá heimili
sínu. Með því að fara í burtu verð-
Heiðar Geirmundsson í Gnmdarfirði.
Mynd: IH
um við að byrja á nýjum stað, stofna
okkar eigin heimili sjá um mat.
þvotta og allt það. Fjarnámið er
fínt og verður ábyggilega meira
notað í framtíðinní. En mér finnst
líka gott að hafa einhvern til að reka
á eftir mér hvort sem það er í skól-
anum eða heima.
IH
Jóhanna Ómarsdóttir og Elín Þórðardóttir í Stykkishólmi. Mynd: KB