Skessuhorn


Skessuhorn - 19.10.2000, Side 12

Skessuhorn - 19.10.2000, Side 12
12 FIMMTUDAGUR 19. OKTOBER 2000 >Penninn_______________________________ “Laun heimsins em vanþakklæti” Laun heimsins eru vanþakklæti! Eftir að öll markmiðin með stofnun Akranesveitu fyrir fimm árum hafa náðst - og gott betur - tók meiri- hluti bæjarstjórnar Akraness sig til fyrir skemmstu og umturnaði stjórnkerfi veitunnar án nokkurs samráðs við minnihlutann. Ekki aðeins er þessi róttæka breyting óskiljanleg með öllu heldur er hún í hróplegu ósamræmi við stefnuskrá meirihlutans, þar sem m.a. segir: “Að gæta jafnréttis og jafnræðis” og einnig “Að tryggja að upplýsingar berist þeim er málið varðar.” Ekki þarf að taka það fram, að meirihlutinn sá enga ástæðu til þess að fylgja þessum samþykktum sínum, heldur keyrði málið í gegn með dæmalausu offorsi. Hver er fjárhagslegur ávinningur af þess- um breytingum? Hvaða breytingar verða á starfsmannahaldi bæjarskrifstofu og hjá Akranesveitu og hvar verða þær? Þetta eru aðeins tvær af mörgum spurningum sem brunnu á vörum minnihlutans. Þeirri fyrri er enn ósvarað en þeirri síðari hefur verið svar- að með uppsögnum starfsfólks. Einhverra hluta vegna virðist það fara í taugarnar á meirihluta bæjarstjórnar Akra- ness hversu vel hefur tekist til í orkumálum Akurnesinga í kjölfar stofnunar Akranes- veitu. Oll þau markmið sem sett voru við stofnun Akranesveitu hafa náðst. Raunskuldir Akranesveitu, Andakílsárvirkj- unar og Hitaveitu Akraness og Borgarfjarð- ar hafa lækkað um 81 millj. kr. umfram áætl- anir. • A síðustu 5 árum hafa skuldir þessara fyrir- tækja lækkað um tæpar 400 milljónir. ■ Verð á heitu vatni hefur lækkað um tæplega 30%. (Tæplega 15% umfram áætlun). •A árinu 1999 var hagnaður Akranesveitu 14,8 milljónir, (eftir að greitt hafði verið 21 milljón í arð til Akranesbæjar), 22,9 milljón hjá Andakílsárvirkjun og 54,2 milljónir til Hitaveitu Akraness og Borgaríjarðar. Sam- anlagður hagnaður fyrirtækjanna þriggja á síðasta ári var því alls 92 millj. kr. Sjóðsstaða fyrirtækjanna 31. desember 1999: Akranesveita og Andakílsárvirkjun: Aætlaður sjóður 1 millj.kr. Raunstaða 45 millj.kr. Hitaveita Akraness og Borgarfjarðar: Aætlaður sjóður 19 millj. kr. Raunstaða 62 millj.kr. Framangreindar tölur sýna ótvírætt að stofnun Akranesveitu var gæfuspor fyrir neytendur. Því er tímasetning þessara róttæku breytinga óskiljanleg, ekki síst þegar haft er í huga að fyrir liggur að breytingar á lögum um raf- orkusölu og dreifikerfi eru yfirvofandi. Breytingar, sem hafa í för með sér að raf- orkusala verður sjálfstæð rekstrareining. Öll önnur sveitarfélög stefna í þveröfuga átt með orkufyrirtæki sín. Okkur sjálfstæðismönnum er þessi óyfir- vegaða og flausturslega breyting algerlega ó- skiljanleg. Skyldi skýringanna vera að leita í þeirri staðeynd að framsóknarmenn voru al- farið á móti þessari breytingu á sínum tíma? Hver sem skýring meirihlutans kann að vera mótmælum við vinnubrögðum hans og við höfum verið á móti þessum hraðsoðnu vinnubrögðum á öllum stigum málsins. Gunnar Sigurðsson Pétur Ottesen Elínbjörg Magnúsdóttir Bæjarfulltníar Sjálfstteðisflokksins á Akranesi. ^yPísnflhornið AjL rjúfmm og mönnum Samkvæmt fuglafriðunarlögum hófst veiðitími rjúpunnar hinn 15 okt. síðastliðinn og hefur það væntanlega ekki farið fram hjá mörgum Islendingum. Hafi það hinsvegar farið fram hjá einhverri rjúpu er það örugglega ekki skot- veiðimönnum að kenna heldur mun rjúpa sú bæði heyrnarlaus af elli og svo seig að högl eru hætt að vinna á henni. Flestir Islendingar kannast við kvæðið „Óhræsið“ sem einhver ágætur maður sneri lítils- háttar og nefndi „Óhræsin.“ Ein er upp tilfjalla yli húsafjœr, hrædd við kalda kalla sem komufyrst í gær. Skutu þeir og skjóta skundafast á lagið. Hlífa engu og hljóta að hitta - annað slagið. Vanir eru á veiðum vargar í fuglahjörð. Hlaupandi á heiðum hnjótandi um börð. Yfir háls og hjalla hvössum augum gjóta. I værum faðmi fjalla frelsiskenndar njóta. Rjúpa ræður að lyngi raun er létt um sinn. Hoppar marga hringi hræddur útlaginn. Gnæfa brekkur brattar, hæna heyrist kvakið. Skyldu þessir skrattar skjóta mig í bakið? Vargar í vígahuga vaga um sérhvem hól. Skotin dável duga dýrleg verðajól. Ollu fleygu farga fast ájaxlinn bíta. Ja, nú er bágt til bjarga blessuð