Skessuhorn - 19.10.2000, Síða 17
FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2000
17
Herra Vesturland
Keppnin um titilinn Herra dag. Keppendur í ár eru átta Vesturland 2000 fer fram á talsins og koma þeir víðsvegar að skemmtistaðnum Breiðinni á af Vesturlandi. Skessuhorn Akranesi næstkomandi laugar- kynnir hér kappana til leiks.
n *?
Oskar Róbertsson, 21 ársfrá Ólafsvík Óðinn Agústsson, 26 árafrá Borgarnesi
H
Sigfús Steinarsson, 20 árafrá Borgamesi Leifur Jónsson, 18 árafrá Akranesi
■ n i!
Óskar Páll Hilmarsson, 18 árafrá Búðardal Sigursteinn Halldórsson, 20 árafrá Hellissandi
Einar Karel Sigurðsson, 21 árafrá Akranesi Fannar Guðmundsson, 24 árafrá Grundarfirði
Norðurál kynnir
stækkunaráform
Fjórfaldar afkastagetuna á fjórum árum
Norðurál kynnti í liðinni viku á-
form um stækkun verksmiðjunn-
ar á Grundartanga. Þar er verk-
efhum skipt upp í nokkra áfanga
eins og rakið er hér í töflu.
Fyrsta áfanga lauk með því að
full afköst náðust í mars á sl. ári
með afkastagetu upp á 60 þús-
und tonn af áli. Gert er ráð fyrir
að óbreyttu að öðrum áfanga
Ijúki með því að 90 þúsund
tonna framleiðslugeta verði í
verksmiðjunni að ári liðnu.
Hugmyndir Norðurálsmanna
eru að byggður vérði nýr kerskáli í
framhaldi af 2. áfanga. Framleiðslu-
geta vegna áfanga 3 er áætluð 150
þúsund tonn og samtals verði fram-
leiðslugeta verksmiðjunnar eftir þá
stækkun komin í 240 þúsund tonn í
árslok árið 2004. Aætlaður fjöldi
starfsmanna eftir 3. áfanga yrði 500
til 650 starfsmenn. Ljóst er að hér
er um gríðarlega umsvifamikil á-
form að ræða, ef af verða. Forsvars-
menn Norðuráls kynntu iðnaðar-
ráðherra og fleiri fulltrúum stjórn-
sýslunnar hin nýju áform á fundi sl.
þriðjudag. Ljóst er að hugmyndir
Norðurálsmanna mæta andstöðu
umhverfisverndarsinna og jafnvel
þeirra sem reikna með að næsta
uppbygging í stóriðju verði á Aust-
urlandi, eða í væntanlegu Norð-
austurkjördæmi. Frá atvinnulegu
tilliti hlýtur slík stækkun stóriðju á
Grundartanga að hafa víðtæk áhrif
á búsetu og atvinnuhætti í ná-
grannasveitarfélögum. Sumir segja
neikvæð áhrif en þó eru fleiri sem
telja jákvæð áhrif stóriðju af þessari
stærðargráðu vega upp neikvæð á-
hrif.
En hver eru hin mælanlegu áhrif
í dag á nánasta umhverfi, íbúa-
fjölda, laun og aðra þætti? Til fróð-
leiks birtir Skessuhorn hér upplýs-
ingar frá Byggðastofnun um meðal-
laun eftir atvinnugreinum í sveitar-
félögunum Akranesi, Borgarbyggð
og nágrannahreppunum sunnan
Skarðsheiðar auk íbúafjölda í þess-
um sveitarfélögum. Rétt er að
ýtreka að hér er um að ræða upplýs-
ingar sem orsakast af mörgum sam-
verkandi þáttum, ekki síst atvinnu-
ástandi í landinu í heild, og er því
ekki verið að alhæfa um hvaða hlut
uppbygging stóriðju á Grundar-
tanga hefur á þessar tölur umfram
aðrar breytur.
MM
Ibúafjöldaþróun í sveitarfélögunum Akranesi, Borgarbyggð og nágrannasveitum
undanfarinn áratug. Heimild: Byggðastofiiuti.
Meðaltekjur (íþúsundum) eftir atvinnugreinum árið 1997. Rétt er að taka það fram að
það ár var framleiðsla ekki hafm í Norðuráli, en framkvæmdir stóðuyfir við byggingu
fyrsta áfanga. Heimild: Byggðastofimn.
1. áfangi
Bygging hófst mars 1997
Starfsemi hófst júní 1998, full afköst mars 1999
Fjárfesting 16 milljarðar króna
170 starfsmenn
Framleiðir 60.000 tonn af 99,8-99,9% hágæðaáli
Rekið með hagnaði frá maí 1999, sterk fjárhagsstaða
2. áfangi
Bygging hófst febrúar 2000
Starfsemi hefst júní 2001, full afköst sept 2001
Fjárfesting um 7 milljarðar króna
220 starfsmenn
Framleiðsla verður 90.000 tonn á ári
Góðar rekstrarhorfur
3. áfangi
Nýr kerskáli, upphafleg ffamleiðslugeta a.m.k 150.000 tonn á ári.
Heildarframleiðsla 240.000 tonn af áli.
Núverandi starfsleyfi, mat á umhverfisáhrifum og fjárfestingar-
samningur miðað við 180.000 tonn. Þriðji áfangi
30% aukning umffam upphafleg áform.
Viðbótarfjárfesting upp á 45 milljarða.
Starfsemi hefjist 1. september 2004.
500-650 starfsmenn.