Skessuhorn - 19.10.2000, Page 8
8
FIMMTUDAGUR 19. OKTOBER 2000
■.tVIIIH... ,
Ekkert fyrirtæki á sér langa lifdaga án tengsla við
önnur fyrirtæki. Reksturinn erí raun margslungið
feríi mannlegra samskipta og til þess að fyrirtæki
þitt geti vaxið og dafnað verðurþú að sýna þig og sjá
aðra, leita eftir þjónustu annarra fyrirtækja og auglýsa
það sem þú hefur fram að færa. Þetta eru frumþarfir í
viðskiptum og sá trausti grunnursem þjónusta okkar
hefur byggst á í 30 ár.
13?
Þú átt margra kosta völ varðandi þær upplýsingar eða auglýsingar sem þú vilt birta í íslenskum
fyrírtækjum, en þarfir upplýsingasamfélagsins kalla sífellt á ítaríegri upplýsingar.
F
ÍSLENSK FYRIRTÆKI
Seljavegur 2 • 101 Reykjavik
Simi S15-5S30 • Fax: 515-5588 • islenskf@islenskf.is • www.islenskf.is
Frágang-
ur lóðar
Bæjarráð tók á síðasta
fundi sínum fyrir bréf fram-
kvæmdanefndar vegna ein-
setningar grunnskólanna þar
sem óskað var eftir afstöðu
um frágang lóðar við út-
ganga Vesturgötumegin við
Brekkubæjarskóla. Bæjarráð
tók enga afstöðu í málinu og
óskaði efdr nánari upplýs-
ingum um kostnað á fram-
kvæmdinni.
SÓK
Garðyrkju-
stjóri verði
umhverfis-
stjóri
Umhverfisnefnd Akraness
hefur lagt til að starfsheiti
garðyrkjustjóra breytist í
umhverfisstjóra í kjölfar
skipulagsbreytinga með
stofhun tækni- og umhverf-
issviðs. Bæjarráð vísaði tdl-
lögunni til umfjöllunar stýri-
hóps um breytt skipurit
Akraneskaupstaðar.
SÓK
Smala-
hunda-
keppni
Það vakti nokkra athygli
þegar forseti Islands herra
Olafur Ragnar Grímsson var
hér á ferð að honum og
fylgdarliði var boðið að
skoða smalahundasýningu á
Dalsmynni í Eyja- og Mikla-
holtshreppi. Þetta atriði
vakti nokkra athygli og hafa
nú áhugamenn um smala-
hunda á Snæfellsnesi ákveð-
ið að halda fyrstu smala-
hundakeppni sýslunnar á
Kaldármelum sunnudaginn
22. okt. N.k. Keppninn
skiptist niður í byjanda-
keppni sem hefst kl. 11.00.
um morgunin en síðan hefst
aðalkeppninn eftir hádegi.
Eftir keppni verður boðið
upp á veitingar og ræða eig-
endur og dómarar skipulag
og niðurstöður keppninnar
undir borðum. Að keppn-
inni stendur Smalahunda-
deild Snæfellsnes- og
Hnappadalssýslu.
IH
pm
mémrn
- LIÐAMOT -
Miklu sterkara
og líka miklu ódýrara
Gæði í hverjum dropa
_ Akraness Apótek _
BORGARNESS iQl APÓTEK
Stykkishólms apótek
Ólafsvíkur apótek