rjúpan hvíta. Elting ill er búin, óðum skyggjafer. Margur fuglinn flúinn, fjöldi dauður er. Garparfór nú fiýta fiáðir eftir daginn. Kippur saman knýta, klöngrast heim í bæinn. Klofast ofan ása eftirfónnum gljúpum. Horskir kalir mása halda á dauðum rjúpum, sem þeir ólmir eltu, upp um fiállageima ogkastasenn íkcltu rm: eima. . ...... Gæðakonur góðar grípa fegnar við., Rismikiar óg rjóðar rigéá um eldhúsið. Rafinagnssnérlum snúa, snúast kafnar ónnum og tröllasögum trúa hjá tí-úum eiginmönnum. Samkvæmt upplýsingum skot- veiðimanna og raunar ýmissa ann- arra sportista stunda þeir íþrótt sína fyrst og fremst til þess að komast í snertingu við náttúruna en veiðin sjálf er algjört aukaatriði að manni skilst og gæti einhverjum náttúruunnandanum hafa orðið eftirfarandi á munni: Náttúra þessa nakta lands er náttúrum allra landafegri. En fiáttúrlega er náttúra manns náttúrlegri og eðlilegri. í svipuðum dúr er og þessi yfir- lýsing: Fjölíreytt nesti og nýja fallega skó með náttúru landsins skoðarfólkið hér. Ég á hinsvegar heldur betur en nóg með bamfarir náttúrunnar í sjálfum ;v:vv ; ' mér. „Fjarlægðin gerir fjöllin blá og ménnina mikla”, var einu sinni sagt enda hefur sá sannleikur verið mörgum hugleikinn: Mörg erufiöllin svipfríð að sjá sé maður nógufiærri þeim, en verða svo andskoti eitthvað grá ef maður kemur of nærri þeim. Ólafur Sigfússon frá Forsæludal hafði þetta að segja um orðatiltæk- ið að „berja augum“ þetta og hitt: Engan lengur á égfrið, ofbauð mínum taugum, böls í móði að böðlast við að berja landið augivtn. Ekki neittþú undrast skalt ef þú skyldir frétta, að síðan liggi landið allt lemstrað eftir þetta. Öðru hvoru kemur það fyrir alla sem dýrahald stunda að aflífa þarf skepnu með einhverjum hætti og einhverra hluta vegna. Flestum sem lenda í slíkum aðstæðum fmnst sjálfsagt og eðlilegt að aflíf- un fari fram á eins snöggan og sársaukalítinn hátt og mögulegt er en einhverjum varð þó að orði eft- ir að hafa heyrt prest nokkurn lýsa erfiði við veiðiskap: Það má segja þetta strax, þarflaust virðist gaman, kristnum manni að kvelja lax klukkustundum saman. Að endingu skulum við velta að- eins fyrir okkur snilldarvísu As- geirs Jakobssonar: Mönnum erþað mikil pína að munaflest sem örðugt var, lofaðu guðfyrir gleymsku þína sem gefin þér til líknar var. Með þökk fyrir lesturinn, Dagbjartur Dagbjartsson Refsstöðum, 320 Reykholt S 435 1367. Svangur í Frakklandi Bergur Garðarsson trillukarl af Akranesi rær trillu frá Grundarfirði. Bergur er ann- álaður jaxl og mikill matmaður. Draumur allra þeirra sem sem dálæti hafa á mat og matargerð er auðvitað að fara til Frakk- lands og dvelja þar um skeið meðal hinna heimsfrægu kokka. Bergur lét drauminn ræstast og brá sér til Frakklands og dvaldi þar um skeið við hin annáluðu veisluborð. Eftir heimkomuna hringdi Bergur í einn félaga sinn og lýsti dvöl- inni í Frakklandi svona. “Ekki gef ég nú mikið fyrir þessa frönsku línu félagi, ég þurfri alltaf að fá mér T-bone-steik eftír matin”. 1H Hættulegir farsímar Full ástæða er tíl að vara GSM símanotendur við því að umgangast sfma sína af kæru- leysi. Þessu fékk blaðamaður Skessuhomsins á Snæfellsnesi að kynnast í síðustu viku. Þannig var að hann átti erindi við konu eina og áleit best að ljúka því af er hann sá hana á götu og tók hana því taii. Konan brást elskulega við er- indínu og bauð blaðamnninum heim. An þess að blaðamaður- inn tæki efdr hefur GSM sím- inn víst rekist í eitthvað og hringt í sfðasta valið númer. Um tíu mínútum síðar hringdi heimilissími húsfreyjunnar. HúsfJeyjann svarði í síman og var þá spurt hvort blaðamaður- ínn væri staddur þar? Hún játtí því. “Eg var lengi að átta mig á röddinni þinni”. Var sagt hinu megin á línunni “. En vilm ekki benda manninum mínum á að slökkva á símanum sínum. IH Hrein mey Þrjátíu og eins árs gömul kona var í skoðun hjá læknin- um, Læknirinn: Þú ert með giftíngarhring á hendinni en ert hrein mey . Konan: já sjáðu til og ég er þrí giff. Læknirinn; ertu þrí gift og enn hrein mey? Konan; sko fyrsri maðurinn minn var fyrrverandi fangi og vildi vera að aftan. Annar mað- urinn minn var tannlæknir og vildi hafa það munnlegt. Þriðji maðurinn minn er iðnaðar- maður og ætlar að redda þessu í næstu viku!

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